Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 22
Veitingahúsið Sólblómið er í
Hage-hverfinu í Gautaborg
sem er þekkt fyrir að
hýsa mörg veitingahús
og kaffihús.
Vasinn er lista-
verk. Meðal ann-
ars er notað 24
karata gull til að
mála á hann. Hann
er tveir metrar á
hæð og til sölu
ásamt öðrum alveg
eins. Saman kosta
þeir 1.300.000 ís-
lenskar krónur.
22 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
Eftir jólin eru flestir á því aðauka hollustuna í mat-aræðinu, draga úr neysluá feitu kjöti og sætindum
frá fyrra mánuði og auka neyslu á
grænmeti og fiski. Bragðgóða græn-
metisrétti þarf ekki að vera erfitt að
búa til og jafnvel má leita langt yfir
skammt eftir uppskriftum, t.d. til
Gautaborgar.
Hreinræktaðir grænmetisveitinga-
staðir eru ekki margir í Gautaborg en
grænmetisrétti má þó finna á flestum
veitingastöðum. Einn gamall og gró-
inn grænmetisveitingastaður er
Solrosen eða Sólblómið í Haga-
hverfinu, gömlu verkamannahverfi
sem orðið er að eftirsóttu íbúðahverfi
þar sem kaffihús og litlar búðir eru á
hverju strái. Á hliðargötu út frá aðal-
götunni Haga Nygata er veitinga-
staðurinn Solrosen sem lætur ekki
mikið yfir sér en er vel sóttur, sér-
staklega í hádeginu.
Einfaldur matur
Fjórir félagar, Lennart Levin,
Roger Bellstrand og bræðurnir And-
ers og Martin Carlsson, hafa rekið
staðinn í rúman aldarfjórðung og
leggja ekki mikið upp úr breytingum
eða nýjungum. Það hefur líklega skil-
að þeim fastagestum sem halda
staðnum uppi. Matseðillinn er ein-
faldur og það er ódýrt að fá sér hollan
hádegismat eða kvöldmat ef því er að
skipta, þ.e. um 600 krónur fyrir einn
rétt og þá fylgir salatbar og vatn
bragðbætt með gúrku eða sítrónu.
Alltaf er hægt að velja á milli tveggja
rétta, annar getur innihaldið egg eða
mjólkurvörur (vegetarian) en hinn er
einungis úr grænmeti (vegan). Græn-
metislasagna er þar að auki alltaf á
boðstólum og salatbarinn.
Matreiðslan er ekki framandi eða
framúrstefnuleg heldur núorðið frek-
ar hefðbundin þótt hún hafi ekki verið
það þegar þeir félagar hófu rekst-
urinn fyrir svo löngu með því
takmarkaða framboði af græn-
meti sem þá var. Þeir voru þá
allir grænmetisætur og byrjuðu
að þreifa sig áfram í slíkri mat-
reiðslu með góðum árangri. „Þetta
gekk mjög vel í byrjun og staðurinn
varð vinsæll en síðan
hafa verið miklar sveifl-
ur,“ segir Lennart þar
sem hann situr á bar-
stól á Solrosen áður
en kvöldgestirnir
byrja að tínast inn.
Aldrei farið eftir
uppskrift
Matreiðslan hefur
þróast hægt og rólega
og þeir félagar hafa
prófað sig áfram með fyr-
irkomulagið á veit-
ingastaðnum. Á tímabili var
veitingastaðurinn frekar fínn, með
dúkuð borð og matseðil með tólf mis-
munandi aðalréttum en það gekk
ekki upp til lengdar. Núverandi fyr-
irkomulag þar sem ekki
er þjónað til borðs og
verðinu haldið niðri hefur
gefist betur og Lennart
segir að þeir muni halda
sig við það. „Ég hef aldrei
á ævi minni farið eftir upp-
skrift,“ segir Lennart
spurður um hvaðan upp-
skriftirnar koma. „Við lesum
okkur til og prófum hitt og þetta.“
Allir fjórir eru kokkar og skiptast á
að elda en Lennart geymir sínar upp-
skriftir í kollinum. Uppskriftirnar eru
ekki yfirfarnar af næringarfræðingi
heldur hafa þeir félagar hollustuna í
MATARKISTAN
Sesamborgarar á Sólblóminu
Matseðillinn er einfaldur en alltaf er
boðið upp á nokkra grænmetisrétti.
Lennart Levin er einn af fjórum bræðrum sem reka grænmetisstaðinn.
Eftir Steingerði Ólafsdóttur
steingerdur@mbl.is
Morgunblaðið/Steingerður
Áritunin sem sést framan á verkinu
er þekkt kínverskt ljóð. Það segir frá
manni sem býr í litlum dal og er að
fara að heiman síðla vors og myndin
er byggð á ljóðinu. Þessi listmunur
er unninn í 72 þrepum og brenndur
við 1.380° hita. Myndin er í fjórum
lögum og brenna þarf upp á nýtt eft-
ir að hvert lag er unnið. Hálft ár tek-
ur að búa kerið til.
Morgunblaðið/Golli
Fulltrúar frá framleiðendum komu hingað til lands til að fylgja sýningunni eftir.
Morgunblaðið/Golli
Eins og sjá má er mikið úrval postulíns á sýningunni. Matthías benti sérstaklega á
hestinn sem sést fyrir miðri mynd og sagði að Kínverjar hefðu gert slíka muni frá
því áður en Ísland var numið.