Morgunblaðið - 13.01.2006, Qupperneq 23
fyrirrúmi og byggja á langri reynslu.
„Á þessum næstum þrjátíu árum
höfum við þurft að setja okkur inn í
umræðuna um hollustu og heilbrigði.
Við vitum hvaða vítamín eru í hvaða
grænmeti og hvaða fæðutegundir eru
til dæmis próteinríkar. Og við reyn-
um að blanda saman og búa til rétti út
frá þeirri þekkingu og getum því
svarað spurningum gesta um hollustu
mismunandi rétta. Við reynum til
dæmis að nota sem mest fræ og korn
með hýði því þar er mest af vítamín-
unum. Við forðumst allan pakkamat
og gerum yfirleitt allt frá grunni.“
Kaffi- og veitingahúsahverfi
Lennart segist ekki finna fyrir fjölg-
un gesta sérstaklega eftir jólin, fasta-
gestirnir koma hvenær sem er. Haga-
hverfið og nágrenni státar af flestum
kaffi- og veitingastöðum á ferkíló-
metra í N-Evrópu, að sögn Lennarts
og það þarf ekki að koma á óvart. Ís-
lendingar geta skoðað svæðið með eig-
in augum og t.d. prófað veitingahús í
Gautaborg frá og með næsta vori þeg-
ar beint flug hefst á milli Íslands og
Gautaborgar, annarrar stærstu borg-
ar Svíþjóðar.
Lennart lætur til leiðast og gefur
nokkrar uppskriftir að vinsælum rétt-
um á Solrosen. Grænmetislasagna er
alltaf á boðstólum og ýmiss konar buff
og borgarar eru einnig vinsæl.
Grænmetislasagna
2 dl grænar linsubaunir
1 laukur
1 gulrót
4–5 msk. tómatkraftur
1 dós niðursoðnir tómatar
2–3 hvítlauksrif oregano
svartur pipar
örlítill sykur
Sjóðið linsurnar í 15 mínútur og
hellið vatninu af. Saxið laukinn og ríf-
ið gulrótina gróft og steikið í olíu á
pönnu. Bætið tómatkrafti, niður-
soðnum tómötum, hvítlauk, sykri og
kryddi út á pönnuna og látið krauma
og sjóða niður.
Blandið soðnum linsum út í tóm-
atsósuna.
Bechamel-ostasósa
2 dl olía
1 dl hveiti
salt
½ l mjólk
rifinn ostur að eigin vali
Hitið olíuna í potti og setjið hveitið
út í. Látið krauma. Bætið salti út í og
hellið sjóðandi mjólk þar næst í. Látið
sjóða og bætið síðan rifnum osti út í og
látið bráðna saman við. Setjið þunnt
lag af ostasósu í botninn á eldföstu
móti. Síðan lasagnablöð, þá linsumauk-
ið og svo koll af kolli, tvisvar til þrisvar
sinnum. Stráið rifnum osti efst og bak-
ið í ofni í 30–40 mínútur við 200 gráður.
Sesamborgarar
2 dl hýðishrísgrjón
2 dl sesamfræ með hýði
fínhakkaður laukur eftir smekk
salt
grænmetiskraftur, brauðmylsna
sojasósa eða tómatmauk
Hrísgrjónin soðin skv. leiðbein-
ingum á pakka. Sesamfræin ristuð á
pönnu eða ofnplötu og síðan hökkuð í
matvinnsluvél. Fræjum og grjónum
blandað saman. Laukurinn steiktur í
olíu á pönnu. Hrærið allt saman, t.d. í
hrærivél eða matvinnsluvél, ásamt
örlitlu salti og uppleystum grænmet-
iskrafti í litlu vatni. Passið að setja
ekki of mikinn vökva en hægt er að
setja brauðmylsnu á móti. Mótið í
borgara og steikið í heitri olíu á
pönnu í nokkrar mínútur á hvorri
hlið. Berið fram t.d. eins og hamborg-
ara með grænmeti í brauði.
Hnetuborgarar
2 dl hýðishrísgrjón
200 g salthnetur
sojasósa
brauðmylsna
laukur eftir smekk
Sjóðið hrísgrjónin. Setjið hnet-
urnar í matvinnsluvél og fínhakkið.
Saxið laukinn smátt og steikið eða
bætið hráum út í, allt eftir smekk.
Hrærið allt saman, t.d. í hrærivél eða
matvinnsluvél. Mótið í bollur, buff
eða borgara og steikið í heitri olíu.
Berið t.d. fram eins og hamborgara.
Einfalt kúskússalat
½ l kúskús
5–6 cl olía
4 dl grænmetissoð
Blandið saman hráu kúskús og olíu
og látið liggja í smástund. Hellið
grænmetissoðinu yfir og látið kólna.
Til þess að kúskús verði gott í salat er
fínt ráð að láta það liggja í olíu smá-
stund og sjóða það í vökva sem er ör-
lítið minni að magni en kúskúsið
sjálft. Bætið niðurskornu grænmeti
eftir smekk út í, t.d. gulrótum, kúrbít,
lauk, papriku o.s.frv.
Veitingahúsið Solrosen,
Kaponjärgatan 4A, Gautaborg,
Svíþjóð.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 23
DAGLEGT LÍF Í JANÚAR
„ÞEIR voru mjög áfram um
að koma hingað,“ segir
Matthías Björnsson sem
skipulagði ásamt Nirði Snæ-
hólm komu hóps Kínverja
hingað til lands með stærstu
sýningu á postulínsmunum
sem hér hefur verið haldin.
„Það var áhugavert og
skemmtilegt að prófa
þetta,“ segir Matthías enn-
fremur. „Við létum verða af
þessu þó að við vissum ekki
alveg hvað kæmi út úr
gámnum, hvort það yrðu
kannski bara tesett!“
Níu framleiðendur frá
postulínsbænum Jing De
Zhen standa sameiginlega
að sýningunni og eru
fulltrúar frá þeim á landinu
til að fylgja sýningunni eft-
ir. Sýningin stendur út jan-
úar.
Þeir sem hafa vit á
postulíni hafa sagt Matthíasi
að þetta séu mjög fín og
glæsileg verk. Þarna séu
verk sem mjög erfitt sé að
gera og krefjist mikillar
hæfni.
Látum myndirnar tala
sínu máli.
Postulín
búið til
áður en
Ísland
var numið
LISTMUNIR
sia@mbl.is