Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 24
24 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gabríela Friðriksdóttir var fulltrúi Ís-lands á Feneyjatvíæringnum í fyrra,með verkið Versations/Tetralógía.Verkið hefur nú verið sett upp í
Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi, þar sem
almenningi gefst kostur á að skoða það frá og
með morgundeginum – þó í ögn breyttri mynd
að sögn Gabríelu. „Það er auðvitað mjög mikill
munur á þessum tveimur stöðum, þannig að
konseptið snýst svolítið við, að minnsta kosti
arkitektúrlega séð. Við breyttum því ýmsu;
verkin eru þau sömu, en strúktúrinn er allt
annar,“ segir Gabríela.
Gengið inn í hugmyndaheim
Verkið er sett upp í sal A í safninu; stóra
salnum á hægri hönd þegar gengið er inn, með
sínum hrásteypusúlum sem Gabríela segist
hafa orðið hrifin af. „Í Feneyjum var þessi
ótrúlega fagri og gróðursæli garður, og þar
gengum við út frá því að vera með hálfgerðan
natúralisma, í gerviframhlið sem við gerðum.
Hérna erum við með brot af því, en allir út-
veggirnir eru hráir eins og salurinn. Á sínum
tíma kölluðum við þetta gerviframhlið, þannig
að nú má segja að úthliðarnar séu sannar en
innveggirnir gervi.“
Gabríela segir að hugsunin sé sú að áhorf-
andinn gangi inn í hugmyndaheim verksins.
Þannig taki hljóðið fyrst á móti honum, en síð-
an lykt af heyi og öðrum náttúrulegum efnum.
„Hann byrjar að upplifa verkið með eyranu, og
síðan með nefinu, því hér verður hljóð sem tæl-
ir fólk inn,“segir hún, en notast verður við
sömu hátalara og héngu fyrir utan skálann í
Feneyjum. „Síðan tekur innsetningin við, sem
samanstendur af málverkum, teikningum,
myndböndum og skúlptúrum. Áhorfandinn
byrjar því ekki á augunum fyrr en hann er
kominn upp að strúktúrnum, sem er verkið
sjálft.“
Tilfinningin í efninu er það sem Gabríela
segist hafa reynt að halda sig við, fremur en
niðurnjörvaða táknfræði. Þannig geti áhorf-
andinn til dæmis upplifað skúlptúrana frekar
sem óljóst form en „strangan mónúmental-
isma“ úr dauðu efni. „Maður er að reyna að láta
þetta verk verða lifandi í öllu sínu veldi, þótt
efnistökin séu ólík og misjafnt hvernig maður
vinnur,“ segir hún og útskýrir nánar: „Fyrir
mér er miklu meira af versationum í gangi en
conversationum. Það ómar rödd í huganum á
manni stanslaust, og maður talar við aðra og
það er ekki endilega meðtekið á þeirri stundu
sem talað er heldur svífur það um og klingir
kannski saman við eitthvað seinna, svolítið eins
og hljóðin í umhverfinu sem oft mynda athygl-
isverða rapsódíu. Þannig að yfirtitill sýning-
arinnar, Versations, virkar kannski eins og
hringur utan um Tetralógíuna, það er að segja
myndbandsverkin fjögur, skúlptúrana og
málverkin, ásamt ýmislegu andlegu og lík-
amlegu sem ég hef fundið héðan og þaðan og
sett saman.“
Gabríela segist hafa komist að ákveðinni nið-
urstöðu við gerð þessa verks; að ekki sé nauð-
synlegt að einbeita sér að einhverju einu formi
eða hugsun, líkt og oft sé krafan. „Ég leyfi mér
að nota hvaða efni sem er á hvaða hátt sem er.
Fólki finnst ég oft alger krulluheili, sem segi
fyrst eitt og svo annað. En ég get ekki hugsað
mér annað betra en að skipta oft um skoðun og
prófa allt mögulegt. Mér finnst líka oft lær-
dómsríkt og gott að vera í þversögn við sjálfa
mig enda er maðurinn af náttúrunnar hendi
gangandi þversögn frá upphafi.“
Aldrei unnið með svo stórum hópi
En er mikilvægt fyrir Gabríelu að sýna verk-
ið hér heima á Íslandi?
„Í raun er þetta verk Íslendinga, þar sem ég
var kjörin til að vera þátttakandi fyrir Íslands
hönd. Þegar maður fær boð frá Listasafni
Reykjavíkur um að setja verkið upp, segir
maður já, náttúrlega. Það er mjög skemmti-
legt,“ svarar hún og bætir við að hún hafi tekið
það mjög alvarlega að vera valin fyrir Íslands
hönd á Tvíæringinn. „Ég reyndi að gera mitt
allra besta svo við kæmum vel út.“
Hún segir það hafa verið ótrúlega skemmti-
lega lífsreynslu að taka þátt í Feneyjatvíær-
ingnum, og gaman að vinna með öllu því frá-
bæra fólki sem kom að gerð verksins. „Ég hafði
aldrei unnið með svona stórum og breiðum
hópi fólks áður. Að verkinu komu meðal annars
kvikmyndagerðarmenn, rithöfundar, ljóðskáld,
hönnuðir, myndlistarmenn, arkitektar, tónlist-
arfólk, smiðir, fjölskyldan og vinir, ljósmynd-
arar, dansarar og svo framvegis … Maður fékk
tækifæri til að kynnast ýmsum vinnuaðferðum
og komast í tæri við alls konar sálir með ýmsar
hugmyndir. Maður græddi hundraðfalt,“ segir
hún að síðustu.
Myndlist | Versations/Tetralógía Gabríelu Friðriksdóttur, Feneyjatvíæringsverkið, í Hafnarhúsinu
Lærdómsríkt og gott að vera
í þversögn við sjálfa mig
Gabríela Friðriksdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Frá sýningu Gabríelu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Versations/Tetralógía verður opnuð í Lista-
safni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag kl. 17.
Hún stendur til 26. febrúar.
STÓR og sterklituð andlit fylla nú
hinn veglega B-sal Listasafns
Reykjavíkur. Um er að ræða mál-
verk Kristínar Eyfells heitinnar,
sem bjó lengi og starfaði í Banda-
ríkjunum ásamt manni sínum, Jó-
hanni Eyfells myndhöggvara, allt
þar til hún lést árið 2002.
Sýningarstjóri sýningarinnar,
sem opnuð verður í kvöld, er Hann-
es Lárusson.
„Kristín hefur kannski ekki leik-
ið stór hlutverk í íslenskri mynd-
list, enda ekki verið búsett á land-
inu. Engu að síður hefur hún vissa
sérstöðu sem listamaður. Annars
vegar kemur hún inn í lífrænu af-
straksjónina með skúlptúrum sín-
um í kring um 1960, og var þá sam-
stiga Jóhanni Eyfells eiginmanni
sínum. Fáir hafa fetað í þeirra fót-
spor síðan, nema ef vera skyldi á
allra síðustu árum; myndlist-
armenn sem nú eru milli þrítugs og
fertugs. Til dæmis sér maður viss-
an samhljóm í verkum Ásmundar
Ásmundssonar og jafnvel Gabríelu
Friðriksdóttur líka, hvað snertir
þessa lífrænu nálgun,“ segir Hann-
es í samtali við Morgunblaðið, en
sýning Gabríelu, Versations/
Tetralógía, verður einmitt líka opn-
uð í safninu í kvöld.
„Hins vegar hefur Kristín sér-
stöðu í þessum portrett-myndum,
sem eru á sýningunni nú, og þá
ekki bara á Íslandi heldur almennt.
Þetta eru verk sem skera sig mjög
úr og er erfitt að flokka. Í íslensku
samhengi held ég að enginn lista-
maður hafi tekið þetta viðfangsefni;
andlitsmyndina, eins langt og hún
hefur gert. Það má segja að hún
brjóti allar hefðir í portrett-
myndagerð í verkum sínum.“
Stór og gróf málverk
Andlitsmyndum Kristínar hefur
verið skipt í tvo flokka og eru verk
úr þeim báðum á sýningunni í
Listasafni Reykjavíkur nú. Annars
vegar er flokkurinn Óþekktar kon-
ur (Ladies Anonymus), um 50
myndir gerðar á árunum 1971–
1978, flestar um 125 cm á hæð.
Konurnar á myndunum eru fyr-
irsætur og aðrar óþekktar konur,
sem Kristín sá í blöðum og tímarit-
um. Hins vegar er flokkurinn Fræg
andlit (Famous Faces), sem er
rúmlega 100 myndir gerðar á ár-
unum 1976–1996. Stærstu verkin í
þeim hópi eru tæpir tveir metrar á
hæð, en flest eru þau um 150 cm
há. Á myndunum gefur að líta –
eins og nafnið gefur til kynna –
þekkt andlit; stjórnmálamenn, leik-
ara og skemmikrafta.
„Verk Kristínar eru mjög stór,
og gróf. Þau hafa það yfirbragð að
þau séu gerð án mikils undirbún-
ings, en við nánari skoðun byggist
flest í myndunum á listrænu vali.
Það kemur fram bæði í litameðferð
og hvernig hún sker myndina,“ út-
skýrir Hannes en Kristín, sem var
lærður ljósmyndari, málaði aldrei
lifandi fyrirmyndir heldur alltaf
eftir mynd. „Að sumu leyti skrum-
skælir hún fyrirmyndina, en aldrei
þó þannig að viðfangsefnið fari yfir
strikið. Hún fer að mörkunum, en
aldrei þannig að úr verði óskapnað-
ur. Persónuleikinn og fyrirmyndin
rífur sig alltaf sterkt í gegn, þó
nálgunin sé mjög óvanaleg.“
Svona ætla ég aldrei að gera
Hannes hefur ritað grein um
sýninguna sem ber heitið Hávaði
og þögn. Í henni segir hann meðal
annars: „Það er ekki laust við að al-
vöru listamenn og gagnrýnendur
hafi sýnt verkum hennar yfirlæti
og brosað góðlátlega að gaura-
gangnum á striganum og hugsað:
Svona ætla ég aldrei að gera …“
Var Kristín góður myndlistar-
maður, að mati Hannesar?
„Ekki í þessum hefðbundna
skilningi. Hún hafði í raun aldrei
neina þörf til að vera hluti af ein-
hverri breiðfylkingu listamanna.
Hún var, að ég held meðvitað, á
jaðrinum í þessum stóra hópi lista-
manna. Kjarninn í honum er sam-
komulag milli listamanna og áhorf-
enda um hvað sé viðurkennt og
gott og gilt á hverjum tíma. Hún
hafði enga þörf fyrir að vera hluti
af hóp – hún málaði af innri þörf
eingöngu. Hún hafði heldur engan
markhóp; málaði hvorki fyrir vænt-
anlega kaupendur eða þá sem pönt-
uðu af henni verk, heldur valdi sín
viðfangsefni algjörlega á eigin for-
sendum.“
Verk Kristínar er að finna víða
um heim. Þannig eru portrett
hennar af nokkrum Bandaríkja-
forsetum; Bush, Clinton og Carter í
stofnunum kenndum við þá, og
sömu sögu er að segja um verk
hennar af Anwar Sadat Egypta-
landsforseta. Auk þess eru nokkur
verk eftir hana í einkasöfnum, þar
á meðal hér á landi. Verk Kristínar
hafa þó ekki verið sýnd hér á landi
síðan árið 1984, þegar hún tók þátt
í samsýningu, og því er sýningin nú
fyrsta veglega kynningin á verkum
hennar hérlendis.
Hannes segist telja að því yngra
sem fólk er, því betur kunni það að
meta myndir Kristínar. „Það er
orðið vanara þessu mikla áreiti sem
er í myndum hennar,“ segir hann
og segir eldra fólk hafa oft og tíð-
um orðið skelkað við myndir henn-
ar og ekki vitað hvernig það ætti að
taka þeim. „Þær falla betur inn í
tíðarandann núna; bæði viðfangs-
efnin og tæknin, heldur en fyrir 20
árum. Þessar myndir hafa elst
mjög vel.“
Hann mælir með því að fólk láti
ekki yfirbragð verkanna villa sér
sýn; þau séu flóknari og marg-
brotnari en virðist í fyrstu. „Það er
auðvelt að hafna þeim – þau gefa á
sér höggstað að mörgu leyti. En
þau standast nánari skoðun frá
flestum sjónarmiðum, hvort heldur
er útfrá tækni eða inntaki. Menn
verða að gæta sín á því að falla
ekki í þá gryfju að þykjast vita bet-
ur – þó verkin gefi færi á því. Það
kemur í ljós að allt í myndunum er
byggt á meðvituðu listrænu vali.“
Myndlist | Sýning á verkum Kristínar Eyfells opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi
Fræg andlit og
óþekktar konur
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Sýning á verkum Kristínar Eyfells
verður opnuð í Listasafni Reykja-
víkur – Hafnarhúsi í dag kl. 17. Hún
stendur til 26. febrúar.
www.eyfellsandeyfells.com
Morgunblaðið/Ómar
„Verk Kristínar eru mjög stór, og gróf. Þau hafa það yfirbragð að þau séu
gerð án mikils undirbúnings, en við nánari skoðun byggist flest í mynd-
unum á listrænu vali. Það kemur fram bæði í litameðferð og hvernig hún
sker myndina,“ segir Hannes Lárusson sýningarstjóri.