Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 27
UMRÆÐAN
ÚTSALA
Á ÖLLUM
VÖRUM!
30 - 60% AFSLÁTTUR
TVEIR DAGAR EFTIR!
Allar verslanir opnar 10 -14 á laugardag í tilefni útsölunnar!
bilanaust.is
535 9000 Bíldshöfði 9 Reykjavík 535 9000
Smiðjuvegur 4a Kópavogur 535-9100
Dalshrauni 17 Hafnarfjörður 555-4800
Hafnargata 90 Keflavík 421-7510
Álaugarvegi 2 Höfn 478-1490
Lyngási 13 Egilsstaðir 471-1244
Dalsbraut 1 Akureyri 461-5522
Hrísmýri 7 Selfoss 482-4200
21
87
/
T
ak
tik
1
1.
1.
06
DAGBLAÐIÐ DV iðkar sam-
félagsklám sem á fátt skylt við
blaðamennsku. Klámið er matreitt
af einstaklingum sem virða að vett-
ugi skráðar og óskráðar siðareglur
blaðamanna. Hráefnið er gjarnan
fólk sem stendur höllum fæti í líf-
inu eða hefur orðið fyrir áfalli.
Algeng vinnuaðferð blaðamanna
DV er að hringja í fórnarlambið og
byrja að spjalla vinalega um þá
reynslu sem viðkomandi hefur orð-
ið fyrir. Oft tekst að mýkja fórn-
arlambið upp sem þykir vænt um
skilningsríka afstöðu blaðamanns-
ins. Þegar búið er að ná trúnaði er
eftirleikurinn auðveldur. Fórn-
arlambið er í oft í andlegu ójafn-
vægi og ræðir opinskátt um mál-
efni sem það undir öðrum
kringumstæðum myndi ekki ræða
við ókunnuga. Nærri má geta
hvort venjulegt fólk sem orðið hef-
ur fyrir ástvinamissi, lent í slysi
eða verið sakað um refsivert at-
hæfi geti borið hönd fyrir höfuð
sér þegar DV-úlfur í sauðargæru
læðist að því með saklausu smjaðri
í þeim tilgangi að veiða upp úr því
vanhugsuð orð.
Fæstir blaðamenn láta hafa sig í
níðingsverk af þessu tagi, heil-
brigðir einstaklingar láta mann-
eskju í sárum í friði. Í siðareglum
norskra blaðamanna segir að
blaðamenn skuli ekki misnota til-
finningar fólks, vangá eða dóm-
greindarbrest. Norskir blaðamenn
eru minntir á varnarleysi fólks
sem orðið hefur fyrir áfalli eða er í
sorg. Hér á Íslandi þrífst DV á því
að misnota fólk sem lent hefur í
ógöngum.
Önnur aðferð blaðamanna DV er
að hringja í viðmælendur, kynna
sig með nafni en ekki starfsheiti og
segja í myndugum tón að þeir séu
að ,,rannsaka“ mál. Markmiðið er
að villa um fyrir fólki og gefa til
kynna að rannsóknaraðilinn sé
eitthvað annað og meira en réttur
og sléttur blaðamaður. Fólk hefur
þurft að spyrja nánar út í hver
rannsakandinn sé og hvar hann
starfi til að átta sig á hvað sé á
ferðinni. Aðrir láta blekkjast og
veita svör um viðkvæm mál án
þess að gera sér
ljóst hvert stefnir.
Afleiðingin er eymd
og ærumissir.
,,Fréttir“ DV eru
ekki skrifaðar til að
útskýra og upplýsa
heldur til að af-
skræma, úthúða og
meiða. Ritstjóri DV
hefur sent blaða-
mönnum sínum
tölvupóst þar sem
hann krefst þess að
fá fleiri ,,fokking“
fréttir af taginu ,,Dúkkuriðill í
Breiðholti.“
Þegar smjaður og blekkingar
duga ekki til hafa blaðamenn DV
haft í hótunum við viðmælendur
sína. Á liðnu ári hótaði blaðamaður
DV manni sem hvorki vildi láta
mynda sig né eiga efn-
islegt samtal við blaða-
manninn að gömul mynd
yrði notuð af manninum
og efni af vefnum notað
í umfjöllunina. Mað-
urinn var óvanur um-
gengni við fjölmiðla, lét
undan og féllst á viðtal
og myndatöku. Þegar
uppsláttur DV birtist
fékk eiginkona manns-
ins áfall enda var ,,frétt-
in“ skrifuð til að draga
dár að trúgirni þeirra
hjóna.
Mannfyrirlitningin í ritstjórn-
arstefnu DV er sköpunarverk
þriggja manna: Jónasar Kristjáns-
sonar ritstjóra, Mikaels Torfason-
ar ritstjóra og Gunnars Smára Eg-
ilssonar, forstjóra Dagsbrúnar hf.
Allir þrír eru á framfæri Baugs
sem á síðustu árum hefur byggt
upp fjölmiðlaveldi á Íslandi. Bæði
á Baugur stærstan hlutinn í Dags-
brún, móðurfélagi 365-miðla sem
eiga DV, Fréttablaðið og Stöð 2,
og skaffar auk þess stóran hluta
auglýsingatekna 365-miðla í gegn-
um verslanir eins og Bónus, Hag-
kaup og Húsasmiðjuna.
Án Baugs væri ekki hægt að
gefa DV út á núverandi for-
sendum. Frá því að Baugur eign-
aðist DV, og Gunnar Smári og fé-
lagar tóku við, hefur blaðið tapað
lesendum og auglýsendum. Hvað
veldur því að aðaleigendur Baugs,
feðgarnir Jón Ásgeir Jóhannesson
og Jóhannes Jónsson, telja sér
samboðið að kosta útgáfu DV?
Mannfyrirlitning
í boði Baugs
Páll Vilhjálmsson fjallar um
fréttaflutning DV ’,,Fréttir“ DV eru ekkiskrifaðar til að útskýra
og upplýsa heldur til að
afskræma, úthúða og
meiða.‘
Páll Vilhjálmsson
Höfundur er blaðamaður.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég
tel að það liggi ekki nægilega
ljóst fyrir hvernig eða hvort
hinn evangelísk-lútherski
vígsluskilningur fari í bága við
það að gefa saman fólk af sama
kyni …“
Birgir Ásgeirsson: Opið bréf
til vígslubiskups Skálholtsstift-
is, biskups Íslands, kirkjuráðs
og kirkjuþings.
Jakob Björnsson: Útmálun
helvítis. „Álvinnsla á Íslandi
dregur úr losun koltvísýrings í
heiminum borið saman við að
álið væri alls ekki framleitt og
þyngri efni notuð í farartæki í
þess stað, og enn meira borið
saman við að álið væri ella
framleitt með raforku úr elds-
neyti.“
Þorsteinn H. Gunnarsson
fjallar um rjúpnaveiðina og
auglýsingu um hana, sem hann
telur annmarka á.
Prófkjörsgreinar á mbl.is
www.mbl.is/profkjor
Jón V. Stangeland Guðjóns-
son vill styðja Gest Kr. Gests-
son í prófkjöri Framsóknar-
flokksins.Gestur sækist eftir
stuðningi í 2. sæti listans
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Síðumúla 34 - sími 568 6076
Ýmislegt áhugavert
fyrir safnara
Ýmislegt áhugavert fyrir safnara
Borðstofuhús ögn
Stakir skápar