Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 30

Morgunblaðið - 13.01.2006, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN T öluverður sjálfsagi get- ur reynst nauðsyn- legur til þess að nenna að mæta á lík- amsræktarstöð í upp- hafi nýs árs. Ég er svo ólánsamur að hafa aldrei átt varabirgðir af slíkum aga. Að óreyndu hefði ég aldrei trú- að því hvað það, að drífa sig í ræktina eftir þó ekki lengra frí en þingmenn fá í kringum hátíð- arnar, er erfiður þröskuldur að brölta yfir. Líklega vegna þess að ég hef aldrei dustað rykið af skón- um, stuttbuxunum og lyft- ingabolnum aftur fyrr en um mitt sumar eða jafnvel á haustdögum. En ég hef örugglega öll árin haft mjög góða skýringu á því hvers vegna ég komst ekki aftur strax eftir áramótin. Hef sjálfsagt þurft að undirbúa þrett- ándaveisluna, súrsa punga fyrir þorrann, leggja drög að því að taka niður jólaskrautið og klára kalkúninn. Mér er gjarnan falið það verk- efni að losa fjölskylduna við mat- arleifar og þarf þar af leiðandi að stunda líkamsrækt. Það getur líka verið vegna nísk- unnar sem ég hef nýlega komið mér upp sem ég ákvað að fara aft- ur í gær. Búinn að kaupa margra mánaða kort. Níska getur því jafnvel verið heilsusamleg. Í desember gafst vitaskuld eng- inn tími til þess að hreyfa sig, vegna þess að það tekur marga daga að velja jólagjöf handa kon- unni. Vanda verður valið í slíkum til- fellum og hvað er þá betra en vanda valið mjööög vel þegar maður nennir ekki í ræktina? Ég kann að minnsta kosti ekk- ert betra ráð nema kannski að slasa sig en þá er ekki hægt að fara í körfubolta. Ég hitti nefni- lega nokkra aðra sérfræðinga í því sporti tvisvar í viku í minnstu íþróttahöll landsins og hópurinn (þykist) leika íþróttina sem Mich- ael Jordan gerði vinsæla. Ég er auðvitað langbestur þótt hinir hafi ekki skynjað það enn þá en bjart- sýni er dyggð og ég veit að þeir ná áttum þótt síðar verði. En aftur að jólagjöf handa kon- unni: Á endanum biður maður þessa elsku auðvitað alltaf um hjálp; að fara og velja eitthvað handa sjálfri sér vegna þess að þreytan við það að skoða segir fljótt til sín, af því að maður nenn- ir ekki í ræktina. Mér finnst ekki nema fáeinar vikur liðnar frá því mér tókst að gera 150 armbeygjur án þess að stoppa og blés varla úr nös á eftir. Held það hafi verið vorið 1979 um það leyti sem ég fékk bílprófið, en fljótlega eftir það fór að halla und- an fæti. Bílprófið enda líklega eina prófið á ævinni sem varla borgar sig að standast. Að því loknu eyðir venjulegur Íslendingur helmingi mánaðarteknanna í eldsneyti og nennir þar að auki ekki að hreyfa sig nema akandi. Fólk labbar að vísu oftast út í bíl, nema þeir sem eiginkonan tekur í fangið, en út fyrir lóðamörk fara fáir nema á vélknúnu farartæki. En ég lifði sem sagt af hið nýja upphaf. Mætti í gærmorgun; byrj- aði reyndar á því að hita upp með því að skafa stéttina fyrir utan heimilið svo blaðberinn minn bæri ekki skaða af því að koma með Moggann. Það snjóaði á Akureyri um nóttina – og það var ekki skot- hríð eins og kemur úr snjóbyss- unum í Hlíðarfjalli. Alvöru lausa- mjöll huldi bæinn. Eftir að stéttin glansaði eins og skallinn á Kojak heitnum drifum við hjónin okkur í Stóru hryllings- búðina, sem ég leyfi mér að kalla svo, vegna þess að þeir fyrstu sem ég sá þegar komið var inn í pynd- ingarsalinn voru leikarar úr Litlu hryllingsbúðinni, sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir brátt. Það skal viðurkennt að eins og það getur verið leiðinlegt er það auðvitað alveg bráðnauðsynlegt að hreyfa sig annað veifið, til að halda skrokknum í sæmilegu standi og ekki síður sálinni. Já, mér finnst þetta oft leið- inlegt, alveg frá því maður fer út í bíl og þangað til komið er í lyft- ingasalinn. Því fylgja stundum kvalir að keyra í þessar tvær mín- útur sem það tekur vegna kvíða fyrir því sem heimsókninni fylgir. Mér finnst ótrúlega leiðinlegt að skeiða á hlaupabrettinu, eða bara að hlaupa yfirleitt nema í grennd við knött, þannig að upphitunin er svo sem ekkert skemmtileg en þegar maður fer að berjast við lóðin, toga í bönd og gera arm- beygur hríslast vellíðunartilfinn- ing um líkamann. Djö … er það skrýtið. Það er næstum því jafn góð tilfinning og að skora í fót- bolta eða hitta í körfu úr lang- skoti. Knattspyrnuþjálfarinn Guðjón Þórðarson líkti eitt sinn því að skora við ákveðna sælutilfinningu, sem ég kýs að sleppa að nefna, og skoraði hann þó ekki oft í fótbolta- leik. Sú tilfinning, sem ég þori ekki að nefna hér, getur kostað svita og tár. Varla blóð, en líkamsrækt getur hins vegar kostað blóð, svita og tár. Að minnsta kosti svita, tár og háan blóðþrýsting. Það er líklega rétt að geta þess að mér er ekkert sérlega vel við að sjá blóð. Þori ekki einu sinni að horfa á Bráðavaktina og skil satt að segja ekki hvernig fólki (lesist: eiginkonu minni og dætrum og Möggu) getur fundist gaman að horfa á lækna og hjúkkur hlaup- andi um á fullu, æpandi að hér þurfi að ampútera og þar að skera á barka. En það er önnur saga. Blóð sé ég yfirleitt ekki úr sjálfum mér nema þegar ég þarf að saga spýtu og til þess að koma í veg fyr- ir blóðslóð úr AB á heimilinu fæ ég yfirleitt fagmenn til þess arna, tengdapabba eða konuna mína. Jæja, það er best að biðja kon- una að halda á mér niður í eldhús til þess að klára jólarjúpuna. Verði mér að góðu; heilbrigð sál í hraustum og söddum líkama. Blóð, tár, sviti og agi Mér finnst eins og ekki séu nema fáeinar vikur liðnar frá því mér tókst að gera 150 armbeygjur án þess að stoppa og blés varla úr nös á eftir. Held það hafi verið vorið 1979 … VIÐHORF Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is UNDANFARIN ár hef ég setið í bæjarstjórn Garðabæjar og tekið virkan þátt í starfi bæjarfélagsins. Þar hef ég átt þess kost að leggja mitt af mörkum til þess að bæjarfélagið efli og bæti þjónustuna við íbúana. Garðabær er minni en flest sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, þar eru hlutfallslega fleiri sérbýli íbúða en annars staðar og sam- félagsgerðin er að ýmsu leyti önnur með betra aðgengi að bæj- arstjórnarmönnum – og raunar meiri nánd í öllu sam- félaginu. Íbúar eru virkir í stjórn skólanna og meðal annars þess vegna eru nokkuð aðrar áherslur í skólamálum en víðast hvar annars staðar. Íbúaþing hafa verið haldin til að móta sameiginlegar áherslur bæjarbúa við mótun bæjarfélagsins. Þannig hefur samfélag okkar Garðbæinga haft nokkra sérstöðu á höfuðborgarsvæðinu. Stjórnendur bæjarfélagsins hafa tekið mið af þessu og því er samráð og samstarf þess við íbúana sjálfa sérstaklega mikilvægt. Það hefur sýnt sig að virkt samráð við íbúa í meiri háttar málum eða við ein- stakar framkvæmdir hefur verið farsælt og góður árangur náðst. Þar má nefna breikkun Reykjanes- brautar sem í upphafi var umdeild. Stjórn- endur bæjarfélagsins tóku undir sjónarmið íbúanna um að upp- hafleg áform væru at- hugunarverð. Með því að beita sér fyrir breytingum á fyrirhug- uðum framkvæmdum náðist víðtæk samstaða með íbúum. Samstaða um framkvæmdina var nauðsynleg áður en bæjarstjórn veitti leyfi fyrir jafnmikilli fram- kvæmd og breikkun Reykjanes- brautar er. Fleiri stór verkefni bíða þar sem samráð við íbúa er einnig brýn nauðsyn. Þar má nefna vænt- anlegar miðbæjarframkvæmdir, áformuð byggingarsvæði austan Reykjanesbrautar og fyrr eða síðar þarf að huga að breytingum á Hafnarfjarðarvegi í gegnum Garða- bæ. Eitt af einkennum Garðabæjar er ósnortin náttúra rétt við bæjar- mörkin. Hversu mikils virði er það að geta gengið upp í Heiðmörkina, einhverja fallegustu náttúruperlu á höfuðborgarsvæðinu. Að fallegri náttúru í landi Garðabæjar og ná- grenni þarf að tryggja gott aðgengi án þess að umhverfið skaðist en höfuðverkefnið er þó að varðveita hana fyrir komandi kynslóðir. Sérstaða Garðabæjar er mik- ilvæg, vegna hennar er gott að búa í Garðabæ. Ég vil halda áfram að varðveita sérstöðu Garðabæjar. Því bið ég þig, ágæti Garðbæingur, um liðsinni til þess í komandi prófkjöri sjálfstæðismanna í Garðabæ þar sem ég gef kost á mér í fyrsta sæti. Sérstaða Garðabæjar Eftir Erling Ásgeirsson ’Eitt af einkennumGarðabæjar er ósnortin náttúra rétt við bæjar- mörkin. Hversu mikils virði er það að geta gengið upp í Heiðmörk- ina, einhverja fallegustu náttúruperlu á höfuð- borgarsvæðinu.‘ Erling Ásgeirsson Höfundur er bæjarfulltrúi, formaður bæjarráðs Garðabæjar og gefur kost á sér í fyrsta sæti framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ. Prófkjör í Garðabæ MIKIÐ hefur verið rætt um lág laun starfsmanna á leikskólum á höfuðborgarsvæðinu undanfarnar vikur. Það er ljóst að fólkið sem er á lægstu laununum er ekki ofhaldið af þeim. Ég hef margoft lýst því yfir, að ég vilji vinna að því að hækka laun hinna lægst launuðu. Kjara- samningur Kópavogs- bæjar við Starfs- mannafélagið í haust gekk sérstaklega út á það, það er að þeir lægst launuðu bæru hlutfallslega mest úr býtum. Meðfylgjandi sam- anburðartafla á launum ófag- lærðra starfsmanna í leikskólum sýnir að eftir kjarasamninga Kópavogsbæjar við Starfsmanna- félagið í haust var Kópavogsbær að borga hæstu launin til sinna starfsmanna þó taka verði fram að bæði í Garðabæ og í Hafnarfirði var og er enn ósamið um kjör þessara starfsmanna. Ekki aðeins eru launataxtarnir hærri hjá Kópavogsbæ heldur var líka greidd eingreiðsla til um- ræddra starfsmanna 90.000 kr. miðað við fullt starf. En hækkun lægstu launa verður að vera með þeim hætti að sú launahækkun gangi ekki upp allan launastigann sem leiðir til þess að hækkun lægstu launanna tapast í verðbólgu. Kjarabætur verða ekki varanlegar með þeim hætti. Reykjavíkurborg gerði nýlega kjarasamning við Starfsmanna- félag Reykjavíkurborgar og stétt- arfélagið Eflingu. Þessi samningur fól í sér nánast línulega hækkun á töxtum, þ.e. allir fengu svipaða prósentuhækkun. Þeir sem hafa hæstu launin fá þannig margfalda krónutöluhækkun þeirra lægst launuðu. Þetta hefur borgarstjórinn ítrekað kallað að hækka laun hinna lægst launuðu. Staðreyndin er sú, að þeir fá flestar krónur sem hafa hæstu launin. Svo lengi má fara með öfugmæli að fólk fari að trúa. Stéttarfélagið Efling gerði kjarasamning við starfsmenn Kópa- vogsbæjar og fleiri sveitarfélög sl. haust. Í kjarasamningi við Reykjavíkurborg þrem mánuðum síðar var samið um kaup fyrir sömu störf, sem varð 10–15% hærra hjá Reykjavíkurborg. Efling er eitt af öfl- ugustu félögunum inn- an Alþýðusambands Íslands og hefur talað fyrir nauð- syn stöðugleika. Þessi samningur fer í þveröfuga átt. Ég hef gagnrýnt þessa samn- inga á þeim forsendum, að gangi þessar launahækkanir yfir öll sveitarfélögin muni þær ríða fjár- hag margra þeirra að fullu. Rekst- ur þeirra verður neikvæður og skuldir bæjarsjóða hlaðast upp, nema að til komi skattahækkanir til að eiga fyrir auknum út- gjöldum. Reykjavíkurborg er í þeim hópi. Samanburður á launum er ávallt mikill drifkraftur kjarabaráttu. Þessar launahækkanir munu að óbreyttu ganga yfir hinn almenna vinnumarkað. Það leiðir til þess að atvinnuvegirnir þurfa að veita þessum launahækkunum út í verð- lagið. Hækkun verðlags er verð- bólga og víxlverkanir launa og verðlags, sem við Íslendingar þekkjum frá árunum fyrir 1990, þegar launataxtar hækkuðu um hundruð og kannski þúsundir pró- senta meðan kaupmáttur lækkaði. Þá mun hækkun verðbóta á lán landsmanna verða láglaunafólki þyngst í skauti. Á endanum er þjóðin margfalt verr stödd. Viljum við að góð efnahagsleg staða þjóðarinnar verði brennd upp á nýju báli verðbólgu? All- margir gera sér ekki grein fyrir þessu samhengi. Margt ungt fólk þekkir ekki verðbólgusjúkdóminn af eigin raun sem betur fer. Borgarstjóri Reykjavíkur er að slá ryki í augu fólks með því að segja að hækkun launa hjá starfs- fólki Reykjavíkurborgar, stærsta vinnuveitanda landsins, hafi engin áhrif á þróun verðbólgu. Ekkert er fjær sanni. Hinn 20. janúar næstkomandi mun Samband íslenskra sveitarfé- laga halda launamálaráðstefnu og ræða m.a. um laun hinna lægst launuðu hjá sveitarfélögunum. Þar munu koma fram tillögur til úr- bóta. Rædd verður staða samn- ingsmála við leikskólakennara, en kjarasamningar við þá eru lausir í september nk. Það er grafalvarlegt mál, að fara vísvitandi með rangfærslur eða tala með eins óábyrgum hætti um kjaramál og margir for- ystumenn Samfylkingarinnar hafa gert undanfarið. Kjör aðstoð- arfólks á leikskólum þurfa vita- skuld að batna. En þetta fólk þarf ekki á yfirboðum og lýðskrumi að halda, sem hefur lækkun kaup- máttar og hækkun á lánum fólks- ins í landinu í för með sér. Því miður virðist þetta framtíðarsýnin sem Samfylkingin boðar um þess- ar mundir. Staðreyndir um kjaramál Gunnar I. Birgisson fjallar um kjarasamninga Kópavogsbæjar ’Viljum við að góð efna-hagsleg staða þjóð- arinnar verði brennd upp á nýju báli verð- bólgu?‘ Gunnar I. Birgisson Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs. 4$B-( 7)O ;$+$9'7! %!4A 4-9++4 1P" (! B$B-( $7)O9 ;-E$ @ 1 55$B- ,1 .!+6 $- %%!     &A9!+6 -!+ %   .!+24( 8      .!+24( 8    % % % % % % %% .!+24( 8 %  % % % % %  85?+85%47 *04+ Q  85%47 #85 -$-% *04+ Q  *04+ Q  *04+ Q  -06 E5 -! -! E(-0 E(-0 E(-0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.