Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 37

Morgunblaðið - 13.01.2006, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 37 MINNINGAR ✝ Brynja Sigurð-ardóttir fæddist í Reykjavík 22. febr- úar 1958. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 5. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Erla Ingadóttir hjúkrunarfræðing- ur og Sigurður Sig- urðsson lögreglu- maður, d. 1984. Hálfbróðir Brynju samfeðra er Sigurð- ur Sigurðsson og hálfsystir sammæðra er Guðný Björk Hauksdóttir. Brynja fluttist að Bifröst í Borgarfirði 1965 með móður sinni og stjúpföður, Hún- boga Þorsteinssyni. Þaðan fluttist fjölskyldan til Borgarness þar sem Brynja ólst upp ásamt stjúp- systkinum sínum, Þorsteini og Vé- dísi. Árið 1982 giftist Brynja Hilm- ari Símonarsyni, sjómanni á Akra- nesi, og þar bjuggu þau næstu árin en hann lést 1985 og skömmu seinna fluttist hún til Reykjavíkur þar sem hún hefir síðan átt heimili. Börn þeirra eru: Erla Inga, f. 1983 og Þor- finnur, f. 1984. Dótt- ir Erlu Ingu og Dag- bjarts Eiðs Ólasonar er Brynja Rán, f. 2004. Brynja var í barnaskóla í Varmalandi í Borgarfirði og í Borgarnesi og síðan í gagnfræða- skóla í Borgarnesi. Hún vann lengst af við verslunar- og umönn- unarstörf. Útför Brynju verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku mamma. Ég man eftir yndislegri æsku. Þú varst dugleg að segja okkur Finna hvað þú elskaðir okkur mik- ið og hvað þú værir heppin að eiga okkur „svona falleg og yndisleg börn“. Þú varst sterk og ákveðin kona. Hvað sem á gekk gerðir þú gott úr því. Ég sakna þín svo mikið, mamma. Ég sakna faðmlaganna og samtalanna í símanum á kvöldin. Við gátum talað um hvað sem var. Þú varst besta vinkona mín og fyr- irmynd, alltaf svo snyrtileg og ilm- aðir svo vel. Ég man að þegar við Finni vorum lítil gafstu mér peysu af þér til að sofa með og þú spreyj- aðir ilmvatninu þínu á hana svo að ég gæti sofnað. Eftir að þú veiktist sástu til þess að lífið gengi sinn vanagang, stundum meira að segja eins og ekkert hefði í skorist. Svo fæddist Brynja Rán og þú varst svo stolt að vera orðin amma. Stuttu seinna varst þú orðin mikið veik en samt svo rosalega jákvæð. Síðustu mán- uðina varstu orðin svo kvalin. Þú horfðir í augun á mér og sagðir að við Finni héldum í þér lífi og að þú kviðir dauðanum, því að við Finni værum ekki bara að missa þig, heldur værir þú líka að missa okk- ur. Ég elska þig, mamma, og sakna þín svo mikið, en nú getur þú verið verndarengillinn hennar Brynju Ránar. Guð veri með þér í nýjum heim- kynnum. Þín dóttir, Erla Inga. Í dag kveðjum við vinkonu okkar og bekkjarsystur Brynju Sigurð- ardóttur en hún er sú fyrsta úr okkar hópi, árgangi 1958, sem fell- ur frá. Minningarnar um Brynju frá því á skólaárunum eru ósköp ljúfar og skemmtilegar. Hún var mikill fjör- kálfur og glaðvær og oft mikið að gerast í kringum hana. Margt var brallað og oft höfum við bekkj- arsystkinin velst um af hlátri þeg- ar við rifjum upp gömlu og góðu stundirnar frá þessum árum. Er haldin hafa verið bekkjarmót hefur Brynja ávallt verið dugleg að mæta og minnumst við þess hversu glöð hún var og skemmti sér vel er við hittumst síðast. Þá minningu munum við geyma með okkur. Er ég flutti í Borgarnes, þá 11 ára að aldri, urðum við Brynja fljótt vinkonur. Sá vinskapur hefur haldist síðan þó að sambandið hafi verið mismikið í gegnum árin. Á unglingsárunum leið lífið áhyggju- laust við leik og störf og uppá- tækin voru mörg eins og almennt gerist á þessum aldri. Upp koma margar góðar minningar þegar ég hugsa til þessara ára. Eitt sumar vorum við að vinna saman í Skalla- grímsgarðinum. Ekki þótti okkur vinnan mjög spennandi og dag einn stálumst við til að fá okkur tómata úr gróðurhúsinu sem þar var. Á þeim árum voru tómat- plöntur ekki á hverju strái hér á landi og þótti okkur mikill fengur í að fá að smakka íslenska tómata. En það komst upp um okkur og okkur sagt að það væri nýbúið að sprauta tómatana með skordýra- eitri sem væri stórhættulegt. Við urðum að sjálfsögðu dauðhræddar og svei mér þá ef við urðum ekki bara fárveikar af tilhugsuninni einni saman um þetta hættulega efni sem við höfðum borðað. Þó að leiðir okkar Brynju lægju ekki alltaf mikið saman er við full- orðnuðumst var alltaf eins og við hefðum síðast sést í gær. Er ég heimsótti hana nú í haust töluðum við um það að nú kæmi hún í heim- sókn til mín upp í Borgarnes og yrði þar yfir eina helgi. En heilsan leyfði það ekki og af því varð aldr- ei, því miður. Nú rétt fyrir áramót- in hringdi ég í hana og heyrði þá að mjög var af henni dregið. Bar- áttuhugurinn var þó enn til staðar og hún ætlaði sér ekki að gefast upp. En hinn illvígi sjúkdómur hafði betur. Fyrir hönd árgangs ’58 frá Grunnskóla Borgarness sendi ég fjölskyldu hennar innilegar sam- úðarkveðjur og þig, Brynja mín, kveð ég með söknuði. Kristín M. Valgarðsdóttir. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Ég elska þig, mamma, og sakna þín. Núna getur þú hvílt þig. Þinn sonur, Þorfinnur. Leiðir okkar Brynju lágu saman í um 22 ár, eða frá því að ég hóf sambúð með fósturbróður hennar, Þorsteini. Þessi tími er drjúgur hluti af ævi okkar beggja, en Brynja féll frá í upphafi nýs árs, langt fyrir aldur fram, 47 ára göm- ul, í kjölfar erfiðra veikinda. Brynja var mörgum góðum eig- inleikum gædd. Hún var viljasterk, ákveðin, glaðlynd og hugsaði vel um sitt og sína. Brynja var líka sannur vinur vina sinna og átti góðar vinkonur sem hún fylgdi í gegnum súrt og sætt og öfugt. Brynja fór sínar eigin leiðir og byrjaði snemma að vinna fjarri heimahögunum. Fyrir rúmum tveimur áratugum giftist hún manni sínum Hilmari Símonarsyni og eignaðist með honum tvö börn, Erlu Ingu og Þorfinn, með innan við árs millibili. Hilmar féll skömmu síðar frá og Brynju beið það erfiða hlutskipti að verða ung ekkja með tvö lítil börn, bæði inn- an við tveggja ára gömul. Á þessum tímum, eins og ávallt, stóðu þau móðir hennar og fóst- urfaðir, Erla og Húnbogi, eins og klettar við bakið á henni og börn- unum. Nú í veikindum Brynju hefur Erla hjúkrað henni af umhyggju og alúð og vakað yfir henni, en samband þeirra mæðgna var traust, heilsteypt og gott. Sólar- geislinn í lífi Brynju síðustu miss- erin var litla Brynja Rán, nafna hennar og dótturdóttir. Á jóladag áttum við fjölskyldan saman góða stund í hangikjöts- veislunni hjá Erlu og Húnboga, en þar léku þær Brynjurnar sér sam- an við að opna jólapakkana sem höfðu verið geymdir frá því á að- fangadag. Þegar sú stutta opnaði pakkana, varð hissa og hljóp af lífsgleði um með gjafirnar, skein stoltið og gleðin úr augum Brynju ömmu. Þrátt fyrir mjög erfið veikindi Brynju á síðustu misserum var hún ávallt baráttuglöð. Lífsviljinn var sterkur og hún gafst aldrei upp. Hún var sönn hetja. Ég vil þakka Brynju samfylgdina þessi ár sem liðin eru og mun muna eftir henni hnarreistri og glæsilegri með sitt fallega dökka hár, segjandi sögur hlæjandi. Ég votta Erlu Ingu, Brynju Rán, Þorfinni, Erlu, Húnboga og öðrum aðstandendum Brynju, mína dýpstu samúð. Guð blessi minn- ingu Brynju. Siv Friðleifsdóttir. Í dag kveð ég Brynju æskuvin- konu mína sem ég ætla með örfá- um orðum að minnast hér. Við Brynja kynntumst í Borgarnesi þegar hún flutti þangað með fjöl- skyldu sinni aðeins 10 ára. Það varð mjög fljótt ljóst að með okkur myndi myndast góður vinskapur, Brynja var nefnilega svolítill grall- ari og prakkari eins og ég. Þegar maður elst upp í bæjarfélagi eins og Borgarnesi, og er með sömu krökkunum í bekk til 16 ára ald- urs, verður þetta eins og ein stór fjölskylda og Brynja var svo sann- arlega ein af þessari fjölskyldu. Það var nú margt brallað á þess- um tíma, ég man sérstaklega eftir því að við vorum í eðlisfræðitíma og höfðum engan áhuga á verkefn- inu sem var í gangi, en allir strák- arnir voru í kringum kennaraborð- ið og við ákváðum ásamt fleirum bara að fara og enginn tók einu sinni eftir því. Þetta var svona dæmigerð ákvörðun án þess að hugsa um afleiðingarnar. Brynja minntist líka oft á veðmálið við móður mína, hún veðjaði við hana um að hún myndi ekki verða búin að eignast nein börn fyrir 25 ára aldur og hljóðaði veðmálið upp á 5.000 kr., en Brynja var búinn að eignast Erlu fyrir 25 ára aldurinn og borgaði hún að sjálfsögðu veð- málið, hún borgaði það með 5.000 krónum og skrifaði aftan á: „Hæ, ég er víst búin að tapa veðmálinu og hér með borga ég skuld mína, töluðum við nokkuð um myntbreyt- ingu ha, ha,ha, bæ bæ Brynja Sig.“ En eins og flestir vita varð breyt- ing 1980 á myntinni og þennan seð- il geymdi móðir mín vel. Við Brynja vorum búnar að tala um að hún ætti að fá þennan seðil eftir að móðir mín andaðist, og var ég nýbúin að fá hann í hendurnar þar sem hann hafði verið í dóti hjá systur minni. Ég ætlaði að láta hana hafa hann um jólin en hafði gleymt honum heima þegar ég heimsótti hana daginn fyrir Þor- láksmessu en sagði henni að ég kæmi bara með hann næst. Ekki gerði ég mér grein fyrir því að þetta væri síðasta heimsóknin heim til Brynju. En Brynja mín barðist hetjulega við krabbameinið sem hún greindist með fyrir 3 ár- um, aldrei gafst hún upp og á þess- um tíma eignaðist hún lítinn sól- argeisla, ömmubarnið Brynju Rán, það var mikil gleði fyrir hana. Elsku Brynja mín, ég kveð þig núna með það í huga að þér líði vel. Ég og Óli vottum foreldrum, börnum, systkinum og öðrum ást- vinum okkar dýpstu samúð. Guð varðveiti ykkur og styrki í þessari miklu sorg. Bryndís G. Hauksdóttir. Okkur langar að kveðja hér mikla baráttukonu sem barðist hetjulega gegn krabbameini og kvaddi svo 5. janúar sl. Við vitum innst inni í hjarta okk- ar að henni líður vel og vakir yfir okkur hinum. Við viljum minnast þess að Brynja var ekki einungis móðir barnanna sinna tveggja, heldur líka þeirra besti vinur sem þau áttu alltaf auðvelt með að leita til þegar eitthvað bjátaði á. Slík móðir er ómetanleg. Okkur leið alltaf vel á heimili Brynju þar sem hún tók okkur opnum og hlýjum örmum, rétt eins og við værum hennar eigin. Við munum sárt sakna góðu tímanna, áramótanna, stelpuspjallanna, mat- arboðanna, þau voru mörg, fata- sýninganna og margs fleira, þeir tímar voru dýrmætir. Við vottum elsku Erlu, Finna, litlu Brynju Rán, Eiði og öðrum aðstandendum, okkar dýpstu sam- úð og megi guð vera með þeim og styrkja í þessari miklu sorg. Þín verður sárt saknað, elsku Brynja. Kristín Hulda, Kristín Gígja og Sonja Ósk. BRYNJA SIGURÐARDÓTTIR Það er mjög skrítið að eiga engan afa á lífi lengur. En þú verður alltaf til í minningunum. Því þær lifa í huganum. Þú varst besti afi í heimi. ÞORLÁKUR SIGURÐSSON ✝ Þorlákur Sig-urðsson fæddist í Hafnarfirði 29. ágúst 1923. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 9. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Hafnarfjarðar- kirkju 21. desem- ber. Þú varst spaugari og forvitinn um hvað við vorum að gera, gladdist með okkur og gafst okkur brjóst- sykur með gleði. Amma var stundum hrædd um að það stæði í okkur brjóst- sykurinn. Afi, við söknum þín. Vonandi líður þér bet- ur núna hjá Guði. Kannski getur þú fylgst með okkur í fjarska. Þín afabörn Eygló Ósk og Friðbert Bjarki. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minningar- grein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef út- för hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birt- ingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl- ast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningar- greinar Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar frænda okkar, FRIÐFINNS PÁLSSONAR, Þríhyrningi, Hörgárdal. Sérstakar þakkir til starfsfólks í Kjarnalundi og Hlíð, Reynihlíð c-deild, fyrir góða umönnun. Haukur Steindórsson, Guðmundur Steindórsson, Þórður Steindórsson. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÍÐAR ÁSMUNDSDÓTTUR, Bólstaðarhlíð 41. Ásmundur Jakobsson, Aðalbjörg Jakobsdóttir, Hallgrímur B. Geirsson, Steinunn Sigríður Jakobsdóttir, Sverrir Hilmarsson, Jakob Jakobsson, Moira Helen Jakobsson, Johanne Agnes Jakobsson og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.