Morgunblaðið - 13.01.2006, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 49
MENNING
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ
Það hefur margsannað sig aðpeningar geta ekki keypt stílog klassa eins og margar
popp- og kvikmyndastjörnur og ný-
ríkt fólk hefur rekið sig á. Herra
Blackwell heitir maður sem fylgist
grannt með klæðaburði stjarnanna
og árlega gefur hann út lista yfir
verst klæddu stjörnur ársins. Þetta
er í 46. skipti sem fatahönnuðurinn
lætur Hollywood-leikkonur og aðr-
ar áberandi konur skjálfa á bein-
unum í byrjun janúar því það er
ekkert gaman að vera á svona lista.
Toppfólkið getur sætt sig við það að
hafa a.m.k. verið áberandi á árinu
og rykfalla ekki í gleymsku, sem er
versta martröð fólks í skemmtana-
iðnaðinum.
Á toppnum árið 2005 trónir popp-
prinsessan Britney Spears, sem yf-
irhöfuð er ekki smekkleg mann-
eskja. Þetta kemur ekki á óvart því
Britney hefur verið í miklu uppá-
haldi hjá Blackwell síðustu fimm ár-
in.
Vissulega má deila um hversu
drengilegt það er að krýna nýbak-
aða móður verst klæddu konuna því
hún hefur áreiðanlega um margt
annað að hugsa en föt. Reyndar
virðist hún yfirleitt ekki hugsa mik-
ið um föt því hún er oft í einhverju
of stuttu, of þröngu (fleiri eru sekir
af því) en umfram allt ljótum fötum
með ólögulegu sniði.
Sjálfskipaði gúrúinn Blackwellsetur Mary-Kate Olsen í annað
sæti en hún er annar helmingur Ol-
sen-tvíburasystranna, sem stjórna
sínu eigin skemmtanaveldi. Hann
segir hana klæða sig eins og heim-
ilislausa konu. Hún er gjarnan í víð-
um fötum, síðum pilsum með stór
sólgleraugu. Til dæmis er ólíklegt
að hún noti rauðan borða í hárið við
rauðu skóna sína og samlita tösku.
Stíllinn virkar tilviljanakenndari en
svo og hefur Mary-Kate þótt vera
leiðandi í tísku hjá ungum stúlkum
og hennar stíll tilbreyting frá þeim
klæðalitla sem ræður ríkjum svo
víða. Mary-Kate hefur jafnframt
þjáðst af anorexíu sem er ein skýr-
ing þess að hún kýs að vera ekki í
níðþröngum fötum. Það hindrar
ekki Blackwell að níðast á henni.
Söngkonan Jessica Simpson er í
þriðja sæti en ekki er beint hægt að
segja að klassinn leki af henni. Hún
átti líka í persónulegum erfiðleikum
á síðasta ári en hún skildi við eig-
inmanninn Nick Lachey. Það passar
inn í hegðunarmynstur Blackwell
að ráðast á hana. Jessica er með
dæmigerðan L.A.-stíl og á sér
marga aðdáendur. Kannski voru
það stuttbuxurnar sem hún klædd-
ist sem Daisy Duke í The Dukes of
Hazzard sem fóru með þetta.
Það kemur ekki á óvart að Mar-iah Carey sé á listanum. Hún er
yfirleitt í fötum sem eru of lítil á
hana, sem er klaufalegt og í kjólum
með mjög háum klaufum.
Paris Hilton fylgir í kjölfar henn-
ar en sviðsljósið hefur verið mikið á
henni. Svo mikið að fólk er farið að
fá nóg af platínuljóskunni í stuttu
kjólunum.
Aðrar á listanum eru Eva Lon-
goria, Anna Nicole Smith, Shakira,
Lindsay Lohan og Renée Zellweger.
Reyndar er enginn heilagur í
augum Blackwell því hann hefur
gert grín að bæði Elísabet Breta-
drottingu og nöfnu hennar Taylor.
Alltaf fá þó einhverjir náð fyrir
augum mikla herrans en í þetta
skiptið mælir hann með því að
óheppnu konurnar tíu klæði sig
frekar í anda Reese Witherspoon,
Nicole Kidman, Scarlett Johansson,
Natalie Portman, Dionne Warwick,
Kirsten Dunst og Carolinu Herrera.
Ósmekkleg ómögulegheit
’Vissulega má deila umhversu drengilegt það
er að krýna nýbakaða
móður verst klæddu
konuna því hún hefur
áreiðanlega um margt
annað að hugsa en föt.‘
AF LISTUM
Inga Rún Sigurðardóttir
Reuters
Topp (eða botn?) tíu: Þetta eru verst klæddu konur ársins 2005 að mati sjálfskipaða tískugúrúsins herra Blackwell.
ingarun@mbl.is
VERST KLÆDDU
STJÖRNURNAR 2005:
1. Britney Spears
2. Mary-Kate Olsen
3. Jessica Simpson
4. Eva Longoria
5. Mariah Carey
6. Paris Hilton
7. Anna Nicole Smith
8. Shakira
9. Lindsay Lohan
10. Renée Zellweger
BROTAÞOLAR,
lögreglan og ör-
yggi borgaranna
er eftir Rannveigu
Þórisdóttur,
Helga Gunn-
laugsson og Vil-
borgu Magn-
úsdóttur.
Í ritinu er greint
frá helstu niðurstöðum rannsóknar á
reynslu Íslendinga af afbrotum, við-
horfi til lögreglu og mati á eigin öryggi.
Niðurstöðurnar eru skoðaðar nánar
eftir ýmsum bakgrunnsþáttum, meðal
annars kyni, aldri, búsetu og tekjum.
Fjallað er um öryggiskennd borg-
aranna í eigin hverfi og í miðborg
Reykjavíkur og ótta við innbrot. Einnig
er fjallað um tilkynningar til lögreglu
og viðhorf svarenda til þjónustu henn-
ar. Í lokin er greint frá viðhorfum Ís-
lendinga til málefna er tengjast af-
brotum og refsingum. Í niðurstöðum
kemur meðal annars fram að tæplega
helmingur svarenda segir að þeir eða
einhver á heimili þeirra hafi orðið fyrir
afbroti á síðustu fimm árum og voru
tilkynnt til lögreglu í 57% tilvika.
Rannveig Þórisdóttir er félags-
fræðingur hjá embætti ríkislögreglu-
stjóra.
Helgi Gunnlaugsson er prófessor í
félagsfræði við Háskóla Íslands.
Vilborg Magnúsdóttir er með BA-
gráðu í sálfræði og er lögreglumaður
hjá lögreglustjóranum í Reykjavík.
143 bls. Verð 1.490 kr.
Ný bók
FYRIRHUGAÐAR eru þrjár DVD-
sýningar á vegum Vinafélags Ís-
lensku óperunnar á komandi vor-
misseri og fara þær allar fram í
Norræna húsinu. Fyrsta sýningin
er á sunnudaginn kl. 14.00 og er
það upptaka frá The Royal Opera
í London á Rómeó og Júlíu. Í aðal-
hlutverkum eru Roberto Alagna,
Leontina Vaduva og Robert Loyd.
Þess má geta að um þessar mund-
ir syngur Kristinn Sigmundsson
hlutverk Frére Laurent í Rómeó
og Júlíu í Metropolitan-óperunni í
New York. Sunnudaginn 29. jan-
úar verður sýnd upptaka frá The
Royal Opera af Aidu og mið-
vikudagskvöldið 8. febrúar er það
upptaka frá The Royal Opera af
Samson og Delilu. DVD-sýning-
arnar eru öllum opnar og aðgang-
ur ókeypis.
DVD-sýning á Rómeó og Júlíu
Fréttasíminn 904 1100