Morgunblaðið - 13.01.2006, Blaðsíða 51
Sími 553 2075
JUST
FRIENDS
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4 ísl tal
FEITASTI
GRÍNSMELLUR ÁRSINS!
eeee
H.J. / MBL
“…mikið og
skemmtilegt
sjónarspil...”
eeee
Dóri DNA / DV
eeee
HJ / MBL
A.G. / BLAÐIÐ
nan 16 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Eins og það sé ekki nóg að ala upp 12 börn
Prófaðu að fara með þau öll í fríið!
Sprenghlægilegt framhald. Steve Martin fer enn og aftur á kostum!
eee
V.J.V . / TOPP5.IS
K&F / XFM
20% afsláttur af miðaverði
fyrir viðskiptavini KB Banka
M YKKUR HENTAR ****
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 5,20, 8 og 10.40 B.I. 12 ÁRA
HOSTEL kl. 6, 8 og 10 B.I. 16 ÁRA
BROTHERS GRIMM kl. 5.30, 8 og 10.30 B.I. 12 ÁRA
LITTLE TRIP TO HEAVEN kl. 6, 8 og 10 B.I. 14 ÁRA
Frá Óskarsverðlaunaleikstjóra “AMERICAN BEAUTY”
Jake Gyllenhaal fer á kostum ásamt Óskarsverðlaunahöfunum Jamie Foxx og Chris Cooper.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
miðasala opnar
kl. 15.30
Upplifðu
ástina og
kærleikann
sími 553 2075
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 51
LEIKARINN góðkunni Steve
Martin snýr hér aftur í framhalds-
mynd hinnar vinsælu Cheaper by
the Dozen sem kom út árið 2003.
Hjónin Tom (Martin) og Kate
(Bonnie Hunt) ákveða að fara
ásamt öllum börnunum sínum 12 í
frí í sumarbústað fjölskyldunnar í
Wisconsin. Elstu börnin eru að
verða fullorðin þannig að Tom og
Kate telja þetta vera síðustu forvöð
að fara með alla fjölskylduna í frí á
sama tíma. Þegar í bústaðinn er
komið uppgötvar Tom sér til mik-
illar skelfingar að höfuðandstæð-
ingur hans úr framhaldsskóla,
Jimmy Murtaugh (Eugene Levy),
er á svæðinu ásamt fjölskyldu
sinni, sem einnig er í fjölmennara
lagi.
Upphefst mikil barátta þeirra á
milli um hvor sé meiri maður, Tom
eða Jimmy, og nær baráttan há-
marki þegar þeir fara ásamt fjöl-
skyldum sínum í róðrarkeppni þar
sem reynir á keppnisskapið, fjöl-
skylduböndin og ekki síst vinátt-
una. Með önnur aðalhlutverk fara
þau Hilary Duff, Carmen Electra
og Piper Perabo, en leikstjóri er
Adam Shankman.
Frumsýning | Cheaper by the Dozen 2
Valdabarátta í Wisconsin
Eugene Levy og Steve Martin berjast
um völdin í Cheaper by the Dozen 2.
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 34/100
Roger Ebert 75/100
Variety 40/100
Empire 40/100
Hollywood Reporter 40/100
The New York Times 30/100
(Allt skv. Metacritic)
SVO mikið hefur verið fjallað og skrafað um nýjustu kvikmynd
Ang Lee Brokeback Mountain að varla þarf að fjölyrða um sögu-
þráð myndarinnar. Í stuttu máli fjallar hún um tvo unga kúreka,
Ennis (Heath Ledger) og Jack (Jake Gyllenhaal) á fyrri hluta sjö-
unda áratugarins sem kynnast þegar þeir ráða sig til fjárhirðu á
fjallinu Brokeback í Wyomingfylki í Bandaríkjunum.
Með þeim tekst mikil vinátta sem dýpkar hægt og hægt þar til
úr verður ástarsamband. Þegar vertíðinni á fjallinu lýkur halda
þeir til byggða og fyrra lífs þar sem hefðbundin viðmið og gildi
samfélagsins ýta þeim í hjónaband og barneignir. Sumarið á fjall-
inu rennur þeim þó seint úr minni og þegar Ennis fær póstkort frá
Jack sem segir að hann muni eiga leið hjá, vakna hinar djúpu og
leyndu tilfinningar á ný.
Brokeback Mountain er byggð á smásögu eftir Pulitzer-
verðlaunahafann Annie Proulx. Myndin hlaut á dögunum sjö Gol-
den Globe tilnefningar og Gullna Ljónið á 62. Feneyjarhátíðinni í
september síðastliðnum.
Frumsýning | Brokeback Mountain
Jake Gyllenhaal og Heath Ledger þykja fara á
kostum í Brokeback Mountain.
Reuters
Kátir kúrekar
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 87/100 Roger Ebert 100/100 Variety 80/100 Empire 100/100 Hollywood Reporter 100/100
The New York Times 100/100 (Allt skv. Metacritic)
KVIKMYNDIN Jarhead er byggð
á endurminningum Bandaríkja-
mannsins Anthony Swofford sem
var sendur til að berjast í Persaflóa-
stríðinu árið 1990, tvítugur að aldri.
Myndin fylgir hinum unga Swofford
eftir þar sem hann gengur í gegn-
um erfiða herþjálfun í Bandaríkj-
unum og er svo sendur til Sádi-
Arabíu til að berjast í Persaflóa-
stríðinu. Þegar þangað er komið
hefst löng og erfið bið í brennandi
heitri eyðimörkinni, og reynir sú
lífsreynsla verulega á líkama og sál-
ir hermannanna. Umfram allt
fjallar Jarhead þó um vináttuna og
traustið sem myndaðist milli Swof-
ford og annarra hermanna undir
þessum skelfilegu kringumstæðum
við Persaflóa árið 1990.
Meðal leikara í Jarhead eru Jake
Gyllenhaal (Donnie Darko, The Day
After Tomorrow) og Óskars-
verðlaunahafarnir Jamie Foxx
(Ray, Collateral) og Chris Cooper
(Adaptation, American Beauty).
Leikstjóri myndarinnar er Sam
Mendes sem hlaut Óskars-
verðlaunin árið 2000 fyrir kvik-
myndina American Beauty.
Frumsýning | Jarhead
Endurminningar
frá Persaflóa
Jake Gyllenhaal í hlutverki sínu sem Swoff.
ERLENDIR DÓMAR:
Metacritic.com 58/100 Roger Ebert 88/100 Variety 60/100 Empire
60/100 Hollywood Reporter 60/100 The New York Times 50/100
(Allt skv. Metacritic)