Morgunblaðið - 13.01.2006, Síða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Nú færðu
11% ost
í sneiðum!
Nýtt
Opið 8-24 alladaga
í Lágmúla og Smáratorgi
Jóhanna
Thorsteinson
– þinn liðsmaður
2. sætiðwww.johanna.is
Framboð til prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
21.janúar 2006
INGIBJÖRG Ögmundsdóttir frá Sauðárkróki
fagnaði í gær 100 ára afmæli sínu á Hrafnistu í
Reykjavík. Hún ber aldurinn vel og þrátt fyrir
hundrað ár er hún hress.
Ingibjörg fæddist í Húnavatnssýslu, en fluttist
snemma á Sauðárkrók, þar sem hún ólst upp
með foreldrum sínum. Þá flutti hún til Siglu-
fjarðar ásamt manni sínum árið 1945 en níu ár-
um síðar færðu þau sig um set til Reykjavíkur og
sneru ekki við.
Til veislunnar komu hátt í hundrað manns og
að sögn Halldórs Péturssonar, sonar Ingibjarg-
ar, má með sanni segja að gamla konan hafi ver-
ið umvafin ættingjum, vinum og blómum á hátíð-
ardaginn. Ingibjörg á orðið mikið af afkomend-
um og voru fimm ættliðir komnir saman í
veislunni í gær.
Var í pössun fyrir 88 árum
Þar var einnig Franch Michelsen sem Ingi-
björg passaði sem barn á Sauðárkróki – en
Franch er 92 ára í dag. Hann sagðist ekki muna
mikið eftir þeim dögum en ein minning stæði þó
upp úr. „Ég hef verið fjögurra ára. Ég man að
Ingibjörg var með mig úti að ganga og við hitt-
um vinkonu hennar á förnum vegi. Það sem ég
skildi af samtali þeirra var að Ingibjörg sagði við
vinkonu sína að nú væri hún Guðrún að eiga og
átti þá við þegar Páll bróðir minn kom í heim-
inn.“
Halldór segir móður sína afskaplega ánægða
með hvernig til tókst og hafi þótt ótrúlega gam-
an þegar upp var staðið.
Ingibjörg situr ekki auðum höndum á Hrafn-
istu, en prjónar sér til ánægju og er handverk
hennar gjarnan til sölu á vorbasar Hrafnistu.
Ingibjörg hefur einnig gaman af lestri og notast
við stækkunargler til þess.
Halldór segir móður sína heyra illa en líka af-
ar illa við heyrnartæki og því hafi öll þau tæki
sem henni hafa borist gufað upp á dularfullan
hátt.
Ingibjörg Ögmundsdóttir hélt upp á hundrað ára afmæli sitt á Hrafnistu í gær
Morgunblaðið/Ómar
Fimm ættliðir voru komnir saman í veislu Ingi-
bjargar. Hér er Ingibjörg ásamt barnabarni sínu,
Ingibjörgu Sigurðardóttur, og Emblu Sól Elfu-
dóttur, barnabarni hennar. Fyrir aftan þær stend-
ur Elfa Björk Hjálmarsdóttir, móðir Emblu Sólar.
Ingibjörg Ögmundsdóttir heilsar Franch Mich-
elsen sem hún gætti norður í Skagafirði fyrir
88 árum, en hann var þá 4 ára gamall.
Umvafin
ættingjum
og blómum
ÞORGERÐUR K. Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra hefur ákveðið
að skipa starfshóp til að kanna fýsi-
leika þess að sameina Háskóla Ís-
lands (HÍ) og Kennaraháskóla Ís-
lands (KHÍ). Ákvörðunin er tekin að
höfðu samráði við rektora beggja
skólanna. Guðmundi Árnasyni ráðu-
neytisstjóra er ætlað að leiða hópinn.
Hann segir að fyrst og fremst verði
horft til þess hvort sameining þess-
ara tveggja skóla muni bæta kenn-
aramenntunina í landinu.
„Ég á von á því að menn muni
fyrst og fremst horfa til þess hvort
sameiningin sé til þess fallin að
styrkja kennaramenntunina og þá
menntun sem þessir skólar hafa ver-
ið að veita.“ Hann segir að einnig
verði litið til þess að hvaða marki
kennaramennt-
unin gæti fært
sér í nyt sambýlið
við mismunandi
fræðasvið innan
HÍ.
Guðmundur
segir að sparnað-
ur liggi ekki að
baki þessari hug-
mynd. „Þetta er
ekki gert í sparn-
aðarskyni en ef þetta getur leitt til
þess að fjármunir nýtist betur en nú,
er það út af fyrir sig jákvætt.“ Hann
segir að HÍ og KHÍ hafi á sínum
tíma kannað kosti og galla samein-
ingar skólanna, og voru niðurstöð-
urnar birtar í skýrslu árið 2002. „Við
munum fara yfir hana og önnur gögn
sem fyrir liggja,“ segir hann.
Guðmundur segir að ætlunin sé að
skila fyrsta áfanga úttektar hópsins
til ráðherra fyrir lok febrúar. „Í kjöl-
far þess mun ráðherra væntanlega
taka sína ákvörðun. Ef hún verður sú
að það beri að stefna að sameiningu
skólanna verður starfshópnum
væntanlega falið að vinna áfram með
það mál og útfæra hvernig að þeirri
sameiningu verður staðið.“
Hann minnir á að tveir háskólar,
Tækniháskóli Íslands og Háskólinn í
Reykjavík, hafi verið sameinaðir á
síðasta ári. „Ég held að það ferli hafi,
út af fyrir sig, verið lærdómsríkt
ráðuneytinu,“ segir hann.
Auk Guðmundar verða í starfs-
hópnum, Kristín Ingólfsdóttir, rekt-
or HÍ, Ólafur Proppé, rektor KHÍ,
Börkur Hansen, prófessor við KHÍ,
Ólafur Harðarson, forseti félagsvís-
indadeildar HÍ, Guðmundur Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri KHÍ, og
Þórður Kristinsson, framkvæmda-
stjóri við HÍ.
Kostir sameiningar
HÍ og KHÍ metnir
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Guðmundur
Árnason
ANNAR piltanna sem lagði fram
kæru á hendur manninum sem
svipti sig lífi eftir umfjöllun DV
um meint kynferðisbrot hans,
segist harma fréttaflutning DV
enda hafi blaðið með honum eyði-
lagt framgang málsins og sann-
leikurinn muni nú aldrei koma
fram eins og hann hafi vonast
eftir. Þetta kom fram í Kastljósi í
Sjónvarpinu í gær. Hann gagn-
rýndi jafnframt aðgangshörku
blaðsins gagnvart sér og að-
standendum sínum eftir að mað-
urinn svipti sig lífi, sem hafi stöð-
ugt reynt að fá viðbrögð þeirra.
„Fyrst eyðileggja þeir málið og
síðan reyna þeir að eyðileggja
okkur og fjölskyldur okkar með
því að láta okkur ekki í friði þótt
við viljum ekkert við þá tala.“
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
hefur samið drög að frumvarpi til
breytingar á 25. kafla almennra
hegningarlaga og skaðabótalög-
um sem felur í sér aukna vernd á
friðhelgi einkalífs einstaklinga og
fjölskyldna þeirra gagnvart æru-
meiðandi ummælum eða aðdrótt-
unum. Segir Sigurður Kári að
umfjöllun DV um manninn sem
svipti sig lífi hafi verið kornið
sem fyllti mælinn, en alls ekki
einu ástæðu þess að hann kynni
nú frumvarpsdrögin.
Undir miðnætti í gærkvöldi
höfðu yfir 30 þúsund manns tekið
þátt í undirskriftasöfnun ýmissa
samtaka ungs fólks þar sem
skorað er á blaðamenn og rit-
stjóra DV að endurskoða rit-
stjórnarstefnu sína og sýna
ábyrgð og virðingu í umfjöllun
um menn og viðkvæm málefni.
Söfnunin hófst kl. 11 hinn 11.
janúar en lokað verður fyrir
skráningu í dag. Undirskriftalist-
inn verður í kjölfarið afhentur
þeim aðilum sem áskorunin bein-
ist að.
Áskorun frá auglýsendum
Samtök auglýsenda gagn-
rýndu umfjöllun DV í gær og
sendu frá sér áskorun þar sem
auglýsendur eru hvattir til að
sniðganga blaðið þar til stjórn-
endur þess hafa fært siðareglur
blaðsins til samræmis við siða-
reglur Blaðamannafélags Ís-
lands.
Þessi mál verða á meðal um-
fjöllunarefna á stjórnarfundi
Dagsbrúnar hf., móðurfélags
DV, í dag þar sem umfjöllun
undanfarna daga verður rædd.
Gengi hlutabréfa í Dagsbrún hf.
lækkaði um 0,9% í Kauphöll Ís-
lands í gær.
Harma um-
fjöllun DV
Kærendur mannsins sem svipti sig
lífi á Ísafirði í viðtali í Kastljósi
Aukin vernd | 4
TÍU bílar á austurleið rákust saman
í Ártúnsbrekku í Reykjavík rétt fyrir
klukkan 22 í gærkvöldi. Að sögn lög-
reglu seint í gærkvöldi var hugsan-
legt að um tvo aðskilda árekstra
væri að ræða en ástæður slyssins
voru enn óljósar. Einn ökumaður fór
sjálfur á slysadeild en meiðsli hans
voru ekki talin alvarleg. Þá var van-
fær kona flutt til skoðunar á kvenna-
deild LSH. Lögregla telur að hálka
hafi valdið árekstrinum.
Tíu bíla
árekstur
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráðherra
hefur gefið staðfestingu sína á
stofnun Menntaskóla Borg-
arfjarðar og
hyggst hún
gefa út skip-
unarbréf fyrir
samstarfshóp
sem klára mun
undirbúnings-
vinnu fyrir
skólann. Mun
hópurinn taka
við af núver-
andi stýrihóp
en í samstarfs-
hópnum munu
að öllum lík-
indum sitja
tveir frá ráðuneytinu og þrír frá
Borgarbyggð.
„Við gerum ráð fyrir að skóla-
hald hefjist haustið 2007,“ segir
Helga Halldórsdóttir, sem situr í
bæjarráði Borgarbyggðar. „Við
erum í skýjunum yfir að þetta
skuli vera frágengið og þetta er
ákveðið skref í rétta átt.“
Upphaflega var stefnt að því að
skólahald myndi hefjast næsta
haust en Helga segir góðar og
gildar ástæður liggja að baki
seinkuninni en hún getur lítið tjáð
sig um þær. Hún sagði þó ým-
islegt spennandi vera í farvatninu
og nýjungar í skólahaldi sem
kynntar yrðu síðar.
Menntaskóli í
Borgarbyggð
haustið 2007