Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 4
HVAÐA eiginleikum þarf góður leiðtogi að búa yfir? Þetta er spurning sem margir velta fyrir sér og flestir ættu að velta fyrir sér. Einn mikilvægast eig- inleiki góðs leiðtoga er hæfileikinn til að skilja kjarnann frá hisminu og geta skapað eina heild úr mörgum ólíkum þáttum. Þetta er mat viðskipta- tímaritsins Harvard Bus- iness Review, HBR, en vitn- að er í umfjöllun þess á vef VR. Þar segir að ritstjórar HBR setji þennan hæfileika efstan á lista tímaritsins yf- ir hugmyndir og hluti sem þeir telja að marka muni tímamót á árinu 2006. „Í nýlegu tölublaði HBR þetta árið er birtur listi yf- ir þætti – bæði hluti og hugsmíðar – sem ritstjór- arnir kalla tímamóta- Hvað einkennir góðan leiðtoga? Reuters Jack Welch gat sér góðan orðstír þegar hann var forstjóri General Electric og er eftirsóttur fyrirlesari um stjórnun. hugmyndir ársins 2006. Þessi listi var m.a. unninn í samvinnu við World Econ- omic Forum, Alþjóðlegu efnahagsstofnunina. Í fyrsta sæti er það þessi hæfileiki að geta metið þær ólíku upplýsingar sem okk- ur berast, geta séð hvað skiptir máli og hverju má henda fyrir róða, skipu- leggja það sem eftir stend- ur og koma því á framfæri til annarra. Greinarhöfundur blaðsins segir þennan hæfileika sér- staklega mikilvægan fyrir leiðtoga. Það sé þeirra að sjá og móta heildarmynd- ina og afleiðingar ákvarð- ana þeirra séu oft af- drifaríkar. Þeir fá alla jafna meiri upplýsingar en meðaljóninn og því meiri hætta á að þeir missi fót- anna,“ segir á vef VR. 4 B SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ heldur áfram að grafa undan virðingu fyrir verkalýðsfélög- um um allan heim. Ástandið í Kína vekur sérstakan ugg, þar sem flest launafólk er ut- an verkalýðsfélaga og þau op- inberu verkalýðsfélög sem starfa eru gagnslaus við að verja réttindi launafólks. Til- raunum til að koma á legg virkum verkalýðsfélögum er mætt af fullri hörku. Þessar árásir á verkalýðs- félög eru hins vegar byggðar á fullkomnum misskilningi. Þar sem verkalýðsfélög og réttindi þeirra eru virt gegna þau ómetanlegu hlutverki við eflingu heilbrigðs atvinnulífs. Árásir á verkalýðshreyf- inguna, hvort sem er í Kína eða Austur-Evrópu, innan Evrópubandalagsins með þjónustutilskipuninni eða hér heima, kunna að vera skamm- tímahagsmunum einstakra atvinnurekenda til góða. En þær eru brot á mannréttind- um og koma niður á velferð al- mennings og samfélagsins í heild. Við þeim verður verka- lýðshreyfingin að bregðast með stuðningi almennings,“ segir á vef BSRB. ALLS voru 145 manneskj- ur myrtar í heiminum vegna þess að þær tóku þátt í starfi verkalýðsfélaga árið 2004. Frá þessu er greint á vef BSRB og vitnað er í árlega skýrslu Alþjóðasambands frjálsra verkalýðsfélaga, ICFTU, um brot gegn réttindum verka- lýðsfélaga víða um heim fyrir árið 2004. Í skýrslunni eru rakin viðvarandi brot gegn rétti fólks til að mynda og vera í verkalýðsfélögum og eru þessi brot af öllum toga, t.d. eru morð, ofbeldi, fangels- isvist og bann við verkalýðs- félögum fastir liðir. Skráðum morðum fjölgaði um 13 frá árinu á undan, en á vefnum segir að raunveruleg- ar tölur séu þó eflaust mun hærri. Þá sé ótalinn sá fjöldi sem er rekinn úr starfi fyrir það eitt að krefjast sann- gjarnra réttinda og í löndum án velferðarkerfis þýðir það ávísun á örbirgð. Ástandið í Kína vekur ugg „Óheft og skæð samkeppni á hinum alþjóðlega markaði Morðum vegna að- ildar að verkalýðs- félögum fjölgar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.