Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 5

Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 B 5 Héðinn hf. leitar að starfsmönnum í hurðardeild fyrirtækisins. Um er að ræða uppsetningar á iðnaðar- og bílskúrshurðum ásamt viðhaldi og þjónustu. Við erum að leita að góðum mönnum sem vilja vinna við fjölbreytt og áhugaverð verkefni hjá fyrirtæki í stöðugum rekstri við bestu aðstæður. Umsóknir sendist á netfang hedinn@hedinn.is eða í pósti / faxi. Allar frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofutíma í síma 569-2100 og öllum umsóknum verður svarað. Héðinn hf. er rótgróið málmiðnaðarfyrirtæki frá árinu 1922 með víðtæka starfsemi í öllum þáttum innan vélvirkjunar og járnsmíði. Starfsemin er til húsa í 5.000 m² húsnæði búið öllum fullkomnustu vélum og tækjum sem völ er á. Fyrirtækið leggur metnað sinn í vönduð vinnubrögð í hvívetna og ábyrgð gagnvart bæði starfsmönnum sínum og viðskiptamönnum. Starfsmannaaðstaða er góð og mötuneyti er á staðnum. H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a Hurðaruppsetningar og viðhald  Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn Í Akurgerði Upplýsingar í síma 461 1600 Sparisjóðurinn Akranesi og TM á Akranesi óska eftir að ráða starfsmann í fullt starf Um er að ræða spennandi starf á nýjum vett- vangi sem býður upp á mikla möguleika til vaxtar í framtíðinni enda er starfseining þessi ný af nálinni og talsverð þróun framundan. Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði. Reynsla af bankastörfum og/eða tryggingamál- um er mikill kostur Leitað er eftir ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingi með ríka þjónustulund sem getur sýnt frumkvæði og er lipur í samstarfi. Umsókn, ásamt náms- og starfsferilslýsingu, sendist á thorkell@spm.is fyrir 19. febrúar en nánari upplýsingar veitir Þorkell Logi Steinsson útibússtjóri í síma 861 4636. Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða starfsmann í hálft starf í flugrekstrar- deild flugöryggisviðs Starfssvið: Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða starfsmann í 50% starf í flugrekstr- ardeild flugöryggissviðs. Helstu verkefni eru meðhöndlun gagna og ýmis skjala- vinnsla, svo sem skráningarvinna, söfn- un og úrvinnsla ýmissa upplýsinga. Starfið felst einnig í svörun einfaldra er- inda samkvæmt verklagsreglum deildar- innar, sem og öðrum tilfallandi skrif- stofustörfum. Hæfniskröfur Umsækjendur skulu hafa lokið stúdents- prófi og/eða hafa haldgóða starfsreynslu sem nýtist í starfinu. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslenskri og enskri tungu. Auk þess þarf viðkomandi að hafa góða tölvukunnáttu. Við leitum að samviskusömum og ná- kvæmum starfsmanni, með góða og þægilega framkomu. Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt að verkefnum sínum. Vinnutími getur hvort heldur verið fyrir eða eftir hádegi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega. Laun eru samkvæmt viðeigandi kjara- samningum starfsmanna ríkisins Frekari upplýsingar um starfið gefa Frið- finnur Skaftason deildarstjóri og Ingunn Ólafsdóttir starfsmannastjóri í síma 569 4100. Skriflegar umsóknir með ítarlegum upp- lýsingum um menntun, fyrri störf og mynd sendist starfsmannahaldi Flug- málastjórnar fyrir 27. febrúar 2006. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu Flugmálastjórnar, www.flugmalastjorn.is Öllum umsóknum verður svarað. Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun, sem innir af hendi margvíslega þjónustu í þágu flugsamgangna. Hlutverk Flugmálastjórnar er í meginatriðum að hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan, að sjá um upp- byggingu og rekstur flugvalla og veita flugumferðar- og flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug og alþjóðlegt flug yfir Norður-Atlantshafi. Stofnuninni er skipt í fjögur svið, sem samtals hafa um 250 starfsmenn um allt land. Flestir þessara starfsmanna hafa hlotið sérhæfða þjálfun. Flug- málastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.