Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 B 15
Verkefnastjóri starfsþróunar
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings til að hafa umsjón
með starfsþróun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á LSH. Um
nýtt starf er að ræða og ráðið verður í það til tveggja ára með
möguleika á framlengingu. Starfshlutfall er 50% og veitist starfið
frá 1. apríl nk. Hjúkrunarfræðingnum er ætlað að starfa með
starfsþróunarráði hjúkrunar að skipulagi og framkvæmd stefnu í
starfsþróun hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á LSH. Umsækj-
endur skulu hafa mjög góða innsýn í menntun og störf hjúkrun-
arfræðinga, hafa frumkvæði og sjálfstæði til verka, hafa góða
samskiptahæfileika og reynslu af verkefnastjórnun. Umsækjend-
ur þurfa að hafa reynslu í stjórnun og kennslu. Umsækjendur
skulu hafa lokið meistara- eða doktorsprófi í hjúkrun. Með um-
sókn skal leggja fram skrá yfir náms- og starfsferil ásamt afritum
af prófskírteinum. Mat á umsækjendum byggist á innsendum
gögnum og viðtölum.
Umsóknir berist fyrir 1. mars nk. til skrifstofu hjúkrunarforstjóra
Eiríksgötu 5, 101 Rvk.
Upplýsingar um starfið veitir Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri í síma 543 1109, netfang annastef@landspitali.is.
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa frá og með 1. maí nk. á meltingar- og nýrna-
deild 13E við Hringbraut. Starfshlutfall og vinnutími samkomu-
lag en fastar næturvaktir koma vel til greina.
Deild 13E er ný 20 rúma legudeild auk dagdeildarrýmis sem
tekur til starfa í byrjun maí nk. eftir endurhönnun húsnæðis.
Deildin mun þjónusta sjúklinga með bráða og langvinna sjúk-
dóma í meltingarfærum og nýrum. Lögð verður áhersla á að
skapa gott uppbyggjandi starfsumhverfi og veita einstaklings-
hæfða hjúkrun. Við deildina hafa nú þegar ráðið sig hjúkrunar-
fræðingar og sjúkraliðar sem hafa langa reynslu í hjúkrun þess-
ara sjúklinga. Boðið verður upp á þriggja vikna markvissa að-
lögun með reyndum hjúkrunarfræðingi. Mikið skipulags- og
mótunarstarf verður í gangi á árinu og verður það í höndum
hjúkrunarfræðinga deildarinnar. Hér er því kjörið tækifæri fyrir
metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga að takast á við spennandi og
krefjandi verkefni.
Umsóknir berist fyrir 27. febrúar nk. til Hildar Þóru Hallbjörns-
dóttur, deildarstjóra 13E Hringbraut, sími 862 3617, netfang
hildurha@landspitali.is og veitir hún upplýsingar ásamt Herdísi
Herbertsdóttur, sviðsstjóra, sími 543 6430, netfang her-
dish@landspitali.is.
Sálfræðingur
óskast til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi á geðsvið.
Starfshlutfall er 100%.
Störf sálfræðinga á geðsviði eru í takt við meginhlutverk spítal-
ans, að veita sjúklingum og aðstandendum þeirra þjónustu,
stunda rannsóknir, fræða og þjálfa nemendur heilbrigðisstétta.
Á sviðinu er lögð áhersla á að veita skilvirka þjónustu, í náinni
samvinnu við aðra starfsmenn, til að ná sem bestum árangri í
meðferð sjúklinga samhliða hagkvæmni í rekstri.
Leitað er að sálfræðingi með reynslu af meðferð fullorðinna ein-
staklinga með alvarlegar geðraskanir. Mikilvæg ráðningarskil-
yrði eru reynsla af atferlisgreiningu og hugrænni atferlismeðferð,
bæði einstaklings- og hópmeðferð, auk góðra samstarfshæfi-
leika og reynslu af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu fagstétta.
Umsóknir berist fyrir 27. febrúar nk. til Jóns Friðriks Sigurðsson-
ar, forstöðusálfræðings, sálfræðiþjónustu geðsviðs við Hring-
braut, netfang jonfsig@landspitali.is.
Upplýsingar veitir Agnes Agnarsdóttir, sálfræðingur á bráða- og
ferlideild geðsviðs við Hringbraut, í síma 543 1000, netfang
agnesa@landspitali.is. Mat á umsóknum byggist á innsendum
gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Iðjuþjálfi
óskast á geðsvið frá og með 1. apríl nk. Iðjuþjálfar á geðsviði
starfa eftir meginhlutverki spítalans, að veita sjúklingum og að-
standendum þeirra þjónustu, stunda rannsóknir og að fræða og
þjálfa nemendur heilbrigðisstétta. Iðjuþjálfar vinna í þverfaglegu
teymi heilbrigðisstétta í tengslum við móttöku- og meðferðar-
deildir, endurhæfingadeildir, dag- og göngudeildir og við eftir-
fylgni. Ávallt er unnið út frá styrkleikum sjúklinga, ýmist einstak-
lingsbundið og/eða í hóp.
Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, sveigjanleika og hæfni í
samskiptum.
Umsóknir skulu berast fyrir 27. febrúar nk. til Annettu A. Ingi-
mundardóttur, forstöðuiðjuþjálfa, iðjuþjálfun við Hringbraut,
sími 543 3305, netfang annettai@landspitali.is og veitir hún
upplýsingar ásamt Fanneyju B. Karlsdóttur, yfiriðjuþjálfa á
Kleppi, sími 543 4296, netfang fanneybk@landspitali.is.
Laun ofangreindra starfa eru samkvæmt gildandi samningi viðkomandi
stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum
Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á
heimasíðu www.landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við
ráðningar í störf á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Landspítali
- háskólasjúkrahús er reyklaus vinnustaður.
Yfirþroskaþjálfi
á nýjan áfangastað
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra í Reykjavík
óskar eftir að ráða yfirþroskaþjálfa á nýjan
áfangastað, miðsvæðis í Reykjavík, fyrir ungt
fólk með einhverfu og skylda fötlun.
Yfirþroskaþjálfi þarf m.a. að:
taka þátt í skipulags- og þróunarvinnu varð-
andi uppbyggingu og innra starf áfangastað-
arins
vera staðgengill forstöðuþroskaþjálfa
bera faglega ábyrgð á þjónustunni ásamt
forstöðuþroskaþjálfa
hafa jákvæð viðhorf og góða hæfni í sam-
skiptum og samstarfi
hafa reynslu af störfum með fólki með ein-
hverfu og skylda fötlun
hafa reynslu af starfsmannahaldi
Menntunar- og hæfniskröfur:
háskólapróf í þroskaþjálfun
reynsla af meðferðarstörfum á sviði ein-
hverfu og geðraskana
reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi
hæfni og sveigjanleiki í samskiptum og já-
kvæð viðhorf
þekking og yfirsýn varðandi málefni fatlaðra
Launakjör eru samkvæmt samningum ríkisins
og viðkomandi stéttarfélags. Skriflegar um-
sóknir ásamt ferilskrá berist til starfsmanna-
stjóra, Guðnýjar Önnu Arnþórsdóttur, Síðu-
múla 39, 108 Reykjavík, fyrir 27. febrúar nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof-
unni og á netinu, http://www.ssr.is Öllum um-
sóknum verður svarað, þegar ákvörðun hefur
verið tekin um ráðningu. Staðan veitist frá
1. mars 2006 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Anna
Arnþórsdóttir, starfsmannastjóri, netfang
gudnya@ssr.is, sími 533 1388 og Hróðný Garð-
arsdóttir, sviðsstjóri fullorðinssviðs, netfang
hrodny@ssr sími 533 1388.
Á SSR er unnið í samræmi við jafnréttisáætlun.
Vélstjóri óskast
1. vélstjóra vantar á togara sem stundar bol-
fiskveiðar. Vélarstærð 1309 kw. Þarf að geta
leyst af sem yfirvélstjóri. Upplýsingar í síma
450 4620 á skrifstofutímum.
Héðinn hf. leitar að vélvirkjum og vélstjórum til framtíðarstarfa.
Við erum að leita að góðum mönnum sem vilja vinna við fjölbreytt
og áhugaverð verkefni hjá fyrirtæki í stöðugum rekstri við bestu
aðstæður. Getum bætt vi› nemum í Vélvikjun.
Umsóknir sendist á netfang hedinn@hedinn.is eða í pósti / faxi.
Allar frekari upplýsingar eru gefnar á skrifstofutíma
í síma 569-2100 og öllum umsóknum verður svarað.
Héðinn hf. er rótgróið málmiðnaðarfyrirtæki frá árinu 1922 með víðtæka starfsemi í
öllum þáttum innan vélvirkjunar og járnsmíði. Starfsemin er til húsa í 5.000 m² húsnæði
búið öllum fullkomnustu vélum og tækjum sem völ er á. Fyrirtækið leggur metnað
sinn í vönduð vinnubrögð í hvívetna og ábyrgð gagnvart bæði starfsmönnum sínum og
viðskiptamönnum. Starfsmannaaðstaða er góð og mötuneyti er á staðnum.
H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a
Vélvirkjar/Vélstjórar
Hjúkrunarfræðingar
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir
lausar til umsóknar stöður hjúkrunarfræðinga
við Sjúkradeild Fjórðungssjúkrahússins í Nes-
kaupstað.
Um er að ræða 2–3 stöður við almenna hjúkrun
á öllum vöktum á blandaðri deild en stöðurnar
eru lausar frá febrúar 2006 eða eftir nánara
samkomulagi þar um. Starfshlutfall er ca 80–
100% og starfskjör samkvæmt kjarasamningi
FÍH og ríkisins, ásamt mögulegri aðstoð í hús-
næðismálum og flutningi á svæðið ef með þarf
og fleira þ.h. Nú stendur yfir endurbygging
á eldri hluta spítalans, ásamt viðbyggingu, og
er áætlað að þeim framkvæmdum ljúki í upp-
hafi árs 2007. Þá er og mikil uppbygging í fjórð-
ungnum.
Allar frekari upplýsingar gefa Guðrún Sigurð-
ardóttir, hjúkrunarstjóri FSN, s. 470 1450, gud-
runsig@hsa.is og Valdimar O. Hermannsson,
rekstrarstjóri HSA/FSN, s. 860 6770, valdi-
marh@hsa.is. Sjá einnig upplýsingar:
www.hsa.isv/FSN og www.fjardabyggd.is
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2006, og
skulu umsóknir, er greina frá m.a. reynslu og
fyrri störfum, sendast til: HSA/FSN, Mýrargötu
20, 740 Fjarðabyggð eða á ofanritaða.
Til frekari upplýsinga: Neskaupstaður er byggðakjarni innan Fjarða-
byggðar sem er stærsta sveitarfélag á Austurlandi. Neskaupstaður
stendur við Norðfjörð og er íbúafjöldi þar um 1540 en á upptöku-
svæði HSA/FSN, búa nú u.þ.b. 11–12.000 manns og fer ört fjölgandi.
Mikil uppbygging á sér nú stað í landsfjórðungnum, m.a. vegna
virkjunar- og stóriðjuframkvæmda og mun sú þróun verða áfram
a.m.k. næstu árin. Í Fjarðabyggð er rekin öflug þjónusta, verslun
og afþreying er fjölbreytt svo og rekstur hótela og veitingahúsa.
Í Neskaupstað er starfræktur grunnskóli, tónskóli og leikskóli ásamt
Verkmenntaskóla Austurlands en einnig er góð aðstaða til íþróttaiðk-
unar. Sundlaug, íþróttahús, íþróttavöllur og golfvöllur eru á svæðinu
sem og fínasta skíðasvæði í Oddskarði. Náttúrufegurð er mikil á
svæðinu enda eru mörg skemmtilegustu göngu- og útivistarsvæði
landsins á Austurlandi. Sjá einnig heimasíðu HSA/FSN www.hsa.is
Embætti saksóknara
Laust er til umsóknar embætti saksóknara við
ríkissaksóknaraembættið.
Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og
með 15. mars 2006.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu eigi síðar en hinn 3. mars nk.