Morgunblaðið - 15.02.2006, Side 1

Morgunblaðið - 15.02.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 45. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Borgardýrin kortlögð Heimilishagir gæludýranna í Reykjavík skoðaðir Menning 40 Úr verinu | Þorskurinn fúlsaði við pylsum  Ýsuveiði og kvótaleysi  (St)ormur í vatnsglasi Íþróttir | Danir og Svíar í Laugardalinn í haust  Sveinn Elías öflugur í sjöþrautinni Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • idborg midborg.is Með blaðinu í dag fylgir fasteignablað Miðborgar ÍSLENDINGUR á fertugsaldri var skotinn til bana í El Salvador og fannst látinn þar á sunnudag. Hinn látni hét Jón Þór Ólafs- son og var fæddur 28. október 1968. Hann læt- ur eftir sig sambýlis- konu á Íslandi og tvö börn frá fyrri sambúð. Umfangsmikil leit hófst að Jóni Þór á sunnudag eftir að sam- starfsmenn hans höfðu gert lögreglu í El Salva- dor viðvart um að hans væri saknað. Lék grun- ur á að honum hefði ver- ið rænt en samstarfs- maður Jóns Þórs segir að ofbeldi gegn útlendingum eða mannrán séu ekki algeng í San Salvador og málið sé mjög óvenjulegt. Tildrög málsins eru ókunn en lög- regluyfirvöld í El Salvador hafa tekið það til rækilegrar rannsóknar með þátttöku alþjóðadeildar ríkislögreglu- stjóra sem fylgist náið með þróun þess og hefur sent fyrirspurn til al- þjóðalögreglunnar Interpol í El Salvador. Jón Þór starfaði í El Salvador sem staðarverkfræðingur á vegum ís- lenska fyrirtækisins Enex sem er sameiginlegt útrásarfyrirtæki orku- og ráðgjafarfyrirtækja á Íslandi. Vann hann við gerð jarðvarmaorkuvers en að jafnaði hafa 2–4 Ís- lendingar starfað á veg- um Enex þar syðra frá því vorið 2005. Jón Þór hafði verið undanfarna sex mánuði við störf. Samkvæmt dag- blaðinu La Prensa Graf- ica fannst bíll Jóns Þórs á hraðbraut sem nefnist Calle Jerusalem. Kom fram að engin merki um átök hefðu sést í bílnum en útvarpinu hefði verið rænt úr honum. Að sögn Violetu Pulango, upplýs- ingafulltrúa hjá lögreglunni í San Salvador, fannst hinn látni klukkan 6.30 á sunnudagsmorgun á afskekktu svæði um 43 km frá höfuðborginni, San Salvador. Pulango sagði í samtali við Morgunblaðið að fundist hefðu tvö lík, annað af karlmanni og hitt af konu og voru bæði með skotsár víða á lík- amanum. Hin látnu voru án skilríkja. Þau voru flutt á sjúkrahús þar sem kennsl voru borin á Jón Þór. Að sögn lögreglunnar í San Salvador hét hin látna Brenda America Salinas frá El Salvador. Ekki er vitað hvort og hvaða tengsl hafi verið á milli hinna látnu en rannsókn er m.a. ætlað að upplýsa það. Enginn hafði verið hand- tekinn í gær vegna málsins og er ekki vitað hvað bjó að baki morðunum. Ómar R. Valdimarsson, ræðismað- ur El Salvador á Íslandi, hefur haft samband við sendiráð landsins í Stokkhólmi, sem aftur hefur haft samband við lögregluna í San Salva- dor. Sagði Ómar að mikill þrýstingur væri á lögregluna þar að flýta rann- sókn málsins. Ómar sagði að hann og sendiráðið mundu verða fulltrúum Enex og aðstandendum Jóns Þórs innan handar og veita þá þjónustu sem hægt væri. Eftir Bryndísi Sveinsdóttur og Örlyg Stein Sigurjónsson                          San Salvador. AFP. | Alls voru 3.812 morð framin í El Salvador árið 2005 og hafa ekki verið fleiri í sjö ár. Mario Hernandez, framkvæmda- stjóri réttarlæknisfræðistofnunar- innar, greindi frá þessu í gær en um 80% þeirra sem myrtir voru í fyrra voru skotnir til bana. Er talið að aukningu í fyrra megi rekja til mik- illar fjölgunar gengja sem stjórna fíkniefnaviðskiptum og annarri glæpastarfsemi. „Við stöndum frammi fyrir glæpafaraldri,“ sagði Hernandez. „Það er mikið áhyggju- efni að á degi hverjum séu framin átta til tíu, eða jafnvel tólf morð.“ 3.812 morð í fyrra Berlín. AP. | Embættismenn í Þýskalandi sögðu í gærkvöldi að frumrannsóknir bentu til þess að tveir svanir sem fund- ust dauðir á þýsku eynni Rügen í Eystrasalti hefðu verið sýktir af H5N1-stofni fuglaflensu. Fá- ist þessi niðurstaða staðfest yrði það fyrsta tilfelli fugla- flensunnar í Þýskalandi og til marks um að hún færist nú norðar í Evrópu. Augljóst var að tíðindin ollu áhyggjum í Danmörku en í vef- útgáfum danskra dagblaða í gærkvöldi var bent á að Rügen væri í aðeins 100 km fjarlægð frá Møn og Falstri. Fyrr um daginn fékkst staðfest að fuglar sem drápust í Austurríki hefðu verið sýktir af fuglaflensu. Fuglaflensu varð fyrst vart í Asíu 2003 en síðan þá hefur a.m.k. 91 látist af völdum veik- innar. Í næstum öllum tilfellum hefur verið sýnt fram á að við- komandi höfðu verið í návígi við sýkta fugla. Sérfræðingar ótt- ast hins vegar að fuglaflensu- veiran stökkbreytist þannig að hún geti smitast milli manna, en gerist það er hætta á að til heimsfaraldurs komi. Fugla- flensa í Þýskalandi Washington. AFP, AP. | Veiðislysið sem Dick Cheney varð valdur að um sl. helgi í Texas hefur orðið öllum helstu grínistum í Bandaríkjunum tilefni til að fara með gamanmál um varaforsetann. Í gær mátti ráða að embættismenn í Hvíta húsinu hefðu komist að þeirri niðurstöðu að best væri að gera slíkt hið sama. Þá gant- aðist Scott McClellan, talsmaður Bandaríkjaforseta, með það á fundi með fréttamönnum að hann hefði sett upp appelsínugult bindi til að tryggja að Cheney sæi hann örugg- lega og skyti hann ekki fyrir slysni. Niðurstaða rannsóknar yfirvalda þjóðgarðs- og veiðistjórnunarmála í Texas er sú að veiðifélagi Cheneys, Harry Whittington, hafi verið að sækja villibráð sem hann hafði skot- ið og því fært sig frá þeim stað sem Cheney taldi hann vera á. Þeg- ar Cheney sá nýja bráð fljúga til himins sveigði hann sig skyndi- lega til hliðar og skaut úr byssu sinni, með þeim afleiðingum að Whittington fékk högl í andlit, háls og brjóst. Læknar Whittingtons, sem er 78 ára, sögðu að hann hefði fengið vægt hjartaáfall í gærmorgun af völdum hagla sem enn væru í brjóstholinu. Var hann hins vegar ekki talinn í lífshættu en læknar sögðu að Whitt- ingon yrði þó líklega á sjúkrahúsi í um viku svo hægt væri að hafa eft- irlit með honum. Gantast með slysaskot Cheneys Scott McClellan Morgunblaðið/Ásdís Krakkarnir í Melaskóla notuðu góða veðrið í gær til þess að fara í bæjarferð með umsjónarkennara sínum. Voru ýmsar sögufrægar byggingar í borginni skoðaðar og teiknaðar, þeirra á meðal Alþingishúsið við Austurvöll. ÞESSIR ungu krakkar í sjö ára bekk Melaskóla notuðu góða veðrið í gær til þess að skoða og teikna ýmsar sögufrægar byggingar í Reykjavík, s.s. Stjórnarráðið, Dómkirkjuna og Menntaskólann í Reykjavík. Þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þau voru þau höfðu komið sér þægi- lega fyrir á Austurvelli þar sem þau teiknuðu Alþingishúsið. Að sögn Margrétar Stefánsdóttur, Teiknuðu Alþingishúsið í góða veðrinu umsjónarkennara í 2. bekk D í Mela- skóla, var tilefni bæjarferðar skóla- krakkanna að kynnast ýmsum sögu- frægum götum, byggingum og stöðum í Reykjavík. Segir hún þetta lið í kennslu námsefnis í samfélags- fræði sem nefnist: „Komum og skoð- um land og þjóð“. Segir Margrét bæjarferðina hafa mælst afar vel fyrir hjá krökkunum, enda mun skemmtilegra að fræðast um sögu borgarinnar á vettvangi heldur en aðeins lesa um hana á síðum bóka. „Með því að skoða staðina á vett- vangi festist námsefnið mun betur í minni, heldur en þegar maður er bara að skoða bækur heima,“ segir Margrét og tekur fram að reynt sé að nota tækifærið sem oftast þegar veður er gott til þess að fara út með börnin, til dæmis í skoðunarferðir á Árbæjarsafnið. Jón Þór Ólafsson Morð á Íslendingi í El Salvador til rannsóknar Úr verinu og Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.