Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÍSLENDINGUR MYRTUR Íslenskur karlmaður á fertugs- aldri var skotinn til bana í El Salvad- or um helgina. Hann fannst á af- skekktu svæði fyrir utan höfuðborg landsins ásamt öðru fórnarlambi á sunnudagsmorgun. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins. Tvöföldun á fimm árum Eignir lífeyrissjóðanna námu 1.200 milljörðum króna um síðustu áramót og jukust um 213 milljarða á síðasta ári. Heildareignir sjóðanna hafa tæplega tvöfaldast á fimm ár- um, frá árinu 2001, þegar þær námu 645 milljörðum króna. Reykingabann í Bretlandi Breska þingið samþykkti í gær- kvöldi algert bann við reykingum á opinberum stöðum í Englandi, en áður hafa sambærileg lög gengið í gildi á Norður-Írlandi og frá og með næsta mánuði verður bannað að reykja á opinberum stöðum í Skot- landi. Meiri réttarvernd þolenda Refsing fyrir að hafa kynferð- ismök við börn verður sú sama og fyrir nauðgun, verði frumvarp sem dómsmálaráðherra kynnti á rík- isstjórnarfundi að lögum. Í frum- varpinu er miðað að því að gera refsiákvæði kynferðisbrota nútíma- legri og tryggja að þolendur brot- anna fái meiri réttarvernd. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 23 Fréttaskýring 8 Forystugrein 24 Viðskipti 13 Viðhorf 26/31 Erlent 14/15 Minningar 36/37 Minn staður 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39 Akureyri 17 Staður&stund 38/39 Suðurnes 18 Leikhús 40 Landið 18 Bíó 42/45 Menning 19, 39/45 Ljósvakamiðlar 46 Daglegt líf 20/21 Veður 47 Umræðan 22/23 Staksteinar 47 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir fasteignablað Miðborgar. Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %                 &         '() * +,,,                                           eftir 3 daga ! HUGMYNDIR um að framlengja stokk sem fyrirhugað er að leggja Mýrargötu í að hluta, svo stokk- urinn næði framhjá fyrirhuguðu tónlistarhúsi og jafnvel upp að Kalkofnsvegi, hafa verið skoðaðar, en þær voru ekki taldar hentugar, segir Stefán Hermannsson, fram- kvæmdastjóri Austurhafnar. Sagt var frá því í Morgunblaðinu í gær að til stæði að lengja Mýr- argötu, og leggja hana í stokk á milli Ánanausts og Ægisgötu. Stef- án segir að á tímabili hafi verið uppi hugmyndir um að hafa þann stokk lengri, og láta hann ná framhjá tónlistarhúsinu sem reisa á við höfnina. Nú geri áætlanir hins vegar ráð fyrir því að Geirs- gatan verði hækkuð á kafla og breið göngubraut liggi undir hana frá tónlistarhúsinu að miðbænum. „Í sjálfu sér hafa þessir kostir allir verið skoðaðir talsvert mikið, en niðurstaðan varð sú að vera ekki með stokk á svæði tónlistarhúss- ins,“ segir Stefán. „Menn komust að þeirri niðurstöðu að mæla ekki með þessu, stokkar hafa bæði kosti og galla.“ Stefán bendir m.a. á að munn- arnir á stokkum séu talsvert lýti á umhverfinu, og skeri jafnvel meira í sundur heldur en akbraut í gegn- um svæðið. Auk þess séu samfara þeim vandamál við að koma um- ferð sem er á leið í miðbæinn upp úr stokknum. „Heilmikið af um- ferðinni fer ekki framhjá, hún er að koma í miðborgina og þarf að koma út úr stokknum á æskilegum stað,“ sagði Stefán. Ekki stokkur við tónlistarhúsið SANNARLEGA var fagurt um að litast á Aust- urvelli í vikunni en milt og bjart veðurfar í höf- uðborginni að undanförnu hefur vart farið fram hjá neinum. Hafa margir íbúar borgarinnar og nærliggjandi bæja nýtt sér blíðuna til upplyft- ingar með gönguferðum og útiveru af ýmsum toga. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu mun heldur draga úr hlýindum í höfuðborginni og verður hiti í kringum frostmark í dag. Morgunblaðið/Ómar Febrúarkvöldin fögru í Reykjavík TVEIR Litháar sæta nú gæslu- varðhaldi vegna amfetamínmáls sem kom upp í Leifsstöð laug- ardaginn 4. febrúar. Þar var annar mannanna handtekinn eftir að í farangri hans fundust tvær áfengisflöskur með tor- kennilegum vökva. Tollverðir veittu því athygli að átt hafði verið við tappa flasknanna og leiddi rannsókn í ljós að um var að ræða amfetamín á lokastigi framleiðslu. Var maðurinn, sem er 38 ára gamall, úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. febrúar. Á mánudag var seinni maðurinn handtekinn vegna málsins en þar er um að ræða Litháa sem búsettur er hérlendis. Var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til 17. febrúar að kröfu lögreglunn- ar í Reykjavík sem fer með rannsókn málsins. Ekki er ljóst hve miklu af am- fetamíni má ná úr þeim vökva sem var í flöskunum en að mati Jóhanns R. Benediktssonar sýslumanns á Keflavíkurflug- velli má fullvíst telja að um veruleg verðmæti geti verið að ræða. Jóhann vekur athygli á því að nú eru fjórir Litháar í gæslu- varðhaldi vegna umfangsmikilla amfetamínmála, þar af tveir vegna 4 kg af amfetamíni sem fannst í bíl í ferjunni Norrænu á Seyðisfirði í júlí sl. Málin telur Jóhann endurspegla það sem hann hefur áður sagt, þ.e. að rökstuddur grunur sé um að er- lendir glæpahringir teygi anga sína til landsins. Einnig leiki grunur á að amfetamínfram- leiðsla sé í gangi hér á landi en því hélt Jóhann fram þegar Lithái var tekinn með ætlaða brennisteinssýru á flöskum í Leifsstöð í fyrra, en hann var sýknaður af ákæru sýslumanns. Tekinn með am- fetamín á flösku ÁTTA hollensk pör voru í gær gefin saman af séra Pálma Matt- híassyni um borð í flugvél Ice- landair í tilefni af Valentínus- ardeginum. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, fór athöfnin fram í ganginum á SagaClass skömmu eftir að flugvélin var komin inn í íslenska lofthelgi. Eftir lendingu lá leið brúðhjónanna í Bláa Lónið þar sem dekrað var við þau áður en haldið var í bæinn, en þau gista á Nordica hóteli og þar var fram- reiddur sérlegur brúðkaups- kvöldverður í gærkvöldi. Giftu sig á degi elskenda Spurður um tildrög giftinganna um borð segir Guðjón félagið hafa boðið bandarískum farþegum slíka þjónustu á degi elskenda í örfá ár og hafi það mælst afar vel fyrir. Segir hann sérlega vinsælt meðal para að endurnýja hjúskaparheit sín um borð í flugvélum félagsins á leið sinni í rómantíska ferð til Íslands. Tekur hann fram að það eigi þó ekki við um hollensku brúðhjónin sem séu öll að játast hvert öðru í fyrsta sinn. „Við fundum fyrir því að áhugi væri fyrir svona ferðum í Hollandi og ákváðum að auglýsa slíka til- boðsferð, en renndum auðvitað blint í sjóinn með það hversu margir vildu nýta sér þetta. Þetta er auðvitað meira til gamans gert af okkar hálfu, en ekki síður í kynningarskyni,“ segir Guðjón og bendir á að með í för séu fulltrúar hollenskra sjónvarpsstöðva og út- breiddustu fjölmiðla þar í landi, en uppátækið var skipulagt í sam- vinnu Icelandair og hollenska brúðkaupstímaritsins Bruid- &Bruidegom (þ.e. Brúður og brúð- gumi). Spurður hvort framhald verði á slíkum giftingar- og brúð- kaupsferðapökkum segir Guðjón enn óvíst hvort og þá í hvaða lönd- um slíkar ferðir verði í boði á degi elskenda að ári. Hann vill þó ekki útiloka neitt, enda gaman að hjálpa fólki við að gera brúðkaups- daginn sem eftirminnilegastan. Átta pör giftu sig í flugvél Icelandair

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.