Morgunblaðið - 15.02.2006, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 7
FRÉTTIR
SILVÍA Nótt hefur verið tölu-
vert til umræðu undanfarið
bæði fyrir framgöngu sína í
fjölmiðlum og söngvakeppni
og síðan hefur vafist fyrir
mörgum hvernig réttast er að
fallbeygja nafn hennar, þ.e.
hver eignarfallsendingin er.
Að sögn Kára Kaaber, deild-
arstjóra hjá Íslenskri málstöð,
er hvort tveggja, Nóttar og
Nætur, rétt og jafn gilt.
Til gamans má geta þess að
á heimasíðu Hagstofunnar
kemur fram að sjö konur bera
nafnið Nótt sem fyrra eig-
innafn og 54 sem annað eig-
innafn. Enga á hún þó alnöfnu,
Silvía Nótt.
Silvíu Nóttar eða Nætur? Áherslubreytingar skýra
lokun verslunar Símans
EVA Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir að ástæðan
fyrir því að Síminn hafi ákveðið að
loka verslun sinni við Laugaveg
séu áherslubreytingar á starfsem-
inni. Reksturinn sé reglulega end-
urskoðaður og þessi ákvörðun hafi
verið tekin í framhaldi af því. Sím-
inn telur sig veita höfuðborgar-
svæðinu góða þjónustu með versl-
unum sínum í Ármúla, Kringlunni
og Smáralind.
Stjórn Þróunarfélags miðborgar-
innar skoraði í fyrradag á Símann
að endurskoða ákvörðun sína um
að loka versluninni við Laugaveg.
Samtökin mótmæla því að fyrir-
tæki af þessari stærðargráðu
hverfi úr miðborginni. Þau telja
nauðsynlegt að hafa verslun af
þessu tagi í miðborginni.
Aðspurð hvort áskorun Miðborg-
arinnar muni breyta einhverju
sagði Eva: „Síminn kemur ekki til
með að breyta ákvörðun sinni.“
Einar Örn Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Þróunarfélags mið-
borgarinnar, segist ekki skilja
ástæður lokunarinnar því búðin
hafi öllum stundum verið full. Með
lokuninni sé verulega verið að
draga úr þjónustu. „Þetta er álíka
og ef pósthúsinu væri lokað. Marg-
ir kjósa að versla í miðborginni og
sumir þeirra sem búa þar eða í ná-
lægum hverfum eiga ekki bíl,
þannig að þetta kemur sér illa fyrir
þá. En fyrst og fremst ætti það að
vera metnaðarmál fyrir stórfyrir-
tæki eins og símann að starfrækja
verslun í miðborg Reykjavíkur,“
sagði Einar.
Þóttist vera
ferðamaður til
að sleppa við toll
ERLENDUR verkamaður sem starf-
ar hér á landi hefur játað að hafa
reynt að komast hjá greiðslu að-
flutningsgjalda af bifreið sem hann
kom með til landsins með ferjunni
Norrönu í byrjun janúar. Lögreglan
á Selfossi handtók manninn og yf-
irheyrði sl. föstudag vegna gruns
um tollalagabrotið, og féllst hann á
lögreglusátt í málinu.
Maðurinn fékk akstursheimild til
ákveðins tíma við komuna til lands-
ins á þeirri forsendu að hann væri
ferðamaður, og þegar sá frestur
rann út fékk hann heimildina fram-
lengda hjá ríkistollstjóraembættinu
í Reykjavík. Starfsmenn tollstjóra
grunuðu manninn um að hafa gefið
rangar upplýsingar um ástæðu dval-
ar sinnar, og var því fylgst með hon-
um. Í ljós kom að hann er í bygg-
ingavinnu á Selfossi og var hann þá
handtekinn og yfirheyrður.
Alfriðaðir fuglar drepnir
Lögreglu-
rannsókn lokið
LÖGREGLURANNSÓKN er lokið
á tildrögum þess að þrír dauðir fálk-
ar og tvær branduglur, sem drepin
voru með haglabyssu, og tveir
smyrlar fundust í fórum karlmanns í
haust. Málið verður sent sýslumanni
á næstu dögum til ákvörðunar um
hvort höfðað verði opinbert mál á
hendur manninum og hugsanlega fé-
laga hans, að sögn lögreglunnar á
Húsavík. Er málið í grófum dráttum
upplýst að hennar sögn.
Málið komst upp þegar lögreglan
fann fuglahræin í frystikistu manns-
ins við húsleit sem tengdist eftirliti
með skotvopnum. Við húsleitina var
lagt hald á nokkrar byssur.
♦♦♦
Framkvæmda-
stjóri Nýsköp-
unarsjóðs hættir
GUNNAR Örn
Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri Nýsköp-
unarsjóðs at-
vinnulífsins
(NSA), hefur látið
af störfum hjá
sjóðnum, en frá
þessu er greint á
vefsíðu NSA.
Gunnar Örn hef-
ur gegnt stöðu framkvæmdastjóra
NSA í tæp þrjú ár. Starf fram-
kvæmdastjóra sjóðsins hefur verið
auglýst laust til umsóknar.
Gunnar Örn vildi ekki tjá sig um
hvers vegna hann hefði hætt störf-
um hjá Nýsköpunarsjóði þegar
Morgunblaðið leitaði eftir því í gær.
Ríkisstjórnin samþykkti sl. haust
að setja 2,5 milljarða króna í Ný-
sköpunarsjóð, en sjóðurinn hafði
um nokkurt skeið ekki haft neitt
fjármagn til að setja í ný nýsköp-
unarverkefni.
Gunnar Örn
Gunnarsson