Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hverjir bjóða
hagstæðustu
lánin?
á morgun
Ítarleg úttekt á
íbúðalánun
lánastofnana
„MÉR finnst hreint út sagt mikil
uppgjöf í þessum orðum Árna
Þórs,“ segir Lúðvík Geirsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, þegar blaða-
maður leitaði viðbragða hjá honum
við gagnrýni Árna Þórs Sigurðs-
sonar, borgarfulltrúa VG í Reykja-
vík, á rekstur Strætós bs.
„Það var náttúrlega stofnað til
þessa byggðasamlags til þess að
efla og treysta almenningssam-
göngur á höfuðborgarsvæðinu,“
segir Lúðvík og segir því ekki að
leyna að ákveðin ólga hafi verið í
kringum reksturinn. „Fyrir því eru
margar ástæður. Þannig gengur
mjög illa að vera að reka þetta sem
tvö ólík fyrirtæki í einu fyrirtæki.
Þá á ég við að við erum annars
vegar með útboð í helming af
rekstrinum og hins vegar með
gamla SVR inni í kerfinu. Þetta
hefur ekki alveg
gengið upp.“
Að sögn Lúð-
víks hafa fulltrú-
ar Hafnarfjarðar
í Strætó bs. ver-
ið fylgjandi því
að skoða þann
möguleika að
innanbæjarakst-
ur væri meira á
hendi hvers sveitarfélags fyrir sig.
„En að við sameinuðumst hins veg-
ar um tengileiðirnar milli sveitar-
félaganna. Við búum á einu sam-
eiginlegu samgöngu- og
atvinnusvæði og við verðum að
horfa til þess. Við getum ekki látið
bæjarmörk trufla okkur í þessum
efnum. Ég held að það sé mjög
mikilvægt að við höfum samstarf
og samvinnu um það sem við get-
um náð saman um,“ segir Lúðvík.
Spurður hvort Reykjavík sé að
borga fyrir góða þjónustu almenn-
ingssamgangna í nágrannasveitar-
félögum sínum, eins og Árni Þór
hefur haldið fram, vísar Lúðvík því
á bug. „Við Hafnfirðingar teljum
okkur vera að borga okkar hlut af
fullri sanngirni í þessari þjónustu.
Við viljum hins vegar gjarnan efla
þjónustuna þannig að það séu fleiri
sem nýti sér hana.“ Aðspurður
segir Lúðvík ljóst að þær vonir
sem gerðar voru til sameiningar
SVR og Almenningsvagna, um það
að hægt yrði að ná fram hagræð-
ingu, einfalda kerfið og gera það
skilvirkara, bæta þjónustuna og á
sama tíma draga úr kostnaði, hafi
ekki gengið eftir að öllu leyti og
segist hann ekki kunna neina eina
skýringu á því.
Samvinna sveitarfélaganna
á sviði samgangna mikilvæg
Lúðvík Geirsson
„KANNSKI væri það best fyrir
alla aðila að leysa upp Strætó bs.
Kannski borgar það sig fyrir okk-
ur hér í bæ að endurvekja gamla
Almenningsvagna og reka þetta
sjálfir, sjálfsagt með betri hætti en
í samstarfi við borgina,“ segir
Gunnar Ingi Birgisson, bæjarstjóri
í Kópavogi, og bendir á að hann
hafi löngum gagnrýnt þann aukna
kostnað sem fólst í sameiningu
SVR og Almenningsvagna á sama
tíma og þjónustan í Kópavogi hafi
ekki batnað.
„Við höfum viljað gera rekst-
urinn hagkvæmari með því t.d. að
bjóða út aksturinn og nýta þannig
einkaframtakið, en fulltrúar
Reykjavíkur hafa ekki viljað heyra
á það minnst. Þeir hafa áfram vilj-
að hafa þetta rekið af borginni og
ekki viljað ræða eina eða neina
hagræðingu. Vinstri-grænir hafa
viljað eyða sem
mestum pening-
um í strætó, al-
veg sama hvern-
ig það er gert.
Þeir vilja bara
reka alla íbúana
inn í strætó hvað
sem það kostar.
Við í Sjálfstæð-
isflokknum vilj-
um hins vegar
virða valfrelsi einstaklingsins.“
Aðspurður segir Gunnar Ingi
menn hafa gert sér vonir um að
stofnun Strætó bs. myndi leiða til
bættrar þjónustu og lækkunar á
kostnaði, en að það hafi ekki verið
raunin, heldur þvert á móti.
Spurður hvað valdi því segir
Gunnar Ingi ástæðurnar margar.
Bendir hann á að nýja leiðakerfið
sé, að hans mati, skrýtið og veltir
upp þeirri spurningu hvort stjórn-
un byggðasamlagsins sé nógu góð.
„Þannig hafa fulltrúar Reykjavík-
ur t.d. ekki viljað ræða það einu
orði að keyra minni vagna á þeim
leiðum þar sem fáir farþegar eru
og hafa tíðni ferða minni þar sem
minnsta álagið sé.“
Spurður hvers vegna fulltrúar
Kópavogsbæjar hafi valið að sitja
hjá þegar nýi kjarasamningurinn
við starfsmannafélagið var sam-
þykktur aðeins með atkvæðum
Reykjavíkurborgar og Hafnar-
fjarðar segir Gunnar Ingi að menn
hafi valið að sitja hjá sökum þess
að ekki hafi legið nægar upplýs-
ingar fyrir um raunverulegan
kostnað kjarasamninganna. „Ég
held að öll kurl séu ekki komin til
grafar í þessu máli, um það hvað
launahækkanir voru raunverulega
miklar.“
Vonir um bætta þjónustu og
minni kostnað ekki gengið eftir
Gunnar
Ingi Birgisson
„VIÐ viljum leysa upp byggðasam-
lagið í þeirri mynd sem það er núna,
því við teljum að samstarf sveitarfé-
laganna hafi ekki skilað þeirri eflingu
almenningssamgangna sem til var
ætlast,“ segir Árni Þór Sigurðsson,
borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs. Stingur hann
upp á því að reksturinn verði í hönd-
um hvers sveitarfélags fyrir sig, þó að
um sameiginlegt leiðakerfi verði að
ræða.
„Þannig geti Reykjavík ákveðið
hvernig rekstrinum verður hagað
hér, hvort aukið verður við tíðni eða
leiðir, hvernig gjaldskráin er og svo
framvegis, án þess að eiga það undir
hinum sveitarfélögunum, eins og
raunin er í dag,“ segir Árni Þór og
bendir á að átök hafi verið innan
byggðasamlagsins um grundvallar-
þætti eins og eflingu almenningssam-
gangna, fjárhagsáætlun 2005 og um
kjarasamning. Þetta sýni að sveitar-
félögin séu ekki á sömu leið í mál-
efnum almenningssamgangna.
Bendir hann á að strax í október sl.
hafi fulltrúar Reykjavíkurborgar í
Strætó bs. lagt fram tillögur um
breytingar á nýja leiðakerfinu sem
tekið var í notkun sl. sumar til að
bregðast við framkomnum athuga-
semdum jafnt farþega sem starfs-
fólks. „Það fékkst ekki samþykkt þar
sem fulltrúar hinna sveitarfélaganna
vildu ekki setja meira fjármagn í
rekstur Strætó bs. á fjárhagsárinu
2005,“ segir Árni Þór og bendir á að
raunar hafi fjár-
hagsáætlunin
2005 aðeins verið
samþykkt með at-
kvæðum fulltrúa
Reykjavíkurborg-
ar og Hafnar-
fjarðar, hin sveit-
arfélögin hafi
kosið að sitja hjá.
Þess má geta að
Reykjavíkurborg
á um 65% hlut í Strætó bs. og ber í því
ljósi ábyrgð á jafn stóru hlutfalli af
öllum kostnaði við rekstur byggða-
samlagsins.
Borgin hefur tekið
á sig aukinn kostnað
Að sögn Árna Þórs olli afstaða
hinna sveitarfélaganna í byggðasam-
laginu gagnvart nýjum kjarasamn-
ingi við starfsmannafélagið honum
einnig vonbrigðum, en samningurinn
var samþykktur einungis með at-
kvæðum fulltrúa Reykjavíkurborgar
og Hafnarfjarðar nú áramótin. „Hin-
um sveitarfélögunum fannst of mikill
kostnaðarauki fólginn í því að sam-
þykkja kjarasamninginn, þannig að
þau firra sig ábyrgð á honum með því
að sitja hjá.“
Árni Þór segir nýsamþykkta fjár-
hagsáætlun Stætós bs. fyrir árið 2006
fela í sér breytingar á leiðakerfinu nú
um komandi mánaðamót og sé þeim
ætlað að koma til móts við þyngstu
gagnrýnina á nýja leiðakerfið. Þann-
ig verða teknar upp þrjár nýjar leiðir
í Reykjavík, en t.d. fækkað í Kópa-
vogi á móti. „Samhliða afgreiðslu
fjárhagsáætlunar var samþykkt að
fara í endurskoðun á kostnaðarskipt-
ingu milli sveitarfélaganna,“ segir
Árni Þór og nefnir í því samhengi
hugmyndir um að sveitarfélögin
borgi t.d. í hlutfalli við ekna kílómetra
innan viðkomandi sveitarfélags. Árni
Þór segist ósáttur við þá kröfu sam-
starfssveitarfélaganna samhliða af-
greiðslu fjárhagsáætlunarinnar 2006
að hækka gjaldskrána og að Reykja-
vík hefði gjarnan vilja komast hjá
þeirri hækkun þar sem hún hafi kom-
ið fram á afar óheppilegum tíma.
Aðspurður segir Árni Þór raun-
hæft að sínu mati að brjóta byggða-
samlagið upp þannig að reksturinn sé
í höndum hvers sveitarfélags fyrir
sig, en að leiðakerfið verði áfram
sameiginlegt. Spurður hvað hafi
fengist með sameiningu Strætis-
vagna Reykjavíkur og Almennings-
vagna á sínum tíma segir Árni Þór
það einmitt felast í því að búa til nýtt
og heildstætt leiðakerfi sem þjónusti
allt höfuðborgarsvæðið og auðveldi
samgöngur íbúa milli sveitarfélaga.
„Vandinn er bara sá að Reykjavík fór
í þennan leiðangur ekki síst út frá því
að bæta og efla þjónustuna og okkur
virðist að sum hinna sveitarfélaganna
hafi aðallega farið í þetta samstarf til
að losna við kostnað og hugsanlega
velt honum yfir á Reykjavík. Þeir
sem til þekkja í þessum rekstri segja
að Reykjavík hafi verið að taka á sig
aukinn kostnað vegna almennings-
samgangna. Þjónustan í hinum sveit-
arfélögunum hefur stórbatnað, en
Reykjavík hefur verið að taka á sig
aukinn kostnað.“
Sveitarfélögin ekki á sömu
leið í málefnum strætó
Árni Þór
Sigurðsson
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
EINAR K. Guðfinnsson sjávarút-
vegsráðherra harmaði í ræðu sem
hann flutti í gær á ráðstefnu í tilefni
North Atlantic Seafood sjávarút-
vegssýningarinnar í Lilleström í
Noregi, að Norðmenn hefðu rofið
samkomulag um stjórn veiða úr
norsk-íslenska síldarstofninum.
Brýndi hann fyrir þeim í hvaða voða
það gæti stefnt stofninum.
Í ræðu sinni fjallaði ráðherrann
um viðskiptatækifæri í sjávarútvegi
og lagði m.a. áherslu á það hvernig
íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið
hefur lagt grunninn að traustum,
góðum og arðvænlegum atvinnuvegi,
auk þess að stuðla að eflingu byggð-
ar í sjávarþorpum.
Í öðru lagi ræddi ráðherra um
mikilvægi ábyrgrar fiskveiðistjórn-
unar, ekki hvað síst á deilistofnum
eins og t.d. norsk-íslensku síldinni.
Harmaði hann að Norðmenn hefðu
rofið samkomulag um stjórn síld-
veiða sem hafði verið í gildi um ára-
bil, og þar með hugsanlega búið til
ástand óstjórnar og ofveiða. Minnti
hann á að stofninn hafi verið ofveidd-
ur áður og allir ættu að vita hvernig
fór þá. Taldi hann best fyrir alla sem
hafa hagsmuni af síldveiðum að
semja um stjórn veiðanna og tryggja
þannig sjálfbærni þeirra. Þetta ætti
ekki síst við um Norðmenn sjálfa þar
sem þeir, sem stærsti hluthafinn í
stofninum, hefðu mesta hagsmuni
allra af því að viðhalda sterkum
stofni. Því væru aðgerðir Norð-
manna illskiljanlegar. Þá áréttaði
hann mikilvægi þess að stöðva ólög-
legar og óábyrgar veiðar, svokallað-
ar sjóræningjaveiðar, í úthöfunum.
Virði sjávarfangs verði aukið
Í þriðja lagi fjallaði ráðherra um
nauðsyn þess að auka virði sjávar-
fangs þegar þjóðir standa frammi
fyrir því, líkt og Íslendingar, að flest-
ir fiskistofnar eru að verða fullnýttir.
Í frétt frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu kemur fram að á fimmta hundrað
hagsmunaaðila í sjávarútvegi hvað-
anæva úr heiminum hafi sótt ráð-
stefnuna og voru ræðumenn frá sjö
löndum.
Sjávarútvegsráðherra á fundi í Noregi
Einar K. Guðfinnsson
Norðmenn rufu
samkomulagið