Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 14

Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FORELDRAR kornabarna nú á dög- um þakka líklega sínum sæla fyrir að vera ekki í sporum foreldra sinna, sem urðu að þvo og þrífa bleiurnar í stað þess að kasta þeim og grípa til nýrrar í hvert skipti. Í Bretlandi eru einnota bleiurnar hins vegar vaxandi umhverfisvandamál og þess vegna hafa nokkur sveit- arfélög ákveðið að borga fólki fyrir að hætta að nota þær. Sveitarfélögin segja, að það kosti þau mikið fé á ári hverju að urða einnota bleiurnar en talið er, að þær séu um þrír milljarðar árlega í Bret- landi. Er þá miðað við, að hvert barn noti 5.800 bleiur áður en það kemst á koppinn ef svo má segja. Vegna þessa hafa fjöldamörg sveitarfélög ákveðið að borga fólki fyrir að taka upp gömlu taubleiurnar. Kom þetta fram á fréttavef dagblaðsins The In- dependent í gær. Er styrkurinn mismikill, allt frá rúmlega 3.300 kr. á mánuði og upp í tæplega 9.000 kr., en sums staðar getur fólk fengið greiddan helming kostnaðar við kaup á taubleium eða hluta af kostnaði við að þvo þær. Reiknað hefur verið út, að einnota bleiu sé kastað á hverri 1,1 sekúndu og ennfremur, að með því að nota taubleiur spari foreldrar rúmlega 55.000 kr. á hvert barn. Sorpa urðar tæplega 2.300 tonn af bleium Samband enskra sveitarfélag seg- ir, að bleiurnar séu allt að 7% af heimilissorpinu en samtök framleið- enda einnota bleia og annarrar slíkrar vöru segja, að þær séu aðeins 0,1%. Er Morgunblaðið bar þetta undir Jón Vilhjálmsson, stöðvar- stjóra hjá Sorpu, sagði hann, að skv. mælingum hefðu bleiur verið 5,53% af heimilissorpinu á síðasta ári. Var það allt 41.515 tonn og hafa bleiurn- ar því verið 2.296 tonn. Sagði Jón, að tekin væri stikkprufa í öllum hverf- um Reykjavíkur, Kópavogs og Hafn- arfjarðar einu sinni á ári, í nóv- ember, og sorpið og skipting þess áætluð út frá henni. Skera upp herör gegn einnota bleium Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kátur krakki í einnota bleiu. Hjá Sorpu leggjast til nærri 2.300 tonn af einnota bleium árlega. Bresk sveitarfélög segja þær um 7% af heimilissorpi og kosta þau stórfé. Eru líklega 5 til 6% hér á landi Eftir Svein Sigurðsson svs@mbl.is MEÐFERÐ bandarískra yfirvalda á föngum í fangelsi Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu er brot á alþjóð- legum sáttmálum og jafngildir pynt- ingum í sumum tilvikum, að því er fram kemur í drögum að skýrslu fimm rannsóknarmanna Sameinuðu þjóðanna. Rannsóknarmennirnir hvetja stjórn George W. Bush Bandaríkja- forseta til að loka fangabúðunum í Guantanamo. „Bandaríkjastjórn ætti annaðhvort að draga alla fang- ana í Guantanamo fyrir rétt sem fyrst. . . eða leysa þá úr haldi án frek- ari tafa,“ segja rannsóknarmennirn- ir í skýrsludrögum sem lekið var í bandarísku blöðin The Washington Post og Los Angeles Times. Bush lét í ljósi áhyggjur af niður- stöðu rannsóknarmannanna á fundi með Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, á mánudag eft- ir að Los Angeles Times skýrði frá skýrslunni. Annan svaraði að hann hefði ekki séð skýrsluna og höfundar hennar væru óháðir skrifstofu fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Mannréttindanefnd samtakanna fyr- irskipaði rannsóknina. „Byggist aðeins á sögusögnum“ Skýrsludrögin byggjast á eins og hálfs árs rannsókn fimm erindreka SÞ sem ræddu við fyrrverandi fanga, lögmenn og ættingja fanga í Guant- anamo. Rannsóknarmennirnir af- þökkuðu boð bandarískra yfirvalda um að skoða fangabúðirnar í einn dag vegna þess að þeim var ekki leyft að ræða einslega við fangana. „Þeir hafa ekki rétt til að birta skýrslu, sem byggist aðeins á sögu- sögnum en ekki staðreyndum, bara vegna þess að þeir ákváðu að þiggja ekki boð Bandaríkjastjórnar um að fara til Guantanamo,“ hafði frétta- vefur BBC eftir Sean McCormack, talsmanni bandaríska utanríkisráðu- neytisins. „Þeir fjalla um staðhæfingar ein- staklinga, sem hafa farið frá Guant- anamo, og lögmanna þeirra, sem staðreynd,“ sagði McCormack við fréttamenn. „Og eins og við höfum séð á síðastliðnu ári hafa komið fram tilhæfulausar staðhæfingar um það sem fór fram í Guantanamo.“ Að sögn Los Angeles Times verð- ur athugasemdum og skýringum Bandaríkjastjórnar bætt við skýrsl- una áður en hún verður birt. Blaðið hafði eftir einum af skýrsluhöfund- unum, Manfred Nowak, að hann teldi ekki að miklar breytingar yrðu á niðurstöðum skýrslunnar. Læknar gagnrýndir Rannsóknarmennirnir segja að meðferðin á föngunum jafngildi í sumum tilvikum pyntingum eins og þær eru skilgreindar í alþjóðlegum sáttmála sem bannar pyntingar og ómannúðlega meðferð á föngum. Í því sambandi nefna þeir meðal ann- ars ýmsar harkalegar aðferðir sem beitt er við yfirheyrslur, svo sem langvinna einangrun og mikinn há- vaða og hita í klefunum til að halda föngum vansvefta í langan tíma. Skýrsluhöfundarnir gagnrýna einnig bandaríska lækna og hjúkr- unarfræðinga sem sagðir eru hafa beitt valdi til að gefa föngum í mót- mælasvelti næringu. „Fangarnir eru nærðir með valdi á hrottafenginn hátt, slöngunum er troðið upp í nefið, síðan kippt út og troðið inn aftur þar til föngunum blæðir,“ sagði í eiðsvarinni yfirlýs- ingu Julia Tarver Mason, lögmanns þrettán fanga frá Sádi-Arabíu. „Slöngurnar urðu til þess að fang- arnir kúguðust og þeir köstuðu oft upp blóði.“ Alls hafa um 750 meintir hryðju- verkamenn verið fluttir í fangabúð- irnar í Guantanamo frá janúar 2002. Um 260 þeirra hafa verið framseldir til annarra landa, til að mynda Pak- istans, Sádi-Arabíu, Rússlands og Marokkó, að sögn The Washington Post. Bandaríkin sökuð um pyntingar í Guantanamo Rannsóknarmenn Sameinuðu þjóðanna hvetja stjórnvöld í Bandaríkjunum til að loka fangabúðunum sem fyrst Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Beirút. AFP, AP. | Sonur Rafiqs Har- iris, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, krafðist afsagnar Emile Lahouds, forseta landsins, þegar hann flutti ræðu á fjöldafundi í mið- borg Beirút í gær í tilefni af því að ár er liðið frá því að Hariri var myrtur. Áætlað er að um milljón manna hafi safnast saman á Frelsistorginu í miðborg Beirút til að minnast morðs- ins sem olli mikilli ólgu í Líbanon og gerbreytti pólitíska landslaginu. Margir héldu á mótmælaborðum með vígorðum gegn sýrlenskum stjórn- völdum sem eru grunuð um að hafa staðið fyrir morðinu. Þúsundir her- og lögreglumanna á brynvörðum bifreiðum voru á varð- bergi í grennd við torgið og á vegum inn í borgina. Umferð bíla var bönnuð í miðborginni. „Sýrlenskt kúgunartákn“ Saad Hariri, sonur forsætisráð- herrans fyrrverandi, lýsti Lahoud forseta sem „sýrlensku kúg- unartákni“ í ræðu á Frelsistorginu. „Þeir skildu eftir tákn um yfirráð Sýrlendinga í forsetahöllinni en við segjum þeim að fjarlægja þá arfleifð, fjarlægja sýrlenska kúgunartáknið, líbanska þjóðin fellst ekki á neina málamiðlun.“ Walid Jumblatt, leiðtogi Drúsa í Líbanon, tók undir kröfuna um af- sögn forsetans og lýsti Bashar al- Assad, forseta Sýrlands, sem „hryðjuverkamanni og harðstjóra“. „Við segjum honum að hann geti fengið aftur útsendara sinn, Emile Lahoud.“ Jumblatt og Saad Hariri voru á bak við skothelt gler þegar þeir fluttu ræðurnar. Rannsóknarnefnd á vegum Sam- einuðu þjóðanna hefur bendlað sýr- lensk stjórnvöld við morðið á Rafiq Hariri. Sýrlendingar létu undan mikl- um þrýstingi og kölluðu herlið sitt í Líbanon heim í apríl. Áður höfðu sýr- lensk stjórnvöld beitt sér fyrir breyt- ingu á stjórnarskrá Líbanons til að gera Lahoud kleift að gegna forseta- embættinu í þrjú ár til viðbótar. Afsagnar forseta Líbanons krafist Reuters Áætlað er að um milljón manna hafi safnast saman í miðborg Beirút í gær í tilefni af því að ár er liðið frá morðinu á Rafiq Hariri, fyrrv. forsætisráðherra. Um milljón manna minntist morðsins á Rafiq Hariri í miðborg Beirút Tel Aviv. AFP. | Omri Sharon, sonur Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, var í gær dæmdur í níu mán- aða fangelsi fyrir spillingu og ólög- lega fjármögnun kosningabaráttu föður síns. Omri verður fyrstur ísraelskra stjórnmálamanna til að fara í fang- elsi vegna brota á lögum um fjár- mögnun stjórn- málaflokka og kosningabaráttu en að auki var hann dæmdur til að greiða rúmlega fjórar milljónir ísl. kr. í sekt. Omri játaði sig sekan um að hafa falsað vitnisburð og skjöl varðandi baráttu föður hans fyrir leiðtoga- embættinu í Likudflokknum 1999. Sonur Sharons í fangelsi Omri Sharon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.