Morgunblaðið - 15.02.2006, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 15
ERLENT
Bagdad. AP, AFP. | Saddam Huss-
ein, fyrrverandi forseti Íraks,
sagði í gær fyrir rétti í Bagdad, að
hann og aðrir sakborningar í rétt-
arhöldunum væru í hungurverk-
falli.
„Við höfum verið í hungurverk-
falli í þrjá daga,“ sagði Saddam er
rétturinn var settur í 12. sinn frá
því réttarhöldin hófust í október
síðastliðnum. „Lengi lifi hin mikla,
arabíska þjóð“ og „lengi lifi hinir
heilögu stríðsmenn,“ hrópaði hann
er hann kom í réttarsalinn. Gekk á
slíkum upphrópunum þar til dóm-
arinn frestaði réttarhaldinu til 28.
febrúar næstkomandi.
Nýr dómari í málinu, Rauf Ab-
del Rahman, hefur reynt að beita
hörku og koma einhverri skikkan á
framferði sakborninganna í rétt-
arsalnum en hann fékk ekki við
neitt ráðið í gær.
„Þú kastar út lögfræðingum og
neyðir menn til að vitna nafnlaust.
Þessi réttarhöld eiga ekki sinn
líka,“ hrópaði Taha Yassin Ramad-
an, fyrrverandi varaforseti Íraks,
og þegar dómarinn barði hamr-
inum í borðið til að koma á kyrrð í
salnum, hrópaði Saddam, að hann
ætti að berja sjálfan sig í hausinn
með honum.
Neydd til að vitna
gegn „forseta sínum“
Nokkur vitni komu fyrir réttinn
í gær, þar á meðal maður, sem
ekki sagði til nafns og ekki sást til
er hann vitnaði. Var hann spurður
um fjöldamorð á sjítum í bænum
Dujail á níunda áratugnum, en þau
eru helsta sakarefnið gegn Sadd-
am í réttarhöldunum. Kvaðst vitn-
ið hafa verið lágtsettur starfsmað-
ur leyniþjónustunnar á þessum
tíma og vissi ekkert um það, sem
gerst hefði í Dujail. Hefði hann
verið neyddur til að vitna.
Önnur þrjú vitni endurtóku
þetta, að þau vissu ekkert um at-
burðina í Dujail og hefðu verið
neydd til að vitna gegn „forseta
sínum“.
„Þetta er eins og sápuópera,
sem ekki er hægt að stöðva,“ sagði
Saddam við réttarhöldin í gær.
Hafa hætt öllu
samstarfi við Breta
Héraðsstjórnin í Basra í Suður-
Írak ákvað á mánudag að hætta
öllum samskiptum og samstarfi við
breska herliðið þar vegna mynd-
bandsins, sem sýnir breska her-
menn misþyrma íröskum ungling-
um 2004. Ekki er ljóst hver er
afstaða írösku lögreglunnar í
þessu máli en hún heyrir beint
undir stjórnina í Bagdad.
Nokkrir Írakar, sem segja
breska hermenn hafa barið sig,
voru búnir að gefa sig fram í gær
og sögðust þeir mundu fara í mál
við breska herinn og krefjast bóta.
Borgarstjórnin í Basra hvatti í
gær til, að danska herliðið í Írak
yrði kallað heim nema danska
stjórnin bæðist opinberlega afsök-
unar á skopmyndunum af Múham-
eð spámanni. Á sama tíma efndu
þúsundir manna til mótmæla við
ræðismannsskrifstofur Breta og
Bandaríkjamanna í borginni.
Saddam í hungurverkfalli
Yfirvöld í Basra hætta samstarfi við Breta vegna myndbandsins og vilja Dani burt
AP
Ibrahim Barzan, hálfbróðir Saddams og fyrrverandi yfirmaður írösku
leyniþjónustunnar, í réttarsal í gær. Mætti hann á nærklæðunum einum til
að sýna að hann viðurkenndi ekki lögmæti réttarhaldanna.
Washington. AFP. | Stjórnvöld í
Bandaríkjunum og Ísrael ræða nú
leiðir til að grafa undan væntanlegri
stjórn Hamas-hreyfingarinnar í Ísr-
ael í því skyni að knýja fram nýjar
kosningar. Var þessu haldið fram í
The New York Times í gær.
Blaðið hefur eftir ísraelskum emb-
ættismönnum og vestrænum sendi-
mönnum, að tilgangurinn sé að ein-
angra Hamas-stjórnina fjárhagslega
og á alþjóðavettvangi og valda þann-
ig svo mikilli óánægju meðal lands-
manna, að Mahmoud Abbas forseti
neyðist til að boða til nýrra kosninga.
Þá sé ekki ólíklegt, að Fatah-hreyf-
ingin komist aftur til valda.
Blaðið segir, að Hamas verði settir
úrslitakostir. Annaðhvort viður-
kenni hreyfingin Ísraelsríki, hafni
ofbeldi og fallist á gerða samninga
milli Ísraela og Palestínumanna eða
hún verði einangruð og velt úr sessi.
Segir blaðið, að hins vegar búist
hvorki Bandaríkjamenn né Ísraelar
við, að Hamas gangi að þessu.
Áhættan við þessa ráðagerð sé sú, að
Hamas leiti eftir stuðningi Sýrlend-
inga og Írana. Þá muni hreyfingin
kenna Ísraelum og Bandaríkja-
mönnum um erfiðleikana og skora á
þjóðir heims að láta ekki Palestínu-
menn gjalda niðurstöðunnar í lýð-
ræðislegum kosningum.
Hamas
bolað burt
með fjár-
svelti?
Bandaríkjamenn og
Ísraelar sagðir vilja nýj-
ar kosningar í Palestínu