Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 19

Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 19 MENNING Við afhendingu styrkja úrListasjóði Dungal á föstu-daginn var ávarpaði Gunnar Dungal samkomuna og sagði meðal annars að í myndlist væru falin verðmæti sem vart yrðu mæld í pen- ingum og í því samhengi þyrfti markaðurinn að vera vakandi fyrir nýjum hugmyndum; markaðurinn þyrfti að opna augu sín fyrir mik- ilvægi nýsköpunar í listum. Þetta var í 14. sinn sem styrkir voru veittir úr sjóðnum, sem áður hét Listasjóður Pennans. Þegar Gunnar og eiginkona hans, Þórdís Alda Sigurðardóttir, seldu Pennann á síðasta ári héldu þau sjóðnum eft- ir. Tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt myndlistarfólk og hvetja það áfram á listabrautinni, en einnig að kaupa markvisst verk eftir styrk- þega og koma þannig upp safni verka eftir yngstu kynslóð lista- manna á hverjum tíma. Að þessu sinni hlutu þrír lista- menn styrki, Þórunn Maggý Krist- jánsdóttir, kr. 500.000, og þau Harpa Árnadóttir og Jóhannes Atli Hinriksson kr. 300.000. Að auki eru keypt af þeim verk.    Í samtali við Gunnar segist hannhafa trú á því að hvatning af því tagi sem sjóðurinn veitir, styrk- urinn og kaup á verkum, komi ung- um listamönnum vel á grýttri lista- brautinni. Listaskólarnir séu fullir af áhugasömum nemendum og margir fari í framhaldsnám erlend- is að loknu námi hér heima. Oft sé hinsvegar erfitt fyrir þetta unga fólk að koma sér á framfæri og afla sér tekna til að halda áfram. Gunn- ar segir þau sem standi að Lista- sjóðnum vera stolt yfir því að það fólk sem þau hafi styrkt undanfarin ár hefur staðið sig vel og haldið áfram á listabrautinni. „Margir þeirra eru sýnilegir í ís- lensku og erlendu listalífi og það er okkur ánægjuefni að tengjast ferli þeirra frá upphafi,“ segir hann og nefnir sem dæmi að þegar fyrri sýn- ingin með ungum listamönnum var sett upp í Listasafni Íslands fyrir tveimur árum hafi rúmlega helm- ingur þátttakenda verið styrkþegar sjóðsins. Hann segir ætíð erfitt að velja styrkþegana en styrkur um- sóknanna skipti þar miklu. Þau hafi fengið frábærar umsóknir. „Margir þurfa á hvatningu að halda þegar þeir hafa lokið námi og ég tel einnig mikilvægt að athygli almennings og fjölmiðla sé beint að þessu efnilega fólki.“ Gunnar segist sannfærður um að ef hlúð sé að frjórri hugsun lista- manna þá skili það sér út í umhverf- ið eins og önnur nýsköpun. „Kaup- sýslumenn og listamenn skila oft frjóu samstarfi. Nú er að koma upp ný kynslóð djarfra kaupsýslumanna og margir þeirra eru að kaupa myndlist fyrir sig og fyrirtækin. Fólk hefur sinn smekk en margir vita hinsvegar lítið um myndlist og listasöguna. En það er þó gott að nú eru menn byrjaðir að kaupa mynd- list aftur. Í hestamennsku eignast menn oft bikkju til að byrja með en ef þeir halda áfram þá læra þeir af reynsl- unni og fá sér betri hest næst. Þann- ig er þetta líka með myndlistina. Sumir fá áhuga á henni, vanda valið og verða upplýstari.“    Hann segir mikilvægt að afla sérþekkingar á straumunum í listinni, en þegar hann rak Pennann stóð hann m.a. fyrir því að listfræð- ingar héldu fyrirlestra á vegum fyr- irtækisins. „Það mættu ekkert mjög margir en þeir sem komu voru ánægðir,“ segir hann og brosir. Í fyrra var síðan haldið fjölmennt listasögunámskeið í Opna listahá- skólanum í samstarfi við Listasjóð- inn og er stefnt að frekara sam- starfi á því sviði. Þórdís Alda er sjálf myndlist- armaður og þau Gunnar eiga stórt safn verka eftir fjölda listamanna, innlenda sem erlenda. Hann segir það hafa verið mikla gæfu fyrir þau Þórdísi að þegar þau hófu búskap á Dallandi í Mosfellssveit hafi þau kynnst vel nágrönnum sínum, Sverri Sigurðssyni og Ingibjörgu Guðmundsdóttur, sem voru miklir velunnarar listamanna. „Sverrir smitaði okkur af áhuga á trjárækt og myndlist,“ segir Gunnar. „Hjá honum kynntumst við Þorvaldi Skúlasyni, Guðmundu Andrés- dóttur og fleiri listamönnum.“ En þrátt fyrir að þau eigi mikið safna verka segist Gunnar ekki líta á sig sem safnara. „Það eru samt of fáir myndlistarsafnarar á landinu. En ég kaupi bara verk, safna ekki,“ segir hann og brosir. „Það er ekki hægt að gera þetta vísindalega, eins og frímerkjasöfnun. Ég kaupi ekki markvisst, sem kann að vera kostur en líka galli.“ Hann vitnar í Gunnar Kvaran list- fræðing sem hefur oft sagt að mik- ilvægt sé að hér á landi sé líka keypt erlend myndlist. Í þessu litla lista- heimi hér sé hætta á að þessir fáu safnarar kaupi svipuð verk og eigi þegar upp er staðið aðeins misgóð listaverk eftir sömu listamennina. „Það væri mjög mikill styrkur fyrir listalífið hér ef upp kæmi hópur safnara sem keypti verk eftir ólíka listamenn með ólíkum áherslum.“    Gunnar segir fólk oft missa aftækifærum til að eignast góð myndlistarverk. Sem dæmi nefnir hann að á samkomu við opnun Carnegie-sýningarinnar í Gerð- arsafni fyrir nokkrum árum hafi verið saman komnir margir helstu viðskiptajöfrar landsins og margir af helstu listamönnum þjóðarinnar. Þegar leið á kvöldið var Gunnar að spjalla við nokkra listamannanna, þar á meðal Eggert Pétursson, en tvö af blómamálverkum hans höfðu verið valin á sýninguna. Þegar Gunnar spurði Eggert hvort hann væri ekki búinn að selja verkin kom í ljós að svo var ekki, enginn hafði einu sinni spurt hvort þau væru til sölu. Gunnari fannst það ótækt, gekk til nærstaddra kaupsýslu- manna og hvatti þá til að falast eftir verkunum. Verkin seldust og Gunn- ar segir þá sem keyptu sátta við þá ákvörðun. „Þeir segjast hafa gert góð kaup,“ segir hann og bætir við að fólk njóti þess að hafa góða list í hýbýlum sínum. Gunnar segir að þau hafi óform- lega verið beðin um að halda sýn- ingu á þeim verkum sem Listasjóð- urinn hefur keypt af styrkþegum á þessum fjórtán árum en hann segir það of snemmt. „Verkin sem tilheyra þessu safni eru á milli 30 og 40, en það væri gaman að sýna þau á 20 ára afmæli sjóðsins, þegar meiri fjarlægð er komin á styrkveitingarnar, og sjá þá hvað kom út úr þessu.“ Kaupsýslumenn og listamenn skila oft frjóu samstarfi ’Það væri mjög mikill styrkur fyrir listalífið hér efupp kæmi hópur safnara sem keyptu verk eftir ólíka listamenn með ólíkum áherslum.‘ Morgunblaðið/Einar Falur Hjónin Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir. efi@mbl.is AF LISTUM Einar Falur Ingólfsson ASTRID Lindgren var klárlega mörgum góðum kostum gædd sem rithöfundur. Sá sem hæst ber í Ronju ræningjadóttur er áreiðanlega sá að geta skrifað svo mergjaðar smástelp- ur að jafnvel strákarnir vilja vera eins og þær. Lína á Sjónarhóli, Skotta á Saltkráku og Ronja – hver annarri ómótstæðilegri í lífsgleði sinni og réttsýni, að ógleymdri ein- þykkni, sérvisku og óþekkt. Alvöru fyrirmyndir fyrir allt almennilegt fólk. En þó persónan Ronja sé til fyr- irmyndar er sagan af henni ekki al- veg eins hátt skrifuð hjá mér. Hún er einhverskonar óþægilegt millistig milli framvindulausra sagna á borð við Emil og Línu þar sem hver kafli er sjálfstæður og ævintýranna um bræðurna Ljónshjarta og Míó þar sem ein atburðarás ræður ríkjum. Útkoman verður sú að einstök æv- intýri Ronju og Birkis verða eins og útúrdúrar, og meginsagan fær ekki það rými sem hún þarf. Því miður tekst metnaðarlausri og alltof „bók- staflegri“ leikgerðinni ekki að berja í þessa bresti. Og fyrir minn smekk hjálpar tónlist Sebastians hreint ekki, karakterlaus og hálf b-hliðar- leg. Ég veit ekki hvernig réttinda- málum frú Lindgren er háttað en gaman hefði verið að sjá söguna tekna nýjum tökum að þessu sinni. Þetta er viðamikil sýning og öllum meðulum leikhússins beitt. Mikill fjöldi leikara kemur við sögu, fullt af börnum og brúðum, tæknin öll á fullu, það er sungið og dansað og sprellað. Það gengur prýðilega að skapa tilfinningu fyrir þessu sér- kennilega samfélagi sem skapar hina skapheitu ræningjaprinsessu og lunginn úr karlleikaraliði Leikfélags Reykjavíkur nýtur þess greinilega að teikna þessa skrítnu kalla. Fer þar fremstur Eggert Þorleifsson sem fer svo léttilega með Skalla-Pétur að áhorfandinn tekur varla eftir honum fyrr en maður byrjar að hlæja að ein- hverri sáraeinfaldri athöfn, raddblæ eða augnatilliti. Það er heldur ekkert sérstakt upp á aðalleikarana að klaga. Arnbjörg Hlíf er klárlega hárrétt Ronja, barnsleg, lipur, syngjandi og skemmtileg. Kannski dálítið eintóna, en það helgast líka af leikgerðinni sem finnst margt mikilvægara en að fylgja titilpersónunni og þroska hennar eftir. Friðrik er líka fínn Birkir, þó hárkollan geri ekki mikið fyrir hann. Þórhallur Sigurðsson er ábúðarmikill og höfðinglegur Matt- hías, lögn sem orkar tvímælis. Ræn- ingjahöfðinginn hefur mér alltaf þótt vera trúður, lítið barn í of stórum skrokki. Merkilegt að ná ekki meiri skopfærslu út úr þessum snillingi. Á móti kemur að Laddi teiknar ágæt- lega þroskasögu Matthíasar, en hann er eiginlega eina persónan sem þroskast í gegnum verkið. Ellert ger- ir eftirminnilegan Borka úr litlu efni, Sóley er sannfærandi Lovísa. Ýmsum ráðum er beitt til að vekja upp furðuverur verksins. Rassálf- arnir eru úr smiðju Bernds Ogrodnik og óhemjusætir, Skógarnornirnar öllu verr heppnaðar. Grádvergarnir aftur leiknir af börnum sem dansa af ótrúlegu öryggi og krafti. En einhvern veginn nær þetta ekki að límast saman og lifna á nógu sannfærandi hátt. Hvað veldur? Fyrir utan fyrr- greindar efasemdir um söguna og leikgerðina þá held ég að leikmyndin sé að flækjast fyrir. Eins hugkvæm og fjölnota og hún nú er hjá Sigurjóni þá þvælist hún á stundum fyrir flæðinu í sýningunni og neyðir á köfl- um leikstjórann til að sviðsetja fín- legar og persónulegar senur óþarf- lega fjarlægar áhorfendum. Það líður óratími þangað til við fáum almenni- lega nærmynd af Ronju, svo dæmi sé nefnt. Annað vandamál þykir mér vera afstaða leikstjórans til tónlistarinnar, en tónlistarnúmerin eru að mestu sviðsett og sungin sem einhvers kon- ar einkamál persónanna í stað þess að vera samtal við áhorfendur. Þetta verður aldeilis fráleitt í sólónúmerum á borð við söng Matthíasar í seinni hlutanum – af hverju er hann að syngja ef ekki til að tjá okkur líðan sína? Fyrir vikið liggur sterkasta vopnið til að mynda tengsl við salinn ónotað. Sennilega truflar líka ofnotk- un á hljóðnemum – ekkert er eins fráhrindandi og þegar talraddir leik- aranna berast manni úr hátölurum og ekkert fríar leikarann eins ábyrgð á að miðla erindi sínu til áhorfand- ans. Allt hjálpast þetta að til að halda sögunni fjarlægri. Þannig orkaði þessi sýning á mig. Hún náði mér ekki, þó að ýmsu mætti dást. Hins vegar verður að geta þess að börnin í salnum höfðu sig lítt í frammi þannig að hún hefur haldið þeim. Það er góðs viti. Skógarlíf Morgunblaðið/Ómar „Arnbjörg Hlíf er klárlega hárrétt Ronja, barnsleg, lipur, syngjandi og skemmtileg,“ segir í umsögn um sýninguna. LEIKLIST Leikfélag Reykjavíkur Höfundur: Astrid Lindgren, leikgerð: Ann- ina Enckell, tónlist: Sebastian, þýðing: Þorleifur Hauksson, þýðing söngtexta: Böðvar Guðmundsson, leikmynd og bún- ingar: Sigurjón Jóhansson, gervi, Sigríður Rósa Bjarnadóttir, brúður: Bernd Ogrod- nik, lýsing: Halldór Örn Óskarsson, hreyf- ingar og dans: Ástrós Gunnarsdóttir, tón- listarstjóri: Karl Olgeirsson, hljóðmynd: Jakob Tryggvason, hljóðfæraleikur: Karl Olgeirsson og Jóel Pálsson. Leikendur: Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Davíð Guðbrandsson, Eggert Þorleifsson, Ellert A. Ingimund- arson, Friðrik Friðriksson, Gunnar Hans- son, Halldór Gylfason, Hildigunnur Þrá- insdóttir, Hinrik Þór Svavarsson, Kjartan Bjargmundsson, Oddur Bjarni Þorkels- son, Orri Huginn Ágústsson, Sóley Elías- dóttir, Tryggvi Gunnarsson, Valur Freyr Einarsson, Þór Tulinius og Þórhallur Sig- urðsson, Auk þess fimm börn. Borgarleikhúsinu 12. febrúar 2006. RONJA RÆNINGJADÓTTIR Þorgeir Tryggvason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.