Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 21
flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 21 DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR „Í UPPHAFI verkefnavinnunnar voru tekin viðtöl við þrjátíu þroska- hamlaða einstaklinga í hverju landi og það kom út úr þeim að þau vilja vita meira um kynlíf og samskipti við hitt kynið. Þau vilja eiga kost á ráðgjöf og stuðningi eins og allir aðrir,“ segir María Jónsdóttir, fé- lagsráðgjafi hjá Styrktarfélagi van- gefinna. Síðastliðin tvö ár hefur styrktarfélagið tekið þátt í verkefni á vegum Evrópusambandsins, ásamt fimm öðrum löndum, en til- gangur og markmið þess var að gera efni til að vinna með um samskipti, sambönd og kynlíf fyrir fólk með þroskahömlun, aðstandendur þeirra, fagfólk og aðra stuðningsaðila, auk þess að vekja athygli á að fólk með þroskahömlun eru kynverur og vill lifa í samræmi við það. Aðspurð út í viðhorfin í samfélag- inu til kynlífs þroskahamlaðra segir María að gömul og ný viðhorf mæt- ist þar. „Áður fyrr var litið á þetta fólk sem eilíf börn en þrátt fyrir greindarskerðingu verða þau full- orðin eins og allir aðrir og mótast og markast af reynslu sinni. Þau hafa sömu langanir og aðrir en fólk við- urkennir það ekki alveg. Nú er þetta sjálfsögð krafa um mannréttindi og við stöndum frammi fyrir því að þetta sé viðurkennt. Þetta gamla viðhorf er líka í hinum löndunum.“ Maríu finnst mikill áhugi á að breyta þessum viðhorfum og að þau séu að breytast með nýjum tímum. María segir lítið til af kennsluefni á auðlesnu máli eða myndrænu formi um kynlíf þroskahamlaðra í sumum löndum Evrópu og þar á meðal á Íslandi. „Þroskahamlaðir þurfa að fá þessa kennslu í sam- skiptum frá grunnskólaárum og henni þarf að viðhalda í gegnum æv- ina, þau þurfa að læra þessi hugtök sem við notum eins og hvað felst í kærasta eða kærustu.“ Ég er til – þess vegna elska ég Afrakstur Evrópuverkefnisins er geisladiskurinn; Ég er til – þess vegna elska ég. Diskurinn er bæði ætlaður fyrir fólk með þroskahöml- un og fagfólk og foreldra til að skoða og fræðast, á honum eru leiðbein- ingar um hvað á að hafa í huga þegar staðið er að námskeiðum eða kyn- fræðslu fyrir þennan hóp. Það liggur misvel við foreldrum að fræða börn sín um samskipti kynjanna og segir María fræðslu- diskinn geta opnað umræðuna og verið stuðningur við foreldrana. „Fólk getur fengið diskinn hjá Styrktarfélagi vangefinna. Hann tekur ekki á öllum þáttum en hann er fín byrjun og það þarf að velja hvað hæfir hverjum og einum af efn- inu á diskinum.“ María segir þörfina mikla fyrir efni af þessum toga og því mikilvægt að halda áfram að þróa frekara fræðsluefni um kynlíf og samskipti þroskahamlaðra. „Við lærðum mikið af samstarfinu við hin Evrópulöndin og í gegnum það kom- um við á tengslum við annað fagfólk og sjáum ýmsa möguleika opnast.“  FRÆÐSLA | Fræðsludiskur fyrir þroskahamlaða og aðstandendur Þurfa kynfræðslu eins og aðrir Morgunblaðið/Kristinn María Jónsdóttir hjá Styrktarfélagi vangefinna segir lítið til af kennsluefni á auðlesnu máli eða myndrænu formi um kynlíf þroskahamlaðra hér á landi. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is SUMIR fræðimenn telja að barn sem er látið gráta sig í svefn eigi á hættu að verða taugaveiklað á full- orðinsárum. Margir foreldrar ung- barna glíma við þann vanda að börnin vilja ekki sofna nema hafa annað foreldrið hjá sér. Hinn kost- urinn er að láta barnið gráta sig í svefn. Margot Sunderland er próf- sessor sem hefur sérhæft sig í þroska barna með áherslu á heila- starfsemi þeirra. Hún heldur því fram samkvæmt grein í Aftenpost- en að börn sem gráta sig í svefn séu líklegri til að glíma við tauga- veiklun á fullorðinsárum en hin sem eru ekki látin gráta í einrúmi. Margot hefur skrifað tuttugu bæk- ur um þroska barna og skoðun hennar og fylgismanna hennar er að barni sé náttúrulegt að sækja huggun hjá foreldri og ef því sé ekki veitt ástúðin sem það leitar eftir geti það skaðað þroska í heila þess. Sunderland gefur foreldum eft- irfarandi ráð:  Sýndu tilfinningum barnsins virðingu sama hversu fáránlegar þær kunna að virðast.  Sýndu með snertingu, tónhæð og fasi að þú skiljir það sem barnið er að ganga í gegnum.  Vertu tilfinningalegur klettur fyrir barnið, hlýr og yfirveg- aður.  Haltu á barninu þínu, snerting er mikilvæg við að róa og hugga barn.  UPPELDI Barnsgrátur hættulegur? Morgunblaðið/Ásdís LOFTMENGUN frá umferð í stórum borgum eykur áhætt- una á myndun lungnakrabba- meins hjá íbúum borganna um 30%, samkvæmt nýrri evr- ópskri rannsókn. Dönsku baráttusamtökin gegn krabbameini tóku þátt í rannsókninni. Ole Raaschou-Nielsen sem fer fyrir framlaginu frá Dan- mörku segir í samtali við Berl- ingske Tidende að nið- urstöðum svipi til fyrri rannsókna á loftmengun í stórum borgum. Hann líkir loftmenguninni við óbeinar reykingar og bætir við að loftmengun sé mest í miðborgum og þá við aðal- umferðargöturnar.  HEILSA Loftmengun eykur líkur á krabbameini Morgunblaðið/Þorkell Útsala Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi sími 554 4433 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.