Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 23
UMRÆÐAN
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
FARSÆLL kaupsýslumaður hefur
bent á að arðsemi Landsvirkjunar sé
ekki næg.
Núverandi
pólitískt eign-
arform virðist
skaða fyrirtækið.
Vinstri pólitík
sem teygir anga
sína inn í fyr-
irtækið hefur
ekki gætt hags-
muna fyrirtæk-
isins sem skyldi.
Væri Landsvirkjun einkafyr-
irtæki, væri fyrirtækið trúlega í út-
rásarverkefnum sem gætu skilað
arðsemi. Slíkt er varla gerlegt í dag,
með duttlungafulla vinstri pólitíska
kjána í stjórn fyrirtækisins. Sú staða
virðist ekki ólík því að kjósa mann-
ýgt naut í bankaráð til að ná árangri!
Einbeitingin fer í að velta fyrir sér
hvenær nautið taki roku.
Ef fyrirtæki eins og Landsvirkjun
á að ná hærri arðsemi verður stjórn-
in að vera skipuð fólki með metnað
og brennandi áhuga um að ná ár-
angri fyrir fyrirtækið. Hver veit
hvað er hlutverk pólitísks vinstri
stjórnarmanns á morgun? Verður
hlutverkið að taka þátt í að eyði-
leggja 6 milljarða fjárfestingu
Landsvirkjunar í Norðlingaöldu-
veitu – eða vera á móti Kára-
hnjúkavirkjun með því að þvælast
fyrir ábyrgðum á lánum? Svona eru
dæmin um „arðsemi“ sósíalismans í
Landsvirkjun.
Fullyrðingar um að raforkuverð
myndi hækka – væri Landsvirkjun
einkavædd – er svipaður áróður og
var um að vextir myndu hækka við
einkavæðingu bankanna. Stað-
reyndin varð þveröfug. Eftir einka-
væðingu áttu viðskiptabankarnir
frumkvæði að lækkun vaxta hús-
næðislána úr 5,5 í 4,15% sem er 25%
vaxtalækkun! Þessi vaxtalækkun
var svo helsta ástæða fyrir hækkun
fasteignaverðs um allt að 50% sem
er arður almennings – vegna einka-
væðingar bankana! Nýjar óvæntar
tekjur bankanna erlendis þessu til
viðbótar er eina raunhæfa ástæða
hækkunar á gengi krónunnar sem er
líka afleiddur hagur almennings þó
gengishækkun skaði útflutnings-
greinar.
Aukin arðsemi af Landsvirkjun er
vel möguleg verði fyrirtækið einka-
vætt og losni úr sínum sósíalísku
hlekkjum. Það er líka besta trygg-
ingin til að koma í veg fyrir rangar
fjárfestingar sem sumir hafa
áhyggjur af.
KRISTINN PÉTURSSON,
fiskverkandi á Bakkafirði.
Arðsemi Landsvirkjunar
Frá Kristni Péturssyni:
Kristinn Pétursson
Fréttir á SMS
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
0
4
4
6
50
40 1. vinningur
90milljónir
Bónus-vinningur
5
milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.17.
Taktu mi›a–
rö›in gæti veri› komi› a› flér
Potturinn stefnir í 90 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 50 milljónir og bónusvinningurinn í 5 milljónir.