Morgunblaðið - 15.02.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 25
áfi. Í dag
ast við 14
fullu eftir
dur fórn-
varpið að
rir sama
aldur, og
m, þegar
mall.
Í frumvarpinu er lagt til að hug-
takið nauðgun verði rýmkað mjög
frá því sem nú er. Verði það að
lögum mun misnotkun á bágu and-
legu ástandi, og því að þolandi geti
ekki spornað við verknaðinum eða
skilið þýðingu hans, teljast nauðg-
un. Mun refsing fyrir þessi brot
því þyngjast til muna. Í dag er
refsingin fangelsi í allt að sex ár,
en mun verða fangelsi frá einu ári
upp í sextán ár.
Vegna beinna tengsla milli
þyngdar mögulegrar refsingar og
þess tíma sem líður þar til brot
fyrnast lengist fyrningarfresturinn
fyrir brot af þessu tagi, verði
frumvarpið að lögum. Einnig er í
frumvarpinu lögfest ákvæði um at-
riði sem skuli verka til þyngingar
við ákvörðun á refsingu fyrir
nauðgun. Er þar um að ræða tilvik
þar sem þolandinn er yngri en 18
ára, þar sem beitt er stórfelldu of-
beldi, og ef brotið er framið á sér-
lega sársaukafullan eða meiðandi
hátt.
Í frumvarpinu er einnig gert ráð
fyrir því að niður falli ákvæði í lög-
um sem heimila niðurfellingu refs-
ingar fyrir nauðgun ef gerandi og
þolandi hafa síðar gift sig eða tekið
upp óvígða sambúð, eða ef þeir
voru í hjónabandi eða óvígðri sam-
búð þegar nauðgunin átti sér stað.
Ekki ólöglegt
að stunda vændi
Ekki verður ólöglegt að stunda
vændi sér til framfærslu, nái frum-
varpið fram að ganga. Þrátt fyrir
það verður áfram flest tengt vændi
refsivert, t.d. kaup á kynlífsþjón-
ustu af barni yngra en 18 ára,
mansal, að hafa atvinnu sína af
lauslæti annarra, eða hafa milli-
göngu um kynferðismök gegn
greiðslu, t.d. með útleigu á hús-
næði.
Við þetta mun bætast ákvæði
þar sem það verður gert refsivert
að bjóða fram, miðla eða óska eftir
kynferðismökum við annan mann í
opinberum auglýsingum. Af því
leiðir að hlutdeild í slíku broti er
refsiverð, og því gæti einstakling-
ur sem tekur við auglýsingu til
birtingar í fjölmiðli orðið ábyrgur
fyrir hlutdeild í brotinu, eins og
fram kemur í greinargerð með
frumvarpinu.
Ragnheiður segir að með þess-
ari breytingu sé áherslan á að
refsa þeim sem hafa milligöngu um
vændi eða hagnast á vændi ann-
arra, en fellt er út ákvæði um allt
að 2 ára fangelsisdóm yfir þeim
sem stundar vændið. „Þeir sem
stunda vændi, sér í lagi ef það er í
þeim mæli að það er til framfærslu
viðkomandi, er fólk sem er illa sett
félagslega, og þarf þá frekar á að-
stoð að halda en refsingu.“
gum um kynferðisbrot kynnt í ríkisstjórn
ferðisbrot gegn
afn alvarleg
Morgunblaðið/Júlíus
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-maður Samfylkingar, segir þaðvalda vonbrigðum að ekki sé gert
rir því í frumvarpi dómsmálaráð-
vegna kynferðisbrota, að fyrning-
tur í kynferðisbrotamálum gagnvart
m, verði afnuminn.
tel að sérstaða kynferðisafbrota
börnum sé slík að þessi brot eigi að
fyrnanleg,“ segir Ágúst Ólafur, en
hefur þrisvar sinnum lagt fram frum-
essa efnis. Stór hluti þolenda leiti
stoðar mjög seint en samkvæmt
singum Stígamóta séu 40% sem
ð leita vegna slíkra mála yfir þrí-
rýnir að kaup á vændi
ekki gerð refsiverð
gagnrýnir Ágúst Ólafur þá leið sem
er í frumvarpinu í vændismálum, en
æmt því eigi ekki að gera kaup á
refsiverð.
ð er miður að löggjafinn geti ekki
t þau skilaboð að það sé refsivert að
kaupa mannslíkamann með
þessum hætti. Ég tel að
það að gera vændiskaup
refsiverð myndi draga úr
eftirspurninni og þar af
leiðandi einnig úr fram-
boðinu,“ segir Ágúst Ólaf-
ur.
Í raun komi það sér
undarlega fyrir sjónir að
sá kafli hafi verið lagður fram þar sem hann
sitji nú ásamt öðrum þingmönnum í starfs-
hópi á vegum dómsmálaráðherra sem átti að
skoða vændislöggjöfina.
„Við erum ekki enn búin að skila skýrslu
af okkur, en vinnunni er við það að ljúka.
Samt er búið að kynna frumvarp og maður
spyr sig hvers vegna maður sé að taka þátt í
vinnu fyrir ráðuneytið,“ segir Ágúst Ólafur.
Hann segir að einnig sé ýmislegt jákvætt í
frumvarpinu, þar á meðal að hafa einungis
eitt nauðgunarákvæði.
„Þá er það fagnaðarefni að refsingar fyrir
kynferðisofbeldi gagnvart börnum verði
þyngdar,“ segir Ágúst Ólafur.
st Ólafur Ágústsson
onbrigði að fyrningar-
estur verði ekki afnuminn
Frumvarp til laga um sam-eiginlega forsjá barna,þrátt fyrir sambúðarslitforeldra, er nú til með-
ferðar í allsherjarnefnd alþingis.
Frumvarpið byggist á þeirri meg-
inhugmynd að almennt sé það barni
fyrir bestu, að báðir foreldrar haldi
áfram að hafa rétt og skyldu til að
ráða málefnum barns síns, þótt þeir
kjósi að hætta að búa saman. Í 18.
gr. samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi barnsins segir, að aðild-
arríki skuli gera það, sem í þeirra
valdi stendur, til að tryggja, að sú
meginregla sé virt, að foreldrar beri
sameiginlega ábyrgð á að ala upp
barn og koma því til þroska.
Þegar ég lagði frumvarpið fram á
þingi sagði ég meðal annars:
„Greinilegt er að nefndarmenn í
háttvirtri allsherjarnefnd hafa mik-
inn áhuga á að fara rækilega ofan í
þessi mál í tilefni af frumvarpinu. Af
minni hálfu var einmitt einn þátt-
urinn í því að flytja þetta frumvarp
að gefið yrði tækifæri til þess í
nefndinni að ræða þessi mál og fara
yfir einstaka þætti þeirra og menn
gætu kynnt sér þau sjónarmið sem
eru uppi. Ég tel að í þessum efnum
eigi menn ekki að hika við að leggja
fram tillögur og koma fram með
sjónarmið og sjá síðan hver við-
horfin eru þegar upp verður staðið
að lokum. Í þessu efni hef ég lagt
fram ákveðnar tillögur. Ég tel að
fram hafi komið stuðningur við þau
meginsjónarmið sem að baki frum-
varpinu búa þó að menn vilji síðan
skoða einstaka þætti eins og gefur
að skilja.“
Í þessu ljósi fagna ég því, að
sunnudaginn 12. febrúar skyldi
Morgunblaðið taka þetta mál til um-
ræðu og kalla eftir sjónarmiðum
fólks með ólíkar skoðanir. Í tilefni af
því, sem sagt var, er nauðsynlegt að
svara nokkrum spurningum.
Er frumvarpið foreldramiðað?
Frumvarpið byggist á þeirri
grunnhugmynd, að foreldri, sem tel-
ur það barni sínu ekki fyrir bestu, að
forsjá sé sameiginleg, geri ráðstaf-
anir til þess að svo verði ekki, þ.e.
lýsi yfir því við fyrirtöku skilnaðar-
eða sambúðarslitamáls hjá sýslu-
manni, að það telji þetta fyrir-
komulag ekki þjóna hagsmunum
barnsins. Ef hitt foreldrið er ósam-
mála þeirri fullyrðingu og vill ekki
gera samning um, að annað þeirra
fari með forsjá barnsins, er for-
eldrum boðin ráðgjöf sálfræðings,
þar sem markmiðið er að hjálpa for-
eldrunum að finna
lausn á málinu. Takist
ekki þrátt fyrir sátta-
umleitan að komast að
samkomulagi, er unnt
að bera úrlausnarefnið
undir dómstóla, þar
sem dómari ákveður,
að undangenginni
rannsókn á því, hvað
barninu er fyrir bestu,
hvort foreldri skuli fara
með forsjá.
Er vernd barns
gegn ofbeldi
tryggð?
Auðvitað er réttur
sérhvers barns að
þurfa ekki að þola of-
beldi á heimili sínu.
Ástæða er til að spyrja:
Hvað er það við þessa
tilteknu tillögu, sem
kallar á lögfestingu
sérstakra úrræða
vegna ofbeldis? Í Sví-
þjóð hefur verið gerð
umfangsmikil könnun á
því, hvernig dómstólar
fara með það vald að
dæma sameiginlega
forsjá. Þar kom í ljós,
að í um helmingi til-
vika, þar sem voru uppi
ásakanir um ofbeldi, dæmdu dóm-
arar sameiginlega forsjá. Frum-
varpið fyrir alþingi gerir ekki ráð
fyrir, að hægt verði að dæma sam-
eiginlega forsjá og verður ekki séð
að nú frekar en áður þurfi að huga
sérstaklega að þessum þætti.
Verður réttarfarsslys?
Hvers vegna ríkir þessi skipan
mála annars staðar á Norðurlönd-
unum en hún yrði réttarfarsslys hér
á landi? Fullyrðing þessa efnis í
Morgunblaðinu er á engan hátt rök-
studd. Viðmælandinn segir „það að
lögbinda þá meginreglu að forsjá
barns skuli vera sameiginleg þar
sem liggur fyrir að foreldrar geta
ekki og muni ekki geta sameinast
um uppeldi og velferð barnsins, leið-
ir langlíklegast af sér að barnið
verður þolandi í málinu“. Kjarni
málsins er, að í frumvarpinu er ekki
verið að leggja til, að forsjá barns
verði sameiginleg, þegar liggur fyr-
ir, að foreldrar geta
ekki og muni ekki
geta sameinast um
uppeldi og velferð
barnsins. Ef foreldrar
geta ekki unnið sam-
an að málefnum
barns, fara þeir fram
á, að forsjáin verði í
höndum annars.
Þvinguð sameig-
inleg forsjá?
Viðmælandi Morg-
unblaðsins segir
„… þvinguð sameig-
inleg forsjá er að
mínu viti ekki börn-
unum fyrir bestu“.
Frumvarpið byggist
einmitt á því sjón-
armiði og þess vegna
er ekki lagt til, að
heimilt verði að
ákveða sameiginlega
forsjá gegn vilja for-
eldis.
Er sameiginleg
forsjá valdboð?
Sagt er: „sameig-
inleg forsjá er hvergi
valdboð í nágranna-
löndunum.“ Á öllum
Norðurlöndunum
helst forsjá sameiginlega í höndum
beggja eftir skilnað nema annað sé
ákveðið. Foreldrar geta sem sagt
samið um annað fyrirkomulag.
Frumvarpið byggist á sömu sjón-
armiðum. Í Noregi, Finnlandi og
Svíþjóð getur sameiginleg forsjá á
hinn bóginn einmitt komist á með
„valdboði“ dómara gegn vilja for-
eldris. Í frumvarpinu er ekki gert
ráð fyrir slíku valdboði dómara.
Meginforsenda frumvarpsins er
skýr: Forsjá verður ekki sameig-
inleg, ef foreldri er ósátt við það.
Svör um sam-
eiginlega forsjá
Eftir Björn Bjarnason
Björn Bjarnason
’Ég tel að í þess-um efnum eigi
menn ekki að
hika við að leggja
fram tillögur og
koma fram með
sjónarmið og sjá
síðan hver við-
horfin eru þegar
upp verður stað-
ið að lokum.‘
Höfundur er dóms- og
kirkjumálaráðherra.
TALIÐ er að um 6% íslensku þjóð-
arinnar þjáist af ónæmis-, ofnæmis-
og lungnasjúkdómum eða hugsan-
lega um 20 þúsund manns. Þessir
sjúkdómar hrjá íbúa hins vestræna
heims í sífellt meira mæli og sama
þróun hefur orðið hér á landi. Ekki
eru þó til nákvæmar rannsóknir um
útbreiðslu sjúkdómanna eða þróun
þeirra á Íslandi undanfarin ár. Þó er
talið að algengið sé um 6% hér á
landi en það er um 10% víða annars
staðar á Vesturlöndum.
„Astmatilfellum hefur fjölgað
gríðarlega mikið á síðastliðnum tutt-
ugu til þrjátíu árum á Vesturlöndum
almennt,“ segir Sigurður Þór Sig-
urðarson, sérfræðingur í lungna-
sjúkdómum, sem hélt erindi í gær-
kvöldi á fræðslufundi Astma- og
ofnæmisfélgsins á Íslandi. Í erindinu
fjallaði hann sérstaklega um astma-
valda í umhverfi okkar.
„Segja má að astmi og ofnæmi séu
velmegunarsjúkdómar sem fylgi nú-
tíma lifnaðarháttum,“ segir Sigurð-
ur. „Við búum í hreinna umhverfi og
við fáum ekki sömu barnasjúkdóm-
ana og við fengum fyrir nokkrum ár-
um og áratugum. Þetta hefur í för
með sér að við erum að sjá öðruvísi
sjúkdóma og veikindi en áður.“
Hann segir margar kenningar um
hvað valdi því að astmasjúkdómar
séu algengari nú en áður og algeng-
ari á Vesturlöndum en annars staðar
í heiminum. Þá sýni rannsóknir einn-
ig að börn sem alist upp í borgarum-
hverfi á Vesturlöndum séu einna lík-
legust til að fá astma.
„Vinsælasta kenningin er svoköll-
uð hreinlætiskenning sem gengur út
á það að það hafi verið fjarlægðir
margir æskilegir ónæmisvakar úr
umhverfinu, ýmis óhreinindi og sýk-
ingar sem kannski stuðluðu að því
hér áður fyrr að ónæmiskerfið
þroskaðist á eðlilegan hátt. Af því að
þetta áreiti er ekki lengur til staðar
er kenningin sú að ónæmiskerfið
þroskist á óeðlilegan hátt og börn
verði líklegri til að þróa með sér
astma en áður.“
Sigurður bendir á athyglisverðar
rannsóknir sem sýni að börn sem
alast upp til sveita séu síður líkleg til
að fá astma og ofnæmissjúkdóma en
börn sem alast upp í borg og að börn
í borgarumhverfi á Vesturlöndum sé
frekar hætt við astma en börnum í
borgum fátækari ríkja.
„Ýmis snýkjudýr og sýkingar sem
ekki eru algeng í vestrænu umhverfi,
jafnvel meðal fátækra barna, eru
eitthvað sem fátæk börn í öðrum
löndum verða fyrir og virðast hugs-
anlega vernda þau fyrir astma.“
Reynt að örva ónæmiskerfið
Hann segir hugmyndir uppi um að
reyna að þróa nokkurs konar bólu-
efni við astma og ofnæmissjúkdóm-
um en slíkar hugmyndir séu þó enn á
teikniborðinu. „Það eru til dæmis
ákveðin mólikúl í erfðaefni baktería
sem örva ónæmiskerfið í músum á
mjög æskilegan hátt,“ nefnir hann
sem dæmi. „Það er hugsanlegt að
það mætti þróa einhverja aðferð til
að örva ónæmiskerfi okkar á æski-
legan hátt svo að þessi tilhneiging til
astma og ofnæmis komi ekki fram.“
Hann bendir á að með lyfjagjöf sé
hægt að halda astma niðri á áhrifa-
ríkan hátt og oft eldist astmi af börn-
um. Hann segir talsvert um að astmi
hjá fólki sé ekki meðhöndlaður og
geti það valdið töluverðum óþægind-
um. Mikilvægt sé því að ná til þessa
hóps astmasjúklinga.
Um 20 þúsund Íslendingar gætu þjáðst af astma og ofnæmi
Velmegunarsjúkdómar sem
verða til í hreinna umhverfi
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
a kyn-
vef
s og eru
þess að
ss áður
m á Al-
Ragn-
ófessor,
, ræða
agadeild
rs.
að mjög
að gefa
því að
m áður
lagt
t af
efur ver-
þjóð-
afa skoð-
gt að
ræmi við
Hún bendir einnig á að oft-
ast eru það nefndir sem semji
frumvörp, en í þessu tilviki
semji hún það ein. Frumvarpið
byggist á rannsóknum hennar
á dómaframkvæmd Hæsta-
réttar, könnun á löggjöf ná-
grannaríkjanna og upplýs-
ingum sem fram koma í ýmsum
félagsfræðilegum og af-
brotafræðilegum rannsóknum
og gögnum. Einnig hafi hún
leitast við að kynna sér reynslu
ýmissa aðila sem starfað hafi
með þolendum brotanna.
Að lokinni þessari kynningu
á frumvarpinu, eða 8. mars nk.,
verður tekin ákvörðun um efni
þess og það lagt fyrir Alþingi.
ngur hvattur
gja sína skoðun
TENGLAR
.........................................
Sjá nánar á www.mbl.is/itarefni