Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 15.02.2006, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Í REYKJAVÍK búa lífverur sem kallast fólk. Í Reykjavík búa líka aðrar lífverur – þessar loðnu, fer- fættu, vængjuðu, hreistruðu, slím- ugu, mjúku, skrýtnu og yndislegu – dýrin. Og dýrin í Reykjavík eiga sér mörg hver heimilisfang og póst- númer, rétt eins og fólkið. Þetta eru gæludýr borgarinnar. Bryndís Snæ- björnsdóttir myndlistarkona og eig- inmaður hennar, myndlistarmað- urinn Mark Wilson, vinna nú að verkefni fyrir Listahátíð í Reykja- vík, þar sem þau kortleggja heim- ilishagi gæludýra í miðborg Reykja- víkur. Þau hafa valið sér svæðið kringum Austurbæjarskólann sem vettvang könnunarinnar, og sam- starfsaðilar þeirra og meðrannsak- endur eru 8–13 ára börn í skólanum. Verkefnið heitir Flugan – samruni menningar og náttúru. Meðal þess sem Bryndís gerir er að heimsækja dýrin á heimilum sín- um og ljósmynda aðsetur þeirra og vistarverur þar, hvort sem það eru sófar, búr, vaskahús, forstofur, eða önnur uppáhaldsskot. „Ég ljós- mynda ekki dýrin sjálf, heldur að- eins það umhverfi sem þau hafa helgað sér á heimilum sínum, eða hefur verið úthlutað. Ég er búin að fara á nokkur heimili, en það er nauðsynlegt að fara á fleiri, og það stendur til,“ segir Bryndís. „Börnin hafa verið að vinna að ýmsum verkum, gera skúlptúra af sínum dýrum, velta fyrir sér upp- runa dýranna sem þau eru að vinna með og skrifa greinar um þau. Sum- ir taka þetta mjög alvarlega og leita upplýsinga víða, bæði á bókasöfnum og á netinu, til að fræðast um það til dæmis, hvaðan kötturinn kemur. Öðrum dugar að segja að þeir hafi fengið hundinn sinn í sveitinni. Allar skýrslurnar eru jafn leyfilegar, enda erum við öll mismunandi. Guð- laugur Valgarðsson myndlist- arkennari hefur unnið þetta með mér í skólanum.“ Afrakstur verkefnisins verður sem fyrr segir sýndur á Listahátíð í vor, í Þjóðminjasafninu og á Borg- arbókasafninu. Mark og Bryndís stilla saman eigin verkum og verk- um krakkanna á þessum tveimur sýningum, sem verða ólíkar. Á bókasafninu er unnið út frá sögunni – og þar birtast sögur krakkanna með myndum af umhverfi dýranna. Á Þjóðminjasafninu verður unnið með safnið sjálft í samvinnu við Ragnheiði Traustadóttur fornleifa- fræðing. Í rannsóknarherbergi á annarri hæð safnsins verður hægt að skoða verk sem tengist rann- sóknum norður í Kolkuósi, þar sem bein smáhunda fundust við forn- leifauppgröft. „Þetta eru kannski forverar gæludýra dagsins í dag,“ segir Bryndís, „þetta eru hundar sem biskupar eru taldir hafa átt og hlutverk hundanna að hlýja þeim. Annað verk sem við sýnum á Þjóð- minjasafninu er unnið í samvinnu við fjórar rjúpnaskyttur, en það sýnir almennari tengsl við dýr, veið- ar og sportmennsku.“ Samhliða sýningunum verður gef- in út bók, en meðal efnis í henni er grein sem Karl Benediktsson, dós- ent í landafræði, skrifar um dýr í Reykjavík. „Verkefnið er því orðið stórt, og má segja að í grundvall- aratriðum sé það könnun á tengsl- um okkar borgarbúa við dýrin og náttúruna. Við gefum okkur það að í tengslum við dýrin getum við lesið ákveðnar væntingar og þrár manns- ins gagnvart náttúrunni.“ Myndlist | Nýstárlegt myndlistarrannsóknarverkefni unnið fyrir Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við 8-13 ára börn Staða dýra sem borgarbúa kortlögð Bergþóra Jónsdóttir begga@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Bryndís Snæbjörnsdóttir, sem vinnur verkefnið með Mark Wilson. Börn í Austurbæjarskóla vinna af kappi við undirbúning sýningarinnar. Fréttir á SMS Stóra svið SALKA VALKA Fi 16/2 kl. 20 ALLRA SÍÐASTA SÝNING! WOYZECK Fö 17/2 kl. 20 Lau 18/2 kl. 20 KALLI Á ÞAKINU AUKASÝNINGAR UM PÁSKANA! CARMEN Su 19/2 kl. 20 Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Fö 3/3 kl. 20 Lau 4/3 kl. 20 RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 18/2 kl. 14 UPPS. Su 19/2 kl. 14 UPPS. Su 26/2 kl. 14 UPPS. Su 26/2 kl. 17: 30 Lau 4/3 kl. 14 Su 5/3 kl. 14 UPPS. Lau 11/3 kl. 14 Su 12/3 kl. 14 Lau 18/3 kl 14 Su 19/3 kl. 14 FEBRÚARSÝNING ÍD 24/2 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Su 5/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20 Nýja svið / Litla svið MANNTAFL Mi 22/2 kl. 20 AUKASÝNING ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 16/2 kl. 20 UPPS. Fö 17/2 kl. 20 UPPS. Lau 25/2 kl. 20 UPPS. Su 26/2 kl. 20 UPPS. BELGÍSKA KONGÓ Lau 18/2 kl. 20 UPPS. Su 19/2 kl. 20 UPPS. Fi 23/2 kl. 20 UPPS. Fö 24/2 kl. 20 UPPS. Lau 4/3 kl. 20 Su 5/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20 Lau 11/3 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Mi 1/3 kl. 20 Fö 17/3 kl. 20 NAGLINN Su 19/2 kl. 20 UPPS. Fö 24/2 kl. 40 Lau 25/2 kl. 20 HUNGUR FORSÝNINGAR, MIÐAV. 1.200- Kr. Í kvöld kl. 20 UPPSELT Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 17 Lau 18/2 FRUMS. UPPSELT Fi 23/2 kl. 20 Su 26/2 kl. 20 MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200 MIÐASALA LA ER OPIN FRÁ KL. 13-17 W.LEIKFELAWW G.IS ALA@LEIKFELAGMIDAS .IS Fullkomið brúðkaup Fös. 17. feb kl. 19 AUKAS. - Örfá sæti laus Fös. 17. feb kl. 22 AUKAS. - Örfá sæti laus Lau. 18. feb kl. 20 UPPSELT Lau. 18. feb kl. 22 Öfrá sæti - Síðasta sýning! Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Maríubjallan Mið. 15. feb. kl. 20 FORSÝNING - UPPSELT Fim. 16. feb. kl. 20 FRUMSÝNING - UPPSELT Sun. 19. feb. kl. 20 2.kortas - UPPSELT Fim. 23. feb kl. 20 3.kortas - UPPSELT Fös. 24. feb. kl. 19 4.kortas - Örfá sæti laus Lau. 25. feb. kl. 19 5.kortas - UPPSELT Lau. 25. feb. kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas - Örfá sæti laus Fös. 3. mars kl. 19 7.kortas - UPPSELT Lau. 4. mars kl. 19 8.kortas - UPPSELT Lau. 4. mars kl. 22 AUKASÝNING - Laus sæti3 10/3, 11/3, 17/3, 18/3 FÖS. 17. FEB. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS LAU. 25. FEB. kl. 20 FÖS. 3. MAR. kl. 20 ÞRI. 28. FEB. kl. 9 UPPSELT MÁN. 06. MAR. kl. 9 UPPSELT ÞRI. 07. MAR. kl. 9 UPPSELT MIÐ. 08. MAR. kl. 9 UPPSELT MIND CAMP eftir Jón Atla Jónasson SUN. 19. FEB. SÍÐUSTU SÝNINGAR HVAÐ EF eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson VESTMANNAEYJAR ÞRI. 21. FEB KL. 9 - UPPSELT KL. 11 - UPPSELT KL. 13 - UPPSELT Námsmenn og vörðufélagar frá miðann á 1000 kr. í boði Landsbankans TAKMARKAÐUR SÝNINGARFJÖLDI                                      ! "          # $  %  &   % $  %  '(()* +,- ./) 0   %0 $  % 1  2  2    %    &    &  (3 - 4 (. & 555     6                         !" #"  $  %   &  "%'(%')  "  *   % +,    "% '(%-- Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. SÝNT Í IÐNÓ KL. 20 MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700 örfá sæti laus örfá sæti laus örfá sæti laus laus sæti örfá sæti laus laus sæti laus sæti fimmtudagur föstudagur laugardagur föstudagur laugardagur föstudagur laugardagur 16.02 17.02 18.02 24.02 25.02 03.03 04.03

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.