Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 41

Morgunblaðið - 15.02.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 41 MENNING STUNDUM hafa tónleikar Sinfón- íuhljómsveitar áhugamanna verið eitthvað í líkingu við að horfa á Stöð 2 án myndlykils. Ef maður hefur ekki þekkt tiltekið verk á efnisskránni hefur verið nauðsyn- legt að geta sér til um hvernig það hafi átt að hljóma. Venjulega er allt morandi í feilnótum sem oft eru fleiri en þær réttu. Vissulega er þetta kvikindislega sagt, en sem betur fer á það ekki við um fyrsta atriðið á tónleikum hljómsveitarinnar er haldnir voru á laugardaginn var, Egmont-for- leikinn eftir Beethoven. Hann furðuvel spilaður undir stjórn Oli- vers Kentish. Sellóin í upphafi voru að vísu óhrein og hornablást- urinn hljómaði á köflum eins og umferðarhnútur, en annað var sæmilega á hreinu. Túlkunin var fyllilega í anda Beethovens, kraft- mikil, þrungin andstæðum og gædd viðeigandi stígandi sem náði hámarki í lokin. Útkoman var býsna skemmtileg. Ekki eins fjörlegur var konsert eftir Koussevitzky fyrir kontra- bassa og hljómsveit op. 3, en þar var ungur og upprennandi kontra- bassaleikari í aðalhlutverki, Krist- ján Orri Sigurleifsson, en hann lýkur námi frá Konunglega tón- listarháskólanum í Kaupmanna- höfn í vor. Kristján spilaði dálítið varfærnislega, auk þess sem leik- ur hans var ekki alltaf hreinn, sér- staklega ekki í byrjun. Hljóm- sveitin og hann voru ekki heldur nægilega samstiga og stundum vissi maður ekki hver var að fylgja hverjum. Hraðar nótna- runur úr bassanum voru líka nokkuð óskýrar og hefði því senni- lega átt að magna upp bassann, eins og gert er þegar gítarleikarar spila einleik með sinfóníuhljóm- sveit. Auðheyrt var þó að Kristján hefur prýðilega hæfileika og hann spilaði af innlifun. Hann skortir samt reynslu í að koma fram með hljómsveit; væntanlega kemur það með tíð og tíma. Síðast á dagskránni var sinfónía nr. 88 eftir Haydn og var hún spil- uð af gríðarlegu fjöri. Tæknileg atriði voru hinsvegar ekki eins og best verður á kosið, aftur voru hornin fölsk og sellóin ekki í fók- us. Ýmislegt fleira mætti telja til, en það er óþarfi. Burtséð frá tæknilegum van- köntum var rétta stemningin þó alltént til staðar og manni leiddist ekki. Væntanlega hefur það verið aðalmarkmiðið með tónlistarflutn- ingnum. Tónlist án myndlykils TÓNLIST Seltjarnarneskirkja Sinfóníuhljómsveit áhugamanna flutti tónsmíðar eftir Beethoven, Koussevitzky og Haydn. Einleikari: Kristján Orri Sig- urleifsson. Stjórnandi: Oliver Kentish. Sinfóníutónleikar Jónas Sen ÞAÐ var frekar fámennt, en á hinn bóginn óneitanlega sérmennt, á NOMUS-tónleikum Myrkra mús- íkdaga á föstudagskvöld. Um 35 manns mættu; auk höfunda undantekningalítið fólk frá Nor- ræna músíkráðinu og gestir þess. Var því á mörkum að tala mætti um opinbera tónleika. Enda and- rúmsloftið afar afslappað, eins og m.a. sást á því að menn fóru sér að engu óðslega með að setja í gang. Öðru nær. Þegar leikar loks hófust voru komin nærri þrjú kortér yfir tilsettan tíma. Enn sem oftar voru upplýsingar hátíðarbæklings MM í skötulíki. Hvergi sagði að um raftónleika væri að ræða, né heldur neitt um erlendu höfundana og verk þeirra – ekki einu sinni heiti verkanna(!) – og varð undirritaður að hripa þau niður í hléi af diskumslagi í fórum Ríkharðs H. Friðrikssonar. Kom þá óvart í ljós að tvö verk hefðu verið leikin fyrir hlé eftir Mirjam Tally en ekki eitt. Aftur á móti reyndist margt áheyrilegt. Sjaldan þessu vant í nútímarafverki mátti heyra grein- anlegt form á „Kom og nikka sjón“ (Kommúníkasjón?) [9:10] eftir Færeyinginn Hedin Ziska Dav- idsen, þökk sé m.a. markvissum endurtekningum og svipuðu nið- urlagi og í byrjun. En kannski naut verkið þess líka að vera fyrst á skrá meðan hlustandinn var ferskastur og einbeittastur. Það var líka hnitmiðað í flökti sínu milli hátalaranna fimm og bauð m.a. upp á ógnvænt járnljónsurr í byrj- un og síðar glettnisleg trufl- unarmerki, líkt og menn kannast við úr nábýli farsíma og útvarps- viðtækja. „7 studier i selvpålagt tristesse“ [5:47] eftir Norðmanninn Lars Pet- ter Hagen var stílhreint afturhvarf til fortíðar á frumbýlingsárum raf- tónlistar um 1950 með líðandi sín- ustónum í anda Pierre Schaeffers. Eftir hina eistnesku Mirjam Tally voru „Ho Blow“ [7:40] og „Breathe“ [4:18], er eins og nöfnin bentu til léku sér í forsölum vinda með gnauðandi úrvinnslu á blást- urshljóðum (að virtist dreyptum á flöskustút) auk rafskældra hljóða úr heimum slagverkstóla og vatns. Einkum fyrra stykkið nýtti sér svo ómvíddar„pönun“ í æsar að lá við að mann sundlaði. Ríkharður H. Friðriksson sté á svið eftir hlé sem mandólínvæddur Jimi Hendrix á Woodstock og jós í „Fletum“ [14’ (10’ hefðu kannski verið passlegra)] það rausnarlega úr jörmunseimdrægum ekkólykkj- um viðtengda magnarans að hvarflað hefði að fáum með lokuð augu að væmin ítölsk dilligígja don Giovannis í kvöldlokkuham væri upphafsgikkur þeirra ótrúlegu raf- hljóða er fylgdu. Loks kom „Evolution“ [9’], snotur konkret náttúruhljóðmynd Camillu Söder- berg er leitaði hljóðfanga úr sjáv- arniði, kliði sjófugla, mannaþys og regndropagutli á notalegri hljóð- teppaferð um vitundarferil okkar allra frá vöggu til grafar. Rafverk fyrir fáa útvalda TÓNLISTÝmir NOMUS-tónleikar. Rafverk eftir Hedin Ziska Davidsen, Lars Petter Hagen, Mir- jam Tally, Ríkharð H. Friðriksson og Ca- millu Söderberg. Föstudaginn 10. febrúar kl. 20. Myrkir músíkdagar Ríkarður Ö. Pálsson SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS „Frá! Farið frá! Marsbúarnir eru að koma!“ Uppselt varð á skömmum tíma á konsertuppfærsluna af söngleiknum vinsæla eftir Jeff Wayne með nokkrum af vinsælustu söngvurum landsins. Nú hefur tekist að bæta við aukatónleikum og betra að tryggja sér miða í tíma. tónleikar í háskólabíói miðaverð ::: 3.800 / 3.500 kr. FIMMTUDAGINN 23. FEBRÚAR KL. 19.30 – UPPSELT FIMMTUDAGINN 23. FEBRÚAR KL. 22.00 – AUKATÓNLEIKAR Hljómsveitarstjóri ::: Bernharður Wilkinson Sögumaður ::: Jóhann Sigurðarson Leikstjórn ::: Sigurður Sigurjónsson Söngvarar ::: Margrét Eir, Jón Jósep Snæbjörnsson, Matthías Matthíasson og Friðrik Ómar Hjörleifsson 20% AFSLÁTTUR TIL 17. FEBRÚAR EF GREITT ER MEÐ VISA-KREDITKORTI F í t o n / S Í A F I 0 1 6 1 9 9 Rokksöngleikur eftir Jeff Wayne ::: Innrásin frá Mars Höfundur ::: Doreen Wayne, byggt á sígildri sögu H.G. Wells Tónlist ::: Jeff Wayne Söngtextar ::: Gary Osbourne nema Forever Autumn: Gary Osbourne og Paul Vigrass The Eve of War: Jeff Wayne

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.