Morgunblaðið - 15.02.2006, Qupperneq 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
EIGNIR lífeyrissjóðanna námu
1.200 milljörðum króna um síðustu
áramót og jukust um 213 milljarða
króna á árinu 2005, sem jafngildir
því að eignirnar hafi aukist um 21,6%
á árinu. Það er tæpum tveimur pró-
sentustigum meiri aukning en á
árinu 2004, sem var lífeyrissjóðunum
einnig afar gjöfult, en þá jukust eign-
ir sjóðanna um 19,7% milli ára.
Heildareignirnar hafa tæplega tvö-
faldast á fimm árum frá árinu 2001
þegar þær námu 645 milljörðum kr.
Eignir lífeyrissjóðanna hafa farið
hratt vaxandi síðustu árin, enda hafa
skilyrði verið þeim afar hagstæð á
fjármálamörkuðum eftir þrjú mjög
mögur ár í upphafi áratugarins.
Eignir þeirra sem hlutfall af vergri
landsframleiðslu hafa
vaxið jafnt og þétt.
Þannig námu þær um
80% af landsframleiðsl-
unni árið 2002. Þær
náðu því á árinu 2004 að
verða jafnar landsfram-
leiðslunni og rúmlega
það og voru í fyrra að
meðaltali 10% meiri en
verg landsframleiðsla.
Erlendar eignir líf-
eyrissjóðanna voru um
fjórðungur heildareigna
þeirra um áramót og óx
það hlutfall um þrjú pró-
sentustig milli ára úr
22% í árslok 2004. Erlendar eignir
námu þannig tæpum 300 milljörðum
króna um áramót og jukust um tæpa
80 milljarða króna á árinu. Innlend
hlutabréfaeign sjóðanna nam í árs-
lok um 185 milljörðum
króna og erlend hluta-
bréfaeign 45 milljörðum
kr. en það er einkum og
sérílagi innlenda hluta-
bréfaeignin sem gaf
góða ávöxtun á síðasta
ári.
Þrír með helming
eignanna
Þá jukust lán sjóð-
félaga um átta milljarða
króna á árinu, eftir að
hafa dregist saman um
fjóra milljarða á árinu
2004. Talsverð vaxta-
lækkun á langtímalánum varð á síð-
ari hluta þess árs, meðal annars í
kjölfar þess að bankarnir hófu að
lána til íbúðakaupa almennt.
Ávöxtun á fjármálamörkuðum
ræður mestu um það hvernig eignir
lífeyrissjóðanna vaxa frá ári til árs.
Þar til viðbótar koma iðgjöld sjóð-
félaga að frádregnum lífeyris-
greiðslum til þeirra sem komnir eru
á lífeyri og rekstrarkostnaði sjóð-
anna. Ávöxtunin hefur verið afar góð
síðustu 2–3 árin og metávöxtun í
fyrra. Tveir af þremur stærstu sjóð-
unum hafa birt upplýsingar um af-
komu sína um áramót og er þar um
metávöxtun að ræða í báðum tilvik-
um. Þetta eru Lífeyrissjóður versl-
unarmanna og Gildi lífeyrissjóður.
Þriðji sjóðurinn og sá sem er stærst-
ur þeirra, Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, hefur ekki birt upp-
lýsingar um afkomu sína á árinu
2005 enn sem komið er, en saman-
lagðar eignir þessara þriggja sjóða
nema meira en helmingi af heildar-
eignum lífeyrissjóðakerfisins.
Eignir lífeyrissjóðanna voru
1.200 milljarðar um áramót
!
!
"
Eignirnar jukust um 213 milljarða króna milli ára eða 21,6%
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
FJÖLMÖRG skip voru á loðnuveiðum úti fyrir
Vík í Mýrdal í gærdag og segir Guðjón Jóhanns-
son, skipstjóri Hákonar EA, að veiði hafi verið
með ágætum. Hins vegar hafi þeir aðeins sótt tvö
hundruð tonn í þetta skipti en kvótaleysi hamlar
áframhaldandi veiðum. Guðjón segir Hákon vera
í sinni næstsíðustu ferð og hefur hann gefið upp
alla von um að loðnukvótinn verði aukinn.
„Blessuðum fiskifræðingunum er fyrirmunað að
vera þar sem loðnan er, því miður,“ segir Guðjón
og bætir við að mikið hafi verið af færeyskum
skipum í nágrenninu. Má þar nefna Þránd frá
Götu, Fríði og Júpíter. „Það er nú öllu leið-
inlegra að þeir hafa nógan kvóta, um helmingi
meiri kvóta en við.“
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mikil skipaumferð úti fyrir Vík í Mýrdal
REFSING fyrir að hafa kynferðis-
mök við börn verður sú sama og fyrir
nauðgun, og upphafi fyrningar seink-
ar, verði frumvarp sem Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra kynnti á fundi
ríkisstjórnarinnar í gær að lögum.
Einnig verður hugtakið nauðgun end-
urskilgreint og víkkað. Ekki verður
ólöglegt að stunda vændi sér til fram-
færslu, nái frumvarpið fram að
ganga. Áfram verður refsivert að
kaupa kynlífsþjónustu af barni yngra
en 18 ára, mansal, að hafa atvinnu
sína af lauslæti annarra, eða hafa
milligöngu um kynferðismök gegn
greiðslu. Þá verður einnig refsivert
að bjóða fram, miðla eða óska eftir
kynferðismökum við annan mann í
opinberum auglýsingum.
Samkvæmt frumvarpinu verður
refsing fyrir samræði og önnur kyn-
ferðismök við barn yngra en 14 ára
þyngd og verður sú sama og refsingin
fyrir nauðgun, eða fangelsi frá einu
ári og allt að sextán ár. Fyrningar-
frestur kynferðisbrota mun miðast
við 18 ára aldur þess sem fyrir
brotinu verður í stað fjórtán ára.
„Umræðan í þjóðfélaginu er orðin
mun opinskárri, við vitum miklu
meira um hversu algeng þessi brot
eru og hversu skaðleg þau eru,“ segir
Ragnheiður Bragadóttir, prófessor
við lagadeild Háskóla Íslands, sem
samdi frumvarpið að beiðni dóms-
málaráðherra. „Markmiðið hjá mér
er að gera þessi ákvæði nútímalegri
og tryggja það að þolendur brotanna,
sem oftast nær eru konur og börn, fái
meiri réttarvernd.“
Ákveðin vonbrigði
Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor-
maður Samfylkingar, segir það valda
vonbrigðum að ekki sé gert ráð fyrir
því í frumvarpinu að fyrningarfrestur
í kynferðisbrotamálum gagnvart
börnum verði afnuminn. „Ég tel að
sérstaða kynferðisafbrota gegn börn-
um sé slík að þessi brot eigi að vera
ófyrnanleg,“ segir Ágúst Ólafur, en
hann hefur þrisvar sinnum lagt fram
frumvarp þessa efnis.
„Það er ýmsu að fagna í frumvarp-
inu, en annað sem gengur ekki jafn-
langt og við hefðum viljað,“ segir
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga-
móta.
Refsing fyrir kynferðisbrot
gegn börnum verði þyngd
Nauðgun | Miðopna
EINNOTA
bleiurnar eru
að verða vax-
andi umhverf-
isvandamál í
Bretlandi og
þess vegna
hafa nokkur sveitarfélög ákveðið að
borga fólki fyrir að hætta að nota
þær. Kom þetta fram á fréttavef dag-
blaðsins The Independent í gær.
Sveitarfélögin segja, að það kosti þau
mikið fé á ári hverju að urða einnota
bleiur en talið er, að þær séu um þrír
milljarðar árlega í Bretlandi.
Sorpa urðar tæplega 2.300 tonn af
einnota bleium hérlendis á ári hverju.
Að sögn Jóns Vilhjálmssonar, stöðv-
arstjóra hjá Sorpu, voru bleiur sam-
kvæmt þeirra mælingum 5,53% af
heimilissorpinu á síðasta ári, en heim-
ilissorp nam alls 41.515 tonnum.
Umhverfisvænni bleiur
Stefán Pálsson sagnfræðingur hef-
ur reynslu af notkun taubleia á börn
sín, en hann valdi að nota taubleiur á
barnunga dóttur sína fyrstu mánuð-
ina eftir að hún kom í heiminn. Að-
spurður segir hann margar samverk-
andi ástæður fyrir þeirri ákvörðun
sinni og að umhverfisverndarþáttur-
inn hafi spilað sterkt inn í. Einnig hafi
hann heyrt að hægar gangi að venja
börn sem noti einnota bleiur af
bleium.
„En aðalforsenda þess að hægt sé
að nota taubleiur er að hafa þurrkara,
því það kallar á mun meiri og tíðari
þvott að nota taubleiur,“ segir Stefán
og bendir á að svo virðist sem ný
barnaföt miðist við að notaðar séu
einnota bleiur þar sem taubleiur séu
bosmameiri og kæmust varla fyrir í
nýjum barnafötum öfugt við eldri
barnaföt. Spurður um þær mótbárur
að taubleiur séu þegar upp sé staðið
ekki umhverfisvænni en einnota
bleiur þar sem þær kalli á meiri
vatnsnotkun í formi þvotta segir Stef-
án þá gagnrýni ekki geta átt við hér-
lendis þar sem nóg sé af vatni. | 14
2.300 tonn
af bleium
urðuð hér
á landi
JÖKLARNIR halda almennt áfram
að hopa og ef svo fer sem horfir
verða þeir flestir horfnir eftir tvær
aldir, að sögn Odds Sigurðssonar,
jarðfræðings hjá Orkustofnun. Að-
eins einn jökull, Reykjafjarðarjök-
ull, gekk fram í fyrra. Miklar breyt-
ingar hafa orðið á Gígjökli, sem
blasir við á leiðinni inn í Þórsmörk.
Er hann nánast dottinn í sundur
neðan við miðja hlíð. Mæling í fyrra
sýndi að hann hafði hopað um 357
metra frá haustinu 2003.
Á Íslandi er nú eitt mesta hlýskeið
á sögulegum tíma og sagði Oddur al-
mennt talið að hlýnun haldi áfram
alla þessa öld og lengur, m.a. vegna
svonefndra gróðurhúsaáhrifa. Þau
bætast ofan á náttúrulegu hitasveifl-
una og valda hlýrra loftslagi en ella
hefði orðið. „Út frá þessari spá, að
það haldi áfram að hlýna alla þessa
öld og þá næstu líka, hafa menn
reiknað út að það taki um tvær aldir
fyrir jöklana að hverfa í stórum
dráttum. Það verða áfram jöklar á
Bárðarbungu, Öræfajökli og jafnvel
smájökull á Snæfellsjökli og öðrum
háum fjöllum, en það verður ekki
svipur hjá sjón,“ sagði Oddur. | 6
Gígjökull að
slitna í sundur
♦♦♦