Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 52. TBL. 94. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Megas á
Vetrarhátíð
Syngur eigin lög við Passíusálma
Hallgríms | Miðopna
Úr verinu og Íþróttir í dag
Verið | Mikil geðillska í loðnuflotanum Lítils háttar aukning
á útflutningi ísfisks Íþróttir | Óvæntur sigur Arsenal í Madrid
Bjarni samdi við Skagamenn Valskonur fara til Sviss
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • idborg midborg.is
Með blaðinu í dag fylgir
fasteignablað Miðborgar
ALÞJÓÐA matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur
breytt horfum á lánshæfismati ríkissjóðs vegna
skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt úr stöð-
ugum í neikvæðar. Sjálfri lánshæfiseinkunninni er
ekki breytt, en sérfræðingar segja að um sé að
ræða viðvörun af hálfu Fitch.
Í greiningunni segir m.a. að hrein erlend skulda-
staða Íslands sé hærri en nokkurs annars lands,
sem metið er af Fitch. Ennfremur segir þar, að fyr-
irtækið geri sér grein fyrir því að erlendar eignir ís-
lensku bankanna hafi vaxið umtalsvert en minnt er
á að bankarnir séu mjög háðir erlendri fjármögnun
og megi illa við útilokun frá alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum um nokkurt skeið. Í hálffimmfréttum
KB banka segir að tilkynning Fitch auki líkurnar á
því að lánshæfiseinkunn Íslands verði lækkuð. Slíkt
gæti haft verulega neikvæð áhrif á íslenskan fjár-
málamarkað með því að skapa erfiðleika við fjár-
mögnun, sem gæti dregið úr fjármálastöðugleika
og aukið líkur á fjármálakreppu.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að
greining Fitch þýði að ríkisstjórnin þurfi að gæta
mjög að sér vegna fjárlaga fyrir árið 2007. Mjög
mikilvægt sé að bankarnir gæti sín enn betur í út-
lánum. Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir
að ábendingar Fitch séu mikilvægar og allar ábend-
ingar verði skoðaðar.
Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir að það
sé vitað mál að misvægi sé í þjóðarbúskapnum og
við því þurfi að bregðast. Ísland hafi áður lent í því
að horfur hafi breyst úr stöðugum í neikvæðar án
þess að til þess hafi komið að lánshæfiseinkunn hafi
verið lækkuð. Hann telur ekki að greining Fitch
kalli á stefnubreytingu af hálfu bankans.
Samkvæmt tilkynningu Fitch, sem birt var í gær,
er ástæða þess að horfum var breytt sú, að vísbend-
ingar eru fyrir hendi þess efnis að áhætta í þjóð-
arbúskapnum hafi aukist vegna ósjálfbærs við-
skiptahalla og hratt vaxandi hreinna erlendra
skulda. Þensla í hagkerfinu sé mikil, svo jaðri við of-
hitnun. Meðal einkenna megi nefna vaxandi verð-
bólgu, hraða útlánaaukningu og hækkandi eigna-
verð.
Skuldastaðan sú hæsta af
löndum sem Fitch metur
Lækkun lánshæfismats gæti skapað erfiðleika við fjármögnun, að mati KB banka
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
Horfum á lánshæfismati ríkissjóðs breytt úr stöðugum í neikvæðar
Líkur á harðri lendingu | 24
MJÖG sterk viðbrögð urðu á mark-
aði í gær í kjölfar tilkynningar
Fitch Ratings um breytingar á horf-
um í íslenska hagkerfinu úr stöð-
ugum í neikvæðar.
Krónan veiktist um tæp 4,45% í
26 milljarða viðskiptum í gær.
Krónan hefur ekki verið jafn veik
síðan um mitt ár 2005. Aðeins einu
sinni áður hefur gengi krónunnar
veikst jafn mikið á einum degi, en
það var 2. maí 2001.
Dollarinn var skráður á 64,05
krónur við lokun markaða í gær og
evran á 76,31 krónu.
Þá hækkaði ávöxtunarkrafa
skuldabréfa töluvert í gær í við-
skiptum, sem námu um 21 milljarði
króna. Ávöxtunarkrafa verð-
tryggðra bréfa hækkaði um 4-27
punkta og er nú á bilinu 4,27 til
4,5%. Ávöxtunarkrafa óverð-
tryggðra skuldabréfa er á bilinu
8,15% til 8,94%.
Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,25%
í 13 milljarða viðskiptum í gær og
er þetta fimmta mesta lækkun vísi-
tölunnar á einum degi síðan 1994.
Úrvalsvísitalan lækkaði mjög
hratt upp úr hádegi í gær en lækk-
unin gekk að nokkru til baka undir
lokun Kauphallarinnar, eins og
meðfylgjandi línurit sýnir.
Krónan
veiktist um
tæp 4,45%
Belgrad. AP, AFP. | Svo virtist í gær,
sem skammt væri í handtöku Ratko
Mladic, sem er eftirlýstur fyrir
stríðsglæpi í Bosníustríðinu, en
fréttir um það voru þó óljósar og
stönguðust mjög
á.
Óháða, serb-
neska útvarps-
stöðin B92 flutti
þá frétt, að Mlad-
ic hefði verið
handtekinn í Bel-
grad og Tanjug-
fréttastofan serb-
neska hafði það
eftir BN-sjón-
varpsstöðinni, að verið væri að flytja
Mladic til bandarískrar herstöðvar í
Tuzla í Bosníu og þaðan yrði hann
fluttur til Haag. Talsmaður Serbíu-
stjórnar vísaði þessu hins vegar á
bug en haft var eftir ónefndum emb-
ættismanni, að vitað væri hvar Mlad-
ic væri niðurkominn og væri verið að
semja um uppgjöf hans.
Carla Del Ponte, saksóknari við
Alþjóðasakamáladómstólinn í Haag,
neitaði því í gær, að Mladic hefði ver-
ið handtekinn og kvaðst ekki einu
sinni vita til, að verið væri að leita
hans. Sagði hún, að um væri að ræða
„uppblásnar“ fréttir í fjölmiðlum.
Mesta grimmdarverk
frá stríðslokum
Mladic, sem var hershöfðingi í her
Bosníu-Serba, var ákærður 1995 fyr-
ir stríðsglæpi í Bosníustríðinu 1992–
1995. Var hann sakaður um að hafa
skipað fyrir um umsátrið um Saraj-
evo og fyrir mesta grimmdarverk í
Evrópu frá stríðslokum, morð á
8.000 múslímum í Srebrenica í júlí
1995. Verði Mladic handtekinn mun
það koma Serbíustjórn vel í viðræð-
unum um framtíð Kosovohéraðs og
auka líkur á, að Serbía fái aðild að
Evrópusambandinu og NATO.
Misvísandi
fréttir
um Mladic
Ratko Mladic
LANDSVIRKJUN og verktakafyr-
irtækið Fosskraft fögnuðu því í gær
að lokið er fyrri áfanga uppsteypu
og frágangs í stöðvarhússhellinum í
Valþjófsstaðarfjalli í Fljótsdal. Búið
er að steypa umhverfis vélar 1, 2 og
3 í stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkj-
unar og frágangur á hvelfingunni
langt kominn.
Að sögn Einars Erlingssonar,
verkefnisstjóra Landsvirkjunar
fyrir byggingarhlutann í Fljótsdal,
er næst að ljúka við uppsteypu
kringum vélar 4–6, en skiladagur á
því er í ágúst nk. og reiknað með að
verkið verði um 2 mánuðum á und-
an áætlun. „Hellirinn er að verða
klár og fyrir utan uppsteypuna
hefst nú uppsetning véla þegar þær
koma til landsins,“ segir Einar.
Fosskraft, sem er samsteypa fyr-
irtækjanna Hochtief, Pihl & Sön, Ís-
taks og Íslenskra aðalverktaka,
byggði stöðvarhúsið í fjallinu og er
það 115 metra langt, 14 metra
breitt og mesta hæð um 34 metrar.
Þar verða sex vélasamstæður.
Áberandi er hversu hnökralítið
framkvæmdir í Fljótsdal hafa geng-
ið frá byrjun og verk staðist áætl-
anir og gott betur, utan að nið-
ursetning á stáli í fallgöngum hefur
tafist hjá undirverktaka. „Þessi
þáttur hefur gengið hvað best af
stórum byggingasamningum virkj-
unarinnar, vegna góðrar hönnunar,
góðrar jarðfræði og þess að góður
verktaki leysti málin,“ segir Einar.
„Í jarðgangahlutanum í fjallinu
voru menn að slást við hið óvænta,
en að steypa upp stöðvarhúsið er
mjög staðlaður verkþáttur sem
byggist mikið á góðri hönnun og
samvinnu á verkstað.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Gestir skoða eina af þremur tilbúnum túrbínu- og rafalagryfjum af fjórðu hæð stöðvarhússhellisins.
Mikilvægum áfanga í fjallinu lokið
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is