Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 27
UMRÆÐAN
TILGANGUR þessa
greinarkorns er að vekja
athygli á undarlegri
gjaldtöku í Hvalfjarð-
argöngum. Ég á oft er-
indi í Borgarfjörðinn og
nýti mér göngin – fyrst
og fremst til að spara
tíma. En, dýrt er drott-
ins orðið. Þegar ég skipti
um pallbíl og fékk mér bíl sem er
29 cm yfir 6 m viðmiðunarstærð
Spalar v. gjaldtöku þrefaldast sú
upphæð sem ég þarf að greiða fyrir
hverja ferð. Í stað þess að greiða
1.000 kr. verð ég að greiða 3.000
kr., sem sagt 6.000 kr. fram og til
baka! Samkvæmt gjaldskrá Spalar
má lækka gjaldið um þriðjung, úr
3.000 kr. fyrir ferðina í 2.000 kr.,
með því að kaupa 40-ferða kort,
sem sagt að borga 80.000 kr. fyrir
40 fimm mínútna ferðir í gegnum
göngin. Til gamans má benda á að
unnt er að fá fargjald aðra leiðina
til Kaupmannahafnar og Lundúna
fyrir liðlega 7.000 kr.
Í gjaldskrá Spalar kemur fram
að sama gjald, 1.000 kr. eða 390 kr.,
kaupi maður 40 ferða afsláttarkort,
gildi fyrir bíla í gjaldflokki I, þ.e.
bíla sem eru undir sex m að lengd.
Dragi slíkir bílar tengitæki (t.d.
hjólhýsi, fellihýsi eða tjaldvagn) er
gjaldið hið sama ef heildarþyngd er
undir 750 kg. Þetta eru athygl-
isverðar upplýsingar að teknu tilliti
til þess að pallbíll sem er 29 cm yfir
6 m viðmiðunarmarki er styttri en
jeppi sem dregur hjólhýsi. Ég
þekki eiganda japansks pallbíls sem
fer oft í Dalasýslu með stóra kerru
í eftirdragi, hlaðna búnaði. Þessi
einstaklingur er með afsláttarlykil í
göngin og greiðir 390 kr. fyrir
hverja ferð miðað við gjaldflokk I.
Þetta er ótrúlegur mismunur, jafn-
vel þótt borið sé saman afslátt-
argjaldið 390 kr. og 2.000 kr. miðað
við 40 ferða gangnalykil.
Pallbílar njóta sífellt aukinna vin-
sælda á Íslandi sem fjölskyldu- og
ferðabílar. Þeir eru til í ýmsum
stærðum og mun sú tegund, sem ég
keypti í vetur, flokkast undir ,,vöru-
bíl“ skv. reglum um innflutnings-
tolla. Þegar ég áttaði mig á því að
gjaldið væri þrefalt hærra miðað
við einstaka ferð í göngin en á fyrri
pallbíl mínum, sem var rétt undir 6
m viðmiðunarmörkum, hafði ég
samband við Spöl til þess að fá
skýringar á ofangreindri okurgjald-
töku að mínu áliti. Mér var m.a.
bent á 6 m viðmiðið en einnig að
bílar eins og minn kæmu til lands-
ins á vörubílatolli sem væri lægri
en tollurinn á fyrri pallbíl mínum,
sem kemur Speli reyndar ekki við.
Ég veit ekki til þess að Speli hafi
verið falið að rukka viðbótartolla
fyrir ríkissjóð.
Meðfylgjandi töflur sýna gjald-
skrá Spalar, gjaldflokkar I, II, III
og vélhjól (sjá töflur):
Lesendum heimasíðu Spalar er
bent á hvar kaupa megi afslátt-
arkort, en svo segir: „Ath.: Sama
gjald er fyrir bíla í I. flokki dragi
þeir tengitæki (t.d. hjólhýsi, felli-
hýsi, tjaldvagn) eða eftirvagna sem
ekki eru skráningarskyldir (heild-
arþyngd undir 750 kg). Bílar sem
draga skráningarskylda eftirvagna
(heildarþyngd yfir 750 kg) færast
upp í II. gjaldflokk.“
Skýringa óskað
Auðvitað er rétt að einhver við-
miðunarmörk séu til grundvallar
gjaldtöku í Hvalfjarðargöngum en
fyrr má nú rota en dauðrota. Ég
óska svara forsvarsmanna Spalar á
því hver sé munurinn á ferð pall-
bíls, sem er 6,29 m á lengd (sem
greinilega er ekki atvinnutæki) og
jeppa með hjólhýsi í drætti, sem er
allt frá 4,7 m (lítil hjólhýsi) upp í
6–7 m á lengd. Benda má á að
þyngd lítilla hjólhýsa er um 1 tonn
og stærri hjólhýsa 1,8 til 2 tonn.
Pallbíll, sem er rétt undir 6 m
markinu að lengd
(150- og 250-
gerðirnar), en dreg-
ur hestakerru (sem
eru mjög mismun-
andi að stærð), er
enn eitt dæmið ef
viðmiðið fyrir gjald-
tökuna er lengd
bílsins. Kostar 1.000
kr. fyrir hann í
göngin? Ég óska
líka svara við því
hvort innheimtar
séu 3.000 kr. fyrir
húsbíla sem eru margir yfir 6 m
mörkum? Ýmislegt í gjaldskrá
Spalar vekur athygli, en þó stendur
upp úr verðstökkið milli gjaldflokka
I og II (2.000 kr. í verðmun fyrir
hverja ferð) og gjaldflokks III, þar
sem munurinn er ,,aðeins“ 800 kr.
ef bíllinn er lengri en 12 m. Hvað
skýrir þetta ósamræmi? Mig langar
Ellen Ingvadóttir
fjallar um gjaldskrá
Spalar í Hvalfjarð-
argöngum
’Ýmislegt í gjaldskráSpalar vekur athygli, en
þó stendur upp úr verð-
stökkið milli gjaldflokka I
og II …‘
Ellen Ingvadóttir
Höfundur er pallbílseigandi.
aðstæður er verðlagning
ákveðin, t.d. fyrir pallbíl af
150-gerð, sem nær ekki 6
m, en er með 5–6 m hjól-
hýsi í drætti?
Að lokum þetta. Pall-
bílaeigendum á Íslandi hef-
ur fjölgað mikið. Hefur
ekki komið til greina að
munurinn milli fólks-
bílagjalds og gjalds sem
innheimt er fyrir frí-
stundabíla, sé minni en
300%? Munurinn verður
enn meiri ef útreikning-
urinn miðast við afslátt-
argjaldið, 390 kr., fyrir bíla
sem eru styttri en 6 m, og
bíla sem skríða yfir þá stærð, 2.000
kr. Svör óskast.
líka að vita hvort tengitæki séu
vigtuð hjá Speli, en hér er ekki átt
við stóru flutningabílana heldur frí-
stundabíla. Hvernig og við hvaða
Okur í Hvalfjarðargöngum?