Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KAUPÞING banki hefur selt 10%
hlut í Kögun. Kaupandi er Exista
fjárfestingar ehf., sem er dótturfélag
í eigu Exista. Eftir kaupin á bankinn
enn 1,22% hlut í fyrirtækinu en Ex-
ista fjárfestingar eiga nú 11,04%.
Miðað við gengi Kögunar á markaði í
gær var kaupverðið um 1,2 milljarð-
ar króna. Bréf fyrirtækisins hækk-
uðu um 0,9% í Kauphöllinni í gær,
eitt fárra félaga sem það gerðu.
Exista er einnig aðaleigandi Ex-
ista B.V., félags sem er stærsti eig-
andi KB banka og á 43,6% hlut í Sím-
anum, sem aftur á nærri 27% hlut í
Kögun. Samanlagðir hlutir Símans
og Exista fjárfestinga í Kögun eru
því um 38% og nálgast yfirtöku-
skyldu þar sem um tengda aðila er
að ræða.
Aðrir stórir hluthafar í Kögun eru
Straumur-Burðarás Fjárfestinga-
banki og Iða fjárfesting, sem eru í
eigu Straums, en til samans eiga
þessi félög rúm 15%.
Þá á Teton ehf. 8,6% hlut en það er
félag að mestu leyti í eigu Gunnlaugs
Sigmundssonar, forstjóra Kögunar,
og stjórnarmannanna Arnar Karls-
sonar Vilhjálms Þorsteinssonar. Til
samans mun Teton og aðaleigendur
þess persónulega auk starfsmanna
Kögunar eiga nær 18% hlut í félag-
inu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun hlutur Kaupþings
banka í Kögun hafa verið skráður í
veltubók bankans og hugðist bank-
inn ekki bregða út af þeirri venju
sinni að nota ekki hlutabréf í veltu-
bók til þess að greiða með þeim
atkvæði. Eðlilegt sé að skoða kaupin
í því ljósi enda verði hluturinn nú
virkur með kaupum Exista á honum.
Erlendur Hjaltason, forstjóri
Exista, sagði við Morgunblaðið að fé-
lagið hefði verið að fylgjast með
Kögun um nokkurt skeið. „Fjar-
skipti og upplýsingatækni falla vel
saman,“ sagði Erlendur en vildi ekk-
ert tjá sig um það hvort Exista
ætlaði sér að kaupa fleiri hluti í Kög-
un.
Ekki náðist í Brynjólf Bjarnason,
forstjóra Símans, en tæpar tvær vik-
ur eru síðan Síminn keypti sinn hlut í
Kögun af dótturfélögum FL Group
og Straums-Burðaráss fyrir rúma
þrjá milljarða króna. Við það tæki-
færi sagði Brynjólfur í Morgun-
blaðinu að Kögun og Síminn ættu
með sér mikla samvinnu og gætu
aukið hana í framtíðinni. Kögun væri
spennandi félag og samþætta mætti
sumt af því sem Síminn og Kögun
væru að gera í fjarskiptum og upp-
lýsingatækni.
636 milljóna hagnaður
Kögun skilaði frá sér uppgjöri í
gær fyrir rekstur síðasta árs, en þá
nam hagnaður eftir skatta um 636
milljónum króna, sem er aukning um
40% frá árinu 2004. Rekstrartekjur
jukust um 12.485 m. kr. sem er
hækkun um 253% frá árinu 2004.
Ársreikningur Kögunar hf. hefur að
geyma samstæðureikning félagsins
og dótturfélaga þess, Verk- og
kerfisfræðistofunnar hf., Kögurness
ehf., Ax hugbúnaðarhúss hf., Hugar
hf., Landsteina Strengs hf., Skýrr
hf., Teymi, Opin Kerfi Group Hold-
ing ehf. og Hands ASA.
Exista og Síminn
eiga nú 38% í Kögun
Exista keypti í
gær 10% hlut af
KB banka
Eftir Björn Jóhann Björnsson
og Arnór Gísla Ólafsson
!
"
#$
% "&'("%
) "
*%+ "
%( (,- (. ('
/. "&'("%
) "
0 & " 1(2 (3"
4
,0!"5(
&6. (
.
!"5(
&
) "
7+ +
) 8
8.(
( % " (
%
9
9
9
9
9
9
9
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í
gær, að tillögu menntamálaráð-
herra, að veita November
Events þriggja milljóna króna
styrk til að vinna að því að fá
MTV Europe-tónlistarhátíðina
hingað til lands.
„Að minni tillögu ákvað ríkis-
stjórnin að styrkja November
Events, sem True North er bak-
hjarlinn í, til þess að undirbúa
það að fara í samkeppni um að
fá MTV-tónlistarverðlaunin
hingað heim 2007,“ sagði Þor-
gerður Katrín í samtali við
Morgunblaðið. „Við viljum að
minnsta kosti stuðla að því að
við verðum í umræðunni í sam-
keppninni um að fá þessi tónlist-
arverðlaun hingað. Það væri
auðvitað frábært ef okkur
myndi auðnast það, en styrk-
urinn er sem sagt fyrst og
fremst til undirbúnings þessu
framboði. Síðan verður að taka
sjálfstæða ákvörðun í framhald-
inu um það hvað hið opinbera
getur gert, ef af verður.“
MTV hefur áhuga á Íslandi
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins þykja fulltrúar MTV
hafa sýnt mikinn áhuga á að
halda tónlistarhátíðina hér á
landi og hafa þeir komið nokkr-
um sinnum á síðastliðnum mán-
uðum til að kynna sér aðstæður.
Jafnframt er ljóst að hörð sam-
keppni er um það að halda há-
tíðina og því
enginn vissa
fyrir því að
Reykjavík
verði fyrir val-
inu. Í fyrstu
var stefnt að
því að hátíðin
yrði hér á
þessu ári en
hún verður í
Kaupmanna-
höfn. Nú er verið að skoða
möguleika á að fá hátíðina hing-
að haustið 2007.
Stærsti viðburður
sinnar tegundar
MTV-tónlistarhátíðin er
stærsti viðburður sinnar teg-
undar í heiminum. Áætlað er að
um einn milljarður manna hafi
horft á útsendingar frá hátíð-
unum á undanförnum árum, auk
þeirra sem fylgdust með endur-
sýningum. Hver útsending nær
til 350 milljóna heimila um heim
allan. Gera má ráð fyrir að um
500 þekktir tónlistarmenn og
fylgdarlið kæmi á hátíðina, auk
um 700 blaðamanna. Einnig
býður MTV styrktaraðilum, út-
gáfufyrirtækjum og fleirum að
senda fulltrúa sína og gæti verið
um 2.500–3.000 manns að ræða.
Beinn kostnaður, sem félli til
hér á landi við hátíðina, hefur
verið áætlaður um 1,5–2,0 millj-
arðar króna.
Unnið að því að fá
MTV-hátíðina hingað
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
ÍSLENSK erfðagreining (ÍE) skýrði í gær frá
niðurstöðum úr fyrsta fasa prófana á tilrauna-
lyfinu DG041. Niðurstöðurnar þykja lofa góðu,
að því er fram kemur í frétt frá ÍE. Tilrauna-
lyfinu er beint gegn æðakölkun í fótleggjum
eða svokölluðum útæðasjúkdómi. 196 heil-
brigðir einstaklingar tóku þátt í prófunum á
lyfinu. Engar alvarlegar aukaverkanir komu
fram og þátttakendur virtust þola vel allar
skammtastærðir lyfsins.
Í frétt ÍE er vitnað í Kára Stefánsson, for-
stjóra, sem segir að mikil þörf sé fyrir nýtt lyf
sem hindrar samloðun blóðflagna án þess að
auka hættu á blæðingum. Kári kveðst vera sér-
staklega stoltur af vísindamönnum ÍE í lyfja-
efnafræðideildinni í Chicago sem þróuðu nýtt
og betra lyfjaform til að auka styrk lyfsins í
líkamanum á aðeins nokkrum vikum.
Útæðasjúkdómur hrjáir um 10% fullorðinna
í vestrænum löndum og yfir 20% þeirra sem
komnir eru yfir sjötugt. Sjúkdómurinn lýsir
sér í því að æðar þrengjast vegna myndunar
æðaskellna og blóðstreymi til handa og fóta
minnkar. Helstu einkenni sjúkdómsins er
tímabundinn sársauki í fótum við göngu eða
æfingar. Ef sjúkdómurinn gengur svo langt að
æð stíflast getur það leitt til dreps í útlimum.
Engin lyfjameðferð er þekkt sem hefur áhrif á
líffræðilegar orsakir sjúkdómsins eða kemur í
veg fyrir framþróun hans.
DG041 er fyrsta lyfið sem hefur verið þróað
út frá niðurstöðum erfðarannsókna á algeng-
um sjúkdómi og fyrsta lyfið sem vísindamenn
ÍE hafa þróað frá grunni.
Tilraunalyf ÍE
gegn æðakölkun
lofar góðu
ÍSLENDINGAR eru gjarnari en aðrar
Evrópuþjóðir á að túlka drauma sína sem
skilaboð um eitthvað utanaðkomandi heldur
en persónuleg skilaboð úr sálarlífinu. Þannig
telja Íslendingar sig dreyma fyrir veðri, at-
burðum eða félagslegum samböndum en
aðrir Evrópubúar túlka drauma sína sem ein-
hvers konar ávísanir á innri átök sálarinnar.
Þetta er meðal þess sem fram hefur komið í
rannsóknum dr. Adriënne Heijnen, mann-
fræðings. Hún mun kynna niðurstöður sínar í
fyrirlestri í dag kl. 17.15 í stofu 201 í Árna-
garði og verður hann fluttur á íslensku.
Spjallað um ólíkar
draumtúlkanir
♦♦♦
„VIÐ finnum glöggt til þeirrar ábyrgðar
sem lögð er á herðar okkar með því að fela
okkur að gæta einnar lítillar fjaðrar. Það er
raunar sú ábyrgð sem okkur er öllum lögð á
herðar, ekki síst þeim ungu að gæta þess
dýrmæta auðs sem felst í tungunni. Það fell-
ur í ykkar hlut að halda henni þannig að til
sóma sé,“ sagði Matthías Johannessen,
skáld og fulltrúi hóps áhugafólks um eflingu
móðurmálsins, þegar hann afhenti Laxness-
fjöðrina við hátíðlega athöfn í Austurbæjar-
skóla í gær.
Laxnessfjöðrin er ætluð annars vegar
ungu fólki sem sýnt hefur góð tök á móður-
málinu og hins vegar þeim sem örva æskuna
og eru henni fyrirmynd. Að þessu sinni kom
Laxnessfjöðrin í hlut fjögurra nemenda
Austurbæjarskóla sem og skólans.
Austurbæjarskóli stóð fyrr í vetur tvisvar
fyrir smásagnasamkeppni, annars vegar
meðal nemenda 9. bekkjar og hins vegar
meðal nýbúa á fyrsta og öðru ári á Íslandi í
nýbúadeild skólans. Viðfangsefni nemenda
9. bekkjar var að skrifa sakamálasögu úr
skólahverfinu 101 Reykjavík og hlutu Tumi
Árnason og Ingi Kristján Sigurmarsson
viðurkenningu fyrir sögur sínar.
Viðfangsefni nemenda nýbúadeildar var
að skrifa um líf sitt, lýsa lífi sínu í heima-
landinu og þeim breytingum sem fylgdu því
að flytja til Íslands. Hlutu Skurta Krutaj og
Aimee C. Sambajon Laxnessfjöðrina fyrir
skrif sín, en Skurta flutti til landsins sl.
haust frá Sarajevo og Aimee kom til lands-
ins frá Filippseyjum fyrir hálfu öðru ári.
Báðar þykja þær hafa náð góðu valdi á ís-
lensku máli.
Fjöðrin send áfram til
Þórshafnar á Langanesi
Héðinn Pétursson, skólastjóri Austur-
bæjarskóla, gerði í framsögu sinni stuttlega
grein fyrir sögu Laxnessfjaðrarinnar sem
fyrst var afhent fyrir ári. Höfundur og hug-
myndasmiður viðurkenningarinnar er
Erlingur Jónsson, myndhöggvari og kennari
í Keflavík, en hópur áhugafólks um eflingu
móðurmálsins sér um að veita fjöðrina. Í
þeim hópi eru auk Matthíasar, Andri Snær
Magnason, Birgir Guðnason, Pétur Gunn-
arsson, Sigríður Halldórsdóttir, Svanhildur
Óskarsdóttir, Vésteinn Ólason, Vigdís Finn-
bogadóttir og Þorgrímur Þráinsson.
„Fyrsta Laxnessfjöðrin, sem afhent var
fyrir ári, kom í hlut Mjólkursamsölunnar
fyrir öflugt starf í þágu íslenskrar tungu. Í
framhaldinu var Myllubakkaskóla í Reykja-
nesbæ, þar sem Erlingur hóf kennsluferil
sinn, veitt þessi viðurkenning og hlutu tveir
nemendur skólans viðurkenninguna fyrir
gott vald á móðurmálinu. Síðan var mælst til
þess að skólinn benti á annan skóla til að
taka við fjöðrinni,“ sagði Héðinn og tók fram
að hugmyndin væri sú að Laxnessfjöðrin
yrði send á milli skóla um allt land sem sæi
síðan um að afhenda hana.
Undir lok athafnarinnar í gær var tilkynnt
að Austurbæjarskóli hefði ákveðið að senda
fjöðrina til grunnskólans á Þórshöfn á
Langanesi.
Austurbæjarskóli og fjórir nemendur hans fá Laxnessfjöðrina
„Það fellur í ykkar hlut að halda
tungunni þannig að til sóma sé“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Árni Óskarsson sem tók við fjöðrinni fyrir hönd Tuma sonar síns, Aimee C. Sambajon, Matthías
Johannessen, Héðinn Pétursson og Ingi Kristján Sigurmarsson. Fremst er Skurta Kruta.