Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 2
V-dagssamtökin voru stofnuð árið
2002 á Íslandi og hafa lagt áherslu á
að berjast gegn nauðgunum. Sam-
tökin telja mikilvægt að fyrirmyndir
í samfélaginu komi skilaboðum til
almennings um ofbeldi gegn konum.
Hildur Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri V-dagsins, þakkar
þingkonum velviljann í garð verk-
efnisins en þó ekki síst fyrir hug-
ÞINGKONUR úr öllum flokkum
munu í samstarfi við V-dags-
samtökin á Íslandi flytja leikritið
Píkusögur í Borgarleikhúsinu á
V-deginum, hinn 1. mars nk.
Fjáröflun mun fara fram eftir
sýningu en þar verður tekið við
frjálsum framlögum og verður söfn-
unarfé m.a. notað til að kosta nýja
herferð gegn nauðgunum.
rekki þeirra að taka þátt í flutningi
Píkusagna. Hún segir samtökin
vera ópólitísk og að þetta verkefni
sýni hina miklu þverpólitísku sam-
stöðu þingkvenna gagnvart þessu
málefni.
Þingkonur allra flokka á Alþingi
taka að sér hlutverk í Píkusögum.
Björn Ingi Hilmarsson, í stjórn
V-dagssamtakanna, segir að Eve
Ensler, höfundur Píkusagna, hafi
verið gestur á V-deginum í fyrra og
fært baráttuandann í hús en í ár
verði það þingkonur sem muni
skapa baráttuandann og bera áfram
þennan kyndil til að lýsa upp myrk-
ur þagnar og fordóma vegna ofbeld-
is gagnvart konum.
María Ellingsen leikstýrir Píku-
sögum og er miðaverð 2.000 krónur.
Morgunblaðið/ÞÖK
Alþingiskonur flytja Píkusögur
2 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MLADIC HANDTEKINN?
Óljósar og misvísandi fréttir
voru í gær yfirvofandi handtöku
Ratko Mladic, fyrrverandi hers-
höfðingja Bosníu-Serba, en hann
hefur verið ákærður fyrir stríðs-
glæpi. Sögðu serbneskir fjölmiðlar
að hann hefði verið handtekinn en
Serbíustjórn neitaði því og einnig
Carla Del Ponte, saksóknari við
Alþjóðasakamáladómstólinn í
Haag. Haft var eftir ónefndum
embættismönnum að vitað væri
hvar hann væri eða að hans væri
leitað.
Lánshæfishorfur versna
Alþjóða matsfyrirtækið Fitch
Ratings hefur breytt horfum á
lánshæfismati ríkissjóðs úr stöð-
ugum í neikvæðar. Þetta þýðir
ekki að lánshæfiseinkunnin versni
en um er að ræða viðvörun.
Ís lenskukennsla skerðist
Kennsla í íslensku mun hafa ver-
ið skert um rúm 30% á innan við 10
árum í íslenskum framhaldsskólum
ef tillögur um styttingu framhalds-
skólans ganga eftir.
Stöðvarhús á góðri le ið
Fyrri áfanga á uppsteypu og frá-
gangi í stöðvarhússhellinum í Val-
þjófsstaðarfjalli í Fljótsdal er lok-
ið. Búið er að steypa umhverfis
þrjár vélar í stöðvarhúsinu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 26/28
Fréttaskýring 8 Bréf 28
Viðskipti 14 Minningar 29/32
Erlent 16/17 Myndasögur 36
Minn staður 18 Dagbók 36/39
Landið 19 Staður&stund 38/39
Höfuðborgin 20 Leikhús 40
Akureyri 20 Bíó 42/45
Menning 21, 40/45 Af listum 45
Daglegt líf 22/23 Ljósvakar 46
Forystugrein 24 Veður 47
Viðhorf 26 Staksteinar 47
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu fylgir
fasteignablað Miðborgar.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson,
fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is
Umræðan | Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H.
Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FLUG 19.900KR.
Ferðatímabil 20. apríl–30. júní (síðasta heimkoma).
+ Bókaðu á www.icelandair.is
ALLIR ÁFANGASTAÐIR Í EVRÓPU
HALLDÓR Ásgrímsson forsætisráðherra telur
að greining matsfyrirtækisins Fitch Ratings sé
til marks um það að fara þurfi vel yfir fjárlög
ársins 2007. Auk þess sé hún til marks um mik-
ilvægi þess að bankarnir gæti sín enn betur í út-
lánum, því vaxtahækkanir hafi ekki skilað þeim
árangri sem Seðlabanki Íslands hafi vonast eft-
ir.
Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra segir að
ábendingar Fitch séu mikilvægar um hvernig
staða mála sé hér á landi, fyrir Seðlabankann,
markaðinn og hið opinbera. Hann segir að allar
ábendingar verði skoðaðar. Hins vegar sé erfitt
að taka snúning á þeirri stefnu sem unnið hafi
verið eftir með góðum árangri hingað til.
Matsfyrirtækið greindi frá því í gær að horf-
um fyrir lánshæfismat ríkissjóðs Íslands vegna
skuldbindinga í innlendri og erlendri mynt hefði
verið breytt úr stöðugum í neikvæðar. Halldór
segir aðspurður að greining fyrirtækisins veki
athygli á því ástandi sem ríki í efnahagsmálum
hér á landi. „Það liggur fyrir að mikil spenna er í
efnahagslífinu og þrátt fyrir vaxtahækkanir
Seðlabankans hefur útlánaaukningin verið gíf-
urlega mikil hjá bönkunum. Samkvæmt þeim
upplýsingum sem ég hef fengið upp á síðkastið
hafa bankarnir verið að herða sínar útlánareglur
og gera meiri kröfur, sem ég tel vera mjög mik-
ilvægt og hefði mátt gerast fyrr.“
Ekki rétt að bregðast sérstaklega við
Inntur eftir því hvort ástæða sé fyrir stjórn-
völd að bregðast sérstaklega við greiningu Fitch
segir Halldór. „Ég tel að það sé ekki rétt að við
bregðumst neitt sérstaklega við þessu, á þessu
stigi. Við verðum að vona að þær aðhaldsreglur
sem núna eru í gangi, bæði af hálfu Seðlabank-
ans og bankanna, skili tilætluðum árangri. En
við munum að sjálfsögðu meta þessa hluti, sér-
staklega að því er varðar fjárlögin fyrir árið
2007, og tökum öllum slíkum ábendingum alvar-
lega.“
Inntur eftir því hvort til greina komi að draga
boðaðar skattalækkanir til baka segir hann, að
um tiltölulega litlar fjárhæðir sé að ræða í efna-
hagslegu samhengi. „Ég tel að útlánamálin séu
langstærsta atriðið á þessu stigi, en að sjálf-
sögðu komum við til með að fara mjög vel yfir
fjárlögin vegna ársins 2007.“
Árni M. Mathiesen segir greinilegt að Fitch
telji að skattalækkanir ríkisstjórnarinnar séu
raunverulegar og hafi áhrif í hagkerfinu. Þá seg-
ir Árni merkilegt að þrátt fyrir að tekjuafgang-
ur ríkissjóðs hafi aukist um 5,5% á árunum 2004
og 2005, sem sé það mesta sem sjáist innan
OECD, þá telji Fitch að um of lítinn afgang sé
að ræða og hann ætti að vera meiri. Samkvæmt
því séu skattalækkanirnar of miklar.
Að sögn Árna er einnig gagnrýnt hve lítil af-
skipti hið opinbera hafi af viðskiptalífinu. Árni
telur að þetta sé merkileg gagnrýni þar sem hún
beinist að hlutum sem hann hafi talið lykilþætti í
þeirri jákvæðu þróun sem hér hefur ríkt. Hann
segir að þetta stangist á við þá gagnrýni sem
heyrist innanlands þar sem kvartað er yfir of
litlum skattalækkunum og of miklum ríkisaf-
skiptum af viðskiptalífinu.
Bankarnir þurfi að gæta
sín enn betur í útlánum
Eftir Örnu Schram og Guðrúnu Hálfdánardóttur
SAMFYLKINGIN og Sjálfstæðis-
flokkurinn fengju sjö borgarfulltrúa
hvor og Vinstri grænir einn ef kosið
yrði til borgarstjórnar nú, sam-
kvæmt könnun sem Félagsvísinda-
stofnun HÍ gerði fyrir Samfylk-
inguna dagana 14.–19. febrúar.
Framsóknarflokkurinn og Frjáls-
lyndi flokkurinn ná ekki inn manni.
Samfylkingin mælist með 40,1%
fylgi og bætir rúmum sjö prósentu-
stigum við sig frá síðustu könnun
Félagsvísindastofnunar sem fram
fór 31. janúar til 2. febrúar og var
unnin fyrir Morgunblaðið. Sjálf-
stæðisflokkur fengi 45,6% nú en var
með 48,8%, Vinstri grænir fá nú
8,3% en fengu 10,5% síðast, Fram-
sóknarflokkurinn er með 3,7% fylgi
nú en var með 5,3% síðast og Frjáls-
lyndi flokkurinn fær 1,4% fylgi nú en
var með 2,2%. Í niðurstöðum segir
að sjöundi borgarfulltrúi Samfylk-
ingarinnar standi tæpt og að mjög
stutt sé í áttunda mann Sjálfstæð-
isflokksins. Könnunin byggðist á 800
manna slembiúrtaki úr þjóðskrá, á
aldrinum 18–80 ára og var svarhlut-
fall 71,4%. Þrjár spurningar voru
lagðar fyrir svarendur. Í fyrstu
spurningunni var spurt hvaða flokk
eða lista þeir myndu kjósa ef borg-
arstjórnarkosningar yrðu á morgun.
Óákveðnir voru svo spurðir hvað
væri líklegast að þeir kysu og þeir
sem enn voru óákveðnir voru spurðir
hvort væri líklegra að þeir kysu
Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern
annan flokk eða lista. Hlutfall
óákveðinna var 26,6% eftir fyrstu
spurningu en lækkaði í 8,2% eftir
þriðju spurningu.
Samfylking hækkar
um sjö prósentustig