Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ Tilkynningar Samþykkt á Aðalskipulagi Skilmannahrepps 2002-2014 Sveitarstjórn Skilmannahrepps hefur samþykkt tillögu að Aðalskipulagi Skilmannahrepps 2002- 2014. Tillagan var auglýst og lá frammi til kynningar á skrifstofu sveitarfélagsins á Innrimel 2, Melahverfi, á heimasíðu sveitarfélagsins, www.skilmannahreppur.is og á skrifstofu Skipu- lagsstofnunar frá 23. nóvember til 21. desember sl. Athugasemdafrestur rann út þann 6. janúar sl. og bárust athugasemdir frá 4 aðilum. Sveitarstjórn hefur afgreitt athugasemdirnar og sent þeim sem gerðu athugasemdir umsögn sína. Gerðar voru óverulegar breytingar á auglýstri til- lögu aðalskipulagsins í samræmi við afgreiðslu sveitarstjórnar við innsendum athugasemdum. Við staðfestingu á Aðalskipulagi Skilmannahrepps 2002-2014 mun sá hluti Aðalskipulags iðnaðarsvæð- is á Grundartanga 1997—2017 sem er innan sveitar- félagsins falla úr gildi. Tillaga Aðalskipulags Skilmannahrepps 2002—2014 hefur verið send Skipulagsstofnun sem afgreiðir tillöguna til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu hennar. Þeir sem óska nánari upplýsinga um tillöguna og niðurstöðu sveitarstjórnar geta snúið sér til oddvita Skilmannahrepps. Skilmannahreppi 15. febrúar 2006, Sigurður Sverrir Jónsson, oddviti. Menntamálaráðuneyti Málþing um fjölmiðla Menntamálaráðuneyti og Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti við Háskóla Íslands bjóða til málþings um fjölmiðla, miðvikudag- inn 22. febrúar. Málþingið verður í Þjóðminja- safni Íslands milli kl. 13.00 og 16.00. Dagskrá málþingsins 13.00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir flytur ávarp. 13.15 Sigve Gramstad, fyrrverandi forstjóri Medietilsynet og sérfræðingur Evrópu- ráðsins, fjallar um fjölmiðlalögin í Noregi og ber saman við íslenskar að- stæður. 13.45 Guðbjörg Hildur Kolbeins, fjölmiðla- fræðingur, skoðar hvernig hægt sé að stofna nýjan fjölmiðil á Íslandi í dag. 14.15–14.30 Kaffihlé. 14.30 Elfa Ýr Gylfadóttir, fjölmiðlafræðingur, fjallar um forsendur og markmið nýrra fjölmiðlalaga. 15.00 Þorbjörn Broddason stýrir panelumræð- um. Í panel sitja Páll Magnússon, út- varpsstjóri, Magnús Ragnarsson, for- stjóri Skjás Eins, Karl Blöndal, aðstoðar- ritstjóri Morgunblaðsins og Ari Edwald, forstjóri 365. Fundarstjóri er Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands. Málþingið er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu. Ekki þarf að tilkynna þátttöku. Frekari upplýsingar veitir Elfa Ýr Gylfadóttir, deildarstjóri í menntamálaráðuneyti. Reykjavík, 21. febrúar 2006. Auglýsing um skipulag í Mosfellsbæ Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 15. febrúar 2006 sl. til kynningar eftirfarandi tillögur í skipulagsmálum í Mosfellsbæ í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 með síðari breytingum. Breyting á aðalskipulagi Mosfellsbæjar vegna Leirvogstungu og deiliskipulag íbúðarbyggðar á Leirvogstungu. Breyting á aðalskipulagi felst í því að svæði úr landi Leirvogstungu vestan við Vestur- landsveginn er breytt úr landbúnaðarsvæði í íbúðarbyggð. Staðsetning tengibrautar er breytt og hún lengd í átt að Leirvogsá, auk annarra minniháttar breytinga. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir því að á sama svæði úr landi Leirvogstungu vest- an Vesturlandsvegar verði heimilt að reisa rúmlega 400 íbúðir í sérbýli á 55 ha svæði. Deiliskipulag á landi Helgafells. Tillagan gerir ráð fyrir að á landi Helgafells, á svæði sem afmarkast af aðkomuvegi frá Brekkulandi í vestri og núverandi húsum í rótum Helgafells til norðurs, Skammadals- læk til austurs og Varmá til suðurs verði heimilt að reisa 460 íbúðir í fjölbýli í blandaðri byggð. Hverfið tengist tengi- braut frá Vesturlandsvegi um Álafossveg. Breyting á deiliskipulagi frá Reykja- lundarvegi að Húsadal í Mosfellsbæ Breyting nær til spildu úr landi Ásgarðs sem liggur austan við aðkomu að Húsadal um Reykjahvol, norðan íbúðarhússins í Ás- garði og sunnan reiðstígs að Hafravatni. Breytingin felst í því að fimm lóðir austast á landinu eru færðar til austurs og þeim fjölgað í sex auk þess sem tenging við Reykjahvol er breytt. Reiðstígur er færður til austurs. Breyting á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Brúarhóls og Vinja. Svæðið er norðan í landi Brúarhóls og Vinja í framhaldi af Einiteig. Breytingin felst í því að heimilt verður að reisa á svæðinu tvö einbýlishús og eitt parhús til viðbótar þeim húsum sem fyrir eru. Aðkoma að þeim verður frá Einiteigi. Deiliskipulag fyrir Langatanga 1 og 1a. Skipulagssvæðið afmarkast af Langatanga til norðurs, Vesturlandsvegi til austurs, landi Láguhlíðar til suðurs og landi Hamra- brekku til vesturs. Tillagan gerir ráð fyrir því að búin verði til viðbótarlóð fyrir vestan núverandi dekkjaverkstæði og að þar verði heimilt að reisa viðbótarhús fyrir bifreiða- starfsemi, jafnframt því sem lóðarmörkum er lítillega breytt. Deiliskipulag Aðaltún vegna tengingar við Flugumýri. Skipulagssvæðið afmarkast við Aðaltún og Flugumýri. Tillagan gerir ráð fyrir því að Aðaltúnið verði tengt við Flugumýri. Tillögurnar ásamt greinagerðum verða til sýnis í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þver- holti 2, fyrstu hæð, frá 22. febrúar til 24. mars nk. Jafnframt verður hægt að sjá til- lögurnar á heimasíðu Mosfellsbæjar, www.mos.is, undir: Framkvæmdir/ aðalskipulag eða deiliskipulag. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa borist skriflega til skipulags- og byggingar- nefndar Mosfellsbæjar fyrir 7. apríl nk. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Bæjarverkfræðingur. BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um nýjar deiliskipulagsáætlanir í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, hér með auglýstar tillögur að nýjum deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík Tónlistarhús/Ráðstefnumiðstöð/Hótel Tillaga að deiliskipulagi fyrir reit sem afmark- ast af Austurhöfn, Austurbakka, Geirsgötu og Faxagötu. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að svæðinu verði skipt í þrettán byggingarreiti neðan- og ofan- jarðar, nýju borgarstræti sem verður göngu- gata frá Lækjargötu undir Geirsgötu að TR. Yfirbragð bygginga syðst á svæðinu verður uppbrotið til að hlutföll tengist eldri byggð sem best. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Slippareitur Tillaga að deiliskipulagi svæðis sem markast af nýrri Mýrargötu til suðurs, Grandagarði og nýrri götu til vesturs, Tryggvagötu til austurs og hafnarbakka til norðurs. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að nýbyggingar verði almennt fjórar hæðir með eða án kjallara og bílageymslur fyrirhugaðar undir íbúðar- húsum og görðum þeirra. Vegna stokks undir Mýrargötu er lagt til að rífa hluta af verbúðum við Geirsgötu. Ekki er gert ráð fyrir íbúðum á efri hæðum bygginga á hafnarsvæðum. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 22. febrúar til og með 5. apríl 2006. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipu- lagsfulltrúa) eigi síðar en 5. apríl 2006. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 22. febrúar 2006 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Raðauglýsingar 569 1100 Flugöryggisfundur Fimmtud. 23. febrúar 2006 Hótel Loftleiðum kl. 20.00 Fundarstjóri: Kristján Sveinbjörnsson. 1. Flugmálafélagið Helstu verkefni. Tryggingamál loftfara. Matthías Sveinbjörnsson. 2. Rannsóknanefnd flugslysa Kynning á breyttu skipulagi og skipan nefndarinnar. Atvik ársins 2005. Bragi Baldursson og Þorkell Ágústsson. 3. EASA Flugöryggisstofnun Evrópu Vottun eða viðurkenning loftfara. Viðhald/lofthæfi EASA flugskírteini Sveinn V. Ólafsson og Sigurjón Sigurjónsson. 4. Kvikmyndasýning úr safni Flugmálastjórnar Íslands. Fyrirspurnir í lok hvers dagskrárliðar. Kaffi- veitingar í boði Flugmálastjórnar Íslands. Allt áhugafólk um flugmál velkomið FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS Rannsóknarnefnd flugslysa, Öryggisnefnd FÍA, Flugbjörgunarsveitin, Flugmálastjórn Íslands www.flugmal.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.