Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• sími 581 2141
Léttir frakkar og kápur
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
0
5
7
1
506
40
100milljónir
Alltaf á mi›vikudögum!
lotto.is
Vertu me› fyrir kl.17.
1. vinningur
Taktu
mi›a–
rö›in gæti veri› komin a› flér
Potturinn stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir
í 60 milljónir og bónusvinningurinn í 2 milljónir.
Kynningarfundur á ferðum sumarsins
verður haldinn í Víkingasal Hótels Loftleiða
þriðjudaginn 28. febrúar nk. kl 20.00
Í lögum um orlof húsmæðra segir svo:
„Sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án
launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof.“
Stjórnin
Frá Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík
Stórglæsilegar nýjar vörur frá
GERRY-WEBER, TAIFUN, LUCIA og fl.
Mikið úrval af nýjum yfirhöfnum og stökum jökkum
NEYTENDASTOFA hefur sektað
Nóatún ehf. um hálfa milljón króna
vegna auglýsinga þar sem fram kem-
ur fullyrðingin „bestir í fiski“. Kem-
ur fram í ákvörðun Neytendastofu
að Nóatúni hafi með fjórum bréfum
verið gefinn kostur á að tjá sig og
færa rök fyrir fullyrðingunni sem
fyrst hafi birst í auglýsingum undir
lok árs 2005.
Fyrsta bréfinu var svarað þannig
að fullyrðingin yrði ekki notuð aftur
fyrr en lögð hefðu verið fram gögn
henni til stuðnings. Þau gögn hafa
hins vegar ekki enn borist Neyt-
endastofu en fullyrðingin ítrekað
birst í auglýsingum Nóatúns.
Sigurður Arnar Sigurðsson, for-
stjóri Kaupáss sem rekur m.a. Nóa-
túnsverslanirnar, segir ekkert því til
fyrirstöðu að sektin verði látin niður
falla. Fyrirtækinu hafi verið gefinn
ákveðinn frestur til áfrýjunar og
Neytendastofu verði því sent bréf
með gögnum sem sýni fram á að full-
yrðingin sé réttmæt. „Við erum nátt-
úrlega með gögn sem geta sýnt fram
á að við séum bestir í fiski,“ segir
Sigurður og bætir við að mistök hafi
átt sér stað sem urðu til þess að aug-
lýsingarnar birtust áfram með þess-
um hætti, og áður en gögnin hafi ver-
ið lögð fram.
Nóatún sektað um hálfa milljón
króna vegna auglýsinga
LÖGREGLAN á Egilsstöðum lagði
hald á um fimmtán grömm af hassi
sem fundust í vörusendingu á Egils-
staðaflugvelli í fyrrakvöld. Að sögn
lögreglu var karlmaður á Reyðar-
firði handtekinn í tengslum við mál-
ið og játaði hann að eiga efnið.
Maðurinn sem er á tvítugsaldri ját-
aði jafnframt að hafa ætlað hassið
til sölu á svæðinu, en einnig til eigin
nota.
Árvekni tollgæslunnar má þakka
fyrir fíkniefnafundinn en hassið var
falið í brúsa utan um hárþvottalög í
sendingu úr innanlandsflugi frá
Reykjavík. Víst þykir að ungi
maðurinn hafi átt sér vitorðsmann
en málið telst upplýst af hálfu lög-
reglunnar á Egilsstöðum.
Fimmtán
grömm af hassi
í vörusendingu
LÖGREGLAN á Selfossi stöðvaði
ökuferð 14 ára stúlku um klukkan
hálffjögur í fyrrinótt þegar bifreið
var stöðvuð við hefðbundið umferð-
areftirlit rétt utan við bæinn. Talið
er að stúlkan, sem var ein í bílnum,
hafi tekið bifreiðina ófrjálsri hendi
en bíllinn er í eigu foreldra hennar.
Stúlkan er jafnframt grunuð um
ölvun við aksturinn og því mildi að
lögreglan stöðvaði för hennar áður
en illa fór. Að sögn lögreglu er
þetta ekki í fyrsta skipti sem stúlk-
an kemst í kast við lögin en mál
hennar verður sent barnaverndar-
yfirvöldum.
14 ára drukkin
undir stýri