Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.02.2006, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI „STJÓRNVÖLD skulu gera sér grein fyrir því að við erum fjárfesting en ekki kostnaðarliður,“ sagði Húni H. Hallsson sem sæti á í hagsmunasamtök- um nemenda Háskólans á Akureyri. Nemendur gengu út úr tíma í gærmorgun, söfn- uðust saman á Borgum, Rannsóknahúsi Háskólans á Akureyri og mótmæltu þar fjársvelti háskólans. „Við mótmæltum því hvernig við upplifum sparnaðinn,“ segir Steinþór Þorsteinsson sem sæti á í hagsmunasamtökum háskólanema. Í ávarpi Húna kom fram að aðeins vanti um 100 milljónir króna á ári til að rekstur háskólans geti haldið í horfinu, „og við viljum um leið minna á að með sölu Símans komu í ríkissjóð 67 þúsund milljónir. Hvar er gáfulegra að nota peningana?“ Húni sagði háskólann hafa burði til að vera ein af fremstu menntastofnunum Evrópu, námið væri metnaðarfullt og starfsfólk framúrskarandi. Mark- mið hans væri að skila þekkingararði og stuðla að jafnvægi í byggðum landsins. „Öllu þessu er nú stefnt í voða,“ segir Húni og benti á að öflug sam- staða hefði náðst meðal nemenda um að mótmæla gerræðislegum sparnaðaraðgerðum sem stjórn- endur hans stæðu frammi fyrir að fyrirskipan stjórnvalda. „Við álítum að með þessum sparnað- araðgerðum sé verið að sýna þessari ungu og metnaðargjörnu stofnun lítilsvirðingu og dónaskap sem ekki eigi heima í landi þar sem menntun á að vera einn aðal burðarásinn.“ Steinþór segir að með samningi ríkis við Háskól- ann á Akureyri frá árinu 2003 hafi fjöldi nemenda við háskólann verið takmarkaður, „sem gerði hon- um ókleift að stækka og þroskast eðlilega. Mér vit- anlega hefur ekkert annað ríki sem við gjarnan berum okkur saman við slíka stefnu, öll önnur ríki stefna að því að fjölga háskólanemum, ekki tak- marka aðgengi þeirra á háskólanámi,“ segir Stein- þór. Hann nefnir einnig að Háskólinn á Akureyri hafi tekið á sig kostnaðarauka upp á 60 til 70 milljónir króna þegar starfsemi var flutt yfir í Rannsókna- húsið, Borgir. Hann sé til kominn vegna hærri leigu sem ekki hafi verið leiðrétt. Aðrar stofnanir sem fluttu í húsið hafi fengið auknar fjárheimildir í samræmi við aukinn kostnað við leigu. „Menn velta því fyrir sér hvort með fjársvelti ríkisháskólanna sé verið að einkavæða háskólastigið um bakdyrn- ar,“ segir Steinþór. Húni bendir á að yfirstjórn skólans geti ekki unnið undir þeim kringumstæðum að þurfa að rétta við fjárhag skólans án þess að eiga möguleika á að auka tekjur m.a. vegna fjöldatakmarkana sem stjórnvöld hafi sett. „Við lýsum mikilli vanþóknun á vinnubrögð menntamálaráðuneytis sem hafa ver- ið mjög misvísandi,“ segir hann og bendir t.d. á að aukið framboð náms hafi verið samþykkt án þess að fjárveitingar vegna þess hafi fengist. „Þessar mótmælaaðgerðir eru samstiga hjá öllum nem- endum HA,“ segir hann og að með þeim vilji nemar sýna yfirvöldum að ekki verði lengur við unað „og við heimtum að málin komist í skynsamlegan far- veg“. Málinu verður fylgt eftir, m.a. með fundum með bæjarfulltrúum á Akureyri og þingmönnum kjördæmisins. Bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, kvaðst taka heilshugar undir kröfur háskólanema og nafni hans, Möller, alþingismaður, nefndi í ávarpi á fundinum að til stórskammar væri hvernig komið væri fram við háskólann varðandi fjárveitingar til hans. Hann hefði frá því í byrjun nóvember beðið um utandagskrárumræðu í þinginu um málefni háskólans, en menntamála- ráðherra ekki enn séð sér fært að svara. Vonaði hann að nú í vikunni gæfist færi á að ræða um fjár- veitingar til háskólans, sem væru af alltof skornum skammti. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Mótmæla fjársvelti Húni H. Hallsson í hagsmunasamtökum nemenda við háskólann bendir stjórnvöldum á að nemar séu fjárfesting, ekki kostnaðarliður. Um 100 milljónir vantar til að rekstri verði haldið í horfinu Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Danska í Danmörku | Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri mun í samstarfi við skóladeild Akureyrarbæjar og Europahøjskol- en á Kalø á Jótlandi standa fyrir tveggja vikna námskeiði í dönsku fyrir nemendur í 7., 8., 9. og 10. bekk grunnskóla. Námskeiðið verð- ur haldið á Europahøjskolen á Kalø á Jótlandi dagana 6.–20. júní nk. Kennt verður fyrir hádegi ellefu morgna, fjórar kennslustundir dag- lega. Eftir hádegi verður skipu- lagður frítími. Farið verður í skóg- arferðir, siglt á kanó og margt fleira spennandi gert. Einnig verð- ur farið í tvær ferðir á vegum skól- ans um nágrennið. Flogið verður í beinu flugi frá Akureyri til Kaup- mannahafnar.    Flykkjast suður | Samtök Psor- iasis- og exemsjúklinga – SPOEX, krefjast þess að stjórn FSA gefi skýr svör til húðsjúklinga á Norður- landi um úrbætur og tímasetningu á væntanlegri göngudeild fyrir psoriasis- og exemsjúklinga. Í álykt- un fundar félagsins sem haldinn var á Akureyri á dögunum segir að óvið- unandi sé að í stærsta byggðarlagi landsbyggðarinnar séu engin úrræði á vegum Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. „Ljóst er að á næstu vik- um og mánuðum muni húðsjúklingar neyðast til að flykkjast suður í með- ferð á kostnað hins opinbera, af þessum sökum,“ segir í ályktuninni.    Fyrirmyndarfélag | Aðalfundur UMFA fer fram í kvöld, miðviku- daginn 22. febrúar kl. 20 í kaffiteríu Íþróttahallarinnar á Akureyri. Þar verður félagið gert að fyrirmyndar- félagi og þess minnst að 100 ár eru liðin frá stofnun fyrsta ungmenna- félagsins á Íslandi, Ungmennafélags Akureyrar, UMFA, auk almennra aðalfundarstarfa og veitingar viður- kenninga. Grafarvogur | Nemendum 9. bekkjar Húsaskóla var boðið upp á lifandi bókasafn í gær en þar eru bækurnar fulltrúar hinna ýmsu hópa, oft minni- hlutahópa sem hafa sætt fordómum og eða hafa verið fórnarlömb mis- réttis og félagslegrar útilokunar. Með þessu var leitast við að brjóta niður fordóma og eyða fáfræði, en Lifandi bókasafn er liður í mannréttinda- fræðslu Húsaskóla. Að sögn Piu Viinikka, bókasafns- og upplýsingafræðings við Húsa- skóla, er skólinn fyrsti grunnskólinn á Íslandi sem býður upp á lifandi bókasafn, en hugmyndin er komin frá Danmörku. Hún sagði að átta manns hefðu komið í heimsókn í skólann og hefði hver og einn átt hálftíma stund með hópi fjögurra nemenda. Fulltrúi múslima og femínista komu í skólann ásamt því að þunglyndissjúklingur, óvirkur alkóhólisti, blökkumaður, samkynhneigður karl og kona, auk einstaklings sem lent hafði í einelti komu og svöruðu spurningum sem hver hópur hafði undirbúið. Upplýs- ingarnar og svörin yrðu svo nýtt í verkefnavinnu þar sem niðurstöður yrðu sýndar öðrum skólafélögum. Morgunblaðið/Kristinn Lifandi bókasafn í Húsaskóla TÍU umsækjendur eru um embætti prests í Hallgrímsprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra sem auglýst var laust til umsóknar nýlega. Umsóknarfrestur rann út hinn 17. febrúar sl. Umsækjendur eru: Sr. Bára Frið- riksdóttir, sr. Birgir Ásgeirsson, sr. Elínborg Gísladóttir, sr. Flosi Magn- ússon, sr. Gunnlaugur Garðarsson, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, sr. Ólafur Jens Sigurðsson, sr. Pjetur Þorsteinn Maack, sr. Sigurður Jóns- son og Úrsúla Árnadóttir guðfræð- ingur. Embættið veitist frá 1. apríl nk. Tíu umsækjendur um Hallgrímsprestakall Reykjavík | Þriggja ára áætlun um rekstur, framkvæmdir og fjármál Reykjavíkurborgar fyrir árin 2007– 2009 var samþykkt samhljóða frá síðari umræðu á fundi Borgarstjórn- ar Reykjavíkur í gærkvöld. Fulltrú- ar Sjálfstæðisflokks og frjálslyndra sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Borgarfulltrúar sjálfstæðismanna gerðu skuldasöfnun Reykjavíkur- borgar að umræðuefni og sögðu skuldir borgarinnar nú allt í allt komnar upp í 100 milljarða króna, væri tillit tekið til skulda fyrirtækja borgarinnar. Bentu þeir þar sérstak- lega á Orkuveitu Reykjavíkur (OR), en borgarfulltrúar meirihlutans bentu hins vegar á að þar lægju enn- fremur að baki gríðarlegar fjárfest- ingar í orku- og veitumálum, sem þegar væru farnar að skila miklum arði bæði til OR og borgarinnar. Þá voru lóðamál einnig til umræðu og beindist langstærstur hluti ræðu- tíma borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokks að því sem þeir kölluðu lóða- klúður R-listans og lá þar hið nýlega lóðaútboð á Úlfarsárdalssvæðinu málflutningi þeirra til grundvallar. „Venjulegt launafólk í borginni hefur ekki efni á lóðum undir sérbýli,“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson m.a. og bætti við að Reykjavíkurborg byggi til launaskort í því skyni að ná inn meiri peningum fyrir lóðir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir svaraði Vilhjálmi með því að nú væri metframboð á lóðum í borginni og betra væri að taka fé af lóðum til að bæta rekstur borgarinnar og hækka lægstu launin en að láta þær niður- greiddar til verktaka sem hækkuðu síðan eðlilega verðið til kaupenda. Hér væri um að ræða eðlilega verð- myndun á lóðum, þar sem markaður- inn réði för. Sagði hún fyrri aðferðir til lóðaúthlutunar, þar sem bæjar- fulltrúar úthlutuðu lóðunum sam- kvæmt óræðum reglum, úthlutunar- aðferðir spillingar, en þær væru t.d. enn við lýði í Kópavogi, þar sem ætt- ingjar og vinir bæjarfulltrúa fengju lóðir. Þetta væri ekki hægt í útboði. Uppboð réttlátasta leiðin Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi D-lista, greip orð Steinunnar á lofti og sagði R-listann hafa staðið fyrir slíkum „úthlutunaraðferðum spillingar“ frá 1994-2001, en Stein- unn Valdís svaraði því að langflest sveitarfélög væru einmitt að hverfa frá slíkum aðferðum og þannig borg- in líka. Stefán Jón Hafstein vitnaði í fréttaskýringu í Morgunblaðinu í gær þar sem sagði að ekki væri hægt að kenna lóðaskorti einum um hækk- andi fasteignaverð og einnig að meira væri af lóðum en áður. Sagði hann vilja borgaryfirvalda hafa verið skýran í útboðinu vegna Úlfarsár- dalshverfisins, að einstaklingar fengju tækifæri til að byggja. Því væri mikilvægt að leita leiða til að leiðrétta málin. Sagði hann einnig uppákomu eins og þá að einn ein- staklingur hefði boðið hæst í 39 af 40 lóðum ekkert segja um það hvort út- boðsleiðin væri réttlát. „Mér finnst skrýtið að þurfa að rökræða það við fulltrúa markaðs- hyggjuflokksins að fara markaðs- leiðina,“ sagði Stefán m.a. og bætti svo við að það væri að sjálfsögðu þekkt leið sjálfstæðismanna að af- henda völdum einstaklingum verð- mæti í opinberri eigu á undirverði, eins og hefði gerst með fiskveiði- heimildir. „Þá verður sægreifastefna Sjálfstæðisflokksins útfærð sem lóðagreifastefna, komist hann til valda.“ Stefán sagði ennfremur að ekki væri skynsamlegt að greiða niður sérstaklega lóðir og húsnæði fyrir fólk á jaðarsvæðum Reykjavíkur frekar en t.d. í Vesturbænum. Ekk- ert réttlæti fælist í því. Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi D-lista, sagði ekki hægt að beita hagfræðirökum um framboð og eftirspurn á lóðaverði, enda stýrði borgin framboði á lóðum og héldi því vísvitandi niðri. Því væri verð á lóðum í engu samhengi við raunveruleikann. Í ræðu Dags B. Eggertssonar kom ennfremur fram að hugmyndir um byggð í Geldinganesi væru óraun- hæfar þangað til Sundabraut yrði lögð, annað yrði ávísun á umferðar- hnút í Grafarvogi. Þessu svaraði Gísli Marteinn Baldursson með því að byggð í Úlfarsfelli og öðrum eystri byggðum væri einnig íþyngj- andi fyrir Ártúnsbrekkuna, sem væri löngu hætt að valda þeirri umferð. Sagði Dagur R-listann hafa á síð- asta áratug innleitt aukið rekstrar- aðhald og hagræðingu, fækkað nefndum og sviðum um helming. Þá mætti ekki gleyma því að gert væri ráð fyrir 6.000 íbúðum á næstu 5 ár- um. Minna fór fyrir umræðum um sjálfa fjárhagsáætlunina, en skipu- lags- og lóðamál voru greinilega ofarlega í huga borgarfulltrúa. Þriggja ára fjárhagsáætlun borgarinnar samþykkt Lóðamál í brennidepli Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.