Morgunblaðið - 22.02.2006, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
; <
=> %&%'(
)&%*(
+,-.
+,-(
9
9
?* #
@8A
/&*/*
/&*,)
+,-)
0,-)
9
9
B8B C7A
1&..%
..1
0,-%
0,-*
9
9
C7A "
;
(2/
)/&*./
0,-1
0(-,
9
9
/B#A @+D E+
'&/.'
))&,'.
+(-(
+,-1
9
9
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands lækkaði um 3,25% í gær og
endaði í 6596 stigum. Þetta er
fimmta mesta lækkun á einum degi í
Kauphöllinni. Ástæðan fyrir lækk-
unninni er talin vera endurmat Fitch
Rating á horfum í íslensku efnahags-
lífi. Mest lækkaði Úrvalsvísitala í
gær um tæp 4% en heldur dró úr
lækkuninni þegar líða fór á daginn.
Viðskipti með hlutabréf námu
tæpum 13 milljörðum króna, þar af
2,9 milljörðum með bréf Landsbank-
ans sem lækkuðu um 5,9%. Bréf FL
Group lækkuðu um 5,2% og bréf
Straums-Burðaráss um 3,9%. Bréf
Granda hækkuðu um 1,57%, bréf
Marels um 1,27% og bréf Kögunar
um 0,93%
Mikil lækkun
hlutabréfa
● HAGNAÐUR Opinna kerfa sam-
stæðunnar eftir skatta var 215 millj-
ónir króna 2005, en var á fyrra ári
225 milljónir króna, að meðtalinni af-
komu Skýrr og Teymis. Eiginfjárhlut-
fall félagsins er 30% og arðsemi eig-
in fjár á ársgrundvelli 15,5% en var
12,5% á fyrra ári. Fjöldi starfsmanna
er um 440. Heildarvelta Opin Kerfi
Group á árinu 2005 var 11.516 millj-
ónir króna, samanborið við 14.763
milljónir króna á fyrra ári. Þegar Skýrr
og Teymi eru ekki tekin með var velta
árið 2004 12.470 milljónir króna.
Opin kerfi högnuðust
um 215 milljónir
● HERMANN Guðmundsson hefur
verið ráðinn nýr forstjóri Olíufélags-
ins ehf. Esso.
Hann hefur frá
árinu 2002 verið
framkvæmda-
stjóri Bílanausts
en frá 1994 starf-
aði hann sem
framkvæmda-
stjóri Slípivara og
verkfæra og var
hann jafnframt
einn stofnenda
þess félags. Bíl-
anaust og Olíufélagið eru í eigu
sama eignarhaldsfélagsins og stefnt
er að ráðningu nýs framkvæmda-
stjóra Bílanausts innan skamms,
segir í fréttatilkynningu. Á nýaf-
stöðnum aðalfundi Olíufélagsins var
kosin ný stjórn en hana skipa nú
Bjarni Benediktsson, alþingismaður,
sem er formaður, Einar Sveinsson og
Friðjón R. Sigurðsson.
Hermann
forstjóri Esso
Hermann
Guðmundsson
!
!"
8"F "
8F% 2
4(+ "
8%+( 4(+ "
- 2( 4(+ "
@ )(1 "
? ) 4(+ "
?0 4(+ "
"
G
) - "
) "
0
"
7 ( "
7+
F ?
+ "
%( (H- (. (' ?&'("
"
I ( "
# $ %& ! "
82
+ 4(+ "
?
( . ( "
4(
"
.& " /F
F 4(+ "
;J(&
"
>K? 8% %
F >%(+
*(5))
)
.%.
"
L
%.
"
'! (& ) * & +
?
#5& "& (. ( " '% ("3 ) . ( 2"
, -.&!
/B#M
!. %
2
.2(.
H
H
H
H
H
-(5%
) "('
"5(( 2
.2(.
H H H H
H H
H H H H
H
H H
H H H
H
H
H H
H
H
H
H
H
N H9O
N H
9O
N H9O
N H9O
N H9O
H
N H9O
N H9O
N H9O
N 9O
N H 9O
H
N H9O
N H 9O
N H9O
N H9O
H
H
H
N H9O
H
N 9O
H
H
H
H
N H 9O
(2
.
%
)
*
+. ! + )
H
H
H
H
H
L
.
%
! G1 (
8* P 8% ) (
%
?&
2
.
%
H
H
H
H
H
BJARNI Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
kom inn á endurmat Fitch Rating á horfum í ís-
lensku efnahagslífi í ræðu sinni á aðalfundi bank-
ans í gær. Íslandsbanki stækkaði verulega á síð-
asta ári, heildareignir bankans jukust um 117% í
1.472 milljarða króna og sagði Bjarni að endur-
fjármögnun og fjármögnun stækkunar efnahags-
reikningsins og umsvifa bankans vera þann ein-
staka áhættuþátt í starfseminni sem vægi
þyngst.
Bjarni sagði að í þessu samhengi mætti nefna
að Fitch IBCA, sem meðal annars mæti lánshæfi
íslensku bankanna og lýðveldisins, hefði sett ís-
lenska ríkið á sk. „negative outlook“ eða nei-
kvæðar horfur, vegna mikils viðskiptahalla og er-
lendrar skuldasöfnunar. „Slíkt hjálpar ekki til við
fjármögnun bankans,“ sagði Bjarni en bætti við
að Íslandsbanki ynni af kappi við að gæta þeirrar
traustu stöðu sem bankinn hefði búið við.
Einar Sveinsson, formaður stjórnar Íslands-
banka, sagði í ræðu sinni að flest benti til þess að
rekstrarumhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja
yrði áfram hagstætt þótt líklega mundi hægja
nokkuð á hjólum hagkerfisins eftir hraðan vöxt
síðustu ár. „Nokkrar blikur eru þó á lofti,“ sagði
Einar, „og er þar helst að nefna vaxandi verð-
bólguþrýsting, mikinn viðskiptahalla og lítinn
þjóðhagslegan sparnað. Þá er hátt gengi krón-
unnar áhyggjuefni fyrir útflutningsatvinnuveg-
ina.“
Á fundinum var endurskoðaður ársreikningur
2005 samþykktur en bankinn skilaði methagnaði
á síðasta ári, rúmum 19 milljörðum króna og arð-
semi eiginfjár var 30%.
Ný stjórn bankans var sjálfkjörin, þar sem
þeir sem buðu sig fram voru jafn margir sætum í
stjórninni. Fjórir nýir gengu til lið við stjórnina;
Edward Allen Holmes, Skarphéðinn Berg Stein-
arsson, Hannes Smárason og Guðmundur Óla-
son. Áfram í stjórn eru Einar Sveinsson, Jón
Snorrason og Karl Wernersson.
Þá var samþykkt tillaga stjórnar um greiðslu
arðs. Greiddar verða 5.360 milljónir króna, sem
nemur 28% af hagnaði ársins 2005 og 38% af
nafnverði hlutafjár. Jafnframt var samþykkt að
hluthöfum skuli gefinn kostur á að fá allt að
helming arðs síns greiddan í hlutafé í Íslands-
banka, á genginu 18,6.
Morgunblaðið/Eggert
Aðalfundur Íslandsbanka Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, Einar Sveinsson, formaður stjórnar, Karl Wernersson stjórnarmaður og Guð-
mundur Ásgeirsson, fráfarandi stjórnarmaður, sátu við pallborð á aðalfundi Íslandsbanka sem haldinn var í gær.
„Hjálpar ekki til við fjármögnun bankans“
Endurmat Fitch á íslensku efnahagslífi rætt á aðalfundi Íslandsbanka
Eftir Kristján Torfa Einarsson
kte@mbl.is
EIGENDUR heildsölufyrirtækisins
Daníels Ólafssonar ehf., eða Danól,
hafa ákveðið að selja fyrirtækið og
allar eignir þess. Þar með talið er Öl-
gerðin Egill Skallagrímsson ehf. Í
tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
félögin verði seld saman eða hvort í
sínu lagi, að því gefnu að viðunandi
kauptilboð berist. Sölumeðferðin er í
höndum MP Fjárfestingarbanka og
er áætlað að hún taki um sex vikur.
Í tilkynningunni segir að rekstur
Danól og Ölgerðarinnar hafi gengið
mjög vel undanfarin ár og að árið
2005 hafi verið besta ár í rekstri
beggja fyrirtækja frá upphafi. Velta
Danól hafi vaxið jafnt og þétt og ver-
ið 2,3 milljarðar króna á árinu 2005.
Ölgerðin hafi vaxið um 50% frá því í
janúar 2002 og veltan í fyrra hafi
verið um 5,5 milljarðar.
Góðar aðstæður til að selja
Einar Friðrik Kristinsson, sem
verið hefur framkvæmdastjóri Dan-
ól í 42 ár, hættir störfum á þessum
tímamótum. Haft er eftir honum í til-
kynningunni, að honum finnist kom-
inn tími til að draga sig í hlé. Nú séu
góðar aðstæður til að selja og margir
hafi sýnt fyrirtækjunum áhuga.
Októ Einarsson, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Danóls og stjórnar-
formaður Ölgerðarinnar og sonur
Einars Friðriks, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að eigendur Danóls
hefðu ekki verið að skoða sölu á fyr-
irtækjunum. „Það sem ýtti við okkur
var að við fengum mjög áhugavert
tilboð. Það varð til þess að við vildum
fara í formlegt ferli með söluna á fyr-
irtækjunum,“ sagði hann.
Friðrik Einarsson, sérfræðingur á
fyrirtækjasviði MP Fjárfestingar-
banka, segir að margir hafi nú þegar
lýst áhuga á Danól og eignum þess.
Söluferlið muni ganga þannig fyrir
sig að félagið verð kynnt fyrir áhuga-
sömum í dag, eftir að þeir hafi skrif-
að undir trúnaðaryfirlýsingu. Síðan
þurfi viðkomandi að skila upplýsing-
um um sjálfa sig og í framhaldinu
verði áhugasamir valdir úr til að taka
þátt í sjálfu söluferlinu.
Danól og Ölgerðin komin í
formlega sölumeðferð
FYRSTA íslenska fréttastofan sem
segir fréttir á ensku hefur verið
stofnuð en hún ber nafnið Icelandic
Financial News og eins og nafnið gef-
ur til kynna mun hún segja fjármála-
fréttir frá Íslandi. Það er Viðskipta-
blaðið sem stendur að IFN, en
ennfremur hefur hópur fjárfesta und-
ir forystu Gunnars Jóhanns Birgis-
sonar, stjórnarformanns Framtíðar-
sýnar sem gefur út Viðskiptablaðið,
keypt bresku frétta- og upplýsinga-
veituna M2 Communications.
Fréttum IFN mun verða dreift í
gegnum samstarfsaðila M2, svo sem
Reuters og DowJones, en þannig
munu fréttir IFN ná til sjö milljón
manna á degi hverjum. M2 mun vera
stærsta fyrirtæki Evrópu í dreifingu
fréttatilkynninga og það þriðja
stærsta í heiminum á þessu sviði.
Samhliða kaupunum hefur Gunn-
laugur Árnason, ritstjóri Viðskipta-
blaðsins, verið ráðinn aðalritstjóri M2
og Gunnar Jóhann framkvæmda-
stjóri.
Gunnlaugur segir markmiðið með
kaupunum vera tvíþætt. Annars veg-
ar sé um góða fjárfestingu að ræða;
fyrirtækið, sem var stofnað árið 1993,
hafi alla tíð verið rekið með hagnaði
og með kaupunum aukist möguleikar
Viðskiptablaðsins til vaxtar enn frek-
ar. „Hins vegar erum við að fylgja út-
rásinni eftir og koma til móts við auk-
inn áhuga erlendis á íslenska
fjármálaheiminum,“ segir Gunnlaug-
ur.
Kaupverð er ekki gefið upp en
áætlaður hagnaður félagsins á þessu
ári er um 50 milljónir króna, miðað
við núverandi gengi.
Viðskiptablaðið í útrás Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íslensk fréttastofa á ensku Tom Naysmith, þróunarstjóri bresku frétta-
og upplýsingaveitunnar M2, og Gunnlaugur Árnason, ritstjóri Við-
skiptablaðsins og aðalritstjóri M2.