Morgunblaðið - 22.02.2006, Qupperneq 23
spurð hvernig þau umgangist sítr-
ónu- og appelsínutrén, svara þau því
til að íslenska vatnið og blómaáburð-
urinn græna þruman sé látið duga.
Einu sinni hafi verið reynt að skipta
um mold í pottunum, en plöntunum
hafi greinilega ekkert líkað sú með-
ferð.
„Appelsínutréð keypti ég fyrir
átján árum í Kolaportinu og sítr-
ónutréð fékk ég að gjöf frá konu í
Garðyrkjufélagi Garðabæjar fyrir sex
árum. Appelsínurnar finnst mér vera
rammar og vondar og eru þær hér
meira til skrauts en manneldis. Hins-
vegar eru sítrónurnar stórar og fínar
og einkar bragðgóðar,“ segir Kristín.
Þau hjón eru komin á eftirlaun, en
Kristín hefur um alltaf verið mikil
áhugakona um matargerð. Hún starf-
aði sem almennur kennari og mat-
reiðslukennari, skrifaði sex mat-
reiðslubækur og var með þætti um
mat í Morgunblaðinu í sautján ár.
Sigurður er skipasmiður og myndlist-
armaður að mennt og hefur séð um að
myndskreyta matarskrifin. Kristín
lét af hendi uppskriftir detti fólki í
hug að fara að rækta sítrónur eða
appelsínur.
Appelsínumarmelaði
1½ kg appelsínur
2 sítrónur
1 l vatn
1 kg sykur
Afhýðið appelsínur og sítrónur
með kartöfluhníf. Skerið börkinn í
ræmur og setjið í skál. Flettið hvítu
himnunni af ávöxtunum og hendið.
Skerið hvern ávöxt í fjóra bita, hendið
hvítu himnunni í miðju ávaxtanna,
fjarlægið steina, setjið í grisju og
bindið fyrir. Setjið grisjupokann í
skál. Skerið hvern ávaxtabát í sneiðar
og setjið í skálina. Hellið vatninu yfir,
látið standa í 12–14 tíma. Hellið
ávöxtunum ásamt vatni og grisjupoka
í pott og sjóðið við hægan hita í lok-
uðum potti í 20 mín. og í loklausum
potti í aðrar 20 mín. Takið þá grisju-
pokann úr og hendið, en setjið sykur
út í og sjóðið í 30 mín. Hellið í hreinar
krukkur, látið kólna áður en lokað er.
Geymið á köldum stað.
Sítrónubaka
150 g hveiti
75 g sykur
100 g smjör eða smjörlíki
2 egg
Setjið hveiti og sykur í skál, skerið
smjörið smátt og myljið saman við.
Setjið eggið út í og hnoðið deig. Setjið
deigið á botninn og upp með börmum
á bökumóti, 20 cm í þvermál.
Fylling
1 egg
60 g flórsykur
60 g heslihnetur eða möndlur
rifinn börkur og safi úr hálfri sítrónu
Hrærið eggið með sykri þar til það
er ljóst og létt. Rífið börkinn af sítr-
ónunni, kreistið safann úr henni. Setj-
ið sítrónubörk og safa saman við
eggjahræruna. Saxið hneturnar og
setjið út í. Hellið þessu yfir bökuna.
Hitið bakaraofninn í 180°C, blást-
ursofn í 160°C. Setjið bökuna í ofninn
og bakið í 45 mín.
Morgunblaðið/Ásdís
Sítrónurnar eru stórar, bragðmiklar og vel hæfar í matargerðina.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 23
DAGLEGT LÍF Í FEBRÚAR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
0
5
3
9
6 til sjö
Nýr þáttur um lífið frá A til Ö í umsjón
Guðrúnar Gunnarsdóttur og Felix Bergssonar
Alla virka daga milli 6 og sjö
Hefst í kvöld!
6til sjö
JOIK, RÍMUR OG ROKK
Á VETRARHÁTÍÐ
í Íslensku óperunni
laugardaginn 25. febrúar kl. 21:00
Miðasala hafin í Íslensku óperunni.
Miðaverð kr. 1000
www.reykjavik.is