Morgunblaðið - 22.02.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 37
DAGBÓK
EINBÝLISHÚS Á SELTJARNARNESI
ÓSKAST - STAÐGREIÐSLA
Óskum eftir 400-500 fm einbýlishúsi á Seltjarnar-
nesi. Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veita
Sverrir og Óskar
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í
einkasölu mjög fallega 99,8 fm ásamt 4 fm
geymslu í kjallara 4ra-5 herbergja efri hæð
í tvíbýli, mjög vel staðsett á rólegum, barn-
vænum stað við Álfaskeið í Hafnarfirði.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, gang,
hjónaherbergi, tvö barnaherbergi, stofu,
baðherbergi, geymsluloft, geymslu og
góða sameign. Fallegar innréttingar og
gólfefni. Frábær staðsetning.
Verð 23,9 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Álfaskeið – Hf. - Glæsileg sérhæð
Áföstudag kl. 10 í hátíðarsal Háskóla Ís-lands ver Anna Sigríður Ólafsdóttirdoktorsritgerð sína, „Næring og lífs-hættir kvenna á barneignaraldri“.
Ritgerð Önnu Sigríðar er byggð á sex fræði-
greinum en viðfangsefni rannsóknar hennar var
tvíþætt: Annars vegar að skoða líkamsþyngd,
þyngdaraukningu og mataræði kvenna á með-
göngu og tengsl við fæðingarþyngd barna, og
hins vegar tengsl lýsisneyslu við blóðþrýsting á
meðgöngu, fæðingarstærð barna og samsetningu
brjóstamjólkur. Leiðbeinendur Önnu Sigríðar
voru dr. Inga Þórsdóttir prófessor og dr. Laufey
Steingrímsdóttir og í doktorsnefnd var auk þeirra
dr. Guðrún V. Skúladóttir.
„Fáar rannsóknir hafa beinst að því hvaða áhrif
breytingar á mataræði á meðgöngu hafa á bæði
þyngdaraukningu móður og fæðingarstærð
barns, en aukin fæðingarstærð barna er talin
tengd betri heilsu barnanna seinna á lífsleiðinni,
og hæfileg þyngdaraukning móður á meðgöngu
skiptir þar máli,“ segir Anna Sigríður. „Í rann-
sókninni fundust ekki aðeins tengsl milli meira
matarmagns og þyngdaraukningar, heldur einnig
við sérstök matvæli. Það á sérstaklega við um
mikla mjólkurneyslu á síðari hluta meðgöngu,
sem tengist of mikilli þyngdaraukningu móður.
Mjólkin er mikilvæg en gæta þarf meðalhófs í
neyslu hennar eins og annarra matvæla.“
Einnig voru skoðuð samtvinnuð áhrif mat-
aræðis og reykinga á þyngdaraukningu á með-
göngu: „Í samræmi við erlendar rannsóknir
þyngdust konur sem reykja minnst á meðgöngu,
sem er slæmt, og þessar mæður eignast líka
minni börn. Þær konur sem hættu að reykja á
meðgöngu þyngdust mest, sem er ekki síður
óæskilegt, en við sáum hins vegar að áhrifin hurfu
þegar tekið var tillit til mataræðis. Svo virðist því
sem konur sem hætta að reykja þyngist vegna
þess að þær gæti ekki nógu vel að mataræðinu.
Áberandi var að þær borðuðu minna af ávöxtum
og grænmeti en aðrar konur, bæði þær sem
reykja og reykja ekki.“
Rannsóknir á lýsisneyslu á meðgöngu gáfu
áhugaverðar niðurstöður: „Við sáum að konur
sem tóku lýsi á fyrstu 15 vikum meðgöngunnar
fæddu stærri börn en þær sem ekki tóku lýsi.
Hins vegar kom í ljós að þær konur sem tóku
mest af lýsi virtust vera í aukinni hættu á of háum
blóðþrýstingi á meðgöngu, en minnstar líkur á
háþrýstingi voru hjá þeim sem fengu ómega-3-
fitusýrur í minna magni, eða 0,1 til 0,9 g á dag,
sem samsvarar rúmri teskeið af lýsi. Víst er að
ómega-3-fitusýrur geta haft jákvæð áhrif á
heilsufar manna upp að vissu marki, en mikið
magn getur hugsanlega verið skaðlegt,“ segir
Anna.
Heilsa | Doktorsrannsókn á áhrifum lýsis og ýmsum þáttum mataræðis á meðgöngu
Áhrif mataræðis á meðgöngu
Anna Sigríður Ólafs-
dóttir fæddist 1974.
Hún lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í
Hamrahlíð 1993, BSc í
matvælafræði frá Há-
skóla Íslands 1997 og
MSc í næringarfræði
frá Vínarháskóla 2000.
Anna Sigríður hefur
unnið að rannsóknum
til doktorsprófs við
rannsóknastofu í næringarfræði við matvæla-
og næringarfræðiskor raunvísindadeildar HÍ
og Landspítala – háskólasjúkrahúss frá árinu
2002. Anna Sigríður er gift dr. Alfons Ramel
næringarfræðingi og eiga þau einn son.
Konudagskaka —
alls staðar eins?
ÉG var svo heppin að fá að smakka
konudagskökuna sl. laugardag sú
var keypt í Bakarameistaranum í
Suðurveri. Náði hún langt upp fyrir
bakkann sem hún er seld í og botn-
inn mjúkur og fínn.
Morguninn eftir, á konudaginn,
fór maðurinn minn og keypti köku
handa mér hjá Reyni bakara á Dal-
vegi og hún var helmingi minni (ekki
ýkjur) og svo var botninn klesstur.
Eiga þessar kökur ekki að vera
eins, væntanlega eru þær á sama
verði? Hvað segir Landsamband
bakarameistara?
Ég veit a.m.k. hvert ég fer ekki
næst.
Hanna.
Góð grein í Morgunblaðinu
MIG langar að benda fólki á góða
grein í Morgunblaðinu mánudaginn
20. febrúar sl. eftir Albert Jensen
„Múslimar í íslensku samfélagi“.
Þar fjallar hann um málefni músl-
ima hér á landi. Ég hef reynslu af
þessum málum því þegar ég bjó í
Danmörku varð ég vitni að gífur-
legri breytingu á dönsku þjóðfélagi
eftir að múslimskir innflytjendur
komu til landsins.
Kristín.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Sveitakeppni Bridshátíðar.
Norður
♠KG
♥ÁD86543
♦K105
♣9
Vestur Austur
♠Á76532 ♠10984
♥K107 ♥92
♦D93 ♦G742
♣4 ♣D102
Suður
♠D
♥G
♦Á86
♣ÁKG87653
Fimm manna dönsk-íslensk blanda
vann sveitakeppni Bridshátíðar – 70
liða mót þar sem spilaðar voru 10
umferðir af stuttum leikjum og raðað
saman eftir árangri (monrad). Ís-
lendingarnir í liðinu voru þríeykið
Ísak Örn Sigurðsson, Ómar Olgeirs-
son og Stefán Jónsson, en með þeim
spiluðu Danirnir Sejr Andreas
Jensen og Kasper Konow.
Spilið að ofan er frá þriðju umferð
sveitakeppninnar. Ísak og Ómar voru
í NS gegn norsku landsliðsmönn-
unum Boye Brogeland og Erik
Sælendsminde.
Vestur Norður Austur Suður
Erik Ómar Boye Ísak
2 spaðar 3 hjörtu 3 grönd Dobl
Pass Pass 4 spaðar 6 lauf
Erik vekur á veikum tveimur í
spaða og Boye reynir að grugga
vatnið með þriggja granda grínsögn.
En suður lætur ekki blekkjast með
sín öflugu spil.
Erik lagði niður spaðaás í byrjun
og hugsaði sig svo um í langan tíma
áður en hann spilaði loks hjarta í
öðrum slag. Ísak notaði líka tímann
vel til að íhuga íferðina í trompið –
átti að toppa eða svína?
Að öðru jöfnu er betra að taka ÁK
með slíkan lit (53% vinningslíkur), en
svíning á gosa heppnast í 45% tilvika.
Hér er reyndar vitað að spaðinn ligg-
ur 6-4 og það breytir líkunum í lauf-
inu svíningunni í hag.
Ísak lét þó önnur sjónarmið fyrst
og fremst ráða ferðinni. Það væri
nokkur „kaffihúsabragur“ á því að
hugsa lengi í stöðu vesturs með
laufdrottningu og Ísak treysti því
réttilega að Erik myndi ekki leyfa
sér slíkt. Þar með hlaut austur að
eiga drottninguna og Ísak fylgdi
sannfæringunni eftir með því að
svína.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Fréttir á SMS
ÞEIR sem hafa tekið þátt í æðru-
leysismessum eiga forgang að
kyrrðardögum, sem haldnir verða í
Skálholti um næstu helgi, dagana
24.–26. febrúar. Séra Karl V. Matth-
íasson vímuvarnaprestur annast
hugleiðingar og sálgæsluviðtöl.
Á kyrrðardögum er farið í hvarf,
fólk tekur sér hlé frá daglegri önn
og amstri og nýtur friðar og kyrrð-
ar og ekki síst þess að vera án nokk-
urs ytra áreitis.
Dagskrá þessara kyrrðardaga
mótast mjög af reynslu þeirra, sem
tekið hafa þátt í æðruleysismessum
og tekist á við vanda sinn og hafa
þeir forgang um pláss. Að öðru leyti
eru dagarnir opnir öllum þeim sem
þangað óska að koma meðan hús-
rúm leyfir.
Rektorshjónin í Skálholti, Rann-
veig Sigurbjörnsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur, og sr. Bernharður
Guðmundsson annast umsjón kyrrð-
ardaganna. Verði er mjög í hóf
stillt.
Nánari upplýsingar og skráning
er í Skálholtsskóla, sími 486 8870,
skoli@skalholt.is.
Kyrrðardagar í Skálholti
tengdir æðruleysismessum
Morgunblaðið/Þorkell
1. e4 c5 2. a3 e6 3. b4 cxb4 4. axb4
Bxb4 5. Bb2 Rf6 6. e5 Rd5 7. c4 Re7 8.
Ra3 Rbc6 9. Rc2 Ba5 10. Rf3 0-0 11.
h4 d6 12. exd6 Dxd6 13. Hxa5 Rxa5
14. Da1 Rb3 15. Da2 Rc5 16. d4 Da6
17. Da3 Ra4 18. Bc1 Rc6 19. c5 b5 20.
cxb6 Da5+ 21. Bd2 Dxb6 22. Dxa4
Db1+ 23. Ke2 Bd7 24. Rfe1 Hfd8 25.
Da3 Hab8 26. Dc1 Da2 27. Hh3 Hb1
28. Da3
Staðan kom upp í C-flokki Corus-
skákhátíðarinnar sem lauk fyrir
skömmu í Wijk aan Zee í Hollandi.
Egypski stórmeistarinn Ahmed Adly
(2.473) hafði svart gegn hollenska al-
þjóðlega meistaranum Yge Visser
(2.485). 28. … Rxd4+! 29. Rxd4 Bb5+!
30. Rxb5 hvítur hefði tapað drottning-
unni hefði öðru verið leikið. 30. …
Hxd2+ 31. Ke3 31. Kf3 hefði verið
svarað með 31...Hb3+. 31. … Hxe1+
32. Kf3 Hxf2+ 33. Kg3 Dxa3+ og
hvítur gafst upp enda óumflýjanlegt
að hann verði miklu liði undir.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.