Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 39
ar stuðning mætti bjóða í grunnskólanum
og hvað kennari getur gert.
Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa krabbamein í
eggjastokka með rabbfund í húsi Krabba-
meinsfélagsins, kl. 17. Kaffiveitingar.
Landakot | Rannsóknastofa í öldr-
unarfræðum, RHLÖ, heldur fyrirlestur 23.
feb. kl. 15, í kennslusalnum á 6. hæð á
Landakoti. Kristín Björnsdóttir, BM og
doktorsnemi í fötlunarfræði, fjallar um
verkefnið: Tónlist tengir kynslóðir: söng- og
sögustundir með leikskólabörnum og skjól-
stæðingum Fríðuhúss.
Lögberg, stofa 101, HÍ | Auður Styrk-
ársdóttir stjórnmálafræðingur heldur op-
inberan fyrirlestur 23. feb. kl. 16.15–17.30,
um konur í stjórnmálum. Í erindi sínu mun
Auður leita skýringa á hægum framgangi
kvenna í stjórnmálum og hvort íslenska
stjórnmálakerfið bjóði uppá sérstakar leið-
ir til að fjölga konum.
Maður lifandi | Fastir hláturjógafundir
Hláturkætiklúbbsins eru á miðvikudögum
kl. 17.30, í sal heilsumiðstöðvarinnar Mað-
ur lifandi. Aðgangseyrir 300 kr.
Oddi – Félagsvísindahús HÍ | Babel, félag
þýðingafræðinema, heldur málþing í stofu
201 í Odda, kl. 20–22. Frummælendur eru
Guðrún Helgadóttir rithöfundur, Kristín R.
Thorlacius þýðandi og Þórarinn Eldjárn rit-
höfundur. Fyrirspurnir og umræður verða
að loknum erindum. Málþingsstjóri er Katr-
ín Jakobsdóttir. Aðgangur er ókeypis.
Samtökin FAS | Samtökin FAS halda
fræðslufund, í fundarsal Þjóðarbókhlöðu –
Háskólabókasafni, Arngrímsgötu 3, kl. 20.
Sr. Sigfinnur Þorleifsson flytur erindi. Yf-
irskriftin er: Fordómar. Fyrirspurnir og um-
ræður á eftir. Fundurinn er öllum opinn.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðsöfnun við Rauða
kross-húsið í Grindavík kl. 10–17.
Blóðsöfnun við Europris, Skútuvogi, 23.
febrúar kl. 11–15.
Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti mat-
vælum, fatnaði og leikföngum á mið-
vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla
sama dag kl. 15–17 í Eskihlíð 2–4 v/
Miklatorg.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun á miðvikudögum kl. 14–17.
Frístundir og námskeið
Hótel Loftleiðir | Tveggja daga námskeið
með Guðjóni Bergmann fyrir þá sem vilja
hætta að reykja til frambúðar. Verð 13.300.
Mímir–símenntun ehf. | Símsvörun á
ensku er námskeið sem ætlað er ein-
staklingum með nokkurn grunn í ensku og
er sniðið að þjónustufulltrúum fyrirtækja
og stofnana. Námskeiðið er halið 23. feb.
kl. 9–12, í samvinnu við Mími–símenntun á
Grensásvegi 16a. Skráning fer fram hjá Út-
flutningsráði, utflutningsrad@utflutnings-
rad.is eða í síma 511 4000.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 39
DAGBÓK
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi mið. og
mánud., kl. 9 postulínsmálning, kl. 9 og
13 vinnustofan. Fræðslu- og skemmti-
ferð með lögreglunni 23. feb. kl. 14.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–16. Handavinna
kl. 9–16.30. Smíði/útskurður kl. 9–
16.30. Heilsugæsla kl. 9.30–11.30. Spil
kl. 13.30. Keila kl. 13.30. Ath. Vetr-
ardagskrá eldri borgara 23. febr. Föst.
24. febr. teflir Friðrik Ólafsson fjöltefli
kl. 14. Skráning 23. febr.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist,
spiladagur, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Frjálsi handa-
vinnuhópinn alla miðvikudaga kl. 13. Í
tilefni af Vetrarhátíð er opið hús sun.
26. feb. kl. 14–16. Tungubrjótar og
sönghópur Lýðs bregða á leik.
FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, opið hús
13–16. Grétudagur, Gróukaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofan er opin í dag kl. 10–11.30. Við-
talstími er í Gjábakka kl. 15–16. Fé-
lagsvist er spiluð í Gjábakka kl. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Söngvaka kl. 14, undirleikari Sigurður
Jónsson. Söngfélag FEB, æfing kl. 17.
Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir
leikritið Glæpir og góðverk kl. 14.
Miðapantanir í síma 562 9700.
Félagsheimilið Gjábakki | Kl. 9.30
boccía, kl. 10 handavinna, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 15.15 söngur, kl. 17 bobb.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Sam-
lestur Leshóps FEBK í Gullsmára á
Brennu-Njálssögu kl. 15.45 í fé-
lagsmiðstöðinni Gullsmára. Ferð á
Njáluslóðir á komandi sumri. Postu-
línsmálun kl. 13.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Opið
í Garðabergi kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–14
vinnustofur opnar (ath. breyting
vegna ferðalags). Kl. 10.30 gamlir leik-
ir og dansar. Kl. 11 sund og leikfimiæf-
ingar í Breiðholtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Kl. 14.30 lagt af stað í
fræðslu- og skemmtiferð í samstarfi
við lögregluna í Reykjavík o.fl. Á morg-
un kl. 13.15 „Kynslóðir saman í Breið-
holti“.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 9
aðstoð við böðun, bókband. Kl. 13 leik-
fimi og sagan kl. 14. Kaffi kl. 15.
Glæsibær | Göngu-Hrólfar. Ganga frá
Glæsibæ kl. 10 miðvikudaga.
Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður,
postulínsmálun, kaffi, spjall, dagblöðin,
fótaaðgerð. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13
brids. Kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–16, silki- og glermálun, kortagerð.
Jóga kl. 9–12. Samverustund kl. 10.30–
11.30. Böðun fyrir hádegi.
Hæðargarður 31 | Vetrarhátíð fös. 24.
feb. Kl. 9.30 Gönuhlaup og kl. 14
myndlistarsýning Listasmiðjuhóps.
Laugd. 25. feb. kl. 10 Út í bláinn.
Sunnud. 26. feb. kl. 14–16: Opið hús.
Heitt á könnunni; tombóla; tölvugúrú;
brugðið á leik; Dísirnar og drauma-
prinsarnir.
ITC Melkorka | ITC-deildin Melkorka
fundar kl. 20, í Stangarhyl 4.
Korpúlfar, Grafarvogi | Pútt á Korp-
úlfsstöðum á morgun kl. 10.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
9.30. Hárgreiðslustofan opin kl. 10.
Verslunarferð í Bónus kl. 12. Námskeið
í postulínsmálun kl. 13. Handavinna, al-
menn, kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 9–16.30
opin vinnustofa, kl. 9 opin fótaað-
gerðastofa, sími 568 3838, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Félagsheimilið,
Hátún 12: Félagsvist í kvöld kl. 19.
Skaftfellingabúð | Félagsvist í Skaft-
fellingabúð kl. 20.15. Kaffií hléi.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 myndmennt.
Kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug). Kl.
11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14
verslunarferð í Bónus, Holtagörðum.
Kl. 13–14 spurt og spjallað. Kl. 13–16
tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9,
handmennt almenn kl. 9.30–16.30,
morgunstund kl. 10, bókband kl. 10,
verslunarferð í Bónus kl. 12.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn
kl. 9.30–11.30. Kirkjuprakkarar kl.
15.30.TTT-starf kl. 17. ÆFAK (yngri
deild) kl. 20.
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund kl. 12–
12.30. Súpa og brauð á eftir gegn
vægu gjaldi.
Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn-
aðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag.
Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í
Haukshúsum. Foreldramorgnar kl. 10–
12. Opið hús eldri borgara kl. 13–16, Páll
Steingrímsson kvikmyndatökumaður
kemur í heimsókn. KFUM&K-fundur
fyrir 9–12 ára börn kl. 17–18.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Máls-
verður eftir stundina. Kirkjuprakkarar
7–9 ára kl. 16. TTT, 10–12 ára, kl. 17.
Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar
kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf aldraðra kl. 13.
Við spilum, föndrum og erum með
handavinnu. Kaffi kl. 15. Gestur dags-
ins er Þorvaldur Halldórsson.
Digraneskirkja | Alfa-námskeið kl. 19.
Dómkirkjan | Hádegisbænastundir kl.
12–12.30. Léttur hádegisverður á eftir.
Bænarefnum veitt móttaka í síma
530 9700.
Garðasókn | Foreldramorgnar kl. 10-
12.30. Fyrirlestur mánaðarlega. Heitt
á könnunni.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir.
Léttur hádegisverður á eftir. Prestar
safnaðarins þjóna fyrir altari. TTT fyrir
börn 10–12 ára á miðvikudögum í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30.
Grensáskirkja | Samvera aldraðra í
dag kl. 12.10. Boðið er upp á mat. Verð
1.500 kr.
Hafnarfjarðarkirkja | Mömmu-
morgnar kl. 10–12. Kaffi og meðlæti í
boði.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8.
Íhugun, altarisganga. Morgunverður
eftir messuna.
Háteigskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.10.
Stundin tekur um 20 mín. Léttur há-
degisverður á eftir.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Tíu til tólf ára starf er kl. 16.30–
17.30.
Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæn í
hádeginu kl. 12.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Há-
degisbænastund kl. 12–13. Fjölskyldu-
samvera kl. 18 með léttri máltíð á
vægu verði. Kl. 19 er Biblíulestur fyrir
alla fjölskylduna. Skátastarfið Royal
Rangers er fyrir 5–17 ára.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í
Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–
60 miðvikudag 22. feb. kl. 20. „Rís
upp Guð, berst fyrir málefni þínu!“
Ragnar Gunnarsson talar. Asíufréttir.
Kaffi. Allir eru velkomnir.
Keflavíkurkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund í kirkjunni kl. 12.10. Sam-
verustund í Kirkjulundi kl. 12.25 –
súpa, salat og brauð á vægu verði –
allir aldurshópar. Opið hús kl. 10–12.
Umsjón er Dís Gylfadóttir og Guðrún
Jensdóttir.
Langholtskirkja | Bænagjörð með
orgelleik og sálmasöng kl. 12.10. Súpa
og brauð kl. 12.30 (300 kr.). Starf eldri
borgara, dagskrá kl. 13–16.
Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu-
morgunn í umsjá Hildar Eirar Bolla-
dóttur. Kl. 10.30 Gönguhópurinn Sólar-
megin. Allt fólk velkomið að slást í för.
Kl. 14.10 Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur)
Kl. 16 TTT (5.–6. bekkur) Kl. 19.30
fermingartími. Kl. 20.30 unglinga-
kvöld.
Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10,
kaffi og spjall. Fyrirbænamessa kl.
12.15, prestur sr. Örn Bárður Jónsson.
Opið hús kl. 15, barokkmeistarinn Hall-
grímur Pétursson. Margrét Eggerts-
dóttir sérfræðingur á Árnastofnun,
ræðir um höfund Passíusálmanna.
Selfosskirkja | Morguntíð sungin kl.
10. Beðið fyrir sjúkum og bágstöddum.
Einnig tekið við bænarefnum. Kaffi á
eftir. Foreldramorgunn í safnaðar-
heimilinu kl. 11. Opið hús, hressing og
spjall.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
OPINN umræðufundur Heimdallar
verður í dag, miðvikudaginn 22.
febrúar kl. 20, í Valhöll, um frum-
varp til laga um að leyfa ekki tób-
aksreykingar á veitingastöðum.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
ríkisstjórnarinnar, sem gerir ráð
fyrir að tóbaksreykingar verði
ekki leyfðar á veitinga- og
skemmtistöðum. Sumir telja þetta
frumvarp skerðingu á frelsi og
eignarrétti, aðrir líta á það sem
vinnuvernd starfsmanna veit-
ingastaða sem eigi sama rétt og
aðrir á vinnumarkaði til hreins
lofts við vinnu sína. Vinnuvernd
og heilsuvernd takast á við sjón-
armið um frelsi reykingamanna og
eignarrétt þeirra sem staðina
eiga.
Til að fara yfir þau sjónarmið,
sem hér takast á hefur Heimdallur
fengið þingmennina Birgi Ár-
mannsson Sjálfstæðisflokki og
Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur
Samfylkingu, en þau eru á önd-
verðum meiði um málið. Einnig
tekur þátt Kristinn Tómasson yf-
irlæknir Vinnueftirlits ríkisins,
sem fjalla mun um heilsufarslegan
þátt málsins.
Á eftir gefst tími til umræðna
og skoðanaskipta. Fundarstjóri
verður Davíð Ólafur Ingimarsson,
hagfræðingur og stjórnarmaður í
Heimdalli.
Ræða bann
við reyking-
um á veit-
ingastöðum