Morgunblaðið - 22.02.2006, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 43
HINIR ástsælu Spaðar halda sitt
árlega ball í Leikhúskjallaranum
næstkomandi laugardagskvöld en
forsala hefst í dag.
Spaðar – sem skilgreina nú
Norðurlöndin sem heimamarkað
sinn – hafa sent frá sér allmargar
hljóðsnældur og geisladiska síð-
ustu rúma tvo áratugi. Í upphafi
sóttu þeir talsverð áhrif til Balk-
anskagans og sígauna- og gyð-
ingatónlistar en með aldrinum
hafa þeir færst nær þeirri tónlist
sem þeir ólust upp við; bítlagargi
og blómapoppi, kántrí, blús og
„hliðar saman hliðar“. Niður-
staðan er hrærigrautur af bítla-
músík, blús og gömludansalögum
við rammíslenska sveitasælu-
texta.
Spaðar munu að sjálfsögðu
spila allmörg ný lög á dans-
leiknum. Gamlir vinir og gestir
geta þó gengið að vísum föstum
liðum á borð við „Grasið er
grænt“, „Obb bobb bobb“,
„Salóme“, „Æ, skjóstu og beislaðu
klárinn“ og „Af litlum neista“.
Meðlimir Spaða eru Guð-
mundur Andri Thorsson söngur
og gítar, dr. Gunnar Helgi Krist-
insson harmónika, Aðalgeir Ara-
son söngur og mandólín, Guð-
mundur Pálsson fiðla, Magnús
Haraldsson söngur og gítar, Guð-
mundur Ingólfsson kontrabassi
og söngur og Sigurður G. Val-
geirsson trommur og einstaka
hróp.
Tónlist | Spaðar halda sitt árlega ball í Leikhúskjallaranum um helgina
Bítlagarg og blómapopp
Spaðar slá víst öðrum hljómsveitum við þegar það kemur að
greindarvísitölu.
Spaðar í Leikhúskjallaranum
laugardagskvöld. Húsið verður
opnað kl. 23 og stuttu síðar hefja
Spaðar leikinn. Miðaverð er
1.000 krónur. Forsala hefst í dag í
verslun 12 tóna við Skólavörðu-
stíg.
Í LIÐINNI viku héldu fjórar ís-
lenskar sveitir tvenna tónleika í
Berlín undir hinu skondna yfirheiti
Die Isländische Klugscheißer, en
Klugscheißer þýðir hrokagikkur eða
„besserwisser“. Hljómsveitirnar
voru Skakkamanage, Borko, Hud-
son Wayne og Seabear og dvöldu
liðsmenn og fylgdarlið í borginni í
rúmlega viku, en fyrri tónleikarnir
fóru fram þriðjudaginn 14. febrúar
en þeir síðari á laugardaginn var,
báðir í hinu vinsæla og listvæna
hverfi Prenzlauer Berg. Ætla má að
á bilinu tuttugu til þrjátíu senjórar
og senjórítur hafi verið í þessari
ferð. Var kúldrast á gólfum og dýn-
um hjá vinum og vandamönnum, en
íslenskir listamenn eru eins og kunn-
ugt er nokkuð fjölmennir í borginni
nú um stundir.
Meðlimir nefndra sveita tengjast
allir lauslega í gegnum hina svoköll-
uðu krúttkynslóð og voru þeir Örvar
og Gunnar úr múm m.a. í för, Gunn-
ar sá m.a. um hljóð á tónleikunum og
Örvar hafði milligöngu um að skipu-
leggja tónleikana en hann bjó um
nokkurra ára skeið í borginni.
Fyrri tónleikarnir fóru fram á
stað sem kallast NBI (Neue Berliner
Initiative) og er í hinni svonefndu
Menningarbruggverksmiðju eða
Kulturbrauerei. Lítill og flottur
staður og var lengi vel helsta bæki-
stöð framsækinnar kjöltutölvu-
tónlistar hér í borg. Tónleikarnir
voru vel sóttir, sérstaklega af Íslend-
ingum, sem ákváðu greinilega að
stökkva á þetta fína tækifæri til að
hitta langt að komna landa – og njóta
frambærilegrar tónlistar um leið.
Síðari tónleikarnir fóru svo fram á
Zentrale Randlage, hreint of-
ursvalur en um leið notalegur stað-
ur, en innviðirnir minna mann helst
á lag með Belle and Sebastian. Ekki
langt frá er hinn frægi 8mm, en
skemmtanaþyrstir Íslendingar hafa
hertekið þann stað og gert að sínum.
Báðir tónleikarnir heppnuðust vel,
rólyndislegt jaðarkántrí Hudson
Wayne fór vel í gesti og sömuleiðis
melódískt nýbylgjurokk
Skakkamanage. Þá tókst Seabear
sömuleiðis vel að dýrka upp stemn-
ingu, en ekki er langt síðan að þetta
einherjaverkefni Sindra Más Sigfús-
sonar kom fram. Honum til aðstoðar
var m.a. trymbillinn knái Númi
Tómasson, sem er vel þekktur fyrir
leik sinn í hljómsveitunum Mósaík
og Andhéra. Þess má geta að
Seabear spilaði og með hljómsveit-
inni The Books sunnudaginn 12.
febrúar í hinu volduga leikhúsi
Volksbühne. Númi kom líka við sögu
hjá Borko ásamt Örvari og töluvert
var um meðlimaflútt á milli sveit-
anna. Borko flutti tilraunakennt raf-
popp og komst vel frá sínu.
Blaðamaður leit inn á hljóðprufu
fyrir síðari tónleikana og tók Borko
og þau Svavar Pétur og Berglind
Häsler úr Skakkamanage tali.
„Upprunalega hugðist ég heim-
sækja strákanna í Kimono,“ upplýsir
Borko en sveitin sú var búsett í
borginni síðasta haust. „Okkur datt
þá í hug að setja upp tónleika um leið
og svo vatt þetta bara hægt og bít-
andi upp á sig. Það var því ákveðið
að taka nettan pakkatúr á þetta.“
Dálæti Þjóðverja á Íslendingum
er vel þekkt, og virðist vera eitthvað
meira en hrein míta.
„Það er dálítið einkennilegt að
vera Íslendingur hérna,“ segir Svav-
ar. „Ónefndur aðili úr þessum stóra
hópi kom t.a.m. að lokaðri barhurð
einhvern tíma og hrópaði þá, „Ich
bin Isländisch!“ Var honum þá óðar
hleypt inn. Þá sagði hann, „Ich habe
keine Geld!“ og þá fékk hann að
drekka frítt!“
Ýmislegt var gert sér til dundurs
þessa viku auk tónlistarstúss og
brugðu nokkrir sér t.d. á knatt-
spyrnuleik á fimmtudaginn.
Öll segja þau að þeim hafi verið
tekið með kostum og kynjum. Tón-
leikaskipuleggjendur séu óðir og
uppvægir í meira samstarf með Ís-
lendingum og er meira en líklegt að
sá góðvilji verði nýttur.
Tónlist | Hrokagikkir frá Íslandi heimsækja Þýskaland
Íslensk nýbylgja í Berlín
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen í Berlín
arnart@mbl.is
Morgunblaðið/Arnar Eggert Thoroddsen
Þráinn úr Hudson Wayne og Örvar múmliði stilla sér upp.
Sími - 551 9000
F
U
N GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
SEXÍ, STÓR-
HÆTTULEG OG
ÓSTÖÐVANDI Epískt meistarverk frá Ang Lee
„... ástarsaga eins og
þær gerast bestar -
hreinskilin, margbrotin
og tilfinningarík...“
L.I.B. - Topp5.is
L.I.B.Topp5.is
Ó.Ö.H. DV.
S.V. Mbl.
M YKKUR HENTAR 400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
TRANSAMERICA kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 12 ÁRA
MRS HENDERSSON kl. 5.45, 8 og 10.15
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
SVAKALEGUR
SPENNUTRYLLIR
ÞEGAR RÖÐIN KEMUR AÐ ÞÉR
ÞÁ FLÝRÐU EKKI DAUÐANN
Sýnd kl. 6 Ísl. tal - B.i. 10 ára
DÖJ – kvikmyndir.com
VJV Topp5.is
Sýnd kl. 10
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Kvikmyndir.com
Rolling Stone
Topp5.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
EIN ATHYGLIS-
VERÐASTA
MYND ÁRSINS
ÞEIR BUÐU STJÓRNVÖLDUM BYRGINN,
AÐEINS MEÐ SANNLEIKANN AÐ VOPNI
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNAÞ.á.m. besta mynd, besti leikstjóri og besti leikari
Margverðlaunuð gæðamynd frá leikstjóranum George Clooney
sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda um allan heim.
F
U
N
Sýnd kl. 8
Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
VJV Topp5.is
DÖJ – kvikmyndir.com
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!
Ó.Ö.H / DV
„Afskaplega falleg
mynd, skemmtileg og hlý
sem kemur manni til þess
að hugsa. Mæli með að
fólk kíki á þessa”
Frábær persónusköpun og svartur, en samt mannlegur húmor.
G.E. Fréttavaktin e.h. NFS
Topp5.is
M.M.J. / kvikmyndir.com
A.B. Blaðið
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
Nr. 1 í Ameríku
Extra sterkt
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
Góð heilsa - Gulli betri
Lið-a-mót
FRÁ