Morgunblaðið - 22.02.2006, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 45
mynd eftir
steven spielberg
S.V. Mbl.
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
CASANOVA kl. 3:45-5:45 - 8 -10:20
CASANOVA VIP kl. 5:45 - 8 - 10:20
NORTH COUNTRY kl. 5.15 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
BAMBI 2 m/Ísl. tali kl. 4 - 6
DERAILED kl. 10:20 B.i. 16 ára
MUNICH kl. 9:15 B.i. 16 ára
PRIDE AND PREJUDICE kl. 8
OLIVER TWIST kl. 4 - 6:30 B.i. 12 ára
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5:30
KING KONG kl. 8.15 B.i. 12 ára
Litli Kjúllin m/Ísl. tali kl. 3:45
UNDERWORLD 2 kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 16 ára
DERAILED kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 ára
BAMBI 2m/Ísl. tali kl. 6
MUNICH kl. 8:15 B.i. 16 ára
SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
MUNICH kl. 8 B.i. 16 ára
CHEAPER BY
THE DOZEN 2 kl. 8
THE FOG kl. 10 B.i. 16 ára
CASANOVA kl. 8 - 10
BAMBI 2 kl. 6
DERAILED kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
MARCH OF THE PENGUINS kl. 6
H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
Frábær og
kraftmikil mynd
S.K. DV
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
m.a.: Charlize Theron sem besta leikkona í aðalhlutverki og Frances McDormand
sem besta leikkona í aukahlutverki. Frá leikstjóra Whale Rider.2
H.J. Mbl.
V.J.V.Topp5.is
S.K. DV
HANN VANN HUG OG HJÖRTU KVENNA
EN HÚN STAL HJARTANU HANS.
Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BANDA-
RÍKJUNUM!
SEXÍ, STÓRHÆTTULEG
OG ÓSTÖÐVANDI
H.J. Mbl.
L.I.N. topp5.is
Sýnd með íslensku tali.
Hér er á ferðinni frábært
framhald einnar ástsælustu
teiknimynd allra tíma.
M.M. J. Kvikmyndir.com
FREISTINGAR GETA REYNST DÝRKEYPTAR
S.V. Mbl.
Clive
Owen
Jennifer
Aniston
Vincent
Cassel
F R U M S Ý N I N GF R U M S Ý N I N G
Atorka Group hf., 600390-2289, Laugavegi 182, 105 Reykjavík,
er í dag eigandi a› 96,72% heildarhlutafjár í Jar›borunum hf.,
kt. 590286-1419, Skipholti 50d, 105 Reykjavík. A› teknu tilliti til
eigin hluta Jar›borana hf. er eignarhlutur Atorku Group 98,16%
af virku hlutafé Jar›borana hf. Í krafti flessarar hlutfjáreignar
hafa Atorka Group hf. og stjórn Jar›borana hf. ákve›i› a› a›rir
hluthafar í Jar›borunum hf. skuli sæta innlausn á hlutum sínum,
sbr. heimild í 47. gr. laga nr. 33/2003 um ver›bréfavi›skipti.
Atorka Group hf. mun leysa til sín umrædda hluti á genginu 25,0
gegn afhendingu hluta í Atorku Group hf. á genginu 6,0. Innlausnar-
ver› og grei›slukjör eru flví flau sömu og bo›i› var í fyrrnefndu
yfirtökutilbo›i Atorku Group hf. í hluti í Jar›borunum hf., sbr. tilbo›s-
yfirlit dags. 9. desember 2005. Vakin skal athygli á a› samkvæmt
ákvæ›um lokamálsli›ar 1. mgr. 47. gr. laga nr. 33/2003 um
ver›bréfavi›skipti er um a› ræ›a sanngjarnt innlausnarver›.
Hluthöfum í Jar›borunum hf. er hér me› tilkynnt um framangreinda
ákvör›un og fleir hvattir til a› framselja hluti sína í félaginu til Atorku
Group hf. innan fjögurra vikna e›a í sí›asta lagi flann 22. mars 2006.
Fer uppgjör fram á tímabilinu 23.-24. mars 2006. Mun Atorka Group
hf. hafa milligöngu um innlausnina.
Athygli er vakin á flví a› ver›i hluthafar ekki vi› áskorun um framsal
ver›a fleir hlutir í Atorku Group hf. sem hluthafar fá í skiptum fyrir
hluti í sína í Jar›borunum hf. lag›ir inn á VS-reikning á svæ›i Ver›-
bréfaskráningar Íslands hf., á kennitölu hluthafa. Telst Atorka Group
hf. frá og me› fleim tíma eigandi hlutafjár vi›komandi í Jar›borunum
hf., sbr. 2. mgr. 47. gr. laga nr. 33/2003 um ver›bréfavi›skipti.
Tilkynning, auk framsalsey›ubla›s, mun á næstu dögum ver›a send
hluthöfum í Jar›borunum hf. bréflega á fla› heimilisfang sem fram
kemur í hlutaskrá félagsins. Komi ekkert, rangt e›a óljóst heimilisfang
fram í hlutaskrá félagsins ver›ur vi›komandi hluthafa ekki sent bréf
en hluthöfum er bent á a› nálgast gögn um innlausnina á skrifstofu
Atorku Group hf. a› Laugavegi 182, Reykjavík.
Hluthöfum er a› ö›ru leyti bent á a› snúa sér til Atorku Group hf. í
síma 540 6200 vegna innlausnarinnar.
TILKYNNING UM INNLAUSN ATORKU GROUP HF.
Á HLUTUM Í JAR‹BORUNUM HF.
F.h. Atorku Group hf. og Jar›borana hf.
LOGOS lögmannsfljónusta
Tuttugu og fimm ár eru liðin fráþví að hljómsveitin Depeche
Mode gaf út sína fyrstu breiðskífu
en síðan hefur hljómsveitin gefið
út ellefu stúdíóplötur. Þessa stund-
ina er Depeche Mode á tónleika-
ferðalagi um Evrópu til að kynna
nýju plötuna og hefur tónleikaförin
hlotið nafnið Touring the Angel.
Meðal annars mun hljómsveitin
halda tónleika á Parken í Kaup-
mannahöfn 25. febrúar nk. og er
búist við að fjöldi Íslendinga leggi
leið sína á þá tónleika. Til þess að
hita upp fyrir tónleikana verður
haldið Depeche Mode kvöld í
Bertelsstofu á Thorvaldsenbar í
kvöld frá kl. 21 til 01. Sýnt verður
frá fyrri tónleikum sveitarinnar á
risaskjá og þarna gefst aðdáend-
um sveitarinnar tækifæri á að hitt-
ast og spjalla. Tilboð verða á barn-
um og frítt inn.
Skipuleggjendur kvöldsins eru
útvarpsmennirnir Hallgrímur
Kristinsson og Bragi Guðmunds-
son en báðir hafa þeir fylgt sveit-
inni til fjölda ára, eða allt frá árinu
1983.
Fólk folk@mbl.is
Kvikmyndin Good Night, andGood Luck, sem nýlega varfrumsýnd hér á landi, hefur
fengið afbragðs viðtökur gagnrýn-
enda og almennings, enda er um að
ræða einstaklega vandaða og áhuga-
verða mynd í leikstjórn leikarans
góðkunna George Clooney. Segir
hún frá því þegar tveir fréttamenn í
Bandaríkjunum, í upphafi 6. áratug-
ar síðustu aldar, tóku það upp hjá
sjálfum sér að ráðast gegn valda-
miklum, en jafnframt veru-
leikafirrtum öldungadeildarþing-
manni, og sigra. Sigurinn var hins
vegar langt frá því að vera auðsótt-
ur og í myndinni er sýnt fram á
hvernig litlu munaði að peningar
kæmu í veg fyrir að fréttamennirnir
gætu fjallað um málið.
Þeir Edward Murrow og FredFriendly ákváðu að fjalla með
gagnrýnum hætti um öldungadeild-
arþingmanninn Joseph McCarthy í
fréttaskýringarþætti sínum See It
Now, sem sýndur var á CBS sjón-
varpsstöðinni við töluverðar vin-
sældir upp úr miðri síðustu öld.
McCarthy þessi stundaði vægð-
arlausar nornaveiðar gegn fólki sem
hann taldi vera kommúnista, en virt-
ist oftar en ekki algjörlega saklaust
af þeim ásökunum. Þeir Murrow og
Friendly ákváðu að fjalla um málið
en komust þó fljótlega að því að það
yrði þrautin þyngri.
Í þá daga lögðu fréttamenn þaðekki í vana sinn að hjóla í valda-
mikinn öldungadeildarþingmann
með þeim hætti sem Murrow og
Friendly vildu gera. Yfirmenn CBS
sjónvarpsstöðvarinnar voru fljótir
að átta sig á því að slík gagnrýni
gæti boðið hættunni heim því að
stöðin þurfti að reiða sig á fjármagn
frá auglýsendum, sem vildu auðvitað
ekki styggja valdamikinn mann á
borð við McCarthy. Það vill svo
skemmtilega til að einn af þessum
auglýsendum var álrisinn Alcoa,
sem er okkur Íslendingum vel kunn-
ur. Fyrirtækið var helsti styrktarað-
ili See It Now, og á undan hverjum
þætti var sýnd auglýsing um ágæti
álsins sem það framleiddi. Alcoa
hafði hins vegar mikilla hagsmuna
að gæta og það fór svo að lokum að
fyrirtækið hætti að styrkja þáttinn
eftir því sem gagnrýni á hendur
McCarthy jókst. Á tímabili var því
allt útlit fyrir að Murrow og
Friendly yrðu að hætta við að fjalla
um málið, þrátt fyrir að hafa meðal
annars boðist til þess að borga upp
tapið úr eigin vasa. Sem betur fer
fór það svo að forstjóri CBS, William
Paley, áttaði sig á því að góð umfjöll-
un um málið væri mikilvægari en
nokkrir styrktaraðilar, og hann
veitti þeim Murrow og Friendly því
frelsi til þess að fjalla um málið um-
búðalaust. Sú ákvörðun varð þess
valdandi að upp komust innistæðu-
lausar ásakanir öldungadeildarþing-
mannsins sem þurfti að lokum að
lúta í gras fyrir hinum framsæknu
fréttamönnum. Litlu mátti þó muna
að peningarnir kæmu í veg fyrir að
réttlætið næði fram að ganga.
Það er ekki laust við að eftir aðhafa séð Good Night, and Good
Luck velti maður því fyrir sér
hversu mikil áhrif peningar hafa á
fréttastofur og fréttaflutning, hér á
landi sem annars staðar.
Auðvitað væri best ef allar frétta-
stofur væru óháðar auglýsingum,
því það færði okkur skrefinu nær
hlutlausri fréttamennsku, þótt ólík-
legt sé að það muni nokkurn tímann
verða. Í dæminu sem nefnt var hér
að framan munaði litlu að pening-
arnir kæmu í veg fyrir að ákveðin
frétt færi í loftið, en hversu oft ætli
fjármagnið hafi í raun og veru borið
sigur úr býtum og komið í veg fyrir
að fjallað væri um ákveðin mál í
fréttum? Hversu oft ætli það hafi
gerst hér á landi? Og segir þessi
dæmisaga okkur ekki eitthvað um
mikilvægi þess að hafa ríkisrekna
fréttastofu sem er með öllu óháð
fjármagni frá auglýsendum? Svör
við þessum spurningum eru efni í
annan pistil, en kvikmyndin Good
Night, and Good Luck hefur alla-
vega vakið mann til umhugsunar um
þessi mál.
Að lokum skal bent á að það ervissulega kaldhæðnislegt að í
kvikmynd sem framleidd er í
Hollywood skuli koma fram gagn-
rýni á hendur þeim sem láta
stjórnast af peningum, sérstaklega í
ljósi þess að ekkert gerist í Drauma-
verksmiðjunni án þess að peninga
njóti við. George Clooney og félagar
pössuðu sig hins vegar á þessu því
Good Night, and Good Luck kostaði
aðeins átta milljónir dollara í fram-
leiðslu, sem nemur um 513 millj-
ónum íslenskra króna, en slíkt þykir
ekki mikið þegar kemur að fram-
leiðslu kvikmynda í Hollywood. Sem
dæmi má nefna aðra kvikmynd sem
nú er sýnd í kvikmyndahúsum lands-
ins, Munich eftir Steven Spielberg,
sem kostaði 75 milljónir dollara í
framleiðslu, næstum því 10 sinnum
meira en Good Night, and Good
Luck.
Áhrifamáttur peninganna
’Í dæminu sem nefnt varhér að framan munaði
litlu að peningarnir
kæmu í veg fyrir að
ákveðin frétt færi í loftið,
en hversu oft ætli fjár-
magnið hafi í raun og
veru borið sigur úr být-
um og komið í veg fyrir
að fjallað væri um ákveð-
in mál í fréttum?‘
George Clooney og David Strathairn í hlutverki fréttamannanna Fred
Friendly og Edward R. Murrow.
jbk@mbl.is
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson