Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 1
Glæpir og
góðverk í Iðnó
Snúður og Snælda standa í
stórræðum | Daglegt líf
Tískuvikan
í Mílanó
Glansinn, glamúrinn og kyn-
þokkinn allsráðandi | Menning
Íþróttir í dag
Fyrsti leikurinn undir stjórn Eyjólfs
Dwight Yorke segir Íslendinga sterka
Lukkan gekk til liðs við Ogilvy
STOFNAÐ 1913 58. TBL. 94. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME) hefur komist
að þeirri niðurstöðu að stofnast hafi óbeinn virkur
eignarhlutur tiltekinna aðila í Sparisjóði Hafnar-
fjarðar á seinasta ári (SPH). FME tilkynnti stjórn
sparisjóðsins þetta 20. febrúar sl. og jafnframt að
eftirlitið hefði tekið ákvörðun um að tilteknir
stofnfjáreigendur megi ekki fara sameiginlega
með meira en 5% atkvæðisréttar í sparisjóðnum
að því er fram kemur í gögnum, sem Morgunblað-
ið hefur undir höndum.
Annars vegar er um að ræða fimm einstaklinga
sem ekki mega fara saman með meira en 5% í
sparisjóðnum og hins vegar tvö fyrirtæki sem sett
eru sömu mörk. „Líkur benda einnig til þess að
fleiri aðilar falli undir virkan eignarhlut í spari-
sjóðnum og atkvæðistakmörkun samfara því,“
segir í bréfinu.
Athugun á hæfi stjórnarmanna
Fór FME fram á það 20. febrúar að stjórn SPH
frestaði aðalfundi sem boðaður var 21. febrúar um
ótiltekinn tíma m.a. með vísan til þess að FME
hefði ákveðið að taka til athugunar hæfi tiltekinna
stjórnarmanna til þess að sitja í stjórn sparisjóðs-
ins. Aðalfundurinn var eftir sem áður haldinn og
var ný stjórn kjörin á þeim fundi.
Í bréfi FME til SPH kemur einnig fram að eft-
irlitið gerði þá kröfu í nóvember sl. að stjórn spari-
sjóðsins samþykkti engin frekari framsöl stofn-
fjárbréfa í sparisjóðnum þar til FME hefði lokið
athugun sinni á hvort myndast hefði virkur eign-
arhluti í sparisjóðnum. Þá kröfu hafi stjórn SPH
virt að vettugi.
Í bréfi FME til stjórnar sparisjóðsins segir
m.a.: „Þá hefur stjórn sparisjóðsins virt að vettugi
kröfu Fjármálaeftirlitsins um að samþykkja ekki
frekari framsöl í sparisjóðnum á meðan athugun
eftirlitsins stæði, sbr. bréf stjórnar sparisjóðsins
til Fjármálaeftirlitsins, dags. 10. febrúar sl. er
barst eftirlitinu 14. febrúar sl. Samþykkti stjórnin
framsöl á 49 stofnfjárbréfum auk þess sem gerð
var grein fyrir því að til stæði að samþykkja fram-
salsbeiðni vegna 4 stofnfjárbréfa. Samtals er um
53 stofnfjárbréf að ræða af 93 í sparisjóðnum. Eft-
irlitið hefur einnig til skoðunar hvort tilteknir að-
ilar sem samþykktir voru sem nýir stofnfjáreig-
endur á stjórnarfundi 10. febrúar sl. tengjast
myndun virks eignarhlutar í sparisjóðnum.“
Boðuðu ákvörðun um févíti
17. febrúar tilkynnti FME stjórn SPH fyrirhug-
aða ákvörðun eftirlitsins um að lagt verði févíti allt
að tveimur milljónum kr. á sparisjóðinn „þar sem
brotið hafi verið gegn áðurnefndri ákvörðun Fjár-
málaeftirlitsins“ um að engin frekari framsöl í
sparisjóðum yrðu samþykkt. Var stjórninni gefinn
frestur til kl. 15 í gær til að koma sjónarmiðum
sínum á framfæri vegna þessa.
FME hefur allt frá sl. sumri haft viðskipti með
stofnfé í SPH til athugunar og hvort virkur eign-
arhlutur hafi myndast í sjóðnum í andstöðu við
ákvæði laga. Hóf efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra rannsókn á viðskiptunum í byrjun
þessa árs.
FME segir hóp stofnfjáreigenda hafa náð óbeinum virkum eignarhlut í SPH
Bannað að fara saman með
meira en 5% atkvæðisréttar
Stjórn SPH sökuð um að hafa virt að vettugi bann FME við framsali stofnbréfa
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Brussel. AP, AFP. | Utanríkisráðherr-
ar landa Evrópusambandsins (ESB)
samþykktu í gær að bjarga heima-
stjórn Palestínumanna frá fjárhags-
legu hruni með því að bjóða henni að-
stoð að andvirði 120 milljóna evra,
sem samsvarar 9,4 milljörðum
króna.
Framkvæmdastjórn ESB sagði að
aðstoðin ætti að nægja palestínsku
heimastjórninni fyrir „brýnustu
nauðsynjum“ næstu tvo mánuði.
Evrópusambandið skuldbatt sig ekki
til að veita Palestínumönnum frekari
aðstoð eftir að Hamas myndar nýja
heimastjórn. Hreyfingin sigraði í
þingkosningum Palestínumanna 25.
janúar en Evrópusambandið lítur á
hana sem hryðjuverkahreyfingu.
Eftir kosningarnar ákvað Ísr-
aelsstjórn að halda eftir skatt- og
tolltekjum sem Ísraelar innheimta
fyrir hönd palestínsku heimastjórn-
arinnar, en þær nema um 50 millj-
ónum dollara, 3,2 milljörðum króna,
á mánuði.
Óttast fjárhagslegt hrun
Philippe Douste-Blazy, utanríkis-
ráðherra Frakklands, sagði að fjár-
hagsaðstoðin, sem Evrópusamband-
ið samþykkti í gær, væri nauðsynleg
til að afstýra því að palestínska
heimastjórnin lamaðist vegna „efna-
hagslegrar ringulreiðar“.
Áður hafði James Wolfensohn,
sendimaður Kvartettsins svokallaða,
varað við því að palestínska heima-
stjórnin stæði frammi fyrir fjárhags-
legu hruni innan tveggja vikna yrði
henni ekki komið til hjálpar.
ESB aðstoð-
ar stjórn
Palestínu
ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir, staðgengill utan-
ríkisráðherra í opinberri heimsókn til Indlands, átti
annasaman dag í gær. Hún hitti meðal annars forseta
Indlands, vísinda- og rannsóknarmálaráðherra og við-
skiptaráðherra landsins.
Þá flutti hún ávarp á viðskiptaráðstefnu í Nýju-Delí
og hvatti til þess að viðskipti á milli ríkjanna tveggja
yrðu aukin. Einnig heimsótti Þorgerður Katrín bál-
fararstað Mahatma Gandhis, þar sem hún og Sturla
Sigurjónsson, sendiherra Íslands á Indlandi, lögðu
blómsveig á minnismerki.
Þorgerður Katrín kveðst viss um að heimsókn sem
þessi skili árangri og lætur vel af landinu.
„Þetta land er stórkostlegt og ótrúlega fjölbreytt,“
sagði hún í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Maður sér mannlífið í sinni fjölbreytilegustu mynd.“
Þorgerður Katrín átti fund með dr. A.P.J. Abdul Kalam, forseta Indlands, í gær en hann heimsótti Ísland í fyrra.
Annasamur dagur á Indlandi
Meðbyr með | 4
SAMKVÆMT nýrri norskri rann-
sókn virðast reykingar geta leitt til
þunglyndis. Er það ráðið af því, að
sjúkdómurinn leggst oftar á þá, sem
reykja, en þá, sem láta það vera, að
sögn fréttavefjar danska dagblaðs-
ins Berlingske Tidende í gær.
Í rannsókninni voru kannaðir
hagir 2.014 manna í Ósló og í Lófót
og í ljós kom, að stórreykingamenn
voru fjórum sinnum líklegri til að
þjást af þunglyndi en þeir, sem ekki
reyktu.
„Aðrar ástæður ýmsar virðast
ekki geta skýrt þennan mikla mun
og því er það niðurstaðan, að reyk-
ingar geti ýtt undir þunglyndi,“
sagði Ole Klungsøyr, fræðimaður
við Óslóarháskóla, en hann stýrði
rannsókninni.
Að því er fram kemur á fréttavef
Berlingske Tidende verður rann-
sóknin birt í hinu virta bandaríska
vísindatímariti American Journal of
Epidemiology.
Valda
reykingar
þunglyndi?
DANSARI tekur hér þátt í keppni
sambaskóla á kjötkveðjuhátíðinni í
Rio de Janeiro í Brasilíu. Tugir þús-
unda manna fylgdust með árlegri
skrúðgöngukeppni skólanna við
dynjandi sambatakt á íþrótta-
leikvangi í borginni í gær og fyrra-
dag. Skólarnir undirbúa keppnina
mánuðum saman fyrir hátíðina og
þúsundir smiða, saumakvenna,
danshöfunda, lagahöfunda og dans-
ara taka þátt í undirbúningnum.
Um 700.000 ferðamenn, um 20%
þeirra útlendingar, fóru til Rio de
Janeiro til að taka þátt í kjöt-
kveðjuhátíðinni sem hefur verið
kölluð „stærsta grasrótarhátíð í
heiminum“.
Reuters
Sambaskólar
keppa á kjöt-
kveðjuhátíð