Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 49
Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.
V.J.V. Topp5.is
S.V. Mbl.
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI SAMBÍÓ AKUREYRI SAMBÍÓ KEFLAVÍK
Frábær og
kraftmikil mynd
H.J. Mbl.
S.K. DV
V.J.V. topp5.is
Töfrandi hnyttin og spennandi rómantísk
stórmynd frá leikstjóra Chocolat.
HANN VANN HUG OG HJÖRTU KVENNA
EN HÚN STAL HJARTANU HANS.
HRÍFANDI KVIKMYND
UM MANNLEGAR
TILFINNINGAR
OLIVER TWIST kl. 8
MUNICH kl. 8 B.i. 16 ára
BLÓÐBÖND kl. 6 - 8 - 10
CASANOVA kl. 8 - 10
BAMBI 2 kl. 6
BLÓÐBÖND KL. 6 - 8 - 10:10
BLÓÐBÖND VIP KL. 4 - 6 - 8 - 10.10
CASANOVA KL. 3:30 - 5.45 - 8 - 10:20
NORTH COUNTRY KL. 5.15 - 8 - 10:30 B.I. 12 ÁRA.
BAMBI 2 M/- ÍSL TAL. KL. 4
DERAILED KL. 10:20 B.I. 16 ÁRA.
MUNICH KL. 9 B.I. 16 ÁRA.
PRIDE AND PREJUDICE KL. 8
OLIVER TWIST KL. 3.30 B.I. 12 ÁRA.
CHRONICLES OF NARNIA KL. 6
KING KONG KL. 4 B.I. 12 ÁRA.
BLÓÐBÖND KL. 6 - 8 - 10:10
UNDERWORLD 2 KL. 6 - 8:15 - 10:30 B.I. 16 ÁRA.
DERAILED KL. 8.15 - 10.30 B.I. 16 ÁRA.
BAMBI 2 M/- ÍSL TAL. KL. 6
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BANDA-
RÍKJUNUM!
SEXÍ, STÓRHÆTTULEG OG ÓSTÖÐVANDI
mynd eftir
steven spielberg
TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Besta leikstjórn (Steven Spielberg), besta mynd, besta handrit,
besta tónlist og besta klipping.5
S.V. mbl
A.G. blaðið
V.J.V. topp5.is
S.V. mbl
A.G. blaðið
25.02.2006
1
2 8 8 6 2
1 8 5 8 2
2 5 12 29
28
22.02.2006
4 20 27 42 43 47
2629 35
Fegursta kona heims, UnnurBirna Vilhjálmsdóttir, hefur nú
aftur hafið dagbókarskrif á Fólksvef
mbl.is. Hér er að finna brot úr síð-
ustu færslu:
„Þetta var virkilega skemmtilegt
en það sem stendur upp úr var að fá
að vinna með og kynnast Dorrit.
Hún er algjör
gullmoli og svona
manneskju hittir
maður ekki oft á
lífsleiðinni.
Sama dag og
við kláruðum tök-
una þurfti ég að
fljúga til London.
Og fékk sama og
engan fyrirvara
eða tíma til að
pakka eða undirbúa mig og var því
ábyggilega skrautlegt að fylgjast
með mér í stress-kasti heima að
fleygja hlutum ofan í tösku og pirra
mig yfir hinu og þessu. ;)
Ég var í London í nokkra daga,
fór á fundi og hitti fólk sem ég er að
fara að vinna með næsta árið og í
nokkrar myndatökur, viðtöl og
spjallþætti í sjónvarpi og útvarpi.
Allt svona frekar óraunverulegt en
ég bara spilaði með og mér var ekið
hvert sem var af einkabílstjóra á
voða fínum bíl.“
Fólk folk@mbl.is
FJÖLSKYLDUMYNDIN Nanny
McPhee skaut öðrum kvikmyndum
ref fyrir rass um síðustu helgi en
tæplega 2.400 gestir sáu þessa
mynd sem státar af Emmu
Thompson í titilhlutverki. Myndin
fjallar um óstýriláta krakka sem
engin barnfóstra virðist ráða við.
Það breytist þó skjótt þegar
Nanny McPhee kemur til skjal-
anna og tekur til sinna óhefð-
bundnu og töfrandi ráða.
Í öðru sæti er að finna glænýja
íslenska kvikmynd, Blóðbönd, en
myndin er fyrsta kvikmynd í fullri
lengd eftir Árna Ólaf Ásgeirsson,
ungan leikstjóra. Í aðalhlutverkum
eru margir af okkar efnilegustu
leikurum og þykja þeir allir sýna
stórleik í myndinni. Í þriðja sæti
yfir mest sóttu myndir síðustu
helgar er Walk the Line sem enn
laðar að sér bíógesti en nú hafa
rúmlega 15 þúsund manns séð
þessa mynd.
Toppmynd síðustu helgar er svo
að finna í fjórða sæti og Bambi 2
er í því fimmta. Það eru svo tvær
myndir sem frumsýndar voru um
síðustu helgi sem sitja í sætum
númer sex og sjö.
Fyrst er það Constant Gardener
með Ralph Fiennes og Rachel
Weizs í aðalhlutverkum en leik-
stjóri myndarinnar er sá hinn
sami og færði okkur stórvirkið
City of God. Kvikmyndin er til-
nefnd til fernra Óskarsverðlauna.
Það er svo kvikmyndin Capote
sem situr í sætinu þar fyrir ofan
en eins og flestir vita fjallar hún
um þann tíma í lífi bandaríska rit-
höfundarins Trumans Capotes
þegar hann vann að bók sinni In
Cold Blood.
Kvikmyndir | Ný kvikmynd á toppnum
Barnfóstran með yfirhöndina
Emma Thompson túlkar barnfóstruna töfrandi Nanny McPhee.
! "
#
$" % &
'(
(
)(
*(
+(
,(
-(
.(
/(
'0(
2 S%
!
GAMANMYNDIN Tyler Perry’s Ma-
dea’s Family Reunion fór beint í efsta
sætið á aðsóknarlista bandarískra kvik-
myndahúsa um helgina. Það má með
sanni segja að Tyler Perry eigi stóran
hluta í myndinni, en hann leikstýrir
henni og framleiðir, skrifar handritið og
leikur aðalhlutverkið. Myndin fjallar um
hina mögnuðu Madeu sem kom fyrst
fram í kvikmyndinni Diary of a Mad
Black Woman, en í þessari mynd lendir
Madea í hinum ýmsu ævintýrum ásamt
fjölskyldu sinni.
Tvær aðrar nýjar myndir voru á með-
al tíu efstu í Bandaríkjunum um
helgina. Ný inn í áttunda sætið kom
teiknimyndin Doogal sem fjallar um æv-
intýri nokkurra vina sem leggja upp í
langferð til þess að koma í veg fyrir að
ill öfl tortími heiminum. Fjölmargir
frægir leikarar ljá persónunum raddir
sínar og ber þar hæst að nefna Chevy
Chase, Whoopi Goldberg, William H.
Macy og Kylie Minogue. Ný í níunda
sæti er spennumyndin Running Scared
sem fjallar um skipulagða glæpastarf-
semi og skartar þeim Paul Walker og
Chazz Palminteri í aðalhlutverkum.
Kvikmyndir | Vinsælustu myndirnar vestanhafs
Tyler Perry á toppnum
Reuters
Aðalleikararnir í Madea’s Family Reunion, Tyler Perry, Blair
Underwood og Boris Kodjoe, koma til frumsýningar myndarinnar í
Hollywood 22. febrúar.
TOPP TÍU:
Madea’s Family Reunion
Eight Below
The Pink Panther
Date Movie
Curious George
Firewall
Final Destination 3
Doogal
Running Scared
Freedomland
Söngkonan og eiginkona knatt-spyrnumannsins Davids Beck-
hams, Victoria Beckham, segir líf sitt
minna á sjónvarpsþáttinn Að-
þrengdar eiginkonur. Hún líkir sér
við Lynette Scavo úr þáttunum, sem
hafði varla undan í fyrstu þáttaröð-
inni við að hugsa um börnin sín fjögur
og sinna heimilisverkum.
Segir Victoria líf sitt laust við glys
þrátt fyrir auðlegð og frægð. Victoria,
sem á þrjá syni, Brooklyn, Romeo og
Cruz, segir í viðtali við breska dag-
blaðið Sunday Mirror að hún sé allan
daginn með drengjunum og það sé
full vinna, ásamt því að matbúa og
þrífa.
Hún blæs á sögusagnir um að hún
sé að fara að gefa út hljómplötu. Seg-
ir hún að þær verði ekki fleiri nema
þá með Kryddpíunum. Hún sakni
stelpnanna úr hljómsveitinni og
þeirra hluta sem þær gerðu saman.
„Staðreyndin er sú að ég er að eld-
ast. Ég er 31 árs og börnin njóta for-
gangs hjá mér,“ að því er fram kom í
viðtalinu.
Fólk folk@mbl.is