Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 13 FRÉTTIR ÚR VERINU NÍTJÁN af helstu skipstjórum loðnuflotans hafa sent frá sér yfir- lýsingu þar sem lýst er fullum stuðn- ingi við það framtak Hafrannsókna- stofnunar og Hampiðjunnar að rannsaka atferli loðnunnar og hvernig hún bregst við þegar notuð er flotvarpa við veiðar á loðnu. Skipstjórarnir rifja upp umræður sem fram hafa farið að undanförnu um notkun flotvörpu við loðnuveiðar og hugsanleg neikvæð áhrif hennar á atferli loðnunnar. „Það er því fagn- aðarefni að nú sé verið að rannsaka með nýjustu neðansjávarmyndtækni um borð í Árna Friðrikssyni hvað sé raunverulega að gerast við veiðar á loðnu með flotvörpu. Við bindum því miklar vonir við að rannsóknirnar leiði til áframhaldandi þróunar á skilvirkara veiðarfæri en áður og að sátt náist um notkun þess við loðnu- veiðar,“ segir í yfirlýsingunni. Skipstjórarnir sem skrifa undir yfirlýsinguna eru: Arngrímur Brynjólfsson á Vilhelm Þorsteins- syni EA, Bjarni Bjarnason á Súlunni EA, Gísli Runólfsson á Bjarna Ólafs- syni AK, Guðjón Jóhannsson á Há- koni EA, Guðlaugur Jónsson á Ing- unni AK, Guðmundur Huginn Guðmundsson á Hugin VE, Guð- mundur Þ. Jónsson á Baldvin Þor- steinssyni EA, Halldór Jónasson á Jónu Eðvalds SF, Hörður Guð- mundsson á Þorsteini ÞH, Jón Ey- fjörð á Sighvati Bjarnasyni VE, Lár- us Grímsson á Sunnubergi NK, Maron Björnsson á Guðmundi Ólafi ÓF, Ómar Sigurðsson á Guðrúnu Þorkelsdóttur SU, Sigurður Bjarna- son á Björgu Jónsdóttur ÞH, Sig- urjón Valdimarsson á Beiti NK, Sturla Einarsson á Guðmundi VE, Sturla Þórðarson á Berki NK, Þor- steinn Kristjánsson á Aðalsteini Jónssyni SU og Þórður Magnússon á Engey RE. Hvetja til rannsókna á loðnuveiðum með flotvörpu Morgunblaðið/Kristján VEL tókst til á hinum árlega Skrúfu- degi Fjöltækniskóla Íslands sem haldinn var síðastliðinn laugardag. Skrúfudagurinn er kynningardagur skólans og var haldinn í 44. skipti. Starfsvika skólans hefst á Skrúfu- daginn og þá er nemendum gefinn kostur á að heimsækja fyrirtæki og stofnanir sem tengjast námi eða starfi. Á laugardaginn var fólki boðið í heimsókn til að kynna sér aðstöðu skólans og fyrirtæki kynntu starf- semi sína. Morgunblaðið/RAX Dagur tileinkaður skrúfunni AF þeim 27 ráðherrum Sjálfstæð- isflokksins sem setið hafa í rík- isstjórn frá árinu 1944 til 2005, hafa 19 þeirra setið í stjórnum ungliðahreyfinga flokksins, eða um 70,4%. Þetta kemur fram í BA-ritgerð Jóhanns Bjarna Kol- beinssonar, sem útskrifaðist frá stjórnmálafræðiskor Háskóla Ís- lands á laugardaginn, en í ritgerð- inni er gerð úttekt á öllum þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins á árunum 1944–2005 og þátttöku þeirra í ungliðastarfi flokksins. Jóhann Bjarni segir ljóst að tengsl sem þróast frá ungliðaár- unum geti haft mikla þýðingu fyr- ir ráðningarnar. Virk þátttaka skilar árangri Í rannsókninni er leitast eftir því að kanna tengsl milli stjórn- arsetu í ungliðahreyfingum Sjálf- stæðisflokksins og setu á þingi fyrir flokkinn á árunum 1944–2005 en á þeim tíma hafa 96 þingmenn setið á þingi fyrir flokkinn. Jó- hann Bjarni segir að hann hafi valið að skoða flokkinn vegna stærðar hans í íslenskum stjórn- málum, en á þessu 61 ári hefur flokkurinn verið í ríkisstjórn í tæp 50 ár. Því hafi það verið áhuga- vert, og ekki síður mikilvægt, að skoða hvernig þessi valdamesti stjórnmálaflokkur landsins er byggður upp og skipulagður. Í rannsókninni kemur fram að af þessum 96 þingmönnum flokks- ins hafi um 40% setið í stjórnum ungliðahreyfinga flokksins, en Jó- hann Bjarni segir að þó að það sé nokkuð hátt hlutfall sé ekki hægt að draga neinar sterkar ályktanir um stjórnarsetuna. Hins vegar sé nokkur munur á meðalaldri þeirra þingmanna sem setið hafa í stjórnum ungliðahreyf- inga flokksins og þeirra sem ekki hafa gert það því þegar þeir setj- ast á þing munar tæpum átta ár- um. Meðalaldur þeirra sem setið hafa í stjórnum ungliðahreyfinga flokksins er 39,61 ár en 47,26 ár hjá þeim sem ekki hafa setið í stjórnum. Jóhann Bjarni segir að samkvæmt þessu mætti segja að þátttakan í ungliðastarfinu sé ákveðinn „stökkpallur“ á þing og ef til vill séu sumir að stytta sér leið á þing með þátttöku í ungliða- starfinu. Kynjaójafnvægi snemma á ferð Einnig kemur fram í ritgerðinni að ójafnvægi kynjanna komi snemma fram í starfi flokksins. Ef litið er á kynjahlutföll þingmanna frá árinu 1944 hafa 85,4% verið karlar á móti 14,6% kvenna. Hlut- föll kynjanna í stjórn SUS á sama tímabili eru sláandi líkar en þar hafa 85% stjórnarmanna verið karlar á móti 15% kvenna. Jóhann Bjarni segir að þegar litið sé á niðurstöður rannsókn- arinnar sjáist nokkuð sterkt sam- band á milli stjórnarsetu í ungliða- hreyfingum og setu á þingi fyrir flokkinn. Flokkurinn geti notað ungliðastarfið til að ala upp fram- tíðarstjórnmálamenn og leiðtoga auk þess sem starfið sé griða- staður fyrir þá sem hafa metnað og áhuga á því að ná langt í stjórnmálum. Þó geta gallar verið á þessari þátttöku og bendir Jó- hann Bjarni meðal annars á að hún geti leitt til pólitískrar blindni, þ.e. að hugsjónir og mál- efni manna geta vikið fyrir tryggð þeirra við flokkinn eða forystu hans. Jóhann Bjarni bendir enn- fremur á að þrátt fyrir galla hafi ungliðastarfið verið flokknum mjög mikilvægt og ljóst sé að það hafi styrkt hann mjög á þeim tíma sem hann hafi starfað. Rannsókn á þingmönnum Sjálfstæðisflokksins Um 70% ráðherra sátu í stjórnum ungliðahreyfinga Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jóhann Bjarni Kolbeinsson ÞEIR Emil Þór Andrésson og Gabríel Reynisson gáfu sér tíma til þess að ræða lífsins gagn og nauðsynjar þegar þeir hittust í vorveðri á Laufásvegi á dögunum. Þótt milt hafi verið í veðri var samt vissara fyrir drengina að hafa húfu á höfðinu. Hvað pilt- unum fór á milli skal ósagt látið, en af svip þeirra að dæma voru þeir ánægðir með lífið þennan febrúardag. Morgunblaðið/Eggert Rabbað í vorveðri JÓN Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sagði á Al- þingi í síðustu viku að verulega væri komið til móts við forráðamenn langveikra barna til að minnka út- gjöld þeirra. Kom þetta fram í svari hans við fyrirspurn Söndru Franks, varaþingmanns Samfylkingarinnar. Sandra spurði hvort ráðherra hygð- ist beita sér fyrir því að foreldrar eða forráðamenn langveikra barna, sem búsettir væru utan höfuðborg- arsvæðisins og þyrftu að fara með börn sín til læknismeðferðar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi (LSH) fengju greidda dagpeninga á meðan á meðferð stæði. Ráðherra svaraði því til að hann gerði sér grein fyrir því að staða forráða- manna langveikra barna gæti verið mjög erfið en að hann teldi að al- mannatryggingalög og lög um fé- lagslega aðstoð kæmu verulega til móts við þá. Ætíð mætti þó gera betur. Hann sagði m.a. að framfærendur langveikra barna gætu átt rétt á umönnunargreiðslum frá Trygg- ingastofnun ríkisins þegar sjúkdóm- ur barns hefði í för með sér tilfinn- anleg útgjöld, sérstaka umönnun eða gæslu. Ennfremur tæki stofn- unin þátt í ferðakostnaði aðstand- enda innanlands. Þá tæki hún þátt í óhjákvæmilegum dvalarkostnaði forráðamanna á hóteli, gistihúsi eða í orlofsbústað félagasamtaka vegna sjúkrahússinnlagnar barns enda væri að minnsta kosti tuttugu kíló- metra vegalengd milli heimilis og sjúkrahúss. „Samkvæmt framansögðu er verulega komið til móts við forráða- menn langveikra barna til að minnka útgjöld þeirra vegna barna sem lögð eru inn á Landspítalann.“ Ráðherra sagði ennfremur að Al- þingi hefði nú til meðferðar frum- varp félagsmálaráðherra um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna. Komið til móts við forráða- menn langveikra barna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.