Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 11
gengið nægilega vel. Það hefði Eyj- ólfur hins vegar ekki séð fyrr en eftir á, enda hefði hann ekki séð um dagleg fjármál félagsins. Það hefði frekar verið í verkahring Sig- urðar Ragnarssonar eða Gunnars Smára Egilssonar. Hinn 21. júní 2002 var Svavar handtekinn og færður til yfir- heyrslu. Þá fyrst sagði Eyjólfur að hann hefði fengið að vita að reikn- ingurinn var yfirdreginn. Í fram- haldinu hefði sér og öðrum eig- endum Fréttablaðsins ehf. verið það ljóst að reksturinn myndi ekki ganga upp, og var félagið selt skömmu síðar. Ekki kom til greiðslna vegna þessa, heldur yf- irtóku nýir eigendur skuldir. Eyjólfur var einnig ákærður fyr- ir að hafa sem stjórnarformaður Dagsprents hf. brotið gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda á tímabilinu frá mars 2001 fram í ágúst það sama ár, samtals að upp- hæð rúmar tvær milljónir króna. Dagsprent gaf út dagblaðið Dag á Akureyri, en félagið varð gjald- þrota á þessum tíma. Eyjólfur seg- ir að vegna þess hafi verið lítil starfsemi í félaginu, og fáir eða engir starfsmenn. Hann hafi talið opinber gjöld í skilum, en vitað að framkvæmdastjóri og aðrir starfs- menn hafi átt þar inni laun. Eyjólfur var ásamt tveimur öðr- um ákærður fyrir brot á lögum um virðisaukaskatt og brot gegn lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda vegna fyrirtækisins Nota Bene hf. á tímabilinu frá júlí 2001 til apríl 2002, en hann var stjórnarmaður í félaginu á þeim tíma. Talið er að ekki hafi verið greiddir svokallaðir vörsluskattar að upphæð samtals 32,8 milljónir króna. Spurður af sækjanda sagði Eyj- ólfur að ljóst hefði verið á stjórn- arfundi um haustið eða sumarið 2001 að vanskil væru á vörsluskött- um, tekið hefði verið hart á því og rætt um að selja fasteign félagsins. Það hefði hins vegar ekki verið gert og ekkert hefði gerst í málinu næstu mánuði. Eftir það hefði verið rætt að auka hlutafé eða koma öðr- um félögum inn í reksturinn, en það hefði ekki heldur gengið, og fé- lagið verið tekið til gjaldþrota- skipta nokkru síðar. Stjórnarseta vinargreiði Eyjólfur sagðist ekki hafa skipt sér mikið af rekstrinum, hann hefði litið á setu sína í stjórninni sem vinargreiða, enda hefði félagið ekki fallið að rekstri Frjálsrar fjölmiðl- unar, þar sem hann var fram- kvæmdastjóri og einn aðaleigenda. Eignarhaldið hefði verið á þann veg að Frjáls fjölmiðlun, Kassa- gerðin, Hans Pedersen og Mar- teinn Kr. Jónasson, framkvæmda- stjóri Nota bene, hefðu átt yfir 90% í félaginu. Eyjólfur sætir einnig ákæru vegna brota á lögum um vörslu- skatta vegna Póstflutninga ehf., þar sem hann var stjórnarmaður, en meint brot voru framin á tíma- bilinu frá maí 2001 til desember sama ár, og snúast um samtals tæplega 5,4 milljónir króna. Sagði Eyjólfur að í því tilviki hefði verið um að ræða ágreining við skattayfirvöld um það hvort fé- laginu bæri að skila virðisauka- skatti. Félagið hefði borið efni í hús, og því verið eins konar póst- þjónusta, og ágreiningur hefði ver- ið milli félagsins og ríkisskattstjóra um hvort sú starfsemi væri virð- isaukaskattsskyld. Úrskurður gekk í málinu seint í október 2001, og segir Eyjólfur það sinn skilning að endurskoðendur félagsins hafi verið beðnir að áfrýja þeim úrskurði. Valdimar Grímsson, framkvæmdastjóri félagsins, hafi vakið athygli sína á skuldinni í október, og reynt að semja við skattayfirvöld. Eyjólfur sagði ástæður þess að ekki voru staðin skil á opinberum gjöldum þær að hann hefði einfald- lega ekki talið að starfsmenn væru hjá fyrirtækinu fyrir þá mánuði sem ákært væri vegna, í nóvember og desember 2001. Trúlega væri þar um að ræða starfsmenn í upp- sagnarfresti. Erfiðlega gekk að greiða laun Eyjólfur var í ákæru gefið að sök viðlíka brot á skilum vörsluskatta vegna Visir.is, þar sem hann var stjórnarformaður. Meint brot áttu sér stað frá september til desem- ber 2001, og er upphæðin sem ákært er vegna tæpar 5,6 milljónir króna. Sækjandi spurði Eyjólf út í framburð Sigurðar Ragnarssonar hjá lögreglu, þess efnis að Eyjólfur hefði farið með fjármálastjórn fé- lagsins. Eyjólfur sagðist hafa fylgst vel með og aðstoðað, en ekki komið að rekstrinum frá degi til dags. Hann staðfesti að erfiðlega hefði gengið að innheimta skuldir Vis- ir.is, en greiddur hefði verið virð- isaukaskattur af öllu sem náðst hefði að innheimta. Hann sagðist ekki hafa vitað af vörsluskattaskuld fyrr en eftir desember, Sigurður hefði verið tekinn við á þeim tíma, og unnið við hlið fráfarandi fram- kvæmdastjóra. Þeir hefðu líklega ekki séð ástæðu til að tilkynna sér það. Hann sagðist þó hafa vitað af því að erfiðlega hefði gengið að greiða starfsfólki laun, það hefði hann heyrt í samtölum og í gegnum tölvupóstssamskipti við starfsfólk. Ágreiningur virðist uppi um hvort Sigurður hafi í raun að fullu tekið við starfi framkvæmdastjóra. Tilkynnt var til hlutafélagaskrár að hann hefði tekið við starfi fram- kvæmdastjóra, en ekki tilkynnt að fráfarandi framkvæmdastjóri væri hættur. Ennfremur benti verjandi Sigurðar á að hann hefði ekki haft prókúrurétt á reikningum félags- ins, né hefði hann skrifað undir ráðningarsamning. Eyjólfur sagði þó að í sínum huga væri ljóst að Sigurður hefði að fullu tekið við starfi framkvæmdastjóra. Sjötta ákæran gegn Eyjólfi snýr að því að Fréttablaðið ehf. hafi ekki staðið skil á vörslusköttum að upp- hæð 11,4 milljónir króna, á tíma- bilinu frá janúar 2002 til október 2002. Á þeim tíma var Eyjólfur stjórnarformaður Fréttablaðsins. Hann sagði að miklar útistandandi skuldir hefðu hrannast upp á þeim tíma, líklega hefðu um 85 milljónir verið útistandandi á tímabili. Eyjólfur sagðist hafa frétt af því í yfirheyrslu hjá skattrannsóknar- stjóra að ekki hefði verið í lagi með vörsluskattaskil, en það hefði verið í nóvember 2002. Sumarið áður hefði hann vitað af vandræðum, þar sem á tímabili hefði staðið til að innsigla fyrirtækið. Hann sagði að komið hefði verið í veg fyrir það með loforðum um greiðslu á úti- standandi skuld. Eyjólfur segir að skuldin hafi verið greidd, og hann m.a. fengið staðfestingu á skuldleysi frá skatta- yfirvöldum sem hann hafi veifað framan í starfsmenn á starfs- mannafundi til að sannfæra þá um að staðan væri viðunandi. Í ljós hafi hins vegar komið að um hafi verið að ræða áætlun af hálfu skattyfir- valda, en rauntalan hafi verið mun hærri, sem hann hafi ekki gert sér grein fyrir. Síðasta ákæran gegn Eyjólfi snýr að ÍP-prentþjónustu ehf., þar sem Eyjólfur var stjórnarmaður, en ÍP-prentþjónusta var dóttur- félag Ísafoldarprentsmiðju. Þar er ákært vegna vangoldinna vörslu- skatta að upphæð samtals 6,9 millj- ónir króna sem áttu að greiðast á tímabilinu nóvember 2001 til apríl 2002. Eyjólfur segir að hann hafi talið að Ólafur Haukur Magnússon, sem einnig er ákærður fyrir þetta meinta brot, hafi ætlað að greiða upp allar skuldir á vörslusköttum eftir að hann keypti félagið vorið 2002. Það hafi hins vegar aðeins verið gert vegna Ísafoldarprent- smiðju hf., en ekki ÍP-prentþjón- ustu. Í síðarnefnda félaginu hafi raunar ekki verið haldnir stjórn- arfundir, heldur hafi félagið allt að því verið rekið eins og deild innan Ísafoldarprentsmiðju. Ísafold í spennitreyju Eyjólfur var spurður af verjanda Sveins Eyjólfssonar, sem einnig er ákærður vegna þessa máls, hvort lýsing Ólafs Hauks við rannsókn málsins væri rétt. Þar lýsti hann því að Ísafoldarprentsmiðju hefði verið haldið í spennitreyju með því að stjórnendur – Sveinn og Eyjólf- ur – hefðu látið félög í sinni eigu greiða prentsmiðjunni seint og illa. Eyjólfur sagði þá lýsingu ekki sanngjarna, aðeins Fréttablaðið hefði verið í eigu þeirra Sveins, og önnur félög hefðu einnig skuldað Ísafold. Skuld Fréttablaðsins hefði verið gerð upp, og á tímabili hefði félagið bara skuldað prentsmiðj- unni tvær milljónir króna, sem ekki teldist mikið miðað við milljarða- veltu Ísafoldar. Sjá einnig frétt á næstu síðu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verjandi eins sakborninga ræðir við fulltrúa ákæruvaldsins í réttarsal héraðsdóms í gær. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 11 FRÉTTIR Í ÁKÆRU ríkissaksóknara eru tíu einstaklingar bornir sökum vegna starfa þeirra sem framkvæmda- stjórar, stjórnarformenn eða stjórnarmenn í samtals átta fyr- irtækjum. Ákært er fyrir umboðss- vik, brot á lögum um virð- isaukaskatt, og brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda. Ef umboðssvik sannast á ákærðu er heimilt að dæma þá í allt að tveggja ára fangelsi. Ef brot á ann- að hvort lögum um virðisaukaskatt eða brot á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda sannast er heimilt að dæma ákærðu til greiðslu sektar allt frá tvöfaldri og upp að tífaldri þeirri upphæð sem vanrækt var að skila. Ef brotin þykja stórfelld ligg- ur einnig við þeim allt að sex ára fangelsisdómur. Eyjólfur Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Frjálsrar Fjöl- miðlunar og annar eigenda á meiri- hluta hlutafjár í Frjálsri Fjöl- miðlun, er ákærður í sjö af ákæruliðunum í málinu.  Fyrir umboðssvik, sem stjórn- arformaður og daglegur stjórn- andi Visis.is ehf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem stjórn- arformaður og daglegur stjórn- andi Visis.is ehf.  Fyrir brot gegn lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda sem stjórnarformaður Dagsprents hf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem stjórn- arformaður Nota bene hf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem daglegur stjórnandi og fulltrúi í stjórn Póstflutninga ehf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem stjórn- arformaður Fréttablaðsins ehf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fulltrúi í stjórn ÍP-prentþjónustu ehf., dótturfélags Ísafoldarprent- smiðju. Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi stjórnarformaður Frjálsrar Fjöl- miðlunar og annar eigenda á meiri- hluta hlutafjár í Frjálsri Fjöl- miðlun, er ákærður í málinu.  Fyrir brot gegn lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda sem stjórnarmaður Dagsprents hf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fulltrúi í stjórn Fréttablaðsins ehf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem stjórn- arformaður ÍP-prentþjónustu ehf., dótturfélags Ísafold- arprentsmiðju. Marteinn Kristinn Jónasson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Nota Bene hf., er ákærður.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem stjórn- arformaður Markhússins- markaðsstofu ehf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fram- kvæmdastjóri Nota bene hf.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fram- kvæmdastjóri og fulltrúi í stjórn Info skiltagerðar ehf. Info skiltagerð tengdist ekki Frjálsri fjölmiðlum ehf., ólíkt öðrum fé- lögum sem ákært er vegna. Svavar Ásbjörnsson, fyrrverandi fjármálastjóri Vísis.is ehf., sætir ákæru.  Fyrir umboðssvik, sem fjár- málastjóri Visis.is ehf. Karl Þór Sigurðsson, fyrrverandi stjórnarmaður í Nota Bene hf., er ákærður vegna eins brots.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fram- kvæmdastjóri Nota bene hf. Ómar Geir Þorgeirsson, fyrrver- andi stjórnarmaður í Markhúsinu- markaðsstofu ehf., er ákærður.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fulltrúi í stjórn Markhússins-markaðs- stofu ehf. Sigurður Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Visis.is., sætir ákæru.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fram- kvæmdastjóri Visis.is ehf. Ólafur Haukur Magnússon, fyrr- verandi framkvæmdastjóri ÍP- prentþjónustunnar ehf., er ákærð- ur.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt og fyrir brot gegn lögum um staðgreiðslu op- inberra gjalda sem fram- kvæmdastjóri ÍP-prentþjónustu ehf. Valdimar Grímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Póstflutninga ehf., er ákærður í málinu.  Fyrir brot á lögum um virð- isaukaskatt sem fram- kvæmdastjóri Póstflutninga ehf. Sverrir Viðar Hauksson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri Markhúss- ins-markaðsstofu ehf., er ákærður.  Fyrir brot gegn lögum um stað- greiðslu opinberra gjalda sem framkvæmdastjóri Markhúss- ins-markaðsstofu ehf. Tíu einstaklingar ákærðir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.