Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 37 MINNINGAR Ég gleymi sjálfsagt aldrei þegar ég hitti Árna Jónsson í fyrsta sinn. Það var á mynd- listarsýningu hjá Sólveigu, sem vinur minn og síðar einnig eiginmaður bauð mér á. Ég hafði ekki hitt neinn úr fjöl- skyldu hans áður og var því frekar stressuð þegar afi kom gangandi til okkar. Hann heilsaði Árna Baldri með orðunum „Hvar hefur þú falið þessa fallegu stelpu?“ Tók svo utan um mig og heilsaði eins og við hefðum þekkst í mörg ár. Þarna eignaðist ég góðan vin og afa. Góðlegur svipur er besta meðmælabréfið, Elisabet I. á sennilega best við þegar ég rifja upp kynni okkar. Það er margs að minnast eftir rúm- lega 15 ára kynni. Minningar sem ég mun gæta og miðla til barna minna. Í huga mér verður þú afi sem hafðir gaman af að gleðja aðra og hugsaðir vel um fólkið þitt. Börnin mín og syst- ur fengu að njóta þess og dýrmætar stundir með ykkur ömmu í Koti eru mikils virði. Öll sumrin sem ég var með börnin í Koti hjá ykkur eru ómetanleg. Allar ferðirnar í dýra- garðinn í Slakka, nestisferðirnar og skoðunarferðir í leit að hreiðrum eru okkur öllum minnisstæðar. Þið veitt- uð okkur allan þann stuðning og ást sem nauðsynleg er ungu fólki sem er að hefja lífið og eignast börn. Elsku afi og langafi, við Árni Bald- ur, Ragnheiður, Birna Rut, Snæfríð- ur Sól og Baldur Smári söknum þín sárt en við huggum okkur við ljúfar minningar og þá trú að þér líði vel. Þrúður. Bókin „Sonur bjargs og báru“ fjallar um lífshlaup Sigurðar Jóns Guðmundssonar, stofnanda Belgja- gerðarinnar í Reykjavík, sem kunnur var fyrir dugnað og öðlingsskap í hví- vetna. Jón þessi og Jórunn Guðrún Guðnadóttir, eiginkona hans, eignuð- ust alls átta börn. Elst var Helga, síð- an Guðni og Ingólfur. Fjórða barnið var drengur nefndur Sigurður, en foreldrarnir syrgðu mjög lát hans í frumbernsku. Þann 21. febrúar 1925 ól Jórunn annan son, heilbrigðan og fallegan dreng er nefndur var Árni. Að vonum þökkuðu þau Guði fyrir nýja barnið og gleðin yfir komu hans hélst alla tíð óskert í samskiptum þeirra við þennan dreng. Yngstu börn þeirra hjóna voru Valdimar, Sólveig og Guðmundur. Að auki tóku þau Guðmund Gíslason til fósturs frá unga aldri. Árni var ávallt glaðsinna og táp- mikill einstaklingur og vinsæll mjög, ekki síst meðal skólafélaga og ann- arra jafnaldra. Hann sýndi fimleika í hópi undir stjórn Jóns Þorsteinssonar á vegum Ármanns og stundaði m.a. skíðaíþróttina af kappi. Árni tók sér- stöku ástfóstri við Ingólf bróður sinn og tregaði sáran, er hann lézt af slys- förum árið 1941. Þá var Árni við nám í Verzlunarskóla Íslands, þaðan sem hann lauk stúdentsprófi vorið 1946 og hóf næsta haust frekara nám í við- skiptafræði í London. Þann vetur komst hann í kynni við jafnöldru sína Sólveigu Eggerz Pétursdóttur, sem stundaði listmálaranám í London en bjó hjá fjölskyldu sinni nokkru utan borgarinnar í bænum Weybridge. Brátt gerðist Árni tíður gestur á því heimili. Sameiginlegur bókmennta- og listaáhugi Árna og Sólveigar tengdi þau. Svo fór að Árni kvæntist Sólveigu snemma sumars 1947. Ungu hjónin skruppu heim til Reykjavíkur að brúðkaupi afstöðnu en bjuggu síð- an í Weybridge hjá foreldrum Sól- veigar, þar sem Sigrún dóttir þeirra fæddist vorið 1948. Tengdafjölskylda ÁRNI JÓNSSON ✝ Árni Jónssonfæddist í Reykjavík 21. febr- úar 1925. Hann lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Hafnar- firði 19. febrúar síð- astliðinn og var út- för hans gerð frá Fossvogskirkju 27. febrúar. Árna fagnaði mjög bæði tengdasyninum og sínu fyrsta barna- barni. Pétur Eggerz- Stefánsson, tengdafað- ir Árna, bauðst til að útvega honum góða at- vinnu í Bretlandi. Enda þótt boð þetta þætti á margan hátt freistandi svaraði Árni því þannig, að ekki kæmi til greina að hann brygðist því lof- orði að snúa heim til Ís- lands að námi loknu haustið 1948 til að starfa með Jóni föður sínum við framkvæmdastjórn- un Skjólfatagerðarinnar h.f., sem frá árinu 1941 var gert að móðurfyrir- tæki Belgjagerðarinnar h.f. Næstu þrjá áratugina áttu þessir feðgar einstaklega nána samvinnu, bæði í leik og starfi, því ekki einungis unnu þeir saman í fyrirtækinu, heldur fóru þeir hvert sumar saman í lax- veiði, ekki síst norður í Víðidalsá, þar sem þeir nutu dásemda íslenskrar náttúru, er í senn auðgaði líf þeirra og dýpkaði kærleika feðganna hvors til annars. Raunar var samheldni fjöl- skyldunnar allrar mjög mikil, sem sjá má af því, að Einar eiginmaður Helgu auk Valdimars og Guðmundar bræðra Árna störfuðu allir innan Skjólfatagerðarinnar og Guðni bróðir þeirra rak eigin starfsemi í sama hús- næði. Rausnarskapur var ávallt mikill af hálfu alls þessa fólks og gestrisni frábær. Ósjaldan voru heimili gömlu hjónanna og barna þeirra þétt setin gestum við hlaðin veisluborð og þá gjarnan gripið í spil, einkum bridge. Þannig var engin furða þótt yfir- fljótandi örlæti yrði einkenni á heimili þeirra Árna Jónssonar og Sólveigar Eggerz Pétursdóttur, því frá blautu barnsbeini voru þau bæði vanin við að miðla öðrum af öllu því er Guð þeim gaf. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau Árni og Sólveig í húsi Jóns og Jór- unnar að Nökkvavogi 37. Síðar leigðu þau sér húsnæði í Suðurgötu 20 um sinn, áður en þau byggðu sér hæð og ris í Karfavogi 50 og keyptu loks hús- ið Karfavog 41, þar sem þau voru um kyrrt fram til 1976. Eftir það fluttu þau búsetu sína milli allmargra staða í Reykjavík og á Seltjarnarnesi en fluttu loks til Hafnarfjarðar með síð- asta dvalarstað á Hrafnistu í góðri umsjá þjónustuaðila þar. Sumarbústaði ráku þau Árni og Sólveig með miklum myndarskap á mörgum stöðum á hinum ýmsu tím- um, þ.e. við Elliðavatn, uppi hjá Krókatjörnum, á Saurum í Borgar- firði, á Kleifum í Steingrímsfirði og loks í landi Klausturhóla í Grímsnesi. Þar nefndu þau staðinn Kot og komu upp vísi að skóglendi umhverfis bú- staðinn á einum hektara lands. Vinir og vandamenn áttu hjá þeim hjónum marga ánægjustund í frábæru yfir- læti í þessum sælureitum og þá ekki síst yngsta kynslóðin. Jón Guðmundsson dvaldist fár- sjúkur á heimili Árna og Sólveigar í Hvassaleiti árið sem hann dó 1977 og þá umvafinn ástúð sonar síns og tengdadóttur. Einnig var það dæmi- gert af Árna að hann fór til skemmt- unar og stuðnings Pétri tengdaföður sínum í ferðalag með honum sjóleiðis norður með Noregsströndum sumar- ið eftir að Pétur náði sjötugsaldri og þótti báðum gaman að. Elín, annað barn þeirra Árna og Sólveigar, bættist fjölskyldunni í Suð- urgötunni árið 1950 en tvö yngstu börnin fæddust þegar þau bjuggu í Vogahverfinu, Helga 1954 og Stefán Pétur 1958. Öll voru þessi systkin innilega elskuð af foreldrum sínum, en tvö hin yngstu þörfnuðust meiri umsjár en eldri dæturnar, sem í vax- andi mæli hafa reynt að endurgjalda foreldrum sínum allt það mikla og góða sem þau hafa fyrir þær og fjöl- skyldur þeirra gert á liðnum árum. Árni og Sólveig hafa látið í ljós inni- legt þakklæti í garð þeirra systra Sig- rúnar og Elínar og í senn verið stolt yfir framgöngu þeirra í lífinu, ekki síst hin síðari ár, þegar heilsa þeirra hjóna hefur farið dvínandi og þau not- ið aðstoðar systranna í vaxandi mæli. Helga og Stefán Pétur hafa á sinn hátt verið foreldrum sínum ríkur gleðigjafi með kærleiksríku samneyti frá fyrstu tíð, einnig nú hin síðustu ár, þegar þau hafa komið lengra að í reglubundnar heimsóknir til foreldra og systra frá einkar góðum heimilum þeirra beggja úti á landi. Ríkulegrar félagsmálaþátttöku Árna Jónssonar á vegum Oddfellow- reglunnar, Styrktarsamtaka vangef- inna, Gigtarfélagsins og Maikari- samtakanna, auk stjórnarþátttöku hjá Félagi íslenskra iðnrekenda o.fl. mun getið allvíða, þótt ekki sé nánar um það fjallað hér. Hvarvetna þótti Árni góður og skemmtilegur félagi, sem var kappsmál að láta gott af sér leiða. Eiginkonunni Sólveigu hefur Árni verið góður félagi varðandi list- sköpun hennar með lifandi áhuga allt til hins síðasta, svo sem geta hans framast leyfði. Hjartans þökk býr í huga mínum við allar minningarnar um mág minn Árna Jónsson, m.a. þegar hann var að raula „Little things mean a lot“, sem hann lærði af Guðrúnu Símonar söng- konu á Lundúna-námsárunum. Sól- veigu systur minni og afkomendum hennar færi ég hér með kærleiksríkar og hugheilar samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Elín Eggerz-Stefánsson. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA STEINDÓRSDÓTTIR HAARDE, Aflagranda 40, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 2. mars kl. 15.00. Steindór Haarde, Jórunn Bergmundsdóttir, Geir H. Haarde, Inga Jóna Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, fósturfaðir, afi, sonur og bróðir, ÞORVALDUR ÓSKARSSON, Mánagötu 3, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 24. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Þórunn Sigurðardóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN MAGNÚSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 1. mars kl. 13.00. Kolbrún Vilbergsdóttir, Fanney Eva Vilbergsdóttir, Gísli Haraldsson, Þóra Vilbergsdóttir, Júlíus Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, ÓLI VIKTORSSON (OLE WILLESEN) garðyrkjumaður, Æsufelli 4, Reykjavík, sem lést mánudagskvöldið 20. febrúar sl., verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. mars kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð Sjálfsbjargar. Hrefna Gunnlaugsdóttir, Valbjörk Ösp Óladóttir, Magnús Gauti Hauksson, Dagbjartur Eiður Ólason, Erla Inga Hilmarsdóttir, Viktor Ólason, Inga Eiríksdóttir, Sigurður Axel Ólason, Carlotta Tate Ólason og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, TOVE RIGMOR GUÐMUNDSSON, Eyjabakka 1, Reykjavík, sem lést á heimili sínu sunnudaginn 19. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 2. mars kl. 13.00. Helen G. Guðmundsdóttir, Jón G. Guðmundsson, Eiríkur G. Guðmundsson, Ágúst G. Guðmundsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, tengdadóttir og amma, RANNVEIG SIGURÐARDÓTTIR, Lautasmára 1, Kópavogi, lést á líknardeild Landakots föstudaginn 24. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Áslaug B. Harðardóttir, Sverrir S. Björnsson, Sigurður H. Harðarson, Selma Baldvinsdóttir, Daði Harðarson, Marianna Brynhildardóttir, Áslaug Árnadóttir og barnabörn. Okkar einlægur og ástkær unnusti, sonur, bróðir, tengdasonur, barnabarn og mágur, TÓMAS ÝMIR ÓSKARSSON frá Dæli í Skíðadal, til heimilis í Keilusíðu 6H, Akureyri, lést af slysförum laugardaginn 25. febrúar sl. Útför auglýst síðar. Ásdís Hanna Bergvinsdóttir, Óskar Snæberg Gunnarsson, Jóhanna Kristín Arnþórsdóttir, Lene Zacharíassen, Íris Björk Óskarsdóttir, Eyþór Freyr Óskarsson, Bergvin Jóhannsson, Sigurlaug Anna Eggertsdóttir, Gunnar Rögnvaldsson, Kristín Óskarsdóttir, Björg Zacharíassen, Sigríður Valdís, Anna Bára og Berglind Bergvinsdætur og fjölskyldur þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.