Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 28.02.2006, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ JOHANNES Brahms virðist hafa verið eitthvert sjálfsgagnrýnasta tónskáld rómantíska tímans, og ágerðist það með aldrinum. Hann gekk m.a.s. svo langt að end- urheimta eiginhandrit af æsku- verkum sem hann hafði gefið gömlum vinum. Fóru þau síðan sömu miskunnarlausu leið í ofninn og öll uppköst hans og frumdrög, því eftir að Nottebohm kunningi hans tók að grandskoða skizzur Beethovens mátti Brahms ekki til þess hugsa að óviðkomandi færi að hnýsast á svipaðan hátt í sköp- unaraðferðum sínum að sér látn- um. Velta má fyrir sér hvers konar persónuleika slík árátta lýsir, og hvort verið gæti að Brahms hafi innst inni efazt um eigin frumleika – atriði sem einmitt fordæmi Beethovens setti svo á oddinn fyr- ir tónskáldum síðari tíma að enn í dag (og e.t.v. meir en nokkru sinni) þykir fullnusta kröfunnar um „frumleika“ algert „sine qua non“. Hitt er söguleg staðreynd að um 1890 þóttist hinn þá varla sextugi Brahms hafa lokið sínu ævistarfi, fullur efasemda um verðleika síðustu verka sinna. En sem betur fór náði á þeirri ögur- stundu túlkunargaldur klarín- ettsnillingsins Richards Mühlfeld að endurtendra sköpunargleði meistarans, er ól af sér fjögur af- burða kammerverk – Tríóið Op. 114, Kvintettinn Op. 115 og Són- öturnar Op. 120 nr. 1 & 2. Voru þrjú þeirra leikin á allvel sóttum tónleikum Ásdísar Valdi- marsdóttur og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur í Salnum á mið- vikudag. Víóluröddin helgaðist af því að Brahms hafði í yfirskrift „ossíerað“ þetta uppáhalds- hjóðfæri sitt í stað klarínettsins ef óskað væri. Minnir það raunar á að altröddin var jafnframt eft- irlætissöngvið hans – þó ekki viti ég til þess að hann hafi veitt alt- stærð klarínettsins, bassetthorn- inu, sambærilegri athygli og Moz- art. Sónöturnar tvær voru fyrst á dagskrá, og léku þær stöllur flest af vandvirkri fágun. Samt fannst mér eitthvað vanta – kannski ögn meiri ástríðu í víólunni, er naut auk þess varla fyllilegs styrk- samvægis við alopinn flygilinn, a.m.k. ekki heyrt frá svölum, þó að styrkleikahlutföllin virtust jafn- ast svolítið þegar hlustað var niðri eftir hlé. Samt er spurning hvort píanistinn hefði ekki annaðhvort mátt lækka lokið til hálfs eða gjalda meiri varhuga við við- kvæmni hins íðilfagra en dæmi- gerða innraddahljóðfæris, einkum á sterkari stöðum. Tríóið fyrir víólu (s.s. upp- haflega klarínett), selló og píanó eftir hlé heppnaðist hins vegar ljómandi vel. Að sónötunum ólöst- uðum var það tvímælalaust líka hugmyndaríkasta tónsmíð kvölds- ins, og túlkunin varð eftir því opn- ari, snarpari og spilaglaðari en í fyrstu tveim atrennum. Ekki sízt var gaman að kattþjálum tvíleik strengjanna í loka-Allegróinu (IV), og enski gestasellistinn Michael Stirling reyndist í engu eftirbátur þeirra Ásdísar – jafnvel þótt skap- mikill píanóleikur Steinunnar, eins og ekki mun óalgengt í umræddri áhöfn, ætti stundum til að kæfa miðsvið knéfiðlunnar. Kammersvana- söngvar Brahms TÓNLIST Salurinn Brahms: Fiðlusónötur í f og Es Op. 120,1-2; Píanótríó í a Op. 114. Ásdís Valdimarsdóttir víóla og Steinunn B. Ragnarsdóttir píanó. Gestur: Michael Stirling selló. Miðvikudaginn 22. febrúar kl. 20. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Stóra svið RONJA RÆNINGJADÓTTIR Lau 4/3 kl. 14 UPPS. Su 5/3 kl. 14 UPPS. Lau 11/3 kl. 14 UPPS. Su 12/3 kl. 14 UPPS Lau 18/3 kl 14 Su 19/3 kl. 20 CARMEN Fö 3/3 kl. 20 Lau 4/3 kl. 20 Lau 11/3 kl. 20 Lau 18/3 kl. 20 Lau 25/3 kl. 20 TALAÐU VIÐ MIG -ÍD- Su 5/3 kl. 20 Gul kort. Fö 10/3 kl. 20 Rauð kort Su 19/3 kl. 20 Græn kort Su 26/3 kl. 20 Blá kort WOYZECK Í kvöld kl. 20 AUKASÝNING UPPSELT AUKASÝNINGAR: Su 12/3 kl. 20 Fi 23/3 kl. 20 . PÍKUSÖGUR Mi 1/3 kl. 20 Í tilefni af V-DEGINUM flytja þingkonur þetta þekkta verk Eve Ensler Nýja svið / Litla svið BELGÍSKA KONGÓ Lau 4/3 kl. 20 UPPS. Su 5/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20 Lau 11/3 kl. 20 UPPS. Su 12/3 kl. 20 Lau 18/3 kl. 20 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Fi 2/3 kl. 20 Fö 3/3 kl. 20 UPPS. Fi 9/3 kl. 20 Mi 15/3 kl. 20 Fi 16/3 kl. 20 Fö 23/3 kl. 20 HUNGUR Lau 4/3 kl. 20 Mi 8/3 kl. 20 Fö 10/3 kl. 20 Fi 16/3 kl. 20 NAGLINN Fi 2/3 kl. 20 Fö 3/3 kl. 20 UPPSELT Lau 11/3 kl. 20 Su 12/3 kl. 20 UPPSELT GLÆPUR GEGN DISKÓINU Mi 1/3 kl. 20 UPPSELT Fö 17/3 kl. 20 SAKAMÁL Á SVIÐ Í kvöld kl. 20 umræðufundur um íslensk sakamál í forsal Borgarleikhússins Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum. Miðasala opin allan sólarhringinn á netinu. Maríubjallan - sýnt í Rýminu Fim. 2. mars kl. 20 6.kortas - UPPSELT Fös. 3. mars kl. 19 7.kortas - UPPSELT Lau. 4. mars kl. 19 8.kortas - UPPSELT Lau. 4. mars kl. 22 AUKASÝNING - Örfá sæti laus Fim. 9. mars kl. 20 AUKASÝNING - Laus sæti Fös. 10. mars kl. 19 9.kortas - Örfá sæti laus Lau. 11. mars kl. 19 Nokkur sæti laus 11/3 AUKASÝNING,17/3, 18/3 - Ath! aðeins þessar sýningar! Litla hryllingsbúðin - Frums. 24. mars. Frábært forsölutilboð: Geisladiskur fylgir með í forsölu. Forsala hafin. – fyrstir koma –fyrstir fá.                                      ! "        #  $  $    %  &'() *+, -./    0    0  12 , 3 1- 0  &'() *+, -./ 4       %           -51.6 , 3 777     8                     !  "   #                  ! "  #  $  % %&  %& %  (  & & Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. ATH. SÝNINGUM FER FÆKKANDI MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700 laus sæti laus sæti laus sæti laus sæti laus sæti föstudagur laugardagur föstudagur laugardagur föstudagur 03.03 04.03 10.03 11.03 17.03 FÖS. 3. MAR. kl. 20 ÖRFÁ SÆTI LAUS FÖS. 10. MAR. kl. 20 LAU. 18. MAR. kl. 20 SÝNINGUM LÝKUR Í MARS! ÞRI. 28. FEB. kl. 9 UPPSELT MÁN. 06. MAR. kl. 9 UPPSELT ÞRI. 07. MAR. kl. 9 UPPSELT MIÐ. 08. MAR. kl. 9 UPPSELT HVAÐ EF eftir Valgeir Skagfjörð/ Einar Má Guðmundsson VIÐTALIÐ eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur FIM. 2. MARS KL. 20 - FORSÝNINAG LAU. 4. MARS KL. 20 - FRUMSÝNING SUN. 5. MARS KL. 20 LAU. 11. MARS KL. 20 SUN. 12. MARS KL. 20 FÖS. 17. MARS KL. 20 SUN. 19. MARS KL. 20 FÖS. 24. MARS KL. 20 SUN. 26. MARS KL. 20 Hjá Máli og menn- ingu er komin út bókin Myndir árs- ins 2005. Bókin er gefin út í sam- starfi við Blaða- ljósmyndarafélag Íslands og geymir ljósmyndir af sam- nefndri sýningu í Gerðarsafni í Kópavogi. Blaðaljósmyndarafélag Íslands hef- ur um langa hríð skipað hvert ár sér- staka dómnefnd sem velur úr athygl- isverðustu fréttaljósmyndir ársins og hafa sýningar með myndunum vakið mikla athygli og fengið metaðsókn. Blaðaljósmyndarafélagið tók upp þá nýbreyti í fyrra að gefa út árbók með ljósmyndunum. Nú hefur félagið geng- ið til samstarfs við Eddu-útgáfu um út- gáfu á bókinni Myndir ársins 2005 í stóru og veglegu broti. Bókin er 200 bls. Verð: 4.490 kr. Nýjar bækur Útsala Opið virka daga kl. 10-18 laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi sími 554 4433 Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.