Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 9

Morgunblaðið - 28.02.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 9 FRÉTTIR Póstsendum Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is heimakjólar Vor 2006 www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Jakkar og buxur úr hör Str. 36-56 VANTAR ÞIG GÓÐAR SÍÐBUXUR? Tískuverslun Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970 Finnur þú ekki stærðina þína? Gerum buxur eftir pöntun. Opið: mán.-fös. kl. 14-18. Bæjarlind 6, sími 554 7030 FLOTTAR HETTUPEYSUR ÚRVAL AF NÝJUM YFIRHÖFNUM MIKIL uppbygging á sér stað á Eskifirði um þessar mundir, en nýtt hverfi er að rísa innst í bænum sem nefnist Dalur. Óhætt er að segja að nokkra athygli hafi vakið að við götuna Árdal í Dalahverfinu eru að rísa tvö einbýlishús byggð að utanverðu einvörðungu úr brasilískum harðviði, en harðviður er eftirsótt og eftir því dýrt bygg- ingarefni. „Við stefnum að því að reisa tíu slík hús í hverfinu, en við fengum úthlutað tíu lóðum,“ seg- ir Emil K. Thorarensen, sem á og rekur bygging- arfyrirtækið Eskihús ehf. ásamt Þorbergi Hauks- syni og Magnúsi Guðmundssyni. Að sögn Emils er innflutningurinn á brasilíska harðviðnum þannig til kominn að Magnús hefur góð tengsl við Brasilíu þar sem hann hefur dvalið um tíma. Aðspurður vill Emil ekki gera mikið úr því að harðviðurinn sé dýrt byggingarefni, enda fái þeir viðinn á góðum kjörum, sem þýði að húsin verði vel samkeppnisfær hvað verð áhrærir. „Það virð- ist vera til nóg af harðviði til útflutnings í Bras- ilíu. Þetta er ljómandi fallegt efni, eins og stof- umublur. Það er ágætt að vinna í þessu efni, en harðviður er fimm sinnum harðari viður en t.d. fura,“ segir Emil og bendir á að sjálfir noti Bras- ilíubúar viðinn mikið og í alls kyns hluti, t.d. í jafn hversdagslega hluti og vörubretti. Þess má geta að efnið í fyrstu tvö húsin fyllti tvo fjörutíu feta gáma, en mestallt efnið í húsin er keypt í Bras- ilíu. Þótt mestallt efnið sé innflutt segir Emil hér um alíslensk hús að ræða, reist eftir íslenskum reglugerðum og stöðlum. Aðalhönnuður húsanna er Björn J. Emilsson, sem á sínum tíma hannaði t.d. Kringluna, og byggingarmeistari er Árni Guðmundsson á Reyðarfirði. Að sögn Emils eru húsin 150–170 m² að stærð, en um er að ræða timburhús með innandyraveggjum úr gifshellum, auk gólfefna úr parketi, keramíkflísum og nátt- úrusteini. Framan við húsin verða reistir heitir pottar umkringdir náttúrusteini. Aðspurður segir hann að farið sé að styttast í að húsin verði fok- held og þá hefjist innivinnan fyrir alvöru, en stefnt er að því að fyrstu húsin tvö verði tilbúin til afhendingar, þá fullbúin að innan, með vorinu. Inntur eftir því hvað húsin muni á endanum kosta segir Emil allar líkur á að þau muni ekki fara fyrir fjárhæð undir 25 milljónum króna. Íbúðarhús úr brasilískum harðviði Morgunblaðið/Helgi Garðarsson Emil K. Thorarensen, einn eigenda Eskihúss ehf., sem reisa mun tíu einbýlishús úr brasilískum harð- viði á Eskifirði. Eins og sjá má miðar byggingu húsanna vel og er gert ráð fyrir að fyrstu húsin verði tilbúin til afhendingar með vorinu. HÓPUR radíóamatöra steig nýver- ið á land á eyjunni Pétri fyrsta, sem er við Suðurskautslandið. Færri hafa stigið fæti á eyjuna heldur en hafa farið út í geim. Til- gangur ferðar radíóamatöranna var að reka fjarskiptabúðir á eyj- unni til að gera öðrum amatörum kleift að ná sambandi þangað. Þetta er í þriðja skiptið sem eyjan er gerð að fjarskiptastöð fyrir amatöra. Það er metnaðarmál fyrir marga radíóamatöra að ná staðfestu sam- bandi við sem flesta fjarlæga og sjaldgæfa staði í heiminum, en það er kallað að „DX-a“. Því fara hóp- ar radíóamatöra gjarnan í nokkurs konar DX-leiðangra til að gera öðrum amatörum kleift að takast á við það krefjandi verkefni að ná sambandi við hina framandi staði. Sumir af þeim stöðum sem skil- greinast sem „lönd“ í heiminum eru óbyggðir og því gerist það öðru hverju að amatörar taka sig saman, ferðast til viðkomandi lands og reisa þar tjaldbúðir til að veita öðrum amatörum talstöðv- arþjónustu. Leiðangursmenn voru 22 talsins. Leiðangursmenn náðu að mynda alls 87.034 sambönd við radíó- amatöra víðs vegar um heim á þeim ellefu dögum sem þeir ráku fjarskiptabúðirnar á eyjunni. Þannig þótti ljóst að mikill áhugi var meðal amatöra að ná sambandi við eyjuna. Leiðangurinn var því ekki til einskis, að sögn Hrafnkels Eiríkssonar, verkfræðings og radí- óamtörs, en hann svarar kallmerk- inu TF3HR. Blanda af tækni- og náttúruáhuga Hrafnkell náði sjálfur ekki sam- bandi við Pétur fyrsta, en sendi- stöð hans lá niðri á þessum tíma. Hann hlustaði þó eftir merkjum frá fjarskiptabúðunum. „Það er margt sem spilar inn í hvort mað- ur nær sambandi eða heyrir í fjar- lægum stöðvum,“ segir Hrafnkell. „Það fer m.a. eftir sólblettum, tíma dags og ástandi himinhvolfa, því radíóbylgjurnar speglast af him- inhvolfum.“ Hrafnkell segir marga líta á radíóamatöráhugann sem eitthvað gamalt og úrelt sem heyri sögunni til, eins og morsekerfið, en það sé alrangt. „Þetta er í raun visst birting- arform áhuga á náttúrunni, að spá í stöðu sólar og himinhvolfa,“ segir Hrafnkell og bætir við að áhuga- málinu tengist líka mikill tækniá- hugi, því radíóamatörar eru tækni- grúskarar upp til hópa, sífellt að spá í nýjustu tækni til fjarskipta þótt margir hafi einnig áhuga á gamalli tækni á þessu sviði. Þá eiga samtök radíóamatöra AMSAT gervihnetti sem amatörar eiga margir í tölvusamskiptum gegnum. Erlendis skiptir starfsemi Radíóamatöra miklu máli í örygg- is- og björgunaraðgerðum, að sögn Hrafnkels. „T.d. skiptu viðbrögð radíóamatöra miklu máli þegar fellibylurinn Katrín reið yfir Bandaríkin,“ segir Hrafnkell. „Þá voru fyrstu fjarskiptin sem komust á eftir Tsunami bylgjuna í Asíu á vegum radíóamatöra. Radíó- amatörar hafa einnig spilað hlut- verk í almannavörnum hér á landi.“ Náði sambandi á morse Yngvi Harðarson, hagfræðingur og radíóamatör var meðal þeirra Íslendinga sem náðu í gegn til búðanna á Pétri fyrsta og bætti því landinu í sambandabók sína, sem telur nú rúmlega 300 lönd af þeim 335 sem hægt er að ná til í dag. Yngvi náði sambandi með morse skilaboðum. „Morsið er að- alfjörið,“ segir Yngvi en bætir við að ólíklegt sé að það komi nokkurn tíma í góðar þarfir, nema mögu- lega í neyðartilfellum. „En þetta er eins og að kunna tónlist, svona skemmtilegur hæfileiki.“ Yngvi hefur stundað radíó- samskipti frá barnsaldri með hléum, en áhuginn kviknaði þegar hann fylgdist með afa sínum sem hafði mikinn áhuga á tilraunum með rafeindatæki. Aðspurður hvað felst í því að ná sambandi við er- lenda aðila segir Yngvi málið snú- ast um að taka niður kallmerki hver hjá öðrum og skiptast á stutt- um skilaboðum. „Í dag er þetta ekki upp á marga fiska, tiltölulega stutt og stöðluð skilaboð varðandi merkisstyrk og slíkt.“ Á Íslandi eru um 200 skráðir radíóamatörar sem hafa lokið prófi og fengið leyfi til að starfrækja sendistöð og segir Hrafnkell það mikilvægt að gott eftirlit sé haft með því hverjir fái að vinna með senda sem mögulega geta truflað útvarpsbylgjur og fleira, enda séu þetta vandmeðfarin fyrirbæri. Ís- lenskir radíóamatörar eru með op- ið hús í félagsheimili sínu í þjón- ustumiðstöð ÍTR við Skeljanes á fimmtudögum kl. 19. Hópur radíóamatöra fór í svokallaðan DX-leiðangur Reistu fjarskiptabúðir á eyjunni Pétri fyrsta Eftir Svavar Knút Kristinsson svavar@mbl.is Carlos „NP4IW“ George-Nascimento, einn leiðangursmanna stundar fjar- skipti við radíóamatöra úti í heimi á eyjunni Pétri I. TENGLAR .............................................. www.peterone.com Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.