Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 20
Þær eru í hlutverki sögumanns og koma inn á milli þátta og syngja söguþráðinn. Vilhelm- ína Magnúsdóttir, Björg Að- alsteinsdóttir og Guðlaug Hróbjartsdóttir. Þetta er alveg sérstaklegagefandi starf,“ segir Að-alheiður Sigurjónsdóttir íupphafi samtalsins. „Þeg- ar hætt er að vinna úti er af- skaplega gott að hafa eitthvað sem getur tekið við þó að maður hafi í sjálfu sér alveg nóg að gera í öðru,“ heldur hún áfram. „Ég gæti ekki hugsað mér að vera án þess eftir að ég kynntist því hvernig það er að vera í þessu.“ Hún bendir líka á að það séu fleiri jákvæðar hliðar á leik- listinni. „Ég held að það sé gott fyr- ir heilann; að læra utan að. Það er svo mikil þjálfun.“ Grétar Snær tekur undir þetta og bætir við: „Þetta er gefandi tóm- stundaiðja. Maður kynnist mörgu ákaflega skemmtilegu og góðu fólki og þetta heldur manni við á milli eyrnanna, ef svo má segja, þó að maður sé kannski þrisvar sinnum lengur að læra núna heldur en þeg- ar byrjað var í þessu fyrst.“ Hann steig sín fyrstu skref með leiklist- argyðjunni vestur á Ísafirði 1972. Sjá um sýninguna sjálf Grétar segir líka að leiklistin snú- ist ekki bara um að stíga á svið og fara með texta. „Það er allt sem er í kringum þetta,“ segir hann, „allt sem þarf að gera, útbúa og svona, umstangið í kringum þetta.“ Að- alheiður grípur þessi orð á lofti og bætir við: „Við sjáum svo mikið um þetta sjálf, þannig að við erum í þessu frá a–ö. Það er alveg frá- bært.“ Aðalheiður er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum og kom fyrst fram níu ára gömul. „Þá var ég lát- in lesa kvæði 1. maí,“ segir hún. „Svo hef ég verið í kvenfélagi, Heimaey, það eru burtfluttar kon- ur, þar hef ég oft komið fram, nú, ég var í Bandalagi kvenna í mörg ár. Þá fórum við á milli dvalarheim- ila í borginni og sungum og döns- uðum fyrir fólkið og lásum og lék- um.“ Hún byrjaði svo ekki að leika að neinu ráði fyrr en hún byrjaði í Snúði og Snældu. „Ég byrjaði þar 1997,“ segir hún og Grétar tekur við: „Þar sem ég er fæddur og upp- alinn, á Flateyri, voru haldnar skólaskemmtanir og þar var séð til þess að allir hefðu eitthvað að gera. Þar byrjaði ég nú eiginlega að leika. Ef ekki var hægt að finna sýningar við hæfi var einfaldlega samið það sem upp á vantaði,“ segir hann með glettnislegt blik í auga. „Síðan var ég ekkert í leiklist fyrr en ég bjó á Ísafirði um tíma, þá var haft sam- band við mig af því að það vantaði Pál postula. Ég hef nú oft sagt það að í sambandi við leikhúsið hafi ég farið allt frá því að vera guðsmaður til kaupmanns og alla leið niður í morðingja,“ segir hann og bætir síðan við á lágu nótunum, „já, það er nú eins og það er,“ en heldur svo áfram: „Svo eftir að ég kom hingað suður lék ég með Leikfélagi Mos- fellssveitar og hef verið þar alla tíð síðan. Ég byrjaði að leika með Snúði og Snældu í fyrra,“ segir hann og bætir við að honum hafi verið hleypt þar inn fyrir orð góðra manna. Hann hefur líka sungið með ýmsum kórum. Þolinmæðin uppmáluð Athygli vekur þegar farið er á sýningu hjá Snúði og Snældu hversu mikil gleði ríkir í húsinu. „Það er af því að við höfum svo gaman af þessu,“ segir Aðalheiður. „Við gerum þetta af lífi og sál.“ Blaðamaður læðir þó að þeirri spurningu hvort þetta verði aldrei of mikið. „Aldrei,“ segja þau einum rómi. „Maður er kannski misjafn- lega upplagður,“ bætir Aðalheiður við, „en nei, nei, maður reynir bara að standa sig og þetta er afskaplega gaman,“ leggur hún áherslu á. „Bara það að þurfa að setja sig inn í þær persónur sem maður er að leika hverju sinni,“ segir Grétar, „það skilur talsvert mikið eftir. Maður þarf að leita að karakternum og allt sem því fylgir, það er líka svo skemmtilegt.“ Bæði segja þau að þau hafi alla tíð verið afskaplega heppin með leikstjóra, Bjarna Ingvarsson. „Hann er þolinmæðin uppmáluð,“ segir Aðalheiður. „Það hlýtur oft að reyna á þolinmæðina hjá honum þegar hann er að reyna að troða þessu inn í hausinn á okkur.“ Grét- ar Snær tekur hjartanlega undir þetta. „Þetta er alveg rétt, það eru ekki allir leikstjórar sem hafa þessa þolinmæði til að bera.“ Þangað til í fyrra voru sýningar Snúðs og Snældu settar upp í hús- næði Félags eldri borgara í Glæsibæ. Þau Aðalheiður og Grétar eru að lokum spurð hvort ekki hafi verið viðbrigði að sýna í Iðnó eftir að hafa sýnt á gólfinu í Glæsibæ um árabil. „Það voru feikilega mikil við- brigði,“ segir Aðalheiður, „og ánægjulegt að komast á ekta leik- svið. Að ég tali nú ekki um þetta yndislega gamla hús líka.“ Sýnt er í Hveragerði einu sinni í viku og þau Aðalheiður og Grétar Snær nefna líka að þó að það sé talsvert mál að fara með sýninguna svona á milli sé mikil skemmtun fólgin í því að fara á milli í rútunni og segja að þá sé mikið hlegið. „Að fara saman öll í rútu til Hveragerðis gerir erfiðið við ferðina alveg þess virði,“ segir Grétar Snær og klykkir út með því að fólk kannski geri sér almennt ekki grein fyrir því hversu öflugt starf er unnið í leikfélaginu.  ÁHUGAMÁLIÐ | Leikfélag Félags eldri borgara sýnir Glæpi og góðverk í Iðnó Gera þetta af lífi og sál Það er handagangur í öskjunni við undirbúninginn. Átján manns taka þátt í sýningunni og meðalaldur þeirra sem vinna við hana er áttatíu og eitt ár. Morgunblaðið/Eggert Aðalheiður Sigurjónsdóttir og Grétar Snær Hjartarson leika stórt hlutverk í sýningu Félags eldri borgara í Iðnó, Glæpir og góðverk. Verkið Glæpir og góðverk er sýnt í Iðnó á sunnudögum kl. 14 og mið- vikudögum kl. 14. Leikfélagið Snúður og Snælda stendur í stórræðum þessa dagana og hefur sett upp nýja sýningu. Sigrún Ásmundar hitti tvo leikaranna, þau Aðalheiði Sig- urjónsdóttur og Grétar Snæ Hjartarson, og bað þau að segja aðeins frá sjálfum sér og leiklistinni. sia@mbl.is Daglegtlíf febrúar Þessi skenkur hefur þjón-að hlutverki altaris viðýmis tilefni í fjölskyld-unni,“ segir Soffía Gísla- dóttir um forláta skenk sem henni áskotnaðist fyrir margt löngu. Afi Soffíu, Eymundur Magn- ússon, var skipstjóri hjá Eim- skipafélagi Íslands á þeim tíma sem skenkurinn var fluttur til landsins. „Afi flutti hann heim, frá Danmörku eða Þýskalandi, það er ekki alveg ljóst hvort var,“ segir Soffía. „Síðan eru liðin um sjötíu ár og afi keypti hann not- aðan. Þannig að þessi mubla er á milli sjötíu og hundrað ára göm- ul.“ Mamma Soffíu, Katrín Ey- mundsdóttir, man aldrei eftir öðru en að skenkur þessi hafi verið á æskuheimilinu. „Mamma man eftir að hann hafi verið not- aður við skírnir, sem nokkurs konar altari. Í honum hafa verið geymdir sparidúkarnir og -stellið og hnífapörin. Hann er eiginlega sérhannaður fyrir þá hluti.“ Amma og afi Soffíu, Eymundur Magnússon og Þóra Árnadóttir, bjuggu alla tíð á Bárugötu 5 í Reykjavík. Þóra er dóttir séra Árna Þórarinssonar, prófasts á Snæfellsnesi, sem Þórbergur Þórðarson skrifaði frægar ævi- sögur um. Foreldrar Soffíu, Gísli Auðunsson læknir og Katrín Ey- mundsdóttir, fyrrverandi bæj- arfulltrúi, fluttust búferlum til Húsavíkur þegar Gísli fékk lækn- isstöðu þar á sjöunda áratugnum. „Þegar mamma og pabbi fluttu til Húsavíkur, úr lítilli tveggja her- bergja íbúð sem þau höfðu búið í á Bergþórugötunni, í risastórt læknishúsið á Húsavík ákvað amma að senda þennan skenk á eftir þeim svo að húsið væri nú ekki galtómt,“ segir Soffía og hún man þess vegna eftir skenkn- um á sínu æskuheimili á Húsavík alla tíð. „Ég man t.d. eftir einu brúðkaupi við skenkinn, bróðir mömmu gifti sig þar. Yngsta dótt- ir mín var líka skírð við hann, en þá var hann kominn í mitt hús.“ Foreldrar Soffíu höfðu á þeim tíma ákveðið að minnka við sig og Soffía var á sama tíma að stækka við sig húsnæðið. „Þá hentaði hann svo vel í okkar hús og hefur fylgt okkur síðan. Í rauninni er það þannig að það verður aldrei keypt hús í minni fjölskyldu nema skenkurinn passi inn í það, húsið verður að geta borið hann.“ Handsaumað áklæði á stólunum Stóllinn sem Soffía situr í er annar af tveimur rókókó-stólum sem Eymundur, afi Soffíu, flutti líka til landsins á skipstjórn- arárum sínum. „Þegar ég var í versló á níunda áratugnum bjó ég hjá ömmu á Bárugötunni. Þá var hún að sauma utan um þessa stóla sem var verið að gera upp á þeim tíma.“ Þegar Þóra, amma Soffíu, skipti upp búslóðinni sinni á efri árum átti systir Soffíu að fá annan stólinn og Soffía hinn. „Ég hef hins vegar alltaf geymt stól systur minnar og mun sjálfsagt gera það um ókomna tíð,“ segir Soffía. „Þessir tveir stólar eiga að vera saman.“ Hún hefur haft þá í sínum fórum nokkuð lengi. „Þeir fluttu með mér norður fyrir 10– 12 árum og ég hef haft þá síðan.“ Soffía býr núorðið á Akureyri þar sem hún er framkvæmda- stjóri Símenntunarmiðstöðvar Eyjafjarðar, Símey.  HLUTUR MEÐ SÖGU | Fluttur til landsins fyrir sjötíu árum Skenkur á óræðum aldri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Við skenkinn hafa börn verið skírð og pör gefin saman. Soffía Gísladóttir situr í stól sem amma hennar, Þóra Árnadóttir, handsaumaði áklæðið á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.