Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ BAUGSMÁL FRÉTTIR því að skjóta málinu til Mannréttinda- dómstólsins. 3. Samningsviðauki nr. 7, 4. gr. „Ne bis in idem“ 3. 1 Orðalag og umfang 4. gr. samningsviðauka nr. 7. 4 gr. Réttur til að vera ekki saksóttur eða refsað tvívegis „1 Enginn skal sæta lögsókn né refsingu að nýju í sakamáli innan lögsögu sama ríkis fyr- ir brot sem hann hefur þegar verið sýknaður af eða sakfelldur um með lokadómi sam- kvæmt lögum og sakamálaréttarfari viðkom- andi ríkis. 2 Ákvæði undanfarandi töluliðar skulu ekki vera því til fyrirstöðu að málið sé endur- upptekið í samræmi við lög og sakamálarétt- arfar viðkomandi ríkis ef fyrir hendi eru nýj- ar eða nýupplýstar staðreyndir, eða ef megingalli hefur verið á fyrri málsmeðferð sem gæti haft áhrif á niðurstöðu málsins. 3 Óheimilt er að víkja frá þessari grein með skírskotun til 15. gr. samningsins.“ Fátt er um fordæmi að því er varðar 4. gr. samningsviðauka nr. 7 við mannréttinda- sáttmálann. Þau fáu mál sem fyrir liggja gefa hins vegar tilefni til þess að ætla að sú grein eigi við um Baugsmálið. Til þess að greinin geti átt við þarf viðkomandi að hafa verið endanlega sýknaður eða sakfelldur. Því er gerð krafa að fyrir liggi „lokadómur“ í sakamáli. Ákvörðun á því hvað teljist „lokadómur“ í skilningi 4. gr. samningsviðauka nr. 7 er svipuð þeirri ákvörð- un sem greind er í smáatriðum hér að framan, og því er það niðurstaða okkar að frávísunina megi skoða sem lokadóm í skilningi grein- arinnar. Í Franz Fischer gegn Austurríki tók dóm- urinn fram að „4. gr. samningsviðauka nr. 7 takmarkast ekki við réttinn til að vera ekki refsað tvíveg- is heldur nær hún einnig til réttarins til að vera ekki saksóttur tvívegis.“ Í Nikitin-málinu kvað dómstóllinn upp þann úrskurð að ekki hefði verið brotið gegn 4. gr. samningsviðauka nr. 7. Í röksemdunum fyrir niðurstöðu sinni sagði dómurinn: „Dómurinn vekur athygli á því að beiðni rík- issaksóknara um stjórnvaldsendurskoðun á sýknudómnum hafði verið tekin fyrir af for- sætisnefndinni. Ákvörðun hennar á því stigi takmarkaðist við spurninguna um hvort heimila skyldi umbeðna stjórnvaldsend- urskoðun. Í ljósi málsatvika í fyrirliggjandi máli samþykkti forsætisnefndin ekki beiðn- ina um endurskoðun og lokadómurinn sem kveðinn var upp 17. apríl 2000 stóð. 41. Af því leiðir að umsækjandi var ekki „saksóttur aftur“ í skilningi 1. mgr. 4. grein- ar samningsviðauka nr. 7 í málsmeðferðinni þar sem forsætisnefnd hæstaréttar hafnaði beiðni saksóknara um stjórnvaldsend- urskoðun á áfrýjun umsækjanda.“ Baugsmálið sker sig frá Nikitin-málinu að því leyti að ríkissaksóknari er ekki að leita til sjálfstæðs og óvilhalls dómstóls eftir heimild til þess að leggja fram nýjar ákærur. Með öðrum orðum er ákvörðunin um það hvor þessi nýju eða breyttu ákærur verði lagðar fram gegn sakborningum alfarið á valdi ríkissaksóknara. Rétturinn reifaði síðan í Nikitin hvort sak- borningar væri „líklegur til þess að vera sak- sóttur að nýju“: „42. Dómstóllinn hefur jafnframt íhugað hvort umsækjandi hafi verið „líklegur til að vera saksóttur að nýju“ eins og hann stað- hæfði. Dómurinn vekur athygli á því að hefði beiðninni verið játað hefði forsætisnefndin þurft, skv. þáverandi 380. grein laga um meðferð refsimála, að velja annan kostinn sem nefndur er í 27. mgr. hér að framan. Mikilvægt atriði er að forsætisnefndin hafði ekki vald til að ákvarða að nýju um máls- ástæður í sömu málaferlum, heldur einungis að ákveða hvort samþykkja skyldi beiðni saksóknara. 43. Því virðist að möguleikinn á að endur- upptaka málið í þessu tilviki hefði verið of fjarlægur eða óbeinn til þess að um gæti ver- ið að ræða að „sæta lögsókn … að nýju“ í skilningi 1. mgr. 4. greinar Samningsviðauka nr. 7.“ Skv. okkar skilningi á Baugsmálinu og ís- lenskum lögum væri dómstólum frjálst skv. ís- lenskum lögum að taka afstöðu til málsástæðna í nýjum eða breyttum ákærum sem kynnu að vera lagðar fram gegn sakborningum. Þannig er möguleikinn á endurupptöku málsins eftir endurskoðun ekki eins fjarlægur í Baugsmál- inu og í Nikitin-málinu. Mikilvægt atriði er að í tilvitnuðum dómi gerði rétturinn greinarmun á endurupptöku máls að gengnum dómi og endurupptöku án þess að dómur hafi áður gengið, en í síð- arnefnda tilvikinu á 4. gr. samningsviðauka nr. 7 ekki við. „44. Þó að þau atriði sem rædd hafa verið í 40.–43. mgr. hér að framan nægi í sjálfu sér til að sýna fram á að stjórnvaldsend- urskoðun í þessu máli leiddi ekki til brots gegn 4. grein samningsviðauka nr. 7 vill dómurinn taka fram að fyrir hendi eru efnis- legar, og því mikilvægari, forsendur til þess að komast að sömu niðurstöðu. Dómurinn telur að grundvallaratriðið í þessu máli sé að stjórnvaldsendurskoðun hefði í engu falli getað leitt til tvítekningar sakamáls, í skiln- ingi 1. mgr. 4. gr. samningsviðauka nr. 7, af eftirfarandi ástæðum. 45. Dómurinn vekur athygli á að í 4. grein samningsviðauka nr. 7 er gerður skýr grein- armunur á nýrri saksókn eða réttarhöldum, sem eru bönnuð skv. 1. mgr. þeirrar greinar, og endurupptöku réttarhalda í undantekn- ingartilvikum, sem kveðið er á um í annarri málsgrein. Í 2. mgr. 4. gr. samningsviðauka nr. 7 er skýrt og greinilega gert ráð fyrir þeim möguleika að einstaklingur geti þurft að þola saksókn vegna sömu ákæruefna, í samræmi við lög og sakamálaréttarfar við- komandi ríkis, þegar mál er endurupptekið eftir að fram koma ný sönnunargögn eða megingalli á fyrri málsmeðferð uppgötvast. 46. Dómurinn tekur fram að rússnesk lög, sem í gildi voru á umræddum tíma, heim- iluðu að endurupptekið væri sakamál þar sem komist hafði verið að endanlegri nið- urstöðu á grunvelli nýrra eða nýupplýstra sönnunargagna eða megingalla. Sú máls- meðferð fellur augljóslega innan gildissviðs 2. mgr. 4. gr. samningsviðauka nr. 7. Hins vegar vekur dómurinn athygli á því að jafn- framt hafi kerfi verið við lýði sem heimilaði endurskoðun máls á grundvelli mistaka í dómsmeðferð bæði hvað varðar lagaleg at- riði og málsmeðferðina sjálfa. Umfjöllunar- efni slíkra málaferla yrðu eftir sem áður sama ákæran og réttmæti fyrri niðurstöðu um hana. Ef beiðnin væri veitt og málaferlin endurupptekin til frekari umfjöllunar yrðu endanleg áhrif stjórnsýsluendurskoðunar að fella úr gildi alla úrskurði sem þegar hefðu verið felldir af dómstólum og úrskurða um ákæruna með nýjum dómi. Að þessu leyti eru áhrif stjórnsýsluákvörðunar þau sömu og endurupptöku því að báðir þessir kostir eru framhald af fyrri málaferlum. Dómurinn kemst því að þeirri niðurstöðu að í skilningi meginreglunnar ne bis in idem megi líta á stjórnvaldsendurskoðun sem sérstaka teg- und endurupptöku sem falli innan gildissviðs 2. mgr. 4. greinar samningsviðauka nr. 7.“ Niðurstaða dómsins um að endurupptaka mála falli ekki undir gildissvið 4. gr. samnings- viðauka nr. 7 leiðir einnig af skýringarbókun við ákvæðið og tilmælum ráðherranefnd- arinnar nr. R(2002) 2. Af fyrirliggjandi gögnum er ekki ljóst hvort í íslenskum rétti sé gert ráð fyrir sambærilegum möguleika á að leggja fram í meginatriðum sömu ákærur á grundvelli mistaka varðandi lagaleg atriði eða málsmeðferð. Ef ekkert slíkt ákvæði er fyrir hendi í íslenskum rétti mundi endurskoðunin ekki standast kröfuna um „samræmi við lög“ skv. 4. gr. samningsviðauka nr. 7. Ef íslenskur réttur gerir hins vegar ráð fyrir möguleika á endurupptöku og endur- skoðun ákæruliðanna fellur undir slík ákvæði mundi beiting slíks valds varða 6. gr. og heild- arréttlæti sakamála, en gæti hins vegar ekki ráðið úrslitum við ákvörðun á því hvort um sé að ræða endurupptöku máls sem ekki hefur verið dæmt í eða „ný réttarhöld“. Í þessu tilviki mundi 4. gr. samningsviðauka nr. 7 ekki eiga við um Baugsmálið á þessu stigi. 3.2 Niðurstaða Skortur á fordæmum varðandi 4. gr. samn- ingsviðauka nr. 7 veldur því að erfitt er að meta hvort endurskoðunin feli í sér brot gegn rétt- indum sakborninga skv. gr. samningsviðauka nr. 7. Með hliðsjón af dóminum í Nikitin málinu er það hins vegar álit okkar, á grundvelli fyr- irliggjandi upplýsinga, að dómstóllinn mundi líkast til kjósa heldur að fjalla um Baugsmálið á grundvelli 6. gr. mannréttindasáttmálans, sem gefur dómstólnum víðara svigrúm til þess meta málið „í heild“. 1 Aðalmeðferð málsins fór fram dagana 20.–23. febrúar 2006 í Héraðsdómi Reykjavíkur. 2 Það vekur athygli okkar að stjórnvaldsendurskoðun skv. rússneskum lögum var umræðuefni á námsstefnu Evrópuráðsins fyrir háttsetta embættismenn 21.–22. febrúar 2005, þar sem meðal þátttakenda voru hátt- settir fulltrúar rússneskra yfirvalda og dómskerfisins. Virðingarfyllst, Tyge Trier Íslensk þýðing: Jón Skaptason, löggiltur skjalaþýðandi. Skagaströnd | Mjög vel sótt skrif- stofutækninámskeið stendur nú yf- ir á Skagaströnd því námskeiðið sitja 21 kona og tveir karlmenn. Það eru sveitarfélögin í Austur- Húnavatnssýslu sem halda nám- skeiðið ásamt Svæðisvinnumiðl- uninni á Blönduósi og stéttarfélög- unum á svæðinu. Námskeiðið er sett upp í sam- starfi við Farskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki en tvö sams- konar námskeið eru nú í gangi á Blönduósi og munu vera um 30 þátttakendur þar. Á námskeið- unum er meðal annars farið í und- irstöðuatriði í tölvunotkun ásamt ýmsum þáttum sem snúa að þjón- ustu, bókhaldi og reikningshaldi. Þessi mikli áhugi á skrif- stofutækni skýrist sennilega af því að á næstunni eru væntanleg all- mörg skrifstofustörf í Húnavatns- sýslur í sambandi við innheimtur bifreiðasekta og vegna ákvörð- unar félagsmálaráðherra um að færa umsýslu fæðingarorlofssjóðs norður. Er það mörgum fagnaðar- efni að nú skuli hrint í fram- kvæmd marglofuðum tilfærslum starfa út á land. Hafa margir haft á orði við fréttaritara að þetta sé hin eina byggðastefna sem eitt- hvert gagn er að. Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson Skemmtilegt Það var greinilega glatt á hjalla í tíma um sjálfstraust og samskipti hjá Ingileif Oddsdóttur náms- ráðgjafa frá fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki. Húnvetningar flykkjast á skrifstofutækninámskeið Eftir Ólaf Bernódusson HVE glöð er vor æska? er yf- irskrift ráðstefnu sem leikskóla- fulltrúar í Garðabæ, Mosfellsbæ, Reykjanesbæ og Seltjarnarnesbæ standa að í samvinnu við mennta- málaráðuneytið og Heimili og skóla á Grand hóteli í Reykjavík næstkomandi föstudag, 3. mars, kl. 9–13. Umfjöllunarefni ráðstefn- unnar verður staða barna í ís- lensku samfélagi í ljósi örra þjóð- félagsbreytinga sem átt hafa sér stað á sl. öld og hafa gjörbreytt uppvaxtarskilyrðum barna víða um heim. Meðal þeirra sem flytja stutt er- indi á ráðstefnunni eru Gunnar Hersveinn rithöfundur, Þorvaldur Karl Helgason biskupsritari, Björn Ingi Hrafnsson, formaður nefndar um stöðu íslensku fjöl- skyldunnar, Rannveig Rist, for- stjóri Alcan á Íslandi, Gústaf Adolf Skúlason frá Samtökum atvinnu- lífsins, Jón Torfi Jónsson prófess- or, Jóhanna Einarsdóttir og Guð- rún Helgadóttir rithöfundur. Pallborðsumræður verða í lokin undir stjórn Árna Sigfússonar, bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Jón- mundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, verður ráðstefnu- stjóri. Foreldrar, leikskólakennarar, grunnskólakennarar og aðrir starfsmenn í leik- og grunnskólum og sveitarstjórnarmenn eru hvattir til þátttöku segir í fréttatilkynn- ingu, en ráðstefnan er öllum opin. Skráning er hjá: www.congress.is. Staða barna í samfélaginu rædd á ráðstefnu ÝMSAR greinar eftir Jónas Jóns- son frá Hriflu eru komnar á sér- staka heimasíðu á netinu. Grein- arnar spanna tímabilið 1909 til 1935. Í greinunum fjallar Jónas um uppeldismál, skólamál, stjórn- mál og málefni samvinnuhreyf- inga. Jónas frá Hriflu var þekktur fyrir afgerandi afstöðu sína í þjóð- félagsmálum, en greinar hans voru ávallt skýrar og læsilegar, segir í fréttatilkynningu. Jónas var stofn- andi Samvinnuskólans, en þangað á Viðskiptahá- skólinn á Bifröst rætur sínar að rekja. Umsjónarmað- ur síðunnar er Ívar Jónsson, prófessor við Viðskiptaháskól- ann á Bifröst. Síðan er á netslóðinni http:// www.bifrost.is/de- fault.asp?sid_id=23342&tId=1_ Greinar eftir Jónas frá Hriflu á netið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.