Morgunblaðið - 28.02.2006, Qupperneq 47
ÞORRABLÓT Íslendingafélagsins í Chicago
var haldið fyrr í mánuðinum. Stefán Örn
Gunnlaugsson og Símon Hjaltalín spiluðu
fyrir fullu húsi en uppselt var á blótið í
fyrsta sinn í sögu félagsins. Blótið var haldið
í safni frænda vorra Svía í miðri Chicago-
borg en að sögn Einars Steinssonar, forseta
félagsins, er ljóst að finna verður stærri sal
næsta ár. Þorramaturinn kom frá Bautanum
á Akureyri og gerðu hákarl, hvalur, magáll
og norðlenska hangikjötið mikla lukku. Fé-
lagsmenn lögðu líka hönd á plóg og bökuðu
rúgbrauð og pönnukökur og steiktu kleinur.
Íslendingafélagið í Chicago er í miklum
blóma og meðal nýjunga í starfsemi félagsins
er árlegt golfmót, The Greater Chicago Ice-
landic Open, sem verður haldið hinn 12.
ágúst í ár.
Fólk | Þorrablót Íslendingafélagsins í Chicago
Fullt út úr dyrum á þorrablóti
Einar Steinsson forseti félagsins með yngstu gestunum Ágústu og Siggu. Þorrakórinn hélt uppi stuðinu á blótinu í Chicago.
EIN ATHYGLISVERÐASTA
MYND ÁRSINS
Óþekkustu
börn í heimi
hafa fengið
nýja barnfóstru
sem er ekki öll
þar sem hún
er séð.
ALLA FJÖLSKYLDUNA
F
U
NL.I.B.Topp5.is
M YKKUR HENTAR 400 KR.
Í BÍÓ
*
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
kl. 4 Ísl. tal - B.i. 10
DÖJ – kvikmyndir.com
VJV Topp5.is
Sýnd kl. 10
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
Kvikmyndir.com
Topp5.is
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
EIN ATHYGLIS-
VERÐASTA
MYND ÁRSINS
ÞEIR BUÐU STJÓRNVÖLDUM BYRGINN,
AÐEINS MEÐ SANNLEIKANN AÐ VOPNI
6TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNAÞ.á.m. besta mynd, besti leikstjóri og besti leikari
Margverðlaunuð gæðamynd frá leikstjóranum George Clooney
sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda um allan heim.
Sími 553 2075 • www.laugarasbio.is
FÓR BEINT Á TOPPINN
Í BANDARÍKJUNUM!
SEXÍ, STÓRHÆTTULEG
OG ÓSTÖÐVANDI
GOLDEN GLOBE VERÐLAUN
BESTA LEIK-
KONA
ÁRSINS
walk the line
V.J.V Topp5.is
S.V. Mbl.
M.M.J Kvikmyndir.com
Epískt meistarverk frá Ang Lee
SVAKALEGUR
SPENNUTRYLLIR
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
Sími - 551 9000
Nýt t í b íó
Óþekkustu
börn í heimi
hafa fengið
nýja barnfóstru
sem er ekki öll
þar sem hún
er séð.
TÖFRANDI ÆVINTÝRAMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
V.J.V. / TOPP5.is
YFIRVOFANDI HÆTTA
OG SAMSÆRI
LÍF OKKAR ER Í HÖNDUM
TVEGGJA EINSTAKLINGA
RALPH FIENNES RACHEL WEISZ
Topp5.is
kvikmyndir.com
A.B. Blaðið S.K. / DV
„…listaverk, sannkölluð perla“
DÖJ – kvikmyndir.com
„..ótrúlega áhrifarík, minnisstæð
og örgrandi kvikmyndagerð.“
L.I.B. - topp5.is
HJ MBL
Blaðið
CAPOTE kl. 5.30, 8 og 10.20 B.I. 16 ÁRA
TRANSAMERICA kl. 5.45, 8 og 10.15 B.I. 14 ÁRA
WALK THE LINE kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
BROKEBACK MOUNTAIN kl. 6 og 9 B.I. 12 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2006 47
SHANDI Sullivan, sem margir
Íslendingar þekkja úr þátt-
unum America’s Next Top
Model, er væntanleg hingað til
Íslands og mun hún þeyta skíf-
um á Gauki á Stöng næsta
laugardag. Shandi hefur getið
sér gott orð sem plötusnúður í
New York meðfram fyr-
irsætustörfunum en þá leikur
hún aðallega tónlist frá níunda
áratugnum. Með Shandi verður
annar plötusnúður sem kallar
sig DJ Lord Easy og spilar hip
hop en svo verður líka tuttugu
manna karaokehópur með í för
sem kallar sig Karaoke Killed
the Cat og sérhæfir sig í vönd-
uðum karaoke-söng.
Eins og áður sagði hyggjast
Shandi og félagar halda uppi
fjörinu á Gauknum laugardag-
inn 4. mars og miðað við ofan-
greindar starfslýsingar má bú-
ast við forvitnilegu og
fjölbreyttu kvöldi.
Íslandsheimsóknin markar
upphaf Evrópuferðar þeirra, en
eftir að þau skemmta hér á Ís-
landi halda þau til London. Shandi Sullivan er margt til lista lagt.
Tónlist | Shandi Sullivan úr
America’s Next Top Model spilar á Gauknum
Prýðilegur
plötusnúður
Bandaríska dagblaðið The SeattleTimes spáir stuttmyndinni Our
Time is Up Óskarsverðlaununum fyrir
bestu stuttmynd ársins, að því er fram
kemur á fréttavef
blaðsins, en íslenska
stuttmyndin Síðasti
bærinn eftir Rúnar
Rúnarsson er einnig
tilnefnd til verð-
launanna. Í grein
blaðsins kemur fram að
eins og nafnið gefi til
kynna þurfi stutt-
myndir að koma boð-
skap sínum til skila á mjög stuttum tíma,
en Síðasti bærinn sé hins vegar dæmi
um stuttmynd sem hafi mikil áhrif á
áhorfandann á skömmum tíma, enda
gangi á ýmsu í myndinni. Segir í grein-
inni að myndin fjalli um þrjóskan bónda
sem hafi ákveðið að yfirgefa aldrei jörð-
ina sem hann býr á, eða konuna sem
hann elskar.
Óskarsverðlaunin verða afhent í Holly-
wood á sunnudaginn kemur, hinn 5.
mars, en Rúnar verður viðstaddur at-
höfnina ásamt framleiðanda Síðasta bæj-
arins, Þóri Snæ Sigurjónssyni. Aðalleik-
arinn Jón Sigurbjörnsson verður hins
vegar fjarri góðu gamni.
Fólk folk@mbl.is
RÉTTARHÖLD hófust í
gærmorgun í Lundúnum yfir
útgefanda Dans Browns,
höfundar skáldsögunnar Da
Vinci-lykillinn. Tveir höf-
undar, Michael Baigent og
Richard Leigh, sem skrifuðu
bókina Holy Blood and Holy
Grail árið 1982, fullyrða að
Brown hafi nýtt sér sögu-
þráð þeirrar bókar og hug-
myndir höfundanna þegar
hann skrifaði bók sína.
Baigent og Leigh stefna
útgáfufélaginu Random
House, sem gaf út báðar
bækurnar. Höfundarnir þrír
voru allir í réttarsalnum í
morgun þegar réttarhöldin
hófust.
Þeir Baigent og Leigh
vilja að sett verði lögbann á
að efni þeirra verði notað án
heimildar. Verði fallist á þá
kröfu gæti það haft áhrif á
sýningar kvikmyndar um Da
Vinci-lykilinn, sem á að
frumsýna 19. maí.
Báðar bækurnar byggjast
á þeirri kenningu, að Jesús
hafi kvænst Maríu Magða-
lenu. Þau hafi eignast son og
af þeim sé komin mikil ætt.
Fólk | Réttarhöld hafin yfir útgefanda Da Vinci-lykilsins
Reuters
Dan Brown mætir til réttarhaldanna í London.
Gæti haft áhrif á kvikmyndina