Morgunblaðið - 11.04.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 9
FRÉTTIR
HÓLASKÓLI fagnar því í ár að 900
ár eru liðin frá því að skólahald
hófst þar og til þess að minnast
þessara tímamóta hyggst skólinn
halda veglega ráðstefnu í lok mán-
aðarins um skólahald á Íslandi í
fortíð, nútíð og framtíð. Í tilkynn-
ingu frá skólanum segir að mikil
umræða eigi sér stað um skólamál í
samfélaginu og mikilvægt sé að
skoða bæði samtímaþróun og fram-
tíðarsýn í skólahaldi með hliðsjón
af því sem á undan er gengið og í
því tilliti megi meðal annars mikið
læra af sögu Hólaskóla. Rektorar
allra íslensku háskólanna munu
halda erindi á ráðstefnunni sem
fram fer 28.–29. apríl nk. Þá mun
menntamálaráðherra ávarpa ráð-
stefnuna.
Skúli Skúlason, rektor á Hólum,
segir að ráðstefnan sé fyrst og
fremst haldin til að fagna afmæli
skólahalds á Hólum. „Biskupsstól-
inn var settur hingað niður fyrir
900 árum og Jón Helgi Ögmund-
arson, biskup, kom frá námi í
Frakklandi og setti þetta allt af
stað, þar á meðal Hólaskóla,“ segir
Skúli og bætir við að til standi að
fanga afmælinu með ýmsum hætti
á árinu. „En okkur þótti mjög við
hæfi að minnast afmælisins líka
með því að taka til umfjöllunar
með nokkuð þungum hætti skóla-
sögu Íslands og upphaf þessa
skólahalds á Hólum og gerum því
ítarleg skil á þessari ráðstefnu,“
segir hann.
Staða háskólanna og framhalds-
skólanna verður sérstaklega tekin
fyrir á ráðstefnunni.
„Það er alveg ljóst að bæði á Ís-
landi og annars staðar í heiminum
á sér stað menntabylting. Ef við
tökum bara umræðuna um há-
skólana í dag er svo margt að tala
um, umræða um þekkingarsam-
félag og hvert við stefnum með ís-
lenska menningu og fleira slíkt.
Háskólarnir hafa verið að þjappa
sér saman í þessari umræðu, meira
en áður,“ segir Skúli og bætir við
að aukin umræða eigi sér stað milli
skólanna um þessi mál. Það megi
því búast við líflegum og gagn-
legum umræðum á ráðstefnunni.
Skólastefna rædd á 900
ára afmælisári Hólaskóla
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Fréttasíminn
904 1100
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 36-56
Full búð af
glæsilegum vörum
Póstsendum
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Vor 2006
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Flottir toppar
Höfum opnað á Laugavegi 44
Opið 10-18 virka daga, 11-15 laugardaga
Laugavegi 44 • Sími 561 4000 • www.diza.is
Ensk bómullarefni
Mikið úrval af bútasaumsefnum
Tilvalin í sumarbústaðinn eða í barnaherbergið
Mikið af dýramyndum
Mjúkt og fallegt handa fermingarbarninu
Fermingargjafir í miklu úrvali
KRINGLUNNI
Bómull - satín
RÚMFÖT 100% bómull - satín - silki - damask 20 gerðir á TILBOÐI
verð frá kr. 1.995.-
STÆRÐIR: 140X200cm - 140X220cm - 200X220cm
Verð frá kr. 2.995.-
Verð kr. 995.-
www.tk.is
Verð frá kr. 1.995.-
Verð frá kr. 4.990.-
Verð kr. 1.950.-