Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.05.2006, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAÍ 2006 19 MINNSTAÐUR Kópavogur | Tónlistarskólinn Tónsalir starfrækir í sumar tón- listartengd námskeið þar sem m.a. verður kennt á gítar, trommur og bassa. Námskeiðin eru ætluð byrjendum sem vilja kynnast hljóðfærunum í skemmti- legum hópi og undirbúa sig fyrir frekara nám í tónlist. Börn á aldrinum 7–14 ára eru velkomin á námskeiðin. Kennt er tvisvar í viku, í fjórar vikur í júní. Kennt verður í litlum hóp- um, 3–4 saman í hóp, en raðað er í hópa eftir aldri og færni. Þá stendur skólinn fyrir söng- og framkomunámskeiði og leik- listarnámskeiði, sem ætlað er börnum á aldrinum 7–12 ára. Markmið námskeiðanna er að auka sjálfstraust og losna við feimnispúkann í gegnum leik og nám. Á söng- og framkomunámskeið- inu er unnið með röddina þar sem kennd eru grunnatriðin í söng; öndun, raddbeiting, líkams- staða og meðferð texta. Söng og tjáningu er blandað saman með hreyfileikjum og tónlist úr ýms- um áttum. Á leiklistarnámskeið- inu er nemendum kennt að byggja upp þá hæfni sem leik- listin hefur upp á að bjóða eins og sjálfstraust, samskipti, fram- komu og þor. Námskeiðin standa í fimm daga þar sem kennt er virka morgna frá kl. 9–12, en boðið er upp á gæslu frá kl. átta gegn vægu gjaldi. Skráning á námskeiðin er á heimasíðu skólans, www.tonsal- ir.is, fyrir morgundaginn, 19. maí. Tónlistar-, söng- og leiklistarnámskeið fyrir börn HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Seltjarnarnes | Fimleikadeild Gróttu fagnar 20 ára afmæli í ár, og verða haldnar tvær fimleikasýningar af því tilefni í íþróttahúsi Seltjarnarness næstkomandi laugardag. Þar mun allt fimleikafólk Gróttu koma fram, auk fimleikamanna frá Gerplu og sirkusfólki frá Cirkus Circör í Svíþjóð. Fimleikadeildin hóf reyndar starfsemi haustið 1985, en deildin var formlega stofnuð 24. mars 1986. Á þeim 20 árum sem liðin eru hefur fjöldi iðkenda margfaldast, aðstaða batnað, góður árangur náðst og margir titlar komið í hús. Nú síðast varð Sif Pálsdóttir fyrst kvenna á Íslandi Norðurlandameistari í fjölþraut, og náði einnig 18. sæti á Evr- ópumeistaramótinu nú í vor. Sirkusfólk á fimleikasýningu Kópavogur | Þeir sem hafa átt leið um göngustíginn í Kópa- vogsdal undanfarna daga hafa eflaust tekið eftir heldur nýstár- legum vörðum sem marka leiðina milli Urðarbrautar og Hlíð- arhjalla. Mun ekki vera um það að ræða að bæjarfélagið ætli að hætta að viðhalda stígum, og láta fólk rata eftir vörðunum, heldur eru þessar nútímavörður listaverk barna í Grunnskólum Kópavogs. Börnin unnu verkin undir leiðsögn myndmennta- kennara, en allir grunnskólarnir í Kópavogi tóku þátt í að skapa þær. Nútímavörður vísa veginn um dalinn Seltjarnarnes | Gömlu skreiðar- hjallarnir sem prýtt hafa annesið vestast á Seltjarnarnesi svo lengi sem elstu menn muna voru end- urreistir á dögunum. Þetta fram- tak bæjarins hefur vakið nokkra athygli og mælst vel fyrir hjá mörgum, að sögn Jónmundar Guð- marssonar bæjarstjóra Seltjarn- arness. Myndlistarskólinn í Reykjavík fagnaði endurkomu hjallanna með því að setja þar upp listbúðir sem starfræktar verða í maí. Um 150 börn taka þátt í listbúðunum en við listsköpun munu þau vinna með efni úr fjörunni og það rými sem hjallarnir bjóða upp á. Um nokkur námskeið er að ræða og hefjast þau öll með degi í fjörunni við Gróttu þar sem skreiðarhallarnir eru skoðaðir og síðan notaðir sem útgangspunktur í vinnu barnanna. Vonir standa til þess að vinna Myndlistarskólans með arkitektúr sem útgangspunkt sé einungis upphafið að vinnu fleiri íslenskra grunnskólabarna í framtíðinni. Einnig er mögulegt að efni listbúðanna verði gefið út á bók sem áætlað er að komi út í tilefni 60 ára afmælis Myndlist- arskólans á næsta ári. Gömlu skreiðarhjall- arnir endurreistir ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.